Færsluflokkur: Hugleiðingar
18.3.2010 | 10:21
Hafrar og gleðin sem þeim fylgir
Án þess að ég ætli að romsa mikið um hamingju, gleði og yndislegheit þessarar korntegundar, sem hún er að sjálfsögðu - hoho, þá ætla ég að benda á þessa grein frá Yggdrasil. Hafrar eru barasta bjútifúl.
Ég persónulega er hrifnust af grófum höfrum/tröllahöfrum sökum áferðar. Hafrar sem kallast "Quick cooking" eru mun meira unnir en grófu hafrarnir, eiga það til að vera "næringarsnauðari" og innihalda meira sodium. Fer þó algerlega eftir tegundum. Quick cooking eru í raun hafrar sem eru "þunnir". Sem dæmi myndi ég halda að Solgryn í rauðu pökkunum væru í anda þunnra hafra sem tekur skemmri tíma að elda á meðan Solgryn í grænu pökkunum eru í átt að grófari týpunni. Tröllahafrar eru langsamlega skemmtilegastir undir tönn, að mínu mati, chewy og gleðilegir til átu - en þeir kosta líka stórutá og bút úr sálinni. Þynnri hafrarnir gefa að sjálfsögðu mýkri áferð og minna bit, límkenndari graut ef eitthvað skal nefna.
Ég hef tekið út næringargildi fyrir td. rauða og græna Solgryn og munurinn er enginn nema áferðin á korninu sjálfu. Svo eru grófari týpurnar líklega duglegri að "rífa í" á leiðinni í gegn
Sitt sýnist hverjum geri ég ráð fyrir!
En svo ég komi mér nú að meiningu þessa blessaða pistils. Tröllahafrar - ó hvað ég saknaði ykkar!
Einn einfaldur með hindberjum leit dagsins kveldsins ljós í gær. Þurfti að erinda eftir brennsluna í morgun svo ég útbjó dýrðina eftir kvöldmat, kom fyrir inn í ísskáp og át með mikilli hjartans hamingju í bílnum.
Alveg elska ég eggjahvítugrautana eftir ísskápsveru - eins og brauð/kaka/hamingja í plastboxi! Ojbara hvað þessi var góður. Æðisleg, æðisleg áferð! Hafrarnir alveg að gera sitt!
Alveg þess virði að sálin verði götótt eins og Svissneskur ostur og tærnar af skornum skammti. Þær eru svo ljótar hvort eð er!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.3.2010 | 21:20
Áfangi
Ég náði að hífa mig upp! Ég naði að hífa mig upp!
Reyndar bara einusinni...
...EN ÉG NÁÐI AÐ HÍFA MIG UPP!
Hahhahahahahah wheeeee! :D
Ég veit þetta er ekkert til að gorta sig af en upphífingar, án aðstoðar ofurtækis, eru eitthvað sem ég hef aldrei, aldrei getað gert!
Aldrei!
Kvöldmatur! Svona aðeins til að sýna lit! Saffran humar tapar fyrir Saffran kjúlla! Þetta var samt gott.
Ég náði að hífa mig upp!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
9.3.2010 | 13:32
Grænmeti er guðdómlegt
Stundum langar manni bara í grænmeti! Þó svo þú haldir að þú viljir það ekki, þá langar þig samt sem áður í það... ójúvíst! Vittu til! Fáðu þér grænmeti á diskinn, helst ferskt og athugaðu hvort skrokkurinn æpi ekki á meira eftir fyrsta bitann! Reyndar, þá er alveg jafn mikil gleði að bíta í grænmetið hitað/grillað/soðið/steikt... grænmeti er barasta guðdómlegt!
Grænmetisafurðir eru flestallar mikilvægar uppsprettur næringarefna eins og t.d. potassium, trefja, folic sýru, A-E og C vítamína.
- Grænmeti hefur í mörgum tilfellum lágan kaloríufjölda ásamt því að vera "fitusnautt" = mjög gott að graðga í sig svolitlu af grænmeti ef þú ert að létta þig og til að "fylla" upp í svartholið.
- Matarræði sem ríkt er af potassium gæti aðstoðað skrokkinn að viðhalda blóðþrýsing. Afurðir ríkar af potassíum eru t.d. kartöflur (sætar, venjulegar), hvítar baunir, tómatafurðir, rófur, spínat, nýrnabaunir...
- Trefjar sem koma frá grænmetisafurðum, sem hluti af heilsusamlegu matarræði, hjálpa til við að minnka kólesteról í blóði og gæti mögulega minnkað líkur á hjartasjúkdómum. Trefjar eru einnig mjög mikilvægar til að viðhalda súperfínni þarmastarfsemi og allri hamingju sem innviðis klósettkvillar gætu valdið. Ennig aðstoða trefjar við að halda átvaglinu "sáttu" í lengri tíma. -> gulrætur, avocado, brokkolí, spínat, sætar kartöflur...
- Folic sýra hjálpar blóðinu að útbúa rauð blóðkorn. Talað er um að konur sem eru að reyna að verða ófrískar eða eru nýlega orðnar ófrískar ættu að taka folic sýruna inn til að minnka líkur á "neural tube defect" - heili og mæna fósturs ná ekki að þroskast að fullu -> blómkál, spínat, brokkolí, aspas...
- A vítamín fyrir ónæmiskerfið, sjón, frjósemi og verjast hvurslags sýkingum -> gulrætur, sætar kartöflur, spínat, grænkál...
- E vítamín hjálpar til við að "vernda" A vítamínið og hindrar t.d. oxun kólesteróls = minnkar líkur á blóðtppa. E vítamín er uppleysanlegt í fitu og skal því neyta með fituríkum matvælum svo þarmarnir taki það betur upp -> Hægt að taka inn olíur, grænmetisolíur. Canola-, sólblóma-, sesamolíu... nú eða t.d. hveitikím eða hvietikímsolía. Hafrar, hnetur, kjúklingabaunir (halló hummus), linsubaunir.
- C vítamínið fyrir ónæmiskerfið, sár og skurði (vörn gegn bakteríum), góma og tennur. Aðstoðar við inntöku járns sem kemur úr grænmeti (ekki kjötmeti). Aðstoðar eina af þeim 20 aminósýrum sem við þurfum til að byggja upp prótín. Ákkúrat þá krúttarlaegu aminósýru sem aðstoðar prótínið kollagen sem er hluti sina og brjósks sem þolir átök. -> Brokkolí, kartöflur, rauð paprika, spínat, gærnmeti með blaðgrænu...
Flottur hádegisdiskur. Próteinið mitt í hádeginu í dag var svo hreint ómyndað gleðiKea með fræjum og smá kanil, rétt fyrir crunch og kram.
Svo flottir litir!
Ohh.. ég öölska svona fínt, ferskt grænmeti! Eins og listaverk - get svo svarið það.
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.3.2010 | 12:42
57 dagar...
...að einum viðbættum og voila... 1. maí er genginn í garð! *Gleðisprengjuhamingjukast*
Snjórinn kom, sá og stoppaði umferð í nokkra daga. Nú mætti hann, blessaður, fara að láta sig hverfa. Ég veit, ég veit... ekki kvörtunarvænt þar sem núverandi ástand hefur rétt staðið yfir í rúma viku og íslenskir vetur eru í flestum tilfellum stórkostlegri í umfangi en snjópísl undanfarinna daga. En vitið þið hvað? Mér líkar píslin barasta ágætlega vel í mínu stolta, harða, íslenska "Ég fer út á berrassgatinu í -20° frosti og borða grílukerti" víkingahjarta. Ég gæti vel lifað hamingjusömu íslensku töffaralífi án sex mánaða snjótíðar. Hnatthlýnun og gróðurhúsaáhrif! Jahérna hér!
Annars var eggjahvítugrautur maximus á boðstólnum í morgun. Soðinn upp með banana og skreyttur með múslí og frosnum hindberjum. Ég át hann samviskulaust án myndavélarinnar þar sem hungur í bland við leti yfirtók átvaglið eftir fyrsta bitann. Grauturinn hvarf á hraða ljóssins - ég rankaði við mér þegar ég beit í skálina. Það var ekki ákjósanlegur endir á annars góðu áti!
Hádegismaturinn samanstóð af eftirfarandi litadýrð og fiðurfé í stil. Saffran kjúllinn - ég fæ bara ekki nóg.
Ég mátti til með að mynda hádegismat vinnufélaga míns. Afmælisbarn með meiru svo ég óska honum hér með til hamingju með daginn. Mér er slétt sama hvað fólk fær sér að borða, ekki halda annað elsku bestu - þótti þetta bara fyndið. Munurinn á mínum disk og hans. Hann fær þó plús í kladdann fyrir að fá sér svolítið af mat með sósunni. Þessi diskur kætti mitt fasíska sjálf óstjórnlega.
Talandi um fasískar venjur. Annar vinnufélagi kom niður í matsal, þar sem ég sat með myndavélina og tók matardiskinn í gegn, og sagði "Ahh.. grænmetisbuff og salat, klukkan er 11:30, Elín er að taka mynd af matnum sínum... allt eins og það á að vera"! Matarmyndatökuáráttan er farin að trodda sér inn hjá nærstöddum átfélögum.
Roastbeef og sæt fyrir æfingu á eftir, súkk- og kók eftir æfingu og Ossobúkkóveisla í Gúmmulaðihöllinni á morgun a la madre. Famelían saman, matur, kósýness og krúsíbombur ásamt nokkrum köttum og hundum.
Stundum er ekkert nema gleðilega fyndið að vera til.
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.1.2010 | 19:26
Að búa með matarbloggara
Gestaskrif. Mister Paulsen segir frá því hvernig það er að eiga heima með átvaglinu! Svona, ef ske kynni að einhver væri forvitin
"Palli, hvernig er það eiginlega að búa með matarbloggara?" spyr fólk mig stundum kæruleysislega og ég veit aldrei hvernig á að svara. Það hefur nefnilega ýmis áhrif á daglegt mataræði ef því er öllu lýst í bak og fyrir og ljósmyndað frá öllum sjónarhornum fyrir og eftir átu. Eftir átu, þ.e.a.s. afgangarnir.
Það var fyrst svolítið skrýtin tilfinning að sitja á fínu veitingahúsi eða í fjölskylduboði og horfa girndaraugum á hvern gúmmilaðidiskinn berast á borð, á fætur öðrum, og um leið og diskurinn lendir á borðinu heyrist lítið píbb í stafrænni myndavél sem er iðulega fylgt eftir með ljósblossa. Einnig eru það viðbrigði í Gúmmilaðihellinum að sjóða saman litla ofurveislu og í staðinn fyrir að byrja að gúffa í sig, nokkrum millisekúndum eftir að gumsið dettur af pönnunni, þá er tekin við lítil helgiathöfn að skreyta diskinn extra vel og forfæra hann svo á þann stað í húsinu þar sem best lýsing er þá stundina, til að smella af nokkrum myndum.
Mig rekur í minni þegar ég var í grunnskóla og við fengum tækifæri á að upplifa áhugaverða tilraun. Stór, og rosalega súr, gulur nammibroskall var setur á borðið hjá hverjum og einum og þegar kennarinn hringdi í bjöllu áttu allir að stinga broskallinum upp í sig. Þetta var endurtekið nokkrum sinnum þar til eitt skiptið var bjallan látin hljóma en súrmetið vantaði. Viti menn, mér til mikillar undrunar fylltist skolturinn af munnvatni því líkaminn var búinn að tengja bjölluhljóminn við það að fá eitthvað rosalega súrt upp í sig. Ég get svo svarið það ég held að líkaminn sé í dag búinn að læra það að í hvert sinn sem heyrist í lágum skruðningi myndavélarinnar, þegar smellt er af, þá veit hann að tími sé kominn til að sleppa átvaglinu lausu.
Blogginu hafa fylgt misgóð tímabil. Ístímabilið var mjög gott. Grænabaunatímabilið var viðurstyggð enda tók ég ekki þátt í þeim ósóma. Sædýratímabilið gerði mig hins vegar rosalega glaðan, humar, smokkfiskur og harpa í annað hvert mál, alltaf í nýjum og spennandi búningi, já takk.
