Dagurinn í dag...

...er mikill letidagu og væri, er, fullkominn nýttur sem slíkur!

En það kom inn nýtt interval frá Boobielicious og ég varð að prófa það.

Vaknaði samt í morgun með ásetninginn svoleiðis blindfullan af leti.

Frammúr um 8:30 leitið. Borðaði Chiaskyrið mitt og bláberin. Fékk mér einn kaffi.

Vappaði um.

Tölvaðist smá.

Vappaði meira.

Varð mjög óþolinmóð.

Beinustu leið í ísskápinn til þess eins að gramsa.

Horfði girndaraugum á afgangana af Marbella kjúllanum í nokkrar mínútur en gat svo ekki meira. Þrusaði mér í svitagallann og tók á rás niður í skúr með herra Gymboss. Tók þetta interval. Bara nokku ánægð með mig, en... hefði getað pínt mig aðeins meira. Sérstaklega í uppstigi og hné-lyftum. Þarf svo greinilega að fara að vinna svolítið í maganum blessuðum... stelpukvekendið vinnur mig í magakreppunum um 7-10 stykki! Það er nokkuð magnað.

Æfing #1 – Há hné, hendur beint út (10 * há hné, leggjast alveg á maga, standa upp + endurtaka)

  • Átvaglið: 12 reps, 10 reps, 8 reps, 10 reps
  • Stuna: 8 reps, 7 reps, 7 reps, 7 reps

Æfing #2 – Hliðarhopp með hendur í gólfi og rass upp í loft

  • Átvaglið: 48 reps, 38 reps, 40 reps, 38 reps
  • Stuna: 60 reps, 30 reps, 25 reps, 31 reps

Æfing #3 – Öfugar magakreppur

  • Átvaglið: 18 reps, 14 reps, 13 reps, 12 reps
  • Stuna: 20 reps, 21 reps, 19 reps, 21 reps

Æfing #4 – Hliðar uppstig

  • Átvaglið: 35 reps, 35 reps, 28 reps, 32 reps
  • Stuna: 35 reps, 29 reps, 28 reps, 26 reps

Æfing #5 – Súperman armbeygjur (nú, eða súperkonu)

  • Átvaglið: 13 reps, 8 reps, 7 reps, 7 reps
  • Stuna: 11 reps, 8 reps, 7 reps, 6 reps

Jebb... þarf að pína mig meira áfram.

Sveitt

Sveittari en Aktu Taktu burger hljóp ég á hraða ljóssins inn í ísskáp og graðgaði í mig afgangs kjúlla. Ég var með hann mjög svo ferskan í matarminninu síðan 20 mín fyrr sem gerði átið ennú jákvæðara.

Núna, bræðr og systr... tekur letin við!

Amen.


Samviskunni sleppt lausri

Þrjár púrítanavikur! Ætlaði að vera voðalega góð með mig og taka 2 - 3 í viðbót en æji... elsku bestu.

Æji bara! Það er ekkert skemmtilegt.

Ákvað því að taka þennan laugardaginn með trompi og vitið eitt lömbin ljúf... að "ákveða", eins afskaplega anal og það er (jebb... ég sagði anal), þá er það mun betra fyrir sálarlífið en að detta "óvart og óskipulega" í það. Sérstaklega ef, og þegar, þú ert í einhvurslags detox púrítanaham. Virkar að minnsta kosti vel fyrir mig og mína sárþjáðu nammisál.

Ef ég dett "óvart" í það, á dögum sem áttu upphaflega að vera sallarólegir, og ét á mig gat, verð ég fyrir ægilegum vonbrigðum með átvaglið og fer í hálfgerða fýlu út í sykurdímoninn hið innra. Hádramatískt, en satt. Þessvegna er ágætt að eiga sína sérlegu nammidaga.

Ég nýt nammidagsins mun betur ef ég ákveð "Á morgun kl. 22:00" og læt slag standa. Með því móti hef ég platað sjálfa mig og "friðað" samviskuna. Talið sjálfri mér trú um að átið sé fullkomlega löglegt. Kannski kjánalegt að "þurfa" í raun og veru að öfug sálfræða sjálfan sig svona, ég veit það ekki. En það skilar sér ágætlega fyrir mig.

ALLAVEGA

Át kvöldsins innihélt meðal annars:

Einn af mínum uppáhalds kjúllaréttum. MARBELLA!

Marbella - einn af uppáhalds kjúllaréttunum

Nohm

Með baguette! Elsku besta baguette!

Beauuutiful baguette

Smá grænmeti með því það gerir allt svo æði fínt.

gúrk und tómatas

ÓÓBEIBEH!

Uppáhaldspönnsur

OHOOO... MYHOLYPÖNNSUNESS!

Segjum pönnsur, rjómi, súkkulaði og jarðaber margfaldað með fjórum.

...

Afsakið.... margfaldað með sex... stoppaði bloggskrif þarna í nokkrar mínútur og þá bættust tvær ferðir við.

Bara det beste

Nasl og hamingja í eftirrétt eftir eftirrétt... eða bara eftir-eftirrétt!

Þeir sem vita hvað vantar með eftir-eftirréttinum eru snillingar miklir!

Nóakropp og dökkar súkkulaðirúslur

Mikið er nú gaman að vera ég stundum.

Njótið helgarinnar.


Sítrónu iChiaskyrgrautur með bláberjum

Mikið er gaman að vera ég stundum.

Sítrónu iChiaskyrgrautur með bláberjum

Óskaplega gaman!

Alveg að fá að bíta í gleðina

Sítónu iChiaskyrgrautur með bláberjum

  • 100 gr. hreint hrært Kea skyr
  • 1 tsk. mulin hörfræ
  • 20 gr. hafrar (um það bil 1/4 US bolli)
  • 1 msk chia fræ (mætti vera 1/2 msk)
  • 1 tsk omega3 lýsi með sítrónu
  • 2 tappar torani sykurlaust sýróp
  • 1 tappi vanilludropar
  • Börkur utan af 1/2 sítrónu (nú eða eftir smekk)
  • Safi úr 1/2 sítrónu
  • Bláber eftir smekk, ég notaði frosin
  • Vatn eftir þykktarsmekk, muna að setja aðeins meira en minna. Chia fræin eru þyrst.

Sítrónu iChiaskyrgrautur með bláberjum, hoooly mama

Dásemdin einar. Þykkt, bragðgott, sætt á móti súru. Bláber og sítróna eru að sjálfsögðu svaðaleg blanda og sítrónubörkurinn vs. torani sýrópið er það sem gerir þessa skál gvöðdómlega hvað bragð varðar.

Sítrónu iChiaskyrgrautur með bláberjum

Interval búið!

Bís og trís eftir vinnu með mömmu.

Helgin byrjar formlega klukkan 18:15!


Þorskurinn, vinur minn

Ég held ég afreki það að borða fisk hið minnsta 4 - 6 sinnum í viku! Það er mikill hamingjunnar Herkúles!

eðalþorskur

Svo verð ég að koma þessu að. Ég er umkringd yndislegu fólki. Það er bara ekkert flóknara.

Þakklátari getur ein manneskja ekki verið Smile

Eitt stórt og feitt "takk fyrir að vera til" til ykkar. Þið vitið hver þið eruð InLove


Þrjár víddir í 618

Þar hafið þið það.

618 pistlar sem ég hef pistlað inn á þetta blogg frá upphafi. Hvað eru margir stafir í því?

Ætla að leggjast í skipulagsvinnu við tækifæri og flokka hvern pistil niður í flokk "Hafragrautur, eftir æfingu, fyrir æfingu, interval....".

Vonda við þetta er að ég þarf að fara fram og til baka í kerfinu, fæ ekki alla pistla upp á einfaldan og krúttaralega hátt. Sem er hálfgert rassgat...

...já, ég sagði rassgat!

(_I_)

En gaman að brjóta pistlagreyin aðeins niður. Sjáum hvort mér endist ævin í þetta.

Ágætis át var þó að eiga sér stað rétt í þessu.

Eðalappelsína

Heyyyy! Ekkert svona...

...ég sagði að það hefði verið að eiga sér stað!

Kanilte í svínabolla! Það er enn að eiga sér stað!

kanilte

Bjútíbombur til að bæta þriðju víddinni í eftirmiðdagsátið.

Þær áttu sér líka stað fyrir stuttu síðan.

hnetas

Fiskur í kvöld. Fiskiprins-fiskur. Það er gleðin einar.


iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

Gleði!

Eintóm... andskotans... grautargleði!

Afsakið orðbragðið. Það var bara svo tryllingsleg gleðin sem átti sér stað við átið í morgun.

Þú uppskerð eins og þú sáir... því er snjallt að sá vel! Amk sá, það er byrjunin!

iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

  • 20 gr. grófir hafrar
  • 1/4 bolli vatn
  • 1/2 msk Chia fræ
  • 50 gr. kotasæla
  • salt
  • 1 tappi vanilludropar
  • 1 tappi Torani sykurlaust sýróp
  • dass kanill/bláber.... dass bláber?
  • 1 tsk mulin hörfræ stráð yfir
  • Hræra - ísskápa 

Leit svona út í gærkveldi í miður fallegri birtu!

iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

Leit svona út í morgun í aðeins betri birtu en óskemmtilegri birtu engu að síður.

Ella: "Af hverju ertu svona blá?"

Birtan: "Láttumi'vera!"

iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

NOHM

iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

Munurinn er.... nánast... enginn!!! Klöppum fyrir því! Amk. ekki sjáanlegur en áferðin allt önnur!

Þykkt þykkt þykkt, hamingja hamingja og fjórfalt áferðapartý.

iChiagrautur með kotasælu og bláberjum

Ég græt! Ég á engar möndlur! Hnetur! Hnetusmjör! Hefði verið fullkomið að strá yfir þetta smá hnetum fyrir kram og bæta svo út á gumsið t.d. banana.

Enginn... banani... heldur!

Hvað er að ske-mundur?

En blandið var gott og mun eignast sérstakan stað á uppskriftalista framtíðarinnar. Hérmeð bætt við og viðbætt! Rjómakennt með kanilstrípu og sparki frá bláberjunum! Æði! Væri þó snjallt að setja meira af höfrum næst því þetta var eilítið meira út í það að vera "iChiaKotó með bláberjum og höfrum". En kotasæla er á góða listanum mínum svo það gladdi mig mjög.

HRÆRA!

Kotasælugleði

Kotasælan trjónir á toppnum

Gott spis eftir eðal fínt interval! Fæturnir eru þó eins og soðið spaghetti sökum fettmúlamyrðinga í gær, og aumingjans rassinn... aumingjans grey musinn! Hann á skilið harðsperrusamúð!

Fimmtudagur! Ég get svo svarið það gott fólk.. það var sunnudagur í gær!


Stundum er bara ekki hægt að segja nei!

Sama hvað þið þrætið fyrir það.

kökugleði

Stundum... þá er bara ekki hægt...

ostagleði

...að segja nei!

bláberjaskyrtorta og súkkulaðikaka

Þó svo þið bítið ekki í dýrðina þá er heilinn á yfirsnúning, átvaglið óstýrlátt og bragðlaukagúbbinn í 120% vinnu við að framleiða munnvatn!

Ómælord

Mér er sama hvað þið segið.

Pönnsuhrúga

Þó svo út úr ykkur heyrist pent "Nei takk!" og fólk heldur að sjálfsstjórnin sé svo massíf að heilagur andi kæmi ekki til með að hræra við villikvikindinu hið innra!

ofurkaka

Þá er ekki ein fruma innan veggja þinnar sérlega yfirveguðu persónu sem er sátt við það! 

Hlaðborð

Borðið mitt er t.d. geymslusvæði fyrir bollurnar sem hvíla sig í hægra neðra horni myndarinnar hér að ofan!

hummus með sólþurrkuðum tómötum

Það er mjög krefjandi að vera ég ákkúrat þessa stundina!

Mjög... krefjandi!


Grautarsnilld - einn einfaldan kaffi

Einn einfaldur kaffi.

Þeir sem ekki hafa eftir því tekið þá er þetta uppáhalds blandan mín þessa stundina. Kaffigrautur er mín nýjasta þráhyggja eftir að ég var véluð til kaffidrykkju út í Ástralíu.

VÉLUÐ SEGI ÉG!!!!

Áferðagleðin er í hámarki ákkúrat núna... fullkomin. Grauturinn deigó, silkimjúkur en samt fluffy! Ooojjjj hvað það er gaman að borða þennan. Ekki skamma mig, svolítið eins og sambland af barnamat + deigi. Mjög jákvætt fyrir áferðaperrann! 

Ég veit... ég er ógeð!

Vænlegast til vinnings:

  1. Rúmlega dl grófir hafrar. (grænu Solgryn)
  2. Bleyta upp í höfrum fyrst og örbylgja!
  3. Bæta svo hvítunum út í, hræra vel og örbylgja aftur með hrærustoppum. Leggja allt í hræringinn. Hafrarnir svo gott sem leysast upp.
  4. Hræra loks samanvið'etta Nescafé, kanil, Torani sykurlausu sýrópi, vanilludropum og salti.
  5. Inn í ísskáp eða borða strax. Ég setti mína dýrð í íshellinn góða í gærkveldi.

Ójá!

Einn einfaldur kaffi - áferðagleði

Sjáið bara, það er hægt að skera hann!

Einn einfaldur kaffi

Óhójá!

Einn einfaldur kaffi

Meira að segja hægt að rúlla upp í silkimjúka kúlu!

Einn einfaldur kaffi

Svo virðist sem rúmmálið aukist líka sökum magn vatns sem í grautinn fer fyrir tíma eggjahvítanna! Ég kvarta ekki yfir því!

Nú sit ég upp í rúmi, undir sæng... og japla á grautnum. Það er ægilega notalegt svona snemma á morgnana.

Einn einfaldur kaffi

Þetta skal þróa!

Ætla að ná mér í einn kaffi til að fullkomna morgundýrðina. Bollinn, með sínu geypilega jákvæða innihaldi, verður punkturinn yfir grautar I-ið! Nóakroppið ofan á ísinn. Súkkulaðið utan um jarðaberið. Brúna sósan með kartöflunum!

Fótaxlamyrðing í uppkomandi ofursiglingu!


Klippt og skorið... amk skorið

Intervalið í morgun var sveitt!

Ég þarf samt að herða mig í þessum æfingum. Þarf að vinna í því að stúta mér alveg svo ég standi á öndinni.

Þyrfti þar af leiðandi að redda mér önd!

Einum of notalega ljúf við við sjálfa mig. Stoppa hiklaust þegar ég verð of þreytt. Sérhlífin með eindæmum.

Sem er duló því ég get pínt mig óendanlega þegar ég er að lyfta.

Undursamlegt sítrónu iChiaskyr í morgunmatinn. Hrært í gærkveldi, ískápað og orðið fullkomlega áferðaglatt þegar að áti komi eftir æfingu. Dýrðin innihélt 100 gr. hreint hrært Kea, 1 tsk Ómægod3 lýsi, sítrónusafa, sítrónubörk, 2 tappa torani sykurlaust sýróp, 1 msk chia og 1 tsk mulin hörfræ. Suddalegur sóðmundur! Svo gott á bragðið og áferðið og átvaglið og hamingjan!

Hádó stendur fyrir sínu. Stórt feitt ofurgrænmetissalat ásamt Rip, Rap og Rup. Hlakka alltaf til að borða þetta í vinnunni. Glæpsamlegabrakandinýtt og ferskt grænmeti!

Hádegisgrænmetið

Svo er líka búið að skera gleðina niður fyrir mann! Svoleiðis dekrað við átvöglin hægri vinstri. Mikið skemmtilegra að borða niðurskorið grænmeti því maður getur gúmslað því saman í eina hrúgu. Borða grænmeti yfirleitt hreint og beint í heimahúsum því ég er letigrís fyrir utan þá óumflýjanlegu staðreynd að það.... að skera niður grænmeti, er um það bil drepleiðinlegasta athöfn sem átvaglið stundar!

Jú... og skipta um á rúminu!

En það kemur þessum pistli ekkert við.


Úps...

...ég át... myndalaust... hungur... þið afsakið.

En kvöldmatur var kjúlli frá Nings með grænmeti og möndlur í eftirrétt.

Ég lofa.

Ég veit náttúrulega ekkert hvað myndavél er þegar maginn baular.

Interval á morgun.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband