Færsluflokkur: Hugleiðingar
16.11.2009 | 15:37
Nýtt plan - nýr matseðill
Fékk nýja planið frá Naglanum í dag. Harkan sjöhundruðogfimmtíu fram að jólum! Engir nammidagar gott fólk... engir nammidagar, en átdagar á fimmtudögum! Ekkert nema pasta, beyglur, kartöflur og með því. Æfingarplanið er svaðalegt. Mikið púl næstu 4 vikurnar get ég ykkur sagt.
Ohhh ég get ekki beðið. Að prófa nýjar æfingar er eins og að vera 5 ára og labba inn í nammibúð. Hamingja og gleði.
Matarplanið kallar á mikið af tilraunum og nýjum matarsamsetningum. Skyrgumsin góðu detta út. Á þó örugglega eftir að stelast í eitt og eitt gums inn á milli. Fagnaði nýju plani með síðasta skyrgumsinu í bili. Örbylgjaður banani, frosin hindber, möndlur og skyr. Ó svo gott.
Möndlurnar lituðust líka svo skemmtilega af berjunum. Hmm.. kannski ekki skemmtilega. Mandlan er eins og litlatá! Oj.. ég tek þetta til baka. Fölbleikar möndlur er ekkert til að dáðst af - en í þær má bíta af bestu lyst.
Nýr mánuður, nýtt plan, öðruvísi matur og jólin eru aaaaalveg að koma.
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.11.2009 | 16:08
Ég dreg enn andann
Og andinn... dregur mig?
Þá eru blessuð veikindin loksins búin. Loksins... 7, 9, 13! Mikil törn í snýtingum, almennum verkjum og vorkunn. En þetta hafðist á endanum. Ekkert merkilegt í matarmálum þessa vikuna en herre gud og María mey hvað ég hlakka til að fara í ræktina á morgun. Skrokkurinn á mér íkir og skríkir við þá tilhugsun. Magnað hvað rúst á matseðli og almennri heilsu gerir við kroppinn. Líka magnað hvað átvaglinu er nákvæmlega sama hvað ofan í skrokkinn fer þegar smá veikla hellist yfir. Allar heilagar reglur sem viðkoma matar-/æfingaprógrammi og almennu "heilsuáti" fjúka út fyrir lofthjúpinn og það sem hendi er næst er étið með mikilli áfergju. Sama hvort það sé epli eða pizzusneið! Þar af leiðandi verður svakalega gott, hressandi og hamingjusamt að komast í gírinn aftur.
Ég gerði reyndar veiklulega tilraun til að útbúa spelt súkkulaði-pecan bananabrauð í dag. Þetta kvikindi þarf svo sannarlega að betrumbæta áður en vottur af uppskrift dettur inn á þetta blogg. Reyndar afskaplega bragðbott, það vantar ekki - en áferðin. Ó elsku fólkið mitt... ógeðisáferð! Svolítið svipað og formkaka (jebb, þær eru ekki í uppáhaldi hjá mér).
Ekki nóg með það að brauðið sé þurrt og svolítið hart/stammt heldur lítur það út eins og blóðmör! Jæja, það myndi svosum líta út eins og blóðmör þó þetta væri fullkomnasta súkkulaði bananabrauð í heimi sökum litarins. Hmm... þarf líklegast meira af olíu/vökva á móti spelti og kakó. Reyni aftur.. og jafnvel einusinni enn áður en ofurbrauðið verður til.
Það gæti jafnvel verið að ég sé að æfa mig fyrir jólapakkann! Hver veit... hann verður æði. Smákökur, konfekt, karamellupopp, biscotti, smábrauð! Svo mörgu úr að velja
Ætla líka að nýta tækifærið og óska Dossunni minni og Valdanum alls sem er gott í heiminum og stórt knúst til ykkar (t-ið á að vera í knús(t), ég lofa)
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.10.2009 | 12:59
Ég borða í plastboxum
Undanfarið hef ég mætt með mitt eigið ét í vinnuna. Morgunmatinn borða ég yfirleitt heima, ef ég er að fara að lyfta, annars fylgir hann mér eins og traustur vinur, í tupperware, að vinnuborði þar sem hann er hamsaður með góðri lyst. Hádegismaturinn bíður svo eftir mér inn í vinnuískáp, í öðru tupperware, ásamt morgun- og síðdegis viðbitum, í enn öðrum plastílátunum, og að vinnudegi loknum held ég heim á leið með fullan poka af tómum plastboxum sem fyllast að nýju eftir kvöldmat.
Mörgum hryllir við þeirri hugsun að þurfa að standa í þessu en vitið þið hvað... þetta er ekki svo mikið mál. Sérstaklega þegar ferlið er komið upp í vana. Reyndar, ef ég á að segja alveg eins og er, þá þykir mér lúmskt gaman að pakka öllum mínum mat niður deginum áður, hafa þetta vel skipulagt og fínt. Þegar kemur að hlutum sem þessum þá er ég skipulagsfíkill af guðs náð og plumma ég mig því vel í þessu öllusaman. Röð og regla, nákvæmir matarskammtar og tilhökkun í plastpakka!
Hér er svo typical brot af því sem ég tek með mér í vinnuna, í boxi, áður en ég geri nokkurn skapaðan hlut við herlegheitin - eins og að bæta grænmeti við hádegismatinn. Einvörðungu til að gera hann fínan, fallegan og að sjálfsögðu myndvænan!
Morgunmatstörn
Með eftiræfingu-mat og án.
Hádegismatur og síðdegisbitinn
Á reyndar eftir að borða hnetusmjörspróteinberjablandið. Fyrsta skipti sem ég bý þetta gums til. Það verður mjög gaman að vera ég um þrjú leitið á eftir!
Palli: Hvað áttu mörg box eftir?
Elín: Eitt box.
Palli: Jöhs... kvöldmatur eftir tvo tíma!
Ég yrði án efa flottur Hobbiti! "Hvað með morgunmat? En morgndegismat? Hádegismat og kaffi? Seinna kaffi og kvöldmat ásamt seinni kvöldmat, kvöldnasli, kvöldnarti og te fyrir svefninn?"
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.10.2009 | 10:58
Hvað er árangur?
Engar myndir í þessum pistli mín kæru, bara spögúleríngar og spælingar.
Nú er 1,5 mánuður síðan ég byrjaði hjá Naglanum í þjálfun. Ég var búin að sitja í sama farinu í svolítinn tíma og langaði mikið til að hrista aðeins upp í hlutunum, breyta til og prófa eitthvað nýtt. Matarræðið snérist í 180 gráður, úr því að lifa á próteindufti yfir í 1-2 skammta á dag. Æfingarnar urðu töluvert meira krefjandi, enda fullt af æfingum á plani sem ég hafði aldrei prófað áður. Virkilega skemmtilegar og fjölbreyttar. Brennslan stórminnkaði, sem er ekkert nema jákvætt. (Ég viðurkenni það hér og nú, brennsla er ekki í uppáhaldi hjá mér. Allt annað en í uppáhaldi!) Einn hvíldardagur og fullbúinn nammidagur á viku, og samt fara tölurnar niðurávið.
Fólk verður líka að gera sér grein fyrir því að góðir hlutir gerast hægt, og til að árangurinn verði varanlegur þá þarf að sýna þolinmæði. Einangrunin fer hægt af flestöllum sem ekki eru með "Fita? Hvað er það?" gen. Sérstaklega af skemmtilegu stöðunum sem við konur erum alltaf að glíma við. Rass, læri, bak og yfirmagi - óbeibís, ástarhandföng og björgunarkútar alla leið. Meira til að gefa, meira til að elska! Árangur er mælanlegur í svo mörgum myndum og allt of margir notast einvörðungu við vigtina. Því miður - ég hef gert það sjálf. 200 gr. upp og dagurinn er ónýtur. Ég lifi á gulrótum og brenni hálftíma lengur daginn eftir. Bull og vitleysa! Árangur getur verið aukinn styrkur eða lungna- og vöðvaþol. Breyting á matarræði, einn labbitúr á viku... allt eru þetta góðir og gildir árangurspunktar. Hvert er markmiðið þitt?
Síðan ég byrjaði á þessu prógrammi þá setti ég mér nokkur markmið. Fitutap, viðhald og uppbygging - í þeirri röð sem það er ritað niður. Miðað við núverandi tölur þá tel ég sjálfa mig hálfnaða í fitutapsferlinu og eftir jólin skelli ég mér líklegast í viðhaldsgírinn. Jah.. fer kannski eftir því hvernig jólátið fer með græðgispúkann Hér að neðan hef ég hripað niður þau númer sem ég hef farið niður um í vigt og cm. síðan herlegheitin fóru af stað.
Þyngd: 1 kg (bara eitt kíló sjáið til, á 1,5 mánuðum - en mjónubrækurnar stækka, hoho)
Brjóst: 3 cm
Mitti: 6 cm
Mjaðmir: 3 cm
Læri: 2 cm
Upphandleggir: 1 cm
Kálfar: 1 cm
Reyndar er það gefið, ég var kannski ekki risamassaofurstór þegar ég byrjaði á þessu og þeir sem eru þyngri kæmu án efa til með að léttast/minnka meira. En tölurnar tala sínu máli, vöðvarnir stækka/halda sér á meðan mörin er brennd í burtu. Þetta er bara dásamlegt og ég ekkert smá kát með árangurinn. Spáum svo í því hvernig þessar tölur verða eftir 1, 2, 3.... mánuði. Þetta þarf ekki að gerast á einni nóttu!
Jæja yndislega fólk, ég er farin í grautarmall og meiri tiltekt og umbreytingar. Sýni ykkur myndirnar af glæsilega fína Gúmmulaðihellinum þegar fínpúss er yfirstaðið. Nonni verður án efa kátur með breytingarnar á svefnherberginu!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.10.2009 | 17:48
Hvað er hægt að gera við prótein?
Allskonar!
Að sjálfsögðu er hægt að útbúa drykki. Það er eitthvað sem allir kunna.
Prótein ís.
Prótein berjabúðingur. Hita ber í muss og blanda próteini þar út í.
Prótein pönnsur.
Líka hægt að setja próteinið út í grauta og skyr.
Hnetu og hafra- prótein kökur.
Ídýfa fyrir ávexti.
Prótein flögur.
Próteinstangir, kökur, smákökur, brauð, granolastangir.
Bæta út í próteinið hnetusmjöri og útbúa hálfgerðan búðing.
Stappa svo út í búðinginn banana og bæta eplabitum útí?
Eiiiiiinmitt það sem ég gerði áðan!
Voila.. hálfgerður búðingur sem seðjar fullkomlega vel og slekkur á allri hungurpínu. Miklu skemmtilegra að borða próteinið í þykkara formi heldur en í drykk... heldur átvalginu amk sáttu í lengri tíma
Lumar kannski einhver á sinni uppáhalds próteinuppskrift sem hann/hún vill deila?
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.10.2009 | 11:23
Naglinn umbreytir
Ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið að baka mikið, elda stórkostlegar risa máltíðir eða ofurgrauta, síðasta mánuðinn, er sú að ég vildi breyta til og prófaði fjarþjálfun hjá þessari skvísu. Hún heitir Ragnhildur, öðru nafni Ragga Nagli og ber nafn með rentu. Ég fékk sumsé úthlutað hjá henni æfinga- og matarprógrammi sem ég hef verið að fara eftir. Svolítið skemmtilegt að fá á blaði ákveðin hráefni sem má borða, á ákveðnum tímum dags, og reyna að útbúa fjölbreyttan matseðil út frá því. Það er einnig ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið að skrá og skjalfesta uppskriftir eftir nákvæmum mælingum - ef þið viljið sjá matseðilinn hennar, þá er um að gera að byrja í þjálfun hjá henni. Það er sko eitthvað sem þið sjáið ekki eftir.
Hún er svoddan eðal íþrótta-kvendi að annað eins hefur ekki sést eða heyrst. Hefur brennandi áhuga á því sem hún er að gera, enda skín það mjög vel í gegn. Hún er ekkert að skafa af hlutunum, fegra eða einfalda á nokkurn hátt. Þú færð hreinan og beinan sannleikann í æð, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Á einum mánuði hefur skrokkurinn á mér umbreyst heilan helling. Ég hef ekki lést um gramm, búin að styrkjast mikið og sentimetrarnir fjúka út í veður og vind og fötin gera ekkert annað en að stækka... hoho. Hlakka mikið til að fylgjast með þróun þessara breytinga.
Matseðilinn er líka æðislegur. Fjölbreyttur og svo margt hægt að malla á "löglegan" og einfaldan hátt en samt hafa það "gúrmey". Sést svosum á myndunum hér að ofan, ég hef það ekkert alslæmt! Allskonar sem "má" borða sem ég persónulega hélt að væri á ímynduðum bannlista yfir matvörur á meðan verið er að grenna sig. Ég lít amk. á næringu og líkamsrækt allt öðrum augum en ég gerði. Nammidagarnir sívinsælu eru leyfilegir, svo lengi sem þú heldur þig á mottunni hina dagana og kemur þér aftur á sporið daginn eftir. Þið hafið nú fengið að sjá nokkra allsvaðalega nammidaga hjá átvaglinu, hver öðrum græðgislegri.
Ég ætla amk að halda áfram að púsla saman máltíðum úr því sem ég hef úr að moða! Nammidagarnir verða nýttir í eitthvað meiriháttar skapandi og næsti mánuður er ekkert nema spennó!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.9.2009 | 19:32
Nuts for nuts!
Mér þykir það óskiljanlegt að þeir, sem ekki eru með hnetuofnæmi, þykja hnetur góðar en eru kannski að grenna sig, forðist það að borða þessar gersemar sökum hræðslu við að fitna! Jú, að sjálfsögðu, ef þú tækir þig til og ætir kíló af hnetum upp á dag þá kæmi það líklegast niður á mjónubuxunum. Sérstaklega ef þú borðar hambó í hádegiunu og pizzusneið í millimál. Allt er gott í hófi elsku fólkið mitt, allt er gott í hófi!
Það getur verið að ég sé eitthvað ranglega samsett, ágætis líkur á því, en þegar ég kemst í hnetur er það eins og að komast ofan í stóra skál af súkkulaði. Hneturnar eru eins og nammi! Ef ég vil nammi, þá fæ ég mér hnetur og viti menn, sykurþörfin troðin undir stein! Ég tala nú ekki um þegar hneturnar eru ristaðar á pönnu/ofni/örbyglju með smá kanil og salti! Ójes!
Ástæðan fyrir því að fólk forðast þær er líklegast hátt kaloríu- og fituinnihald. En örvæntið eigi... hnetur og möndlur eru stútfullar, og frábær uppspretta, af hollum fitum, próteini og trefjum. Kannanir hafa m.a. leitt í ljós að möndlur lækka slæmt kólesteról (LDL) en hækka það góða (HDL). Hnetur innihalda einnig potassium (valhnetur), magnesium (möndlur, valhnetur, pecanhnetur), járn (heslihnetur), zinc, E-B-A vítamín, kalsíum (möndlur, heslihnetur), selenium ofl. Með því að borða margar hnetutegundir færðu í skrokkinn fjölbreytilegt úrval steinefna og vítamína á náttúrulegan hátt. Ég fæ mér daglega kúfaða lúku, eina, tvær... jafnvel þrjár af hnetum og/eða möndlum. Þær fylla magann vel, gefa orku, halda átvaglinu ánægðu, áferðaperranum hamingjusömum og nammigrísnum sáttum.
Það þarf ekki alltaf að spisa hneturnar allsberar og eintómar, þið gætuð bætt þeim út í uppáhalds pottréttinn ykkar, út á morgunkornið, út í skyr, ofan á brauðsneið, í pestó, á ís, á graut, í brauð - hvað sem er. En þar sem hnetur eru mjög ríkar af, uppáhalds vini okkar, kaloríunum, þá er sniðugt að skipta þeim út fyrir t.d. feitan mat í máltíðum, til að forðast þyngdaraukningu, nú eða hreinlega borða sem part af vel skipulögðu og hollu matarræði. Sem dæmi, setja þær yfir salat í staðinn fyrir beikon- og/eða brauðbita nú eða nota í millimál.
Til að gefa ykkur dæmi um skammtastærðir (hægt að finna allstaðar á netinu ef þið eruð óviss) þá væri flott snarl, per hnetutegund, um það bil 22 möndlur, 20 pecanhnetu helmingar, 18 kasjú, 14 valhnetu helmingar, 20 heslihnetur, 12 macadamia hnetur, 47 pistasíur, hnetusmjörið eru 1 - 2 msk, svo eitthvað sé nefnt. Það er helv.. hellingur af hnetum mín kæru. Er það ekki dásamlegt?
Ekki vera hrædd við hneturnar, í guðanna bænum. Þær eru frábærlega fínar, hollar, seðjandi, skemmtilegar að bíta í og bara krúttaralegar.
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.9.2009 | 12:54
Nýtt prógram, meiri matur
Það held ég nú. Var að spögúlera í því að sjússa upp á æfingaprógramið mitt.. alltaf jákvætt að breyta aðeins til. Bæti við einum lyftingadegi og fækka brennsludögum um einn. Sem þýðir örlitlar breytingar á matarplani. Verður gaman að sjá hvernig áhrif þetta hefur á skrokk og árangur. Var í gamni að telja saman hitaeiningarnar sem ég set ofan í mig, á lyftingadögum, og þær eru yfirleitt í kringum 2000, og rúmlega það. Bensínlaus bíll kemst ekki langt, þannig er það nú bara!
Annars get ég nú ekki sagt að geimvísindi hafi einkennt hádegismatinn í dag. Einfaldur með meiru, en ávallt góður. Um það bil 150 gr. af kjúlla, 2 tómatar, smá grænmeti og kartöflur. Balsamic edikið svínvirkar í hvert skipti.
Ég veit samt ekki alveg af hverju balsamic edikið virkar eins og svín... en svo mikið er víst, og svo mikið veit ég, að umrætt svín er allsvaðalega frábært!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2009 | 19:40
Meiri kjúlla takk
Ég hef mikið verið spurð út í það hvernig ég haga matarræðinu hjá mér, bæði hvað varðar prótein, lengd milli máltíða, máltíðaval, nammidaga ofr. Hvernig ég æfði til að ná kjörþyngd og hvernig ég hef æft til að viðhalda henni síðan ég tók 'lífstíls' breytinguna með trompspjaldinu á síðasta ári. Þetta er mér mikið hjartans mál og áhuginn gríðarlegur í þessum efnum. Reyni að vera hvatning fyrir fólkið í kringum mig án þess þó að predika. Stundum er barasta ágætt að fá smá start, sérstaklega ef grunnurinn er ekki mikill. Virkilega gaman að geta gefið örlítið meðaljónaráð, þó það sé ekki nema bara að beina einstaklingum á rétta braut. Athugið samt að:
1. Ég er ekki næringarfræðingar spesíalisti.
2. Ég er svo sannarlega ekki einkaþjálfarakyns.
3. Lífstílsbreytingin var 100% fyrir sjálfa mig. Heilbrigð sál í hraustum líkama. Átvaglið samt sem áður ánægt og 'mjónubrækurnar' á lista yfir föt sem má nota.
4. Ég er ekki vaxtarræktar ofurkvendi eða fitness keppandi. Er ekki endilega að leita eftir útliti gríska guðsins, vil þó ekki vera með búddah bumbuna eða sýna á mér rifbeinin, en sækist í tónaðan og fínan skrokk.
5. Meðaljón sem náði af sér tæplega 20 kg. og hefur haldið þeim í burtu.
6. Hugarfarið mín kæru! Þetta er ógeðslega skemmtilegt
Ef þið hafið áhuga á að spyrja mig út í eitthvað þessu tengt, þá skal ég glöð svara ykkur eftir bestu getu. Ég kem til með að svara í takt við það sem ég hef verið að gera og hvað hefur hentað mér hingað til. Það er alltaf gott að tala við aðra meðaljóna og bera saman bækur í þessum efnum, en ekki endilega fyrir alla á veraldarvefnum til að sjá. Netfangið mitt er kunigund [hjá] gmail [punktur] com og ykkur er velkomið að senda á mig spurningu ef ykkur langar til.
Fékk mér svosum ekkert merkilegt í kvöldmatinn. Enn og aftur að leika mér með svipuð hráefni og ég hef veirð að nota í vikunni. Steikti saman lauk, tómat, hvítlauk og papriku. Kryddaði með salti, pipar, oregano og basil. Steikti þangað til meyrt og bætti þá við nokkrum dropum af hot sauce. Kjúllanum velti ég upp úr pipar, papriku og chilli. Jú.. kjúlli í Foreman og dressingin útbúin úr balsamic ediki, smá hunangi og sinnepi. Ég eelska sætt með sterku!
Svo þurfti ég auðvitað að skreyta með steinselju og Dukkah möndlukryddi. Það er svo gott á bragðið. Bara flott og góð máltíð! Endaði hana að sjálfsögðu á einni þurrkaðri döðlu, möndlusmjöri, macademia hnetu og 80% súkkulaðibita! Ójes beibís!
Hugleiðingar | Breytt 23.9.2010 kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.8.2009 | 12:44
Heimatilbúið slangur
Ofan- og neðangreint tengist mat afskaplega lítið, biðst forláts á því, en ég er búin að vera flissandi yfir þessu síðan í gær og ákvað því að deila með ykkur gleði minni. Lítið brot af fjöslkylduslangri sem sýnir hvað felst í því að vera partur af Spaghettisen! Þetta er að öllum líkindum ekki fyndið fyrir neinn nema mig
Ég geri ráð fyrir því að allar fjölskyldur eigi sitt eigið tungumál. Brandara og orðatiltæki sem enginn utanaðkomandi skilur nema útskýrt sé.
Við í minni fjölskyldu erum miklir slangrarar og Ásbúðaríska og Spaghettihjal er mikið notað.
Orð:
Musi = rass.
Dabbinn = stóru tærnar á mömmu. Því þær líta út eins og hausinn á Davíði Oddssyni.
Gúmmulaðikastalinn = heima hjá ömmu og afa.
Gúmmulaðihöllin = heima hjá mömmu og pabba.
Gúmmulaðihellirinn = heima hjá mér.
Skrandi, skrandmann = hundur, þó yfirleitt Monsi, gamli hundurinn hennar ömmu.
Vondvatna = sódavatn, pepsimax eða moldvarpa eftir atvikum.
Jesúskór, sandalefem = Sandalarnir hans pabba. Einu skórnir sem hann notar. Líka í snjó!
Spaghettisen = fjölskyldan mín
Krilla = lítil stelpa eða kettlingur.
Sleppa, grásleppa = stelpa á aldrinum 8 -13 ára. Mjög nákvæmt hérna.
Bambi = magi.
Bobbi = nafli.
Hafnafjarðarkræklur = fæturnir á systur minni, mér og pabba.
Gúmfey = eitthvað sem er notaleg.
Krumsulegur = slappur.
Orðatiltæki/athæfi:
Joð = t.d. olía. Líka notað þegar laga þarf eitthvað. "Penslum það með joði".
Baka einhvern = klóra á bakinu, gera gott við bak. "Viltu baka mig?"
Verið þið óhrædd = "má bóða þér meira" - "Fáðu þér meira".
Klæja ferlega = Sólarexem. Vitnað í Spánarferð. Hótelið hét Playa Ferrera og allir fengu hræðilegt sólarexem.
"Natten skratten" og "nótt í hausinn á þér" = góða nótt.
Á ég að dreka þig? = ef ógna skal fjölskyldumeðlim t.d. þegar hann er að stela síðustu kökunni.
Fuglenpipendansen = Dansa nakinn kringum rúm konunnar, í svörtum sokkum einum fata, á aðfangadagskvöld, svo konan æpi af skelfingu, uppfull af seddu og gjöfum, og skríði aftur undir sængina í mikilli geðshræringu.
Pútta = Breiða sæng yfir einstakling og pakka honum inn í hana eins og pulsu. "Viltu pútta mig?"
Brúmfadda = purra á maga.
Skranda = vesenast. "Var að skranda til klukkan 4 í gær...". Monsi, hundurinn hennar ömmu var alltaf að vesenast eitthvað.
Einstaklingar:
Gæji svali = afi.
Jesúmaðurinn, sandalafem, evil jesus, Eggið = pabbi.
Jóseppur og Mörfía = pabbi og mamma.
Múmfey = Mamma.
Biðukolla = gráhærð kona, yfirleitt átt við ömmu.
Löggi = Jökull frændi.
Fúfú eða Villimann = systir mín.
Dossa = Soffía frænka (já.. Soffía frænka).
Legga, Sprella, álegg, Leggos, Egglos, Sprelliband, Elli frændi = Ég.
"Þöngull og Þrasi", "Leðurtöskurnar" = afi og amma.
Snepill og Snigill = Ég og systir mín.
Mister Paulsen, Wicked Paulsen = Palli.
Góðir tímar! Annars á hún amma mín afmæli í dag, 72 ára takk fyrir góðan daginn. Til lukku með daginn þinn elsku besta. Við ætlum að koma henni á óvart í kvöld með út-að-borðelsi á Pottinum og Pönnunni. Heppin ég að biðukollan noti ekki netið
Annað í fréttum: Til að halda í tilgang þessa bloggs þá er hér örlítil mynd af því sem ég fékk mér í hádegismat í dag!
Hugleiðingar | Breytt 23.9.2010 kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)