Svo gerðist hið óumflýjanlega að fleiri byrjuðu að slysast inn á bloggið heldur en bara fjölskylda og vinir. Við það breyttust öll lögmál. Skyndilega varð það gífurlega spennandi fyrir mig að klína fésinu (eða jafnvel bara handlegg) inn á myndir sem lentu á blogginu því þá leið mér eins og ég væri í sjónvarpinu, semsagt pínkulítið frægur í nokkrar sekúndur. Síðan fór það að gerast æ tíðar að ókunnugt fólk fór að gefa sig á tal við kvendið út á götu: "Hey, mér fannst banabrauðið sem þú varst með í síðustu viku frábært". Við þetta ljómaði Ellan af stolti og ég líka. Skyndilega var saklaus vettvangur til að geyma uppskriftir búinn að breyta bakaranum ógurlega í pínkulítið celeb. Síðan í seinni tíð kom það fyrir í fyrsta skipti að einhver stoppaði MIG út á götu og sagði: "Hey ert þú ekki Palli maðurinn hennar Ellu sem er með matarbloggið? Segðu henni að bloggið hennar sé frábært", þá leið mér svolítið eins og ég væri nýja Beta Rokk, allt í einu orðinn pínulítið þekktur án þess að hafa gert neitt.
Ég hef sem betur fer ekki fundið mig knúinn, ennþá, til að fara í fínu fötin fyrir hverja máltíð ef ske kynni að handleggurinn skyldi myndast og rata, ásamt girnilegum disk af hörpuskel, inn á bloggið. Það tímabil kemur vonandi aldrei. Ég er hins vegar orðinn mjög góður í að hemja hamslaust átvaglið í að gúffa í sig öllum matnum áður en myndavélin, sem er eiginlega orðin fimmti fjölskyldumeðlimurinn (já, ég tel kettina með), nær að fókusa og smella mynd af matnum í amk tvö skipti. Þau mistök geri ég bara einu sinni
Já Ella mín, mér finnst bloggið þitt frábært, þú ert frábær og bloggskrifunum vel tekið, sérstaklega þegar þau virðast framkalla með reglulegu millibili bananabrauð og ostakökur *namm*
Jæja... þar hafið þið það! Wicked Paulsen hefur tjáð sig!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
31.12.2009 | 15:30
Árið senn á enda
Jú, ég ætla sko að láta vaða og lista upp árið. Höfum þetta í léttari kanntinum. Það vita allir hverjar "vondu" hliðarnar eru! Fljótt að líða... það verður að segjast.
Ég byrjaði á því að blogga um matinn minn í von um að geta haldið utan um daglegt át og góðar uppskriftir. Bloggið breyttist þó með tímanum í almennt matarblogg með sögulegu átvagls ívafi. Góður staður til að lista upp allar syndir og ósyndir. Aldrei datt mér þó í hug að svona margir færu að lesa hripið hvað þá sækja innblástur í það sem ég geri. Það er stórkostlegt! Ég verð alltaf mjúk og meyr í hjartanu þegar ég hugsa um það og þykir æðislegt að vita að það séu einhverjir sem geta nýtt sér kvakið í mér. Hvort sem það sé í átt að nýjum lífstíl, viðbót við þegar mótað hátterni eða örlitla fjölbreytni í daglegt át. Æðislegt!
Eins og með öll önnur ár sem líða þá hefur margt átt sér stað. Gleðilegt og ógleðilegt. Nákvæmlega eins og það á að vera. Ég var svellköld í byrjun árs, hörð á því að setja sykur aldrei viljandi inn fyrir mínar varir. Jah - þið sjáið hvernig sá gamanleikur fór Ástæðan fyrir því að hefja sykurinntöku á ný var þó meðvituð, með vilja og ásetningi skráð í sögubækur. Mér þykja kökur, ís og einstaka súkkulaðimoli of mikið gúrmey til að sleppa alfarið. Sykurátinu var þó stillt í hóf við tiltekna daga og/eða minni skammta. Hentar vel og loksins núna er ég að komast upp á lagið með að hemja mig í sykuráti og því sem ég tel raska ró míns ástkæra skrokks. Magnað hvað matur getur skriðið undir skinnið á manni og tekið sálina í gegn! Ég vann þá orrustu á endanum - sátt við staðinn sem ég er á í dag! Óje! Heilsusamlegt "samband" við mat - ef það er þá til!
Ræktarmál fara síbatnandi og brennsla hefur verið keyrð niður til muna. Þvílík dásemd og gleði. Ungfrúin styrkist og heilsan batnar. Í byrjun árs tók ég 24 kg. í bekk, núna tek ég 40. Það þykir mér stórgott! Sömu sögu er að segja um hnébeygjuna góðu ásamt nokkrum velvöldum æfingum. Þolið glæst! Ég er eins og dvergarnir - mjög hættuleg á stuttum vegalendum. Jájá! Ég er einnig 2 kg. þyngri en ég var í byrjun árs en þó passa öll föt betur á mig. Tók líka eftir því um daginn að ég er allt í einu komin með kúlurass! Jább! Rass og læri fyrir allan peninginn og ég fíla það vel.... Palli líka!
Ég er búin að innbyrða um það bil 1539 eggjahvítur á árinu sem er að líða og svolgra í mig 16 pökkum af höfrum!
Ragga Nagli sýndi það og sannaði að stelpuNaglar standa svo sannarlega fyrir sínu!
Hellirinn var tekinn í gegn.
Ég fékk ekki svínaflensu.
Í kringum mig komu í heiminn átta glæný börn.
Ég fór til Boston og fékk ostakökur og löngu gleymdan pecanhnetuís frá Ben og Jerry's.
Ernan mín eignaðist sitt fyrsta afkvæmi. Hann er yndislegur!
Ég fór á tvennar árshátíðir á Selfossi og hélt tvær þakkargjörðar-háð-tíðir, önnur með hallogen-ívafi.
Fyrsta skipti sem mister Paulsen er í bænum yfir jólin en ekki á Höfn. Það var gaman.
Í framhaldi af því var fyrsta jólatréð skreytt. Lilli Au í öllu sínu veldi.
Ég braut allar leikreglur og snobbaðist til að kaupa mér Kitchen Aid. Vélin er draumur í dós! Ég legg til að allir sem eigi Kitchen Aid hittist og Kitchen Aid-i í staðinn fyrir að "lan-a".
Við fjölskyldan héldum rúmlega 17 matarboð í sumar og eldhúsið hennar mömmu dó í framhaldi af því.
Ég keypti RAUÐA KASSANN!
Ég borðaði upp úr rauða kassanum.
Borðaði líka upp úr plastboxum!
Lærði að búa til sushi!
Sveiflaði kjúkling í hringi í Stegepose!
Ég gekk í gegnum grænt tímabil á árinu!
Rækjutímabil!
Skyrgumstímabil!
"Ís" tímabil.
Grænu bauna tímabil!
Bjó til miiiikið af hafragraut!
Uppgötvaði banana ís! Mér til mikillar hamingju!
Lá í hengirúmi góðan part sumars.
Kíkti á Höfn til tengdó!
Ég var beðin um að vera með "matargreinar" í fréttablaðinu og mogganum. Kjúklingasalat og kókoskúlur. Það var mjög skemmtilegt.
Keypti mér nýtt rúm!
Ég náði að borða 2,5 200 gramma hambó í sumar með brauði og allesklar. Þetta þótti mér mikið afrek.
Ég klippti á mig þvertopp og litaði hárið dökkt. Síðan þá hef ég verið kölluð Kleopatra og Prins Valíant!
Mamma fékk loks að þefa af skunkafýlu!
Ég uppgötvaði uppáhalds hafrapönnsurnar og hafraskonsurnar mínar.
Ég bakaði eins og vindurinn fyrir jólapakkann í ár.
Borðaði mikið, mikið... mjög mikið af góðum mat!
Ég bakaði áramótaostaköku og hlakka mikið til að bíta í hana í kvöld! Vona að hún standi undir væntingum amerísku ostakakanna! Það kemur í ljós á eftir og þið látin vita á morgun!
Enduruppgötvaði hvað ég er ríkt átvagl!
Uppgötvaði líka hversu heppin ég er að hafa ykkur. Finnst næstum eins og ég "þekki" mörg ykkar sem kommentið oft hjá mér og væri mikið meira en til í að hitta á ykkur einn daginn!
Elsku bestu. Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða! Ég væri án efa löngu hætt að nenna þessu ef það væri ekki fyrir ykkur, fjölskylduna mína og vini. Takk yndislega vel fyrir alla jákvæðu straumana og fínu fínu kommentin. Þið eruð snilldarlegir hattífattar!
Verið góð hvert við annað, gangi ykkur vel með að ná öllum ykkar markmiðum fyrir árið 2010, stórum sem smáum - á hvaða sviði sem er, og munið að mótstöður eru ekkert annað en áskoranir sem þarf að tækla!
Gott ár að baki!
Gleðilegt nýtt ár strumparnir mínir! Megi 2010 færa ykkur hamingju og gleði í ýmsum myndum, máli og dularfullum formum! Svoleiðis form eru alltaf best!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
15.12.2009 | 09:53
Scitec bjargar deginum...
...jah, svona næstum því. En ég var mjög hamingjusöm eftir æfingu áðan. Pantaði mér hreint Scitec um daginn, Súkkulaði-Mokka, og var að smakka það í fyrsta skipti áðan.
Þetta er án efa, besta.. besta besta hreina prótein sem ég hef smakkað. Öll hrein prótein sem ég hef smakkað eru væmin og þunn eins og vatn en þetta - ohohoo! Meira að segja ungfrú Elín, prótein súkkulaði anticristur át súkkulaðigumsið með bros á vör. Ég hristi þetta saman með Kelloggs Special K eftir æfingu og dýrðin varð eins og þykkur búðingur! Enginn klaki eða neitt. Guð má vita hvað gerist þegar ég hræri þetta saman í blender með klökum! Kannski Arnold schwarzenegger birtist í eldhúsinu mínu? Ég setti annars inn mynd af gleðinni - ég hætti næstum við því hún er jafn grinileg og tásveppur. En ég læt vaða engu að síður!
Næstsíðasti jóladagatalskassinn!
Sjáið svo bara hver kíkti á mig í gegnum tölvuskjáinn þegar ég kveikti á vélinni minni í morgun! Vinnan veit líka að jólin eru að koma... jebb. Ég fékk jólakipp í hjartað... hihi!
Kíkti annars við hjá afanum mínum, í Garðabæinn, í gær þar sem hann er með málverkasýningu. Ég bara mátti til með að sýna ykkur hvað hann gerir fínar myndir.
Ég öölska myndirnar hans. Ég er með þrjár myndir eftir hann hérna heima, hver annarri flottari. Líka svo yndislega fínt að vera með myndir upp á vegg eftir einhvern sem þér þykir vænt um. Það eru bestu og "eigulegustu" hlutirnir að mínu mati.
Þessi eru í uppáhaldi hjá mér. Er meira að segja að spá í að setja upp hvolpasvipinn og sjá hvort hún bætist í safnið mitt
Með tilheyrandi blikkum væri ég alveg til í að sjá þessar upp á vegg hjá mér líka. Græðgi og frekja?
Já, ég er enn að reyna að læra á nýju, glæsilega fínu Nikon myndavélina mína. Hún gerir þessum málverkum hinsvegar lítinn greiða eins falleg og þau eru.
Svo gaf amma mér hring sem hún bjó til. Svaðalega hæfileikaríkt móðurforeldra sett sem ég á... hoho
Huhh! Þessi pistill var um allt og ekki neitt! Kvöldmatarblogg verða ansi fátíð þar sem öll kvöld hjá mér, þessa vikuna, fara í bakstur og almenna gleði. Jú, ég borða ennþá og jú, ég borða "rétt" en reiði á einfalda, endurtekna rétti sem klikka aldrei. Ekkert nógu spennó til að henda hingað inn. Þetta reddast eftir helgina - þangað til lifir þetta svaðalega "heilsublogg" á smákökum og konfekti. Kaldhæðið nokk!
Hafið það gott í dag. Bara 10 dagar í jólaönd, jólagraut og fyllingu sem fengi fullvaxta Spartverja til að gráta.
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
4.12.2009 | 08:40
Kvöldmatur í morgunmat?
Palli fékk í gær eftirfarandi jólagjöf frá vinnunni sinni.
Henni var fallega komið fyrir inn í ísskáp, eins og vera ber. Þetta væri ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þegar kvendið vaknaði í morgun og kjammsaði á fyrsta bita af ísskápsgrautnum sínum, þá bragðaðist hann eins og hamborgarhryggur! Ég stökk hæð mína í loft upp og tók massívan tryllingsdans - ég mun aldrei bíða þess bætur! Þvílíkt og annað eins hryllingsgums hef ég ekki sett inn fyrir mínar varir síðan ég beit í ónýtu rækjuna á Eiðum '68! Á skálina var úðað wd40, henni haldið frá með krossi og særingamaður fenginn á staðinn med det samme!
Þegar búist er við því að bíta í nokkuð sætan, kanil og jarðaberjagraut þá er reykbragð ekki málið.
Pakki númer fjögur. Þetta á vel við.... þetta er gleðilegt dagatal!
Jólavinnudagatal: INNI
Hamborgarhryggsgrautur: ÚTI ... svo langt úti að það sést ekki punktur sjóndeildarhringnum!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
3.12.2009 | 12:11
Ekki á morgun heldur hinn
6 tíma flug, jólafílíngur, jólapakkarölt, jólakaffihúsastemning, ostakökur og almenn gleðilegheit. Þar af leiðandi verður enginn hleðsludagur í dag. Hrein og bein fram á sunnudag þegar Ostakökuverksmiðjan verður tekin með trompi - forréttur, aðalréttur og ostakaka. Svo stutt í þetta!
Pakki dags numero tres innihélt eftirfarandi.
Mjög mikið þarfaþing fyrir kvendi sem mælir sig sundur og saman og tekur húsið í gegn á sama tíma. Mæla læri, mæla skáp, mæla hurð, mæla mitti, mæla upphandlegg, mæla glugga, mæla Palla... allt góðar og gildar mælingar mín kæru.
Tók annars með mér hýðisgrjón í vinnuna í dag. Hýðisgrjón með soja og rauðum piparflögum - hryllilega ljúft. Vinnan skaffaði kjúllan - kvendið skaffaði viktina. Vopnuð henni getur ekkert stöðvað mig... nema kannski Terminator, en það er önnur saga!
Mér til mikillar hamingju eru vinnufélagar flestir hættir að skipta sér af dularfullum átvenjum undirritaðrar og farnir að venjast. Nokkrir líta ennþá upp til að fylgjast með, aðrir tjá sig eilítið um athæfið en flestallir taka þessu með mikilli sálarró, góna á sinn disk og njóta hádegismatarins.
Þegar fólk spyr mig spurninga og er að spögúlera í því sem ég er að vesenast svara ég 110% og þykir gaman að. Ekki nema von að sumir séu forvitnir. En um leið og einhver labbar upp að mér til þess eins að góna á matinn minn, horfa á það sem ég er að borða, stingur höfðinu ofan í matardiskinn, setur jafnvel upp einhvern vanþóknunarsvip eða setur út á það sem ég er að borða "Oj, þetta er eins og...", "til hvers ertu að þessu?", "...geturðu ekki borðað það sem fyrir þig er lagt?" þá fyrst verð ég fokvond. Dónalegt já takk! Hafðu áhyggjur af þínum eigin átvenjum, ekki mínum!
Og hananú!
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.11.2009 | 09:59
Jólalegt
Það eru tryllingslega vel lyktandi og djúsí mandarínur inn í kaffistofu!
Það er verið að útbúa hangikjöt í hádegismatinn! Lyktin hérna inni...
Það snjóar úti.
Það er... það sem titillinn segir!
*tilhlökkunarspenningur* margfaldað með 1337 og einum jólasvein.
Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)