Grautur dagsins

Grautur með sætri kartöflu, banana, rúslum og múslí blandi!

Þessi var mergjaðslega fínnn! 

Sæt kartafla, bananar, rúslur, hnetur og múslí.

1,5 dl sæt kartafla, soðin og stöppuð

1 dl grófir hafrar

1/2 msk kanill, eftir smekk

1 skeið vanillu prótein duft

1/2 niðurskorinn banani

1 msk All-bran

1 tsk hörfræ

1 msk rúsínur

1 msk valhnetur 

1 tsk kotasæla 

Half way there!

Sjóða kartöfluna og stappa í spað. Sjóða niður hafrana með rúmlega dl af vatni, kanil og vanillupróteini. Setja kartöflumúsina og grautinn í skál og hræra smá saman ef vill. Yfir grautinn setja banana, All-bran, hörfræ, rúsínur, valhnetur og hafa kotasælu í skeiðinni.

Hafrar hollir, sætar kartöflur fullar af vítamínum, prótein smótein, omega-3 og holl fita úr hörfræjum og hnetum. Crunch úr All-bran, hnetum, fræjum - sætleiki úr kartöflu, próteini og rúsínum og smá selta og ostagleði með kotasælunni. Perfecto! 

Óóó já - orkugrautur og eitur fínn hádegismatur! Þetta er flundrandi massív byrjun á deginum! I LOVIT!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband