Síðast þegar ég vissi, þá var janúar 2011

Ég segi það satt og skrifa.

Nýárspistill, 17. janúar pistill, samantekt, hvað varstu að gera árið 2011, hoj hoj hoj! 

Á morgun segir sá lati og lætur í sér heyra tveimur vikum síðar.

Látum vaða.

  • Euan minn kæri kom til landsins í janúar í fyrra
euan
  • Við Euan giftum okkur, á landinu, í fyrra. Ég geng hérmeð undir nafninu "Frú Átvagl".
Hressleiki
  • Við græjuðum þetta í gallabuxum og lopapeysu og fengum okkur svo bakkelsi og kleinur eftirá. Það var æði!
ellaeuan
  • Sökum hins ágæta titils var ég að sjálfsögðu, lögum samkvæmt, tekin og tolleruð eftir kúnstarinnar reglum!
goose
 
goose3
  • Tolleruð af þessum yndislegu æðislegustuðustu bestuðustu manneskjum
goose2
 
 - GUÐRÚN HREFNA... ég mælist til þess að þú látir hárið þitt af hendi og lánir mér nokkra lokka. Takk.
 
sætubínur
 
dossa
 
  • Fluttist aftur í Garðabæinn góða.
- Nei, það er ekki alveg jafn ógeðslega mikið drasl hérna núna. Næstum því kannski ekki alveg.
 
Flutnngar extraordinaire
  • Glænýr yndislegur frændi bættist við famelíuna. Ísak Smárinn minn.
frændi
  • Ég skipti um vinnu og er nú orðinn allkátur Mentorari. Við hlutum meðal annars Nýsköpunarverðlaunin 2011. *mont smont*
- Hér ku vera útsýnið úr nýju vinnunni. Það er alls ekki slæmt.
 
uts
  • Borðaði minn fyrsta Brynjuís og heimstótti þar af leiðandi Akureyri í fyrsta skipti með Ernunni minni
  • Jebb, fyrsta skipti.
brynjuis
  • Uppgötvaði ostafylltar krakk-brauðstangir á Greifanum á Akureyri. Var svo sagt af Agli vini mínum að Wilsons væri með svipað. Ég át þar af leiðandi brauðstangir, stanslaust, í tvær vikur.
img_6481.jpg
  • Ég braut tána á mér í tvennt. Það var hressandi
- Mundu bara að klæða þig fallega í brækur en ekki með angana svamlandi í allar áttir eins og kolkrabbi í frístæl Techno-Rave sveiflu. Sérstaklega ekki þegar risarúmið sem þú fjárfestir í, viku áður, er hinumegin við hæðina. Rúm sem hægt er að spila fótbolta í... fótbolta gott fólk!

brotin baugtá á hægrafæti
  • Ég fékk mér tattú número úno. Fínu fallegu Gleym-mér-ei-arnar mínar. Mamma, pabbi og Svabbi. Svo mikil meining í'essu.
tattoo
  • Gataði mig pínkulítið meira. En ekki hvað.
gatasigtiDermal Anchors















  • Djöflaðist um landið slatta í poka, við misgóðar aðstæður

Snæfellsnes

euan and all that is man

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

planki 1Dramatík í eyjum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

joe

ahhh

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Euan og Bjössi Hraunfossar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

snjór

snjór

 

 

 

 

 

 

 

akureyri

gullfoss

 

 

 

 

 

 

 

geysirmmm

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

djúpalónsumar

 

 

 

 

 

 

 

 

picture_25.pngimg_5872.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

  •  Labbaði nokkrum sinnum upp Esjuna
esja

esjusteinn, 43,25 mín

  • Hjólaði eins og drýsildjöfull um allar trissur í sumar
hjólagleði
  • Fengum krúttlegan gest í heimsókn í boði mömmukisa fyrir stuttu
- Það tók rúmar 23 mínútur að fanga snúðinn, sem gengur nú undir nafninu Steingrímur. Hlaup, stökk og skopp komu í veg fyrir skjótan bardaga en smádýrið náðist að lokum, fangaður fagmannlega í teppi

mus
  • Árlegt vina Þeinksgiving kom og fór með þvílíkri át-troðslu að annaðeins hefur sjaldan sést... nema að sjálfsögðu öll hin árin sem þessi snilld hefur verið haldin. Fáir náðu andanum, flestöll vélindu vel full og einn tapaði auga.
  • Við skulum ekki hugsa um litlu börnin í Afríku núna.
tg
tg
tg
  • Árlegt Halogenpartý fjölskyldunnar haldið heilagt þar sem nýjum standard var náð í búningametnaði!
  • Ég smíðaði í tilefni þessa merka viðburðar múmíuköku ásamt afskorinni, frekar óhamingjusamri, hnetusmjörshendi!
halgo1
 
halo2
 
hendin
 
múmfey
  • Systir mín elskuleg snilldarinnar snærðfræðisnillingur útskrifaðist
  • Best <3
sv

útskriftarsvabba

  • Svo gerðum við ansi mikið af þessu... hér má sjá brota, brota... brota brota... brot?
karrýpicture_9_1131061.png

 

 

 

 

 

 

 

picture_10.png

picture_13_1131063.png

picture_14_1131064.png

 

 

 

 

 

 

 

picture_15_1131066.pngpicture_12_1131067.png

 

 

 

 

 

 

 

SUSHI

LASAGNAburger

 

 

 

 

 

 

 

 

picture_18_1131072.png

MEIRA KARRRRÝÝÝ

 

 

 

 

 

 

 

 LEMONTART

Þannig að gott fólk. Árið er liðið og var barasta ofurfínt. En ekki hvað?

Enn og aftur segi ég nú bara amen og með því fyrir öllum sem standa mér næst og jú, ég er sko eitt heppið átvagl! Veit ekki hvað ég gerði hefði ég ekki ættingja- og vinanetið mitt í fimm mínútna fjarlægð. Ég varð einnig þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast nýju, æðislegu fólki.

Ahhh já!

Ég hef flundurfína tilfinningu fyrir 2012 mín kæru. Það byrjar hið minnsta með talsverðum látum.

Í stuttu:

Á MORGUN - > London -> Ástralía -> Nýja Sjáland -> Ástralía -> Abu Dahbi -> London -> 25. febrúar

Jebb... let the fiest begin!

...

ÓÓMÆGODÉGERAÐFARATILNÝJASJÁLANDSOGÁSTRALÍUOGABUDHABIOGO

GOGNÝJASJÁLDANSOGMATUROGNÝTTOGÓMÆGOD!

**hopp** **hopp** **hopp**

Phewww. Afsakið.

Tapaði næstum kúlinu þarna.

Þangað til næst!

Friður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða ferð elskulegu Hr og Frú Grín, farið varlega og komið heim í/eða með yfirvikt!

*knús og elsk

Dossan (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 01:20

2 identicon

Djöf... töffari ertu!

Góða ferð og keep us posted. Þú ert alveg uppáhalds bloggarinn minn.

Magga (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 05:33

3 identicon

ahahaha :) ég hló svo mikið að lok þessarar færslu! :) þú ert svo skemmtilega frábær bloggari og bara gaman að lesa þetta yfirlit.

Berglind l(long time reader) (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 08:07

4 identicon

Elsku krúttsprengjufrænkudýr! Góða ferð, ég hugsa til þín með öfund og gleði í hjarta. Sveitadurgurinn kærastinn minn gerir slíkt hið sama, hann á enga ósk heitari en að fara til nýja sjálands.....ertu með stóra ferðatösku?

Froðfenglega góða ferð (þér er velkomið að stoppa í búdapest á leið heim)!

inam (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 11:36

5 identicon

vá viðburðarríkt ár og skemmtileg lesning eins og alltaf! Innilega til hamingju með giftinguna þína! :) Er svo fegin að þú sér komin aftur, vantaði skemmtilegu pistlana þína !! :)

Sylvía (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 20:22

6 identicon

Frú Ella  

Magnað ár hjá þér .... líkt og hjá mér ;) Alltaf svo gaman að lesa bloggin þín og tileinka sér öll skemmtilegu hugtökin þín og lífsgleði

Have fun á ferðalaginu og til lukku með manninn þinn :)

Hulda (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 09:30

7 identicon

... já og óóóóógeðslega FLOTTAR hrekkjavökuveitingar hjá þér ...... það er ekki að spyrja að því

Hulda (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 09:32

8 identicon

Innilega til lukku FRÚ Elín! :) mjöög skemmtilegur pistill og ánægð með að þú sért orðinn mentorari! :D nota þetta fyrirbæri mjög mikið í minni vinnu...

 en skemmtu þér ógó vel í úttlöndunum og viðurkenni það fúslega að ég öfunda þig bara alltof mikið! :D Hlakka til að sjá hvort þú finnur eitthvað meira sniðugt matarkyns eins og chia fræin frægu þegar þú komst frá OZ :)

Þórdis Oz (IP-tala skráð) 21.1.2012 kl. 11:35

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

& múzin heitir Zteingrímur!

*dæz*...

Steingrímur Helgason, 22.1.2012 kl. 01:21

10 identicon

Svo mikið takk fyrir að vera byrjuð að blogga aftur. Hafið það sem allra best:)

Fjóla (devoted reader) (IP-tala skráð) 23.1.2012 kl. 15:31

11 identicon

Eitt risa stórt knús á þig fröken snillingur!:)

Elín Lóa (IP-tala skráð) 23.1.2012 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband