Færsluflokkur: Matur og drykkur

Það er víst sól og blíða

Rigning hvað. 

Muaaaahahahahaaaaaa

Afrek.

Í minni bók það er... ója, mikið afrek.

Ég tók hjólarúnt í ræktina í morgun! Ha... gott fólk. Rigning. Ha... hjólaði.. ehh... eh??

  • Lýðurinn: *andköf*
  • Átvaglið: Mmyyes... takk... *hneigir sig*... hohoho... takk... *kóngaveif*

Þó svo um það bil allir, og amma hans, hjóli í vinnuna. Meira að segja að vetri til... á nagladekkjum, og þessi grátlega uppblásna monthrúga af hjólarúnti sem ég tók teljist vart ná að fylla upp í nös á amöbu (og ég efast líka um að þær séu með nasir), þá drattaðist rigningarletihaugurinn samt sem áður frammúr. Gúllaði:

"Banana souffle"

já ég sagði það

Banana... souffle

á tilraunastigi þó. Ætla að rækta þessa hugdettu örlítið áður en ég smelli henni á alheimsvefinn. En þetta var snilld. Ómynduð, fullétin snilld.

Ok, hvar var ég... já...

Drattaðist frammúr, gúllaði gulu hamingjuna, pakkaði mér vel og vandlega inn, jú, pakkning eftir veðri gott fólk. Þar liggur hundurinn grafinn, ormurinn á gullinu, lykillinn að ánægjulegri hjólastund. Er ég ekki sjúklega klár og hryllilega vel gefin?

Hverjum hefði dottið það í hug? Í alvöru? Fatnaður eftir veðri. Tók ekki nema 27 ár... rúmlega tæplega, að komast að þessu.

An að öllu gamni slepptu þá er veðrið svoddan hugarástand að annað eins væri helmingi of mikið fyrir Böðvar. Þetta var barasta með hressari hjólarúntum, þó svo ég hafi setið eftir með rennblautt ennið og votar tær. Reyndar á ég nú eftir að sjá mig hlunkast á fætur í milljón stiga gaddi, slyddu og 700 vindstigum þegar Aspasinn vill knúsa undirritaða á köldum vetrarmorgnum. En rigning er fyrsta skrefið í átt að slydduskít, nagladekkjum og afskiptum Aspas.

Batnandi hjólakvendum er best að lifa.

Ef allt fer á latasta veg þá kaupi ég mér bara mannhæðarháa hamstrakúlu, til að sporna við 66°Norður í trýnið, og velti mér, eða fýk, í vinnu að vetri til.

Helst í fréttum:

  • 04:55 - Bananadýrð í morgunsárið
  • 25 mínútna hjólatúr
  • 05:50 - Lappamyrðing upp á sitt besta
  • 07:00 - Hleðsla
  • 10 mínútna hjólatúr
  • 09:00 - Kaffi
  • 09:01 - Handfylli ber + hnetur + eggjahræra og 2 gúllaðar skyrskeiðar

Uss, þið verðið eiginlega bara að trúa mér. Þarf greinilega að fara að bæta í myndavélagleymskuna. Er komin með fráhvarfseinkenni á háu stigi. Vísifingur hægri handar kippist ósjálfrátt við þegar ég sé mat og vinstra augað lokast!

Viðstöddum til

  • Mikillar ánægju

eða

  • Allskostar ógleði, og stundum velgju

Það eru þó með dramatískari viðbrögðum!

Var annars að enda við að borða þetta fjall með fisk. Dýrð sé grænmeti í upphæðum.

Og sjávarfangi í... niður... lægðum... Pouty

salatfjall og fiskur

Föstudagur, það held ég nú.


Fettmúlar og þumallinn upp

Sjáið þið eitthvað mynstur hérna hjá undirritaðri?

Miðað við hvað ungfrúnni mislíkar fætur, þó helst tær og það fullorðnar og mikið notaðar/þroskaðar tær, þá er magnað hversu oft þær hafa ratað inn á bloggið blessað.

Ég ætti kannski að hafa áhyggjur af þessu.

Undirliggjandi tá-fetish?

Kannski ég komi út úr tá-skápnum á 300 km. hraða með *thumbs up" fyrr en varir??

Jah maður spyr sig!

Gleraugnaglensbuxur í sumarkuldanum

gúmfeysokkarnotalegt

ofursalatSkyrát á esjunni

Trader Joes... af hverju er þessi snilld ekki á Íslandi?Jebb - hann brást mér ekki

Virkileg gleði í svitabootcampfbaðigleðin að ná átavglshámarki

NammidagspeysaTilbúin

RæræræSveitt kvekendi

YÖÖÖAAAH.. hmm hmmtáfrelsi

Búin að koma mér fyrirljótfætur

Sveittjól - gúmfey


Morgnarnir eru bestir

04:50

Bleik skál full með banana- og kanilgraut.

Banana og kanilgrautur

Fallega skreytt með afgangs salthnetumulning og bláberjum, sem yfir nóttina, breyttust í rúsínur. Fallega skreytt... en samt... svo grá! Greyið.

Banana og kanilgrautur

Hefði ég nú aulast til að skera út á þetta svo gott sem banana og smá eplakrums þá væru þessar myndir gullfalega fínar.

Buxur gott fólk, síðmorgunbuxur og sokkar í stíl við grautarskálina. Planað, ráðlagt og skipulagt.

Eða þannig.

buxur í sumarkuldanumBanana og kanilgrautur

Átvaglið mundi sumé eftir kuldakasti síðustu myndatöku og fyrirhyggjusemin drap næstum græðgispúkann í morgun. En bara næstum... því buxurnar voru á röngunni og vasarnir stóðu út í loftið eins og eyrun á Guffa.

rangbuxur

En grauturinn var góður. Eins og alltaf yfirleitt.

Bananabiti extraordinaire skríður úr felum! Ekki svo viss um að honum hafi þótt það góð hugmynd 2 sek eftir að þessi mynd var tekin.

Bananabiti kemur úr felum

05:22 

Hjólað af stað í ræktarhýsi með aukahring og lúppu í ferhyrning.

Enganvegin umhugað um eigin öryggi, tók ég myndavélina og vídjóaði dásamlegheitin, á tvíhjólinu, í morgunsárið. Að stýra með einari, á hjóli, með myndavél, og tala við sjálfa sig í leiðinni án þess að taka kollhnís er... kannski... ekki... jafn stórkostlegt afrek og ég ætlaði mér að útlista.

Mmm... jebb.. gleymume'ssu!

Mikið, mikið.... miiikið sem ég elska að nýta morgnana í góðu veðri, kyrrð og blíðu.

Í miðjum hjólaklíðum hugsaði ég með mér af hverju í ósköpunum vindurinn næði að græta kvendið svona svakalega. Hvort hann væri viljandi að reyna að smokra sér bak við gleraugun til þess eins að vera með leiðindi.

Eftir 5 sekúndna vangaveltur, og vindbiturð, uppgötvaði ég þó, mér til mikillar aulahamingju, að glirnurnar hvíldu sig á höfðinu á mér. Húrra fyrir því.

10 stig, niðurávið, fyrir greindarvísitöluna og eggjaskurnleysið reyndar líka.

Eggjaskurn verandi ósýnilegi hjálmurinn sem situr á toppstykkinu!

En þrátt fyrir heimskulegheitin tel ég mig knúna til að segja ykkur frá þessu öllusaman... hví? Ég tók meira að segja mynd til sönnunar og gagns!

Gleraugnaglens

Hvaða hvati liggur hér að baki hef ég ekki hugmynd um en ég held ég skrái önnur 10 stig í kladdann hjá sjálfri mér fyrir vikið.

Niðurávið.

Sama útsýni og í fyrra, sami hringur. Með hið gullfallega, bláa, IKEA í baksýn.

Trúi ekki að það sé rétt svo tæplega ár síðan.

Ahhh

05:58

Handleggum formlega refsað.

Fyrir hvað munu þeir aldrei vita blessaðir.

07:00

Hleðsla gúffuð hratt og örugglega eftir æfingu.

Eftiræfinguhleðsla 

Hjólið mundað og þeyst á hraða ljóssins í vinnustöðvar þar sem sturtan var tækluð og einum gríðarlega vel metnum kaffi sporðrennt í góðra félaga hópi.

07:30

Morgunklúbburinn.

Ahh kaffi

Já, það eru greinilega allskonar klúbbar sem tilheyra ákveðnum tímum dags hér um slóðir og hádegissalatið bara í tveggja tíma fjarlægð.

*gleði*

Segið mér nú góða fólk, hvar kaupir maður sér almennilega eggjaskurn á höfuðið?


Hádegisvinnuát og elítufólk

Hádegismaturinn er einn af mínum uppáhalds uppáhalds mötum. Virkilega.

Ég hlakka alltaf til þess að setjast niður með hádegiselítunni minni, stundvíslega kl 10:46, og gúffa í mig risaskammt af salati. Flundurfersku og risastóru... salati.

Stundum með ábót, búbót, sokkabót, þokkabót.

Sokkabót er afskaplega óæskilegt til átu hinsvegar.

Eldhúselítan samanstendur yfirleitt af eldhússkvísunum mínum, Ernu og Þórunni, hnébeygju á Einari H. og Elínu H. Sem ku vera undirrituð.

Ernan mín og Þórunn mín

gleðin einar

Já, við borðum hádegismatinn okkar um 11 leitið.

Við hópinn hafa bæst nokkrir valinkunnir einstaklingar yfir mánaðanna rás. Snemmvaknarar og ræktarfrömuðir. Hjólagúbbar og Crossfit brjálæðingar.

Það er gleði.

Mikið sem eldhúskvendin eru nú frábærlega æðislegar samt. Maturinn, í orði, á ekki að byrja fyrr en 11:30. Eins og ég hef áður sagt. Dekur og meira dekur.

Typical ofur hádegismatur a la vinnan!

vinnusalatfjall

Vér elsku tómata

Fjóólublátt kál.

Fjólkál

Núna er hinsvegar margt að gerjast í loftinu og eftir mánuð eða svo kem ég til með að þurfa að fara með mitt eigið ofursalat í vinnuna. Nýju vinnuna. Jebb.

Það verður öðruvísi.

Tilraunir á hádegismatartilraunir ofan í nánustu sumarframtíð... ef sumarið lætur þá sjá sig blessað.

Ég kem til með að sakna elítunnar minnar all svaðalega. Það verður bara að segjast.

Tímarnir framundan eru þó hryllilega spennó og tilhlökkunin allverulega yfirgripsmikil!

Í þessum töluðu...

Möndluskyr

...epli gúffað í morgunsárið og Hámark um 14:00 leitið í dag.

Saffran í kvöld? Já, það gæti bara vel mögulega verið!

Játningum hérmeð lokið.

Sjáið svo bara hvað amma mín elsku besta bjó til fallega fínt hálsmen handa mér!Öööölsk á það!

Ömmuhálsfesti

Esjan á morgun?


Inn með trefjar, út með sykur

Amk ákveðna tegund af sykri! 

Ég varð fyrir svolitlu áfalli í gær.

Sparki í rassinn, vitundarhugljómunarofursjokki.

Þetta er eitthvað sem ég vissi alveg. Eitthvað sem flestallir vita en hugsa kannski ekki svo mikið út í.

1 kókdós = 1 bjórdós

Fyrir utan vímuna

Og við gefum börnunum okkar kók! Angry

Frúktósi, high fructose corn syrup. Eitur fyrir skrokkinn. Ég er seld. Búið að troða þessu í allan fjandann, afsakið orðbragðið. Brauð, gosdrykki, ávaxtasafa, barnamat (þurrmat)... barnamat gott fólk!!! Slekkur á leptíninu sem segir þér að þú sért saddur, sem þýðir að þú troddar óumflýjanlega meira þrátt fyrir að skrokkurinn sé löngu búinn að fá nóg. Jafn mikið eitur og alkóhól.

Sugar, the bitter truth fyrir þá sem hafa áhuga!

1, 2 og 3 mín kæru. Núna er tími til kominn að lesa vel á pakkningar, baka brauðin sín sjálfur og borða það sem móðir jörð hefur upp á að bjóða. Paleo matarræði, það sem hellisbúarnir settu ofan í sig. Grænmeti, ávextir, hnetur, kjöt. Trefjar og aftur trefjar. Lykilinn að góðri heilsu gott fólk.

Dramatík dagsins hérmeð lokið.

Þar sem undirrituð var svoleiðis uppfull af andlegri biturð og frúktósagremju, sá trefjaljósið margfalt, hélt dýrið uppá þessa vitrun með risaskál af iGraut skreyttum bláberjum, kanil og smávegis kaffisparki.

Góður dl. hafrar, 150 gr. eggjahvítur, 1/2 banani, vatn, örbylgja.

Einn einfladur með banana, bláberjum, kanil og kaffi

Kanill, kaffi, salt.

Einn einfladur með banana, bláberjum, kanil og kaffi

Bláber, ísskápur, einfalt, gott, skeranlegt, ákkúrat, fínt... og framvegis.

Myndataka fóru hálfpartinn út og á ská sökum morgunkulda. Græðgin var ívið sterk þegar augnlokin opnuðust, með smá ískri - það var frekar truflandi, og þegar andinn er slíkur eyðum við ekki 10 sek í að klæða okkur í almennilegar brækur.

skítakuldi, vondar brækur

Sokkarnir voru eina flíkin sem var í stíl við morgunkuldann.

gúmfeysokkar

Fór svo út að hjóla stundvíslega kl: 5:30. Tæklaði ræktina kl: 06:00, þar sem brjósti og baki var stútað, gúllaði Hleðslu á slaginu 06:58, beint upp á fákinn aftur og brunaði í vinnuna. 

Morgunkaffið yfirstaðið og núna er ég að súpa kanilte. Ahhhh!

Ég held ég þurfi, með sorg í hjarta, að endurskoða Torani neysluna gott fólk. Sykurlaust sýróp, það hlýtur að vera maðkur í mysunni...

...eða frúktósi.


Morgunsteypa

Tóm steypa.

Kannski ekki tóm.... og afskaplega bragðgóð. En næstum of mikið þykkildi fyrir þykkildisins smekk.

Sem gerist sjaldan.

Sagði samt næstum... næstum er næstum, það "er" ekki.

Afgangs skyr, 20 gr. hafrar, 1 tappi ómægod3 lýsi, Torani, 1 msk chia, vanilludropar og smá mjólk.

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Sítrónusafi + sítrónubörkur.

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Rúmlega tsk af hvoru þessara.

grautarbætarar

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

HRÆARA

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Og ísskápa.

Daginn eftir!!

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

HOHOOOOO.... þykkildi Hansson. Svoddan grjót að ég þurfti að bæta út í gvömsið smá auka skyri, og að sjálfsögðu möndlum fyrir knús og kram.

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Chiaskyrgrautur með sítrónu og möndlum

Steypuþykkildi eður ei, ég kvarta núll og borða með bros á vör því gumsið var ekkert nema ofur.

Ef þið viljið þynna þykkildið - bæta bara við smá vatni eða mjólk eða soja eða hot sauce...

...hvað? Ég hef ekki hugmynd um hvað kveikir á morgunverðarbjöllunum þínum!

Út, ekki seinna en núna!


Urð og grjót, upp í mót

Ekkert nema urð og grjót.

Grjót

Og smá gras.

esjugras

Og lækjarsrpænur!

esjulækur

Og drullusvað!

Eða, jah... uppþurrkað, þornað... ég var hið minnsta ekki að fara að standa í einum drullupollinum til til að ná af því mynd. Metnaðurinn er ekki svo geigvænlegur!

Amk ekki þegar maður er í skóm sem á er eitt stykki gat.

Það er verra.

Uppþurrkað esjudrullusvað

Vaknaði í morgun með Esjuna á heilanum.

Hafið þið tekið eftir mynstrinu? Átvalgið fær eitthvað á heilann og það skal fræmkvæma eigi síður en í fyrra... haust! Esjugöngur, hjólatúrar, hamborgaraát.... en vitið þó það mín kæru, trúið mér og treystið og allt sem eru fiðrildi, að ef þið fáið allt í einu dularfulla flugu í hausinn, fylgið henni eftir.

Fluga verandi hugmynd.

Þú veist, til vonar og vara... ef ske kynni að þú héldir að ég væri í raun að tala um flugu sem þú ættir að elta út um allt.

Nema... þú hafir vitað að fluga væri samlíking fyrir hugmynd en hafir áhuga á því að elta fluguna, það er, ef þú kemur til með að fá flugu í höfuðuð á einhverjum tímapunkti yfir ævina, og þér þyki þjóðráð að veita henni eftirför.

Sitt sýnist hverjum í þeim efnum!

En svo við tökum nú eitt hausflugudæmi:

  • Ykkur þykir tilhugsunin um almennt skokk og útivistarvesen hræðilegri en íbitinn appelsínubörkur eða hráar eggjahvítur!
  • En, þið vaknið einn daginn og hugsið "Djö... væri ég til í einn stuttan núna!"
  • Heii - ekkert svona dóninn þinn. Stuttan hlaupahring. Ha... já, ég veit vel hvað þú varst að hugsa!
  • Þið sitjið í dágóða stund og spáið í kostum og göllum þessarar hausflugu.
  • Þið sitjið dágóða stund í viðbót, og spáið í fleiri kosti og galla.
  • Þið reynið eflaust að finna fleiri galla en kosti.
  • Svo ákveðið þið að drattast á lappir og framkvæma.

Og það er ekkert nema snilldin einarsson. Þið hefðuð annars séð eftir þessum hamingjunnar Herkúles sem ákvað að bíta ykkur í afturendann þann daginn og gefa ykkur fítonskraft í eitthvað sem þið gerið annars afskaplega sjaldan.

Það er ljúf tilfinning.

Þannig að.

Fítons hausflugu Herkúles dagsins í dag var sumsé...

 

...Esjan!

Ahhh!

Eftir þrusuflotta fettmúlaæfingu í morgun var förinni heitið heim í próteinbeyglu. Hef ekki smjattað á svoleiðis kvikindi í allnokkurn tíma og æjiiii hvað gúmmulaðigrísinn ískraði af einskærri beygluhamingju.

Beyglur, eru Guðmunds beyglujöf til manna gott fólk. Þær eru jafn syndsamlegar og pylsu- eða kleinuhringjabrauð.

Sem ég gæti borðað allsbert í hvert mál *mmhmmm*

Allavega.

Sat heima í drykklanga stund og hugsaði upphátt um dagsins amstur.

  • Esjan
  • Gott veður
  • Of gott til að sitja inni
  • Of gott tll að djöflast eitthvað?
  • Nógu gott til að hengirúmast?
  • Of kalt?
  • Of kalt til að hengirúmast? Mmm.... já.
  • En nógu heitt til að djöflast eitthvað...
  • ...mmm...já!!
  • Eitthvað?
  • Ég þarf að þrífa bílinn
  • Esjan
  • En ég vaar að stúta á mér lærum og rassi
  • Fara í búðina
  • Esjan
  • Esjan
  • En lærin og rassinn
  • Esjan

Og þannig var nú það.

Aspasinn á 130 að Esjurótum og 43,25 mínútum síðar tók ég þessa mynd.

Eins og Tjörnin í Reykjavík heitir því framúrskarandi frumlega nafni, Tjörnin, þá hefur einhver ákveðið að benda gangandi Esjufarendum á það að hér sé um eitt stykki stein að ræða.

Steinn!

Ég mæli með því að einhver útbúi skilti sem á standi "Markús" eða "Friðrik".

esjusteinn, 43,25 mín

Og þessa...

Gleðiátvagl upp á Esju

...til minningar, og sönnunnar, um helvítis góða hugdettu bara, og já, ég þrammaði ein þarna upp eins og villimaður, frussandi og fnasandi.

Það var massagott.

Leiðin norður og niður innihélt skyr sem hvíldi sig í bakboka sem hvíldi sig svo á bakinu á mér.

Eins og mister 007 orðaði svo fallega:

"Shaken, not stirred"

Sem skyrið var svo sannarlega, eftir að hafa fengið að hlussast upp og niður í ofurbakpokanum.

Skyrát á esjunni

En ég hrærði í því eftirá. Því gott fólk, það þarf alltaf... að hræra!

HRÆÆRAAA!

*Mynd vandar sökum græðgi*

Geggjaður dagur. Meistaralega vel valið veður. (Segið þetta 10 sinnum hratt). Yndislegt útsýni.

Ísland... bezt í heiimiiiiii! *Frethænsnið springur úr grobbi*

Esjan

Esjan

Esjan

Esjan

Esjan

Ég held ég fái að finna fyrir þessum hamagangi á morgun. Jebb... ég held meira en að halda það bara.

Ég veit.

*stress*


Póstergelsa júróvisjón helgardjell

Helgin í smámáli og myndum.

Ég náði að pirra mig á póstinum! Ekki að það sé þess virði að pirra sig yfir... ekki það að eitthvað, hvað svo sem það er, sé þess virði að pirra sig yfir? Í alvöru?

Lífið er of stutt fyrir tilgangslausa pirringa. EN ég pirraði mig samt og já, ég tuða yfir því núna.

Ykkur til ævarandi hamingju geri ég ráð fyrir! Afsakið fyrirfram...

...en þegar... maður pantar sér eitt stykki svona glæsilega fínan rauðan miða.

engan fjölpóst

Þá vill maður ekki sjá póstkassann sinn gubbandi fréttablaði og Hagkaupsbæklingum! Onei

yfirfullur fjölpóstkassi

vaaarlega

Það fær pirrarann hið innra til að froðufella af einskærri gremju og ónotalegheitum og einhverju sem er ekki æskilegt svona dags daglega!

BLAARGH GLAARRRGAAFLARGH!

æl

HOKAYYY... þá er það búið!

Aafslappelsi, gott ét, gott fólk og ræktin tekin með trompi. Ahhh. Óskir um gott veður fóru bókstaflega út í... jah, veður og vind.

Veðrið var ágætt jú, en hitinn hefði mátt kyssa 15 gráður... eða hærra.

Mér hefði ekki mislíkað hærra!

Létum sjá okkur í bænum um helgina. Ótrúlegt afrek. Kolaportið fékk okkur í heimsókn þar sem ég keypti mér geypifín hjólagleraugu!

eðalgleraugu

Núna er bara hjálmurinn og eitt stykki lás eftir... jah, og almennilegt hjól, en þett er ágætis byrjun.

Koló og kaffi í desert. Mikið sem ég öölska kaffihús sem láta svo gott sem einn súkkulaðidropa fylgja sopanum.

kaffisopi

súkkulaðielsk

Ég fékk líka að borða rest af uppáhalds uppáhaldinu mínu.

Froða!

kaffifroða

nohm 

Kaffihúsalistaverkið sem vinkaði mér á veggnum var ánægjulegt með eindæmum.

fínerí

Röltum 10 skref til hægri og viti menn.

Kræst!

sjálfsagapróf

Látum sjálfsagann fá lítið verkefni í dag. Ha. Hvernig væri það?

Allskonar gleðilegt

ugyh

Nokkuð viss um að það hafi verið veðmálatíð hjá æðri máttarvöldum þennan daginn.

Eeeelíííín...... EEEEEELÍÍÍÍÍN.....

Brauðgrís

Brauðgrís

Fengum skrúðgöngu beint í æð.

Skrúðganga

Þar rákumst við á hana Rikke! Enn og aftur eitthvað sem gladdi mig óstjórnlega.

Rikke

Ekkert nema gleðin einar að hitta á yndislegt fólk þegar maður býst enganveginn við því.

Við tók smárölt og smá-át!

uppáhalds

Júróvisjón átt svo hug okkar allan að kveldi.

Nammihlaðborðið óx og dafnaði, jafnt og þétt frá 18:00 - 18:34. Eftir þann tíma óx það ekki nokkurn skapaðan hlut og var með öllu horfið um 21:00.

18:00

gleðin að ná átavglshámarki

18:17

Meiri nammihamingja

18:34

EL PERFECTO

Salatskurður og almennt fjas ásamt eldhúspilli og beikonáti í bland við æpandi júróvisjónfólk.

Amma sankaði að sér öllu því áfengi sem hún fann og sat á því eins og ormum á gulli....

...OOOORMUR Á GULLI GAMLA GEIT!

Amma gamla og bjórinn

Litla lús og stóra lús

eldhúsmellur

júróvisjóngleði

Smágrísir þurfa líka að borða!

Lítið fólk þarf líka mat

Kettir greinilega líka.

Kisar... þurf líka mat

Amma stal áfenginu, Valdimar stal ábreiðu litla stubbs og var nokkuð kátur með þýfið.

Afi horfir miklum girndaraugum á teppið... vona ég!

Valdri þreytti

fallegt fólk

valdísin sætarúsína

Grillmeistarinn pabbúla flúði vettvang og sat nokkuð sæll undir sólhlífinni og klappaði grilinu endrum og eins.

Aleinn í heiminum

Þrátt fyrir, að því er virtist, óstöðvandi úrhelli, breyttust þessar elskur...

ofurburgerar að verða til

...í þetta!

Hello my babies

Og bara svo allir séu með það á glimrandi tandurhreinu! Þá er hjemmelavet laukchutney og sveppabeikonhræringur algerlega... algerlega, ómissandi hamborgaraþættir!

Meðlæti

OG ÞETTA!

góðborgari

Að eilífu...

chomp

...amen!

hamborgaragleði

AHHH hvað hamborgarar eru góðir borgarar! Þó sérstaklega jevróvisjónmömmborgarar!

Að auki við góðborgara, megafröllur og meðlæti þá voru tvær T-bone steikur murkaðar.

Í orðsins fyllstu murkingu.

Death to a steak

Rjómi var samnefnari eftirréttanna sem ekki voru af verri sortinni.

Ooonei!

Khalúakrums og draumaterta. Það gerst varla betra... rjómi með rjóma og meiri rjóma ofan á rjóma?

rjómasprengjur

Sunnudagurinn var tekinn í þarfa afvötnun. Hann innihélt meðal annars Saffrankjúlla, skyr og möndlur í tonnatali.

Núna ætlar ungfúin að hjóla í ræktarhús, svitna smá, hjóla til baka og nota restina af kvöldinu í afslöppun og notalegheit.

Yfir og ú!


Hjól = Hjól?

Svo við höldum áfram með smávægilega stærðfræði þá komst ég að því að þrátt fyrir óhjákvæmilegan réttleika þessarar fullyrðingar

Hjól = Hjól

Þá er hjól bara ekkert það sama og hjól!

Ofurfrænka mín, og íþróttakvendi mikið, á eðalgræju sem ég fékk þau forréttindi að misnota síðustu helgi. Hafði svosum ekki mikið um hjólið að segja á þeim tímapunkti annað en að hjólagírinn yfirtók undirritaða og taktarnir svaðalegri en nokkrusinni fyrr.

Hjólið er líka pimpað fyrir íþróttaálfa og hreyfisjúklinga, útbúið bögglabera sem hægt er að festa á þartilgerða tösku sem svo er hægt að setja í gúmmulaði, síma, myndavél, tölvu og jafnvel lítinn hund, ef þannig liggur á. Hraða- og km mælir, sem hjálpar gleðipinnanum hið innra mikið til við að halda hraðanum sem hæstum, er í sjónlínu á stýrinu og brúsahaldari hvílir sig fallega á stellinu.

Að auki við öll nútíma þægindi ofurhjólsins fékk ég einnig að láni hjálm og hjólasólgleraugu mikil - jah, venjuleg sólgleraugu en þó þannig að þau skýli augunum fyrir vindi og... randaflugum...

...sem þarf, meðal annars, að setja stærðatakmarkanir á!

Það má því segja að ég hafi verið nokkuð vel búin og dekruð þegar ég ákvað að hjóla frá mér vit og rænu eftir 15 ára hjólahlé!

Ég innheimti lánsþýfið mitt í gær og hjólaði galvösk á dýrinu í vinnuna.

Afahjól

Lánsþýfi

Ekki misskilja. Þetta hjól er geypigott og fínt fyrir kvikindi eins og mig til að komast frá A til C en elsku, elsku bestu. Ef þið ætlið að leggja bílnum og nýta hjólið í hans stað...

...ekki reyna að "sleppa vel". Herre gud på himmelen!

Helsti munur sem ég finn á ofurhjólinu, og því sem ég er á núna, er að ég sit töluvert betur á því. Grindin er úr áli, sem gerir það léttara, og petala-armarnir eru "lengri".. eða hvað sem það svo kallast. Hvert stig er sumsé lengra, sem gerir verknaðinn sjálfan "að hjóla", auðveldari/þægilegri/mýkri. Stellið sjálft er stærra í sniðum, stýrið lengra, gírskiptingin betri og það eru demparar á því sem ja hérna hér, skipta Jóhannes frá Blúndu nokkuð meira máli en hann fyrst grunti.

Já... grunti!

Ég hefði kannski frekar átt að byrja á því að endurnýja kynni mín við hjólaheiminn á þjóflánaða hjólinu því núna er ég með óþrjótandi dekurhjólamaníu á heilanum og er að finna allskonar ástæður fyrir því að réttlæta massíf hjólakaup á næstu vikum.

Ég held ég sé að verða búin að sannfæra sjálfa mig... það tók um það bil 8 mínútur.

Þið sem eruð í sömu hugleiðingum og ég en hafið tekið þetta skrefinu lengra og ætlið að gerast atvinnuhjólarar.

  1. Kaupa gott hjól
  2. Kaupa hjól sem er nógu stórt fyrir hjólarann, of lítið/of stórt er no go
  3. Réttur útbúnaður er nauðsynlegur

Allt þetta gerir hjólatúrinn, og viljann til að nýta sitt eigið mannafl sem orku til að knýja sig áfram, mun, mun... mun skemmtilegri.

Þannig að gott fólk

Hjól != Hjól


AfmælisSvava, frararskjótar, gæludýr

Byrjum á byrjuninni 

AFMÆLISSVAVA!!!!!

20 ára þetta litla dýr.... litla... dýr.

Afmælis - Svövudýr

Til hamingju með daginn þinn snúður. Afmælisgrautur og Pavlova eru fyrirsjáanleg fyrirbæri í þinni nánustu framtíð. Heart

Hressileg lyftingaræfing tekin í morgun.

Stálsnið fyrir æfingu (Steel Cut Oats). Líta svolítið út eins og gömul kotasæla... en góðir voru þeir maður! Hvíldu sig í ísskáp yfir nótt, með skyri og vanillu, og tóku vel á móti undirritaðri í morgun.

Kanillinn lét sjá sig eftir fyrstu 4 bitana. 

Steel Cut Oats hamingja

Hleðsla eftir æfingu. Eiginlega bara af því það er einfalt að grípa í kvikindið og skúmma með í töskunni.

Labbaði líka í hús sportsins í morgun... og í vinnuna... og hlakka mikið til að labba heim úr vinnu líka.

Hlöðsla

Heilbrigðin svoleiðis skín út um ras.....ið á manni.

Afsakið orðbragðið og allt það.

Gleðilegt.

Hringdi í afa minn blessaðan í gær og fékk, með góðfúslegu leyfi, að ræna hans sérlega tvíhjóla fararskjóta. Er hann ekki yndislega fínn að lána mér gripinn? Sækj'ann sumsé á eftir.

Jú... jú það held ég nú.. hú.

Ég er samt barnabarn gott og kem til með að skila dýrinu á góðviðrisdögum þegar gamlinn vaknar, eins og undirrituð um daginn, með ofvirkt hjólablæti á heilanum.

Nú hefst því hjólatíð gott fólk. Sjáum hvort Aspasinn verði abbó. Aspasinn sem er svo fararskjóti fyrir laumufarþega af áttfættlingasortinni. Alveg magnað. Ég hverf frá grænu þrumunni í 20 mínútur og þegar ég læt sjá mig þar aftur er þessi skvísa búin að útbúa sér heimili.... og byrjuð að éta.

Laumugæludýr

Ekki svo ósvipað mér svona þegar ég hugsa um það!! Like!

Eins ömurlega óþolandi og mér þykja köngulær vera, þá kem ég til með að sætta mig við þetta gæludýr því hún var svo sæt að velja bílinn minn sem flet. Krúttið. Það er líka afsakpega vel metin rúða sem skýlir mér frá bölvítinu, því hún er nefnilega svo stór og hættuleg. Ég get þar af leiðandi fylgst með úr pínkulítilli fjarlægð þegar hún veiðir eitthvað sniðugt OG ég er búin að skýra hana.

Lúlú. Sjáum hvað hún tórir þarna lengi.

"OHM NOM NOM NOM"

Lúlú laumó

Svo við höldum áfram að tala um fararskjóta, jah, og gæludýr, þá kynni ég til leiks hálfbróður minn, í 13 ættlið... á ská... Jöfur ofurtöffara.

Kannski ég fái hann frekar lánaðan en hjólið? Þyrfi samt að lita hann grænan til að friða samviskuna.

Ekki svo góð hugmynd geri ég ráð fyrir.

Jöfri

Flottir feðgar verð ég að segja. Svakalega fallegur hesturinn. Líður ekki að löngu þangað til ég fer að spóka mig á baki, usss hvað ég hlakka til.

Pabbi... faðir minn kær, nú þarf að verða sér úti um annað hross. Hmm... ha...

Pabbi og Jöfri

Pabbi og Jöfri

Í hálfbróðurhúsi eiga líka heima tvö folöld. Sæturassar. Þannig er það nú bara.

tvibbar

Heimalingur og fjósaköttur með meiru. Þessi blessaður er með athyglissýki á háu stigi, þjáist af "Hér er ég" heilkenninu. Eltir mann út um allt og hleypur þetta handrið á enda án þess að blása úr nös.

Sjááið bara hvað hann er væminn og klístraður hahh! Ahh hvað kisur geta nú verið fínar :)

Me me me me

Ég komst ekki í þrektímann í gær - búúú, en á morgun. Á morgun gott fólk byrjar gleðin.

18:00 - 18:40, þetta verður gott sumar!

Jæja ljúfust. Hádegissalat í tveggja tíma fjarlægð. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband