Elín Helga Egilsdóttir
Matur er góður. Góður matur er guðdómlegur. Fjölskyldunni minni þykir matur góður og okkur þykir skemmtilegt að snæða saman.
Það er hinsvegar hægt að fara yfirum í matarástinni og stundum skilar það sér í nokkrum auka kílóum og of þröngum buxum. Síðastliðin tvö ár hef ég verið í og með að stunda líkamsrækt með misjöfnum árangri. Virtist vera í hvert skipti sem ég var komin eitthvað áleiðis, þá hvarf allur vilji og metnaður og ég datt ofan í nammipokann. Eftir að ég kom heim frá Frakklandi síðastliðið haust, eftir mikið og feitt átfrí, þurfti ekki meira en að líta í spegil. Svona vildi ég ekki vera. Pantaði mér tíma í einkaþjálfun, tók matarræðið mitt 150% í gegn, setti mér markmið og náði því. Upp úr því jókst áhugi minn á því sem ég set ofan í mig, allri hreyfingu og heilbrigðu og hollu líferni.
Hugarfarið skiptir mestu máli í öllu þessu róti!
Í dag er ég tæpum 20 kílóum léttari og held mig við 60 kílóa markið. Mér líkar það vel. Stundum er ég meira, stundum er ég minna. Ég elska að hreyfa mig og fara í ræktina. Ég lyfti mikið og reyni að finna mér hreyfingu sem mér finnst skemmtileg. Þetta blogg er ekki í neinni merkingu orðsins "Megrunarblogg". Ég trúi ekki á skyndilausnir og ég trúi ekki á megrunarkúra! Ég trúi hinsvegar á hollt matarræði sem fær skrokkinn til að blómstra. Ef þú borðar þegar hungrið segir til sín og hvílir þig þegar skrokkurinn þarf á hvíld að halda, þá get ég lofað því að kílóin fara að fjúka ef matarræðið er réttu megin við línuna.
Ég elska að borða og að geta útbúið hollan, góðan og næringarríkan mat á stuttum tíma er mikil áskorun fyrir mig. Sem gerir ferlið bara meira spennandi og skemmtilegt. Það er gott að bíta í góða súkkulaðiköku eða heitar pönnukökur. Það er gott að borða sykur en athugið, það er gott í þessar 15 sek á meðan verið erð að tyggja bitann.
Ég er mikill sykursnúður. Mér þykir æðislegt að fá mér sætan bita eftir máltíð og á mjög erfitt með að sleppa því. Þar af leiðandi, þegar sykurþörfin kallar, reyni ég að útbúa snakk/snarl sem er í senn sætt en þó það hollt að hægt sé að borða það í hádegismat með góðri samvisku. Samviskubit er fyrir kjána - ef þú vilt borða súkkulaðikökuna þá borðar þú súkkulaðikökuna og heldur svo áfram að borða hollt og hreyfa þig eins og venjulega. En er ekki betra að bíta í eitthvað sætt ef þú veist að það er "gott" fyrir skrokkinn í leiðinni? Fáðu þér döðlur, fíkjur, rúsínur. Búðu þér til hafrakökur með banana - finndu þér sykurinn á öðrum stað en í t.d. nammiformi! Undirrituð gat það - þú getur það líka!
Með þessu bloggi er ég í senn að halda utan um uppskriftir sem ég tel góðar og reyna að koma góðum hugmyndum að hjá fólki sem er í sömu sporum og ég. Ég er enginn meistarakokkur eða ofurbakari. Það sjáið þið sjálf. Þetta er áunninn áhugi sem skaut upp kollinum hjá mér í takt við þá hreyfingu sem ég stunda - enda lítur maturinn út eins og fyrsta klasa heimilismall!
Að lokum vona ég að þið njótið góðs af þeim myndum og uppskriftum sem ég set hérna inn. Gangi ykkur vel í ykkar ferðalagi að heilbrigðari lífstíl, ef það er planið, og vonandi finnið þið ykkur jafn vel í þessum pakka eins og ég :)
GRAUTUR - BEZT Í HEIMI
Peru og epla með valhnetum og kókos
Döðlur, gráfíkjur, möndlur og múskat
Banani, pera, létt AB-mjólk og hörfræ
Sætu kartöflu grautur með kanil
Hafragrautur ríka mannsins - hráskinka, camembert, melóna og döðlur
Skyrgrautur með granola stöng, banana, sultu og hnetusmjöri
Salsa hafragrautur með ostsneið, eggi og tómötum
Pumpkin Pie hafragrautur með valhnetum, súkkulaði- og butterscotch bitum
Múslígrautur með granola stöng, súkkulaðibitum og sprauturjóma
Bruscettu grautur með ólífum og eggi
Kaffigrautur með mjólkurfroðu, kanil og möndlum
Hræringur - útbúinn með eggjahvítum.
Kryddaður te-hræringur - ekki ósvipað kryddköku
HAFRAPÖNNSUR/KLATTAR/KÖKUR...
Hafrakaka - þarf ekki að baka/elda
Hafra- og graskers eggjahvítupönnsa
Hafra- og eggjahvítupönnsa með hafragraut
Bláberjafyllt hafra- og eggjahvítupönnsa að hætti Dexter
Ofnbakaður hafragrautur með banana og eplum
iGAUTUR(hafgragrautsgrunnur geymdur í ísskáp yfir nótt og gumsi bætt við daginn eftir)
Chiaskyrgrautur með ávöxtum, múslí og heslihnetum
Einfaldur chiagrautur með vanillu, berjum og berjasafa
Sítrónugrautur með omega3 lýsi, skyri, berjum og möndlum - ææðislegur. Ferskur og fínn.
iChiagrautur með kotasælu og bláberjum
SIB (smoothie í skál) - næstbezt í heimi
Banana og spínat prótein ís - betra en það hljómar
Banana og mango ís með berjablandi
Jarðaberja og prótein ís með mango og múslí
Blandaður berja og prótein ís með múslí og hnetusmjöri
Gulur ís, banana og mango smooth-ís með hörfræjum
ÍS
Banana soft serve - frosnir maukaðir bananar, ekkert annað. Ótrúlega gott!
MORGUN-/HÁDEGISMATUR
Bananapönnsur með hnetusmjörs-súkkulaði snúning
Banana og mango drykkur með hörfæjum
Prótein pönnukaka með bananasneiðum, múslí og heimagerðu möndlusmjöri
Prótein pönnukaka með banana, kanilstráðum eplum, hörfræjum og valhnetum
Havre fras skyrklessa - áferðargleði fyrir mig
Chia sítrónuskyr með omega3 sítrónu lýsi og muldum hörfræjum ferskt og gott
Valdorfskyr með Chia og bláberjum
HÁDEGIS OG/EÐA KVÖLDMATUR
Fiðurfé
Kalkúnahamborgari með sætu kartöflu frönskum
Hunangs dijon kalkúnahamborgari
Grillaðar fylltar paprikur með kjúkling, grænmeti og quinoa
Marbella kjúklingaréttur - mikið gúmmulaði
Marakóskur kjúklingaréttur - of góður!
Kanil og döðlu kjúklingur með ólívum og möndlu Dukkah
Balsamik kjúlli með timian, rauðlauk og möndlum
Gómsæt graskers kjúklinga kássa- kemur á óvart
Eggjahvítu prótein 'tortilla' fyllt með krydduðu ofnbökuðu grænmeti og kjúkling
Ferskt sumarlegt kjúklingasalat
Fiskmeti
Sætu kartöflu og túnfisk klattar
Risa hörpudiskur með bananaskyrsósu
Hachala, arabískur þorskréttur
Risarækjur í hunangs-chilli kryddlegi
Pestó rækjur með ferskum tómötum og basil
Quinoa og jalapeno rækjuréttur vafinn inn í kálblað - STERKT
Reyktur lax með avocado mauki, krumpueggi og möndlum
Eggjahvítukaka með marineruðum laxasneiðum, capers, rauðlauk og rjómaosti
Kryddaður rækjuréttur með steiktum brúnum grjónum og grænum baunum - virkilega gott
Ferskt, kalt, mango og avocado humar salat
Egg
Eggjahvítu eggjakaka með hummus
Eggjahvítukaka með marineruðum laxasneiðum, capers, rauðlauk og rjómaosti
Eggjahvítu prótein 'tortilla' fyllt með krydduðu ofnbökuðu grænmeti og kjúkling
Rautt kjöt
Bolognese hambó - tryllingslega góður
Roastbeef réttur með steiktu grænmeti
Einfaldur og fljótlegur roastbeef hrísgrjónaréttur - olíulaus
Bolognese kjötsósa með kanil, cumin og kóríander
Hvítkálshakk réttur - betra en það hljómar/kolvetnasnautt
Annað
Hafra- og sætu kartöflu Gnocchi
Hráskinku qesadilla með cantaloupe melónu, ferskum döðlum og möndlum
Portobella pizzaHýðishrísgrjón með kotasælu, eplum og hunangi. Einfaldur og fljótlegur hádegismatur.
Perusamloka með avocado, hnetum, kapers og alfa alfa - létt og gott
SÚPUR
Kæld mango súpa, rosalega fersk og góð
Æðisleg tær grænmetis soðsúpa - stútfull af þínu uppáhalds grænmeti
Létt og góð grænmetis og kjúklingasúpa
MEÐLÆTI - Með læti?
Salat
Brokkolísalat, æðislegt og ferskt
Ferskt sumarlegt kjúklingasalat
Ferskt, kalt, mango og avocado humar salat
Byggsalat með sólþurrkuðum- og ferskum tómötum, ólívum, fetaosti og möndlum
Einfalt og fljótlegt kjúklingabaunasalat - líka hægt að nota í hádegis/kvöldmat
Sósur
Þykjustunni bolognese sósa - holl og bragðgóð
Berja-balsamic sýróp - gott út á graut, skyr, upp í munn!
VIÐBIT
Prótein
Próteinstangir - þarf ekki að baka
Prótein bygg-grautur. Næsti bær við grjónagraut.
Jarða- og hindberjabland með hnetusmjörs prótein búðing
Hnetusmjörsblandaður prótein búðingur
Vanillu og rommdropabætt prótein með kanilristuðum möndlum
Cheerios prótein muffins - eftir æfingu
Granola stangir/hafraklattar
Granola stangir - uppáhald margra
Hafraklattar sem ekki þarf að baka - þéttir og góðir
Hnetusmjör/möndlusmjör
Mjög gott möndlusmjör með kanil og hunangi
Snakk/nammi
Sweet'n'spicy hnetu- og fræblanda
Kókoskúlur - geggjaðar
Banana og döðlu flatbrauð með möndlum og sítrónuberki
Annað
BAKSTUR OG BAKKELSI Í HOLLARI KANNTINUM
Brauð
Heilhveiti graskersbrauð, þétt í sér og djúsí
Olíu- og mjólkurlaust banana speltbrauð með bláberjum - mjúkt og djúsí
Kökur
Hollari súkkulaðikaka - mjög góð
Hollustukaka sem ekki þarf að baka. Hrákaka.
Eplabökukrums með pecan-speltbotni - virkilega ljúffengt
Smákökur
Hafra- og banana súkkulaðibita smákökur
Heilhveiti smákökur með hnetum og döðlum
Súkkulaðibitakökur: Hafra- og heilhveiti
G'day bitar - hafrar/bananar/chia/döðlur
Heilhveiti og hafra möndlukökur
Muffins
Heilhveiti pistasíu muffins - virkilega góðar
Glútenlausar súkkulaði muffins - geggjaðar
ÓHOLLT EN HOLLT FYRIR SÁLINA
Kökur/Bökur
Franska súkkulaðikakan hennar mömmu - klikkar aldrei
Epla og kramellusprengja, uppáhalds eplakrumsið mitt
Ostakökur
Marzipan mascarpone ostakaka með súkkulaðisósu
Pumpkin-pie ostakaka með karamellusósu
Vanillu mascarpone ostakaka með möndlubotni
Smákökur
Æðislegar þunnar hafrakökur. Stökkar í kanntana, mjúkar að innan og karamellukenndar.
Súkkulaði-brownie smákökur með hvítum- og dökkum súkkulaðibitum
Mjúkar piparkökur með hvítum súkkulaði og butterscotch bitumHafra- og súkkulaðibitasmákökur - seigar/EGGJALAUSAR
Konfekt
Oreo trufflur með rjómaosti og hvítu súkkulaði
Snjóboltar - kókoskúlur - karamellukenndir með stökka skorpu
Annað
Mömmupönnsur - bestu pönnukökur í heimi
Pecan-pie stangir - karamellusprengjur fyrir allan peninginn
Möndlu biscotti með súkkulaði og rúsínum
Mjúkar Saltkringlur - geggjaðar
Nammi
FRÓLEIKUR - SPÖGÚLERÍNGAR - SPÆLINGAR - EITTHVAÐ ALLT ANNAÐ
NOHM
Hvað er hægt að gera við graut/hafra?
Hvað er hægt að gera við prótein?
Hvað er hægt að nota í staðinn fyrir smjör-/olíu í bakstri?
ÁTVAGLIÐ
Farið yfir árið 2009
Farið yfir árið 2010
ELLA LLAMA
Breytt hugsun varðandi mat/heilsu/æfingar
Útlisbreyting ekki besti mælikvarðinn
Uppáhalds óþolandi staðir á búknum
ANNAÐ
Séð og heyrt - gaman að þessu.
Spurningum svarað - spurningar sem mér hafa borist :)
HEIMAÆFINGAR - UNNIÐ MEÐ EIGIN ÞYNGD
18 mínútna interval. Miðja, læri, þríhöfði, þol