Ég dreg enn andann

Og andinn... dregur mig?

Þá eru blessuð veikindin loksins búin. Loksins... 7, 9, 13! Mikil törn í snýtingum, almennum verkjum og vorkunn. En þetta hafðist á endanum. Ekkert merkilegt í matarmálum þessa vikuna en herre gud og María mey hvað ég hlakka til að fara í ræktina á morgun. Skrokkurinn á mér íkir og skríkir við þá tilhugsun. Magnað hvað rúst á matseðli og almennri heilsu gerir við kroppinn. Líka magnað hvað átvaglinu er nákvæmlega sama hvað ofan í skrokkinn fer þegar smá veikla hellist yfir. Allar heilagar reglur sem viðkoma matar-/æfingaprógrammi og almennu "heilsuáti" fjúka út fyrir lofthjúpinn og það sem hendi er næst er étið með mikilli áfergju. Sama hvort það sé epli eða pizzusneið! Þar af leiðandi verður svakalega gott, hressandi og hamingjusamt að komast í gírinn aftur.

Ég gerði reyndar veiklulega tilraun til að útbúa spelt súkkulaði-pecan bananabrauð í dag. Þetta kvikindi þarf svo sannarlega að betrumbæta áður en vottur af uppskrift dettur inn á þetta blogg. Reyndar afskaplega bragðbott, það vantar ekki - en áferðin. Ó elsku fólkið mitt... ógeðisáferð! Svolítið svipað og formkaka (jebb, þær eru ekki í uppáhaldi hjá mér).

Spelt súkkulaði-pecan bananabrauð

Ekki nóg með það að brauðið sé þurrt og svolítið hart/stammt heldur lítur það út eins og blóðmör! Jæja, það myndi svosum líta út eins og blóðmör þó þetta væri fullkomnasta súkkulaði bananabrauð í heimi sökum litarins. Hmm... þarf líklegast meira af olíu/vökva á móti spelti og kakó. Reyni aftur.. og jafnvel einusinni enn áður en ofurbrauðið verður til.

Spelt súkkulaði-pecan bananabrauðSofandi kisi :)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það gæti jafnvel verið að ég sé að æfa mig fyrir jólapakkann! Hver veit... hann verður æði. Smákökur, konfekt, karamellupopp, biscotti, smábrauð! Svo mörgu úr að velja Joyful

Ætla líka að nýta tækifærið og óska Dossunni minni og Valdanum alls sem er gott í heiminum og stórt knúst til ykkar InLove (t-ið á að vera í knús(t), ég lofa)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Blame it on the áfengi.  Gott ad thú ert ad braggast.

Hungradur (IP-tala skráð) 12.11.2009 kl. 17:05

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Einmitt það sem ég sagði

Elín Helga Egilsdóttir, 12.11.2009 kl. 17:25

3 identicon

Awwwww - vér þökkum knústið og segja bara right back at ya  sinnum 10!!!!

Dossan (og Valdinn) (IP-tala skráð) 12.11.2009 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband