1.10.2010 | 12:54
Mömmupönnsur
Hvað er heimilislegra og kósý en hús yfirfullt af pönnukökulykt? Sykraður smjörilmur í bland við vanillu. Snarklið sem heyrist þegar deiginu er hellt yfir flundurheita pönnukökupönnuna sem orðin er kolbikasvört af endalausum pönnukökubakstri. Notalegt. Eins og sönnum aðstoðarbakara sæmir stendur þú þína plikt sem yfirumsjónarmaður sykurkarsins. Hver pönnukakan á fætur annarri er sykruð af miklum móð á meðan þú vonar að ein, bara ein misheppnist. Stundum fær maður góðfúslegt leyfi frá bakaranum til þess að forsmakka dýrðina og þá er einni rænt úr staflanum. Ekkert er gleðilegra en að heyra "Já, þú mátt fá eina". Sjóðandi heit kaka, svo heit að sykurinn er þegar bráðnaður. Fyrsti bitinn gleymist seint. Flauelismjúkt deigið svo gott sem bráðnar upp í þér og mildur vanillukeimur fylgir í kjölflarið í bland við sykurbráðina.
Bestu pönnsur sem til eru! Það er einfaldlega ekkert flóknara.
Reyndar eru pönnukökur mikil trúarbrögð og það sem þú aldist upp við er það sem fær munnvatskirtlana til að gráta af gleði. Hvort sem um pönnukökur, kleinur, vöfflur.... er að ræða.
Trúarbrögðin sem fylgja eldunaraðferðinni eru álíka jafn sterk og skoðanirnar á því hvaða pönnukökur eru bestar. Hver fylgir sínu hjarta í þeim efnumi. Sumir vilja sínar pönnsur brúnar og krispí, þykkar, þunnar...
...ég vil mínar ákkúrat svona! Næfurþunnar, ljósar með götum.
Sjáið þið hvað ég á við með "Bestu pönnukökur í heimi"? Þetta er ekkert grín gott fólk. Svona hryllilega gómsætum upplýsingum myndi ég aldrei nokkurntíman ljúga!´
Þú þarft ekki að leita lengra og já... þú mátt þakka mér seinna!
Mömmupönnsur (Uppskrift og texti frá bakaranum sjálfum komið)
- 500 gr.hveiti
- 1 dl. sykur
- 1 L. mjólk
- 100 gr.smjör eða samsvarandi magn annarar fitu
- 4 egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- Tæplega 1 tsk. vanilludropar (eða tveir tappar. Tappinn á dropaglasinu)
- Allt skal vera við stofuhita, a.m.k. ekki ískalt.
- Þurrefnin öll í skál saman... ekki hár saman (doh!)
- Smérið brætt og því hrært saman við þurrefnin.
- Síðan er settur ½ líter af mjólk útí og hrært frenjulega, án þess að skvetta uppúr. (Dýrmætu pönnsudegi skal eigi sóa)
- Þá er eggjum varpað útí, öllum í senn, og áfram hrært.
- Eftir sambland eggja og jukks í skálinni er afgangi af mjólk og vanilludropum bætt við.
- Deigið á nú að vera milliþunnt, með kekkjum hist og her.
- Pannan skal vera vel heit, best að hver finni sinn hita.
- Svo hefst baksturinn
Reyna svo að halda átvöglunum frá sem borða beint af pönnsudisknum. Stundum er gott að vera með flugnaspaða við hönd.
Gleði og gerið svo vel!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.10.2010 | 09:24
Játningar
Þegar ég les bækur, þá les ég síðustu setninguna í bókinni alltaf fyrst. Já... ég á erfitt.
Mér þykir skemmtilegra að baka en "elda".
Tær eru ófríðustu einingar sem fastar eru við skrokkinn á annað borð.
Ég hef brotið litlu tána á hægri fæti þrisvar.
Ég trúi ekki á þann gjörning að borða bara eina smáköku... eða eina pönnsu...
Mér þykir ís og Nóakropp fullkomlega löglegt sem kvöldmatur! Sérstaklega þar sem ég er orðin "stór" og allt það.
Ostrur eru ofmetnar.
30.9.2010 | 14:57
Gestakokkur
Fékk að gestakokka í vinnunni í dag.
Þar sem kjúlli hefur oftar en ekki orðið fyrir vali gestakokka ákvað ég að snúa vörn í sókn og útbúa uppáhalds fiskrétt Gúmmulaðihallarinnar. Arabíska ofurþorskréttinn.
Hann kom æðislega vel út og fólki þótti hann gvöðdómlega fínn.
Fyndið að vinna í svona stóru eldhúsi og útbúa mat fyrir milljón manns. Það er allt stórt eða mikið eða ofur... Ég keypti t.d. smá Aromat sem ég ætlaði að nota. Eldhússkvísurnar mínar áttu hinsvegar nóg af því.
Það er hægara sagt en gert að halda með báðum krumlum utan um kryddstauk og reyna að krydda "pent" mín kæru! Ójá!
17 sítrónur, 40 paprikur, 10 kg. sveppir, 25 kg. þorskhnakki, 36 tómatar, 12 pakkar döðlur, 600 tonn ólívur...
...hihiiiii hvað þetta var geðveikt gaman!!!
Byrja á því að kreysta "nokkrar" sítrónur og leggja fiskinn í vökvann.
YOU'RE DOING IT WRONG!
Hvað sjáið þið fyrir ykkur þegar þið hugsið "Ein dós af ólívum"?
Jæja, allt hráefni reddí og þá byrjar brælan!
Grænmetið fyrst...
...svo fiskurinn!
Sjáið þið grautargleðina fyrir ykkur? 100 tonn af graut!
Raða í risaföt og loksins inn í ofn!
Nohm! Nohm nohm nohm!
HÁ.. alvarlegt mál!
Vona að ég fái að vera gestakokkur aftur - þá verður lasagna eða kjötbollur í sterkri tómatsósu fyrir valinu! Get þó sagt ykkur það að vinna í mötuneyti, og að þurfa að elda fyrir marga mismunandi bragðlauka, er afskaplega... afskaplega vanmetið. Þið skuluð því vera góð við eldhúsfólkið ykkar sama á hvaða vettvangi það er!
Þetta var þvílíkt ys og þys og at og vá. Var að án stopps frá 09:00 til klukkan 14:00! Búa til, bera fram, ganga frá og allt þar á milli! Tíminn flaug og ég át... og át... og át smá meira. Þetta er fullkominn "pill"-vettvangur!
Stórkostlegt!
Takk fyrir mig mínar elsku bestu Erna og Þórunn! Þetta var ekkert nema gleðin einar!!!
Eldhúsm"ellan" kveður að sinni.
Matur og drykkur | Breytt 1.10.2010 kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.9.2010 | 08:16
Lagskiptur Chiaskyrkokteill með bláberjum
Interval yfirstaðið. Tók mig 16:00 mínútur sléttar að klára þetta án þyngdar + 30 fram/afturstig á hvort fót.
Höfum þetta því einfalt, elegant og svolítið menningarlegt.
Því einfalt, elegant og menningarlegt var það í gærkveldi.
- Blanda saman skyri, torani, hörfræjum, vanilludropum og bláberjum. Setja til hliðar.
- Blanda saman 1 msk chia, 1 tappa torani, kanil og vatni eftir smekk. Setja... á ská?
- Ná í elegant og menninarlegt glas. Verandi glas á fæti. Setja bara eitthvert... þó helst í gripfæri.
Alltið og sumtið.
Byrja svo að raða gumsinu ofan í glasið góða og voila.
Lítur þetta ekki krúttaralega út? Hmm.. ha?
Ægilega fensí.
Skiptir öllu fyrir bragð og gæði. Allt annað!
Nei... það er engin kaldhæðni í þessum orðum!
Örlítið meiri fyrirhöfn en að gúsmla öllu draslinu saman í skál og láta þar við sitja.
Aðeins of mikil "fyrirhöfn" til að nenna að gera á hverjum degi?
Aðeins of mikið pjatt bara til að búa til eitthvað "fínt"?
Ægilega gaman að geta sagt "Lagskiptur Chiaskyrkokteill".
Þá helst þegar maður er með pípuhatt og einglyrni "mmyyyeeees...".
En hooooolySkyr hvað það var gaman að borða þetta svona lagskipt. Sérstaklega þegar hægt er að gramsa gegnum hvert lag fyrir sig. Hægt að borða Chiablandið sér, skyrið sér... hræra saman. Óóó þú ljúfa líf. Stundum finnst einmana bláber... vantaði bara hneturnar mínar.
Og átgjörningnum getur maður fylgst með í beinni útsendingu... í gegnum glasið!!
Það er mjög perraleg ánægjan sem fylgdi fótaglasátinu! (amk innihaldi þess)
Mjög perraleg!
SKÁL!
HRÆRA!!!
Nú er mikið uppáhalds hjá undirritaðri að borða upp úr fótaglasi!
Lítið þarf til að gleðja auma sál!
Pjatt eða ekki pjatt... þetta ætla ég að gera aftur!!
Nohm!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.9.2010 | 11:57
Förum í sólbað!
Stórkostlegt þetta veður.
Dásamlegt.
Ég hefði ekki komist í gegnum þennan dag án þess að minnast á veðrið.
Æði!
Eftir að hafa gúllað í mig, minni eftir-æfingu karamellukenndu rís-próteinsamloku, hljóp ég út í bíl sökum láréttrar rigningar sem gerði það eitt að hitta beinustu leið upp í trýnið á mér, þó svo ég væri ég með höfuðið grafið ofan í bringu.
Furðulegt regn hér á Íslandi. Leitast við að hitta ákkúrat inn í eyrun, augun... beinir stórum dropunum beint ofan á hvirfilinn. Ófétið á henni.
Út úr testosterónsprengjunni, sem karl faðir minn notar sem sérlegan hestajeppa og gengur undir nafninu "All that is man" eða "ATM" eða hreinlega bara "Bankinn", reyndi ég að valhoppa og fleyta mér dömulega með vindhviðunum... kom í ljós að vindhviðurnar voru ekkert í fleirtölu heldur í einni stórri öldu af óstöðvandi vind frussi í bland við rigninu, fljúgandi laufblöð og einstaka fugl sem réði ekki neitt við neitt.
Alveg að komast inn í vinnuskjól hljóp ég sem fætur toguðu, með hárið stútfullt af hrati, fyrir hornið og við mér tók allsvaðalegt vindflóð, svo svaðalegt að ég stóð á öndinni, eins og litlu börnin, gapandi eins og fiskur. Í sömu andrá kemur enn önnur vindhviðan og bókstaflega vippar peysunni minni langleiðina upp fyrir ljósaperuna.
Þarna stóð ég með bumbuna svoleiðis skjanna hvíta, beinustu leið út í loftið, augun upp á gátt að reyna að ná andanum aftur. Gat litla björg bumbunni veitt. Hún var kviknakin greyið í góðar 15 sekúndur.
Afhýdd eins og um banana væri að ræða.
Meiri andskotans frekjan í þessu veðri!
Eins dásamlega unaðslega krúttaralegt og það er svo.. að sjálfsögðu. Stórkostlegt... fiðrildi!
Hádegismaturinn stóð fyrir sínu! Risa-grænmetisdiskur!
Smá feta...
...smá balsamic...
...smá kotó og hakk.
Eftirmatur var, meðal annars, fullkomlega vel þroskað döðluhræ.
Mjúk og karamellukennd.
Ein froða! Því froða er dásemdin einar!
Mmmmm...
Ásgeir minn kær í vinnunni vildi að sjálfsögðu ekki vera eftirbátur í myndamálum. Glæztur bollinn hans var því myndaður í leiðinni. Það er víst bannað að skilja útundan!
Síðasta eftirrétta-hádegisátið í dag!
Þrírétta eftirréttur takk!
Hneturnar mínar.
Dásamlega yndislega krúttaralega veðurblíða!
Spakmæli dagsins: Jákvætt viðhorf kemur ekki til með að leysa allan þinn vanda, en það gæti farið í taugarnar á nógu mörgum til að gera það fyrirhafnarinnar virði!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.9.2010 | 04:53
Kryddaður tegrautur
Gúddei lúvlís!
Fætur tolleraðar eftir 93 mínútur en þangað til - grautarhjal.
Vinnan býður upp á svo suddalega ávanabindandi Yogi Te. Ég fjárfesti því í einni pakningu um daginn.
Cinnamon spice... að sjálfsögðu.
Hvað annað?
Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að ég væri 70% kanill, 10% Nóakropp, 5% rjómi, 2% ís og restin hafrar!
En ég veit betur.
Við skulum því hætta þessari vitleysu og snúa okkur að alvarlegri málum eins naflakuski og sápukúlum!
Fyrir utan það, að ef ég væri í raun samsett úr þessari upptalningu minni af hráefnum, væri ég að öllum líkindum einhvurslags piparkaka.
En aftur... þá veit ég betur.
Sem guðs... betur... fer.
Það er svosum ágætt. Væri ég piparkaka ætti ég eflaust erfitt með að narta ekki í sjálfa mig. Sem ætla mætti að væri afskaplega ánægjulega pínleg lífsreynsla?!?!?
...
Klukkan er 4:30. Viljið þið gera svo vel og gefa mér séns hérna!
35 gr. hafrar í skál, tevatn þar yfir og örbylgja.
Þið kunnið þetta.
Tók hinsvegar tepokann og reif hann í öreyndir í einskæru grautaræði!!! Bætti öllu hans innihaldi við elskulega hafrana áður en eggjahvítur komu við sögu.
Eftir eggjahvítur (150 gr) og hræring fékk þetta glæzta Anískrydd að vera með. Sjáið barasta hvað það er nú vel af guði gert.
Lakkrísblóm!
(Hann hefur hinsvegar ekki verið að vanda sig þegar hann bjó til Steinbít og tær, en það er önnur saga)
Inn í örbylgju þangað til grauturinn er að þínu skapi. Ég kryddaði þennan svo með kanil, engifer og negul ásamt torani, vanilludropum og smá salti.
Bætti líka einu Anísblómi við til málamynda eftir kryddun, hrærun og nokkur fleiri -un.
Svolítið eins og það sé könguló í grautnum mínum.
Kom gumsinu loks fyrir inn í ísskáp.
Hvílir sig þarna í sátt og samlyndi við hlið le Gúrken.
Og núna gott fólk... 8 tímum seinna, er ég að borða þessa endemis snilld!
Byrjaði á því að veiða.
Enn aðeins of "blautur" fyrir minn smekk.
Örbylgjaði hann því örlítið áður en át hófst.
Þetta er gleðilega skemmtileg tilbreyting þó svo ég finni kannski ekki stórkostlega fyrir Te-inu sjálfu. En það er þarna, ójá. Kryddin koma líka með skemmtilegt spark og eftirbragðið tileinka ég anís og engifer - þessi grautarskál kætir mig óstjórnlega. Eins og nafna mín sagði - kryddkökufílíngur!
Eina sem mögulega truflar mig er blessað innihaldið úr tepokanum.
Gott á þig Elín! Rífa pokann svona eins og bestía.
Engir mannasiðir.
Yfir og út!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.9.2010 | 11:35
Hádegið í hnotskurn
Svona til að vega upp á móti öllum grautarpistlum þá kemur smá grænt og gleðilegt fyrir augað.
Kjúlli og leynigulrætur. Fékk mér líka ómyndaða brauðsneið með kotasælu.
Vil svo benda á þennan pistil hjá henni Röggu snilla.
Mín skoðun er þó sú að best sé að halda sínum "trúarskoðunum" fyrir sjálfan sig nema einhver spyrji.
Aldrei gott að predika óumbeðinn, sama á hvaða sviði það er.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2010 | 08:21
Áfram með... grautinn
G'day mate!
Sami Hræringur og í gær nema eftir örbylgjun bætti ég út í mjúkelsið Torani, vanilludropum, kanil, salti, hörfræjum og 1/2 msk Chia.
Dropi af skyri og voila!
Þetta... er vinningscombó!
Þó svo myndirnar geri gumsinu engan greiða og ég er löt og nenni ekki að fyrirsæta grautinn sökum magagauls og notalegheitanna sem fylgja því að njóta þess að krullast upp í rúmi og japla á morgunmat. (Segið þetta 10* hratt) Fyrsta skipti í langan tíma sem ég fæ mér heitan graut samt sem áður. Mjög, mjög gott!
Ætlaði líka að hreyfa á mér rassinn í morgun en var þreyttari og svangari en allt sem þreytt er og svangt í þessum heimi!
Hvorki meira né minna.
Fer því og rækta mig eftir vinnu og prófa meðal annars þetta interval.
Verið nú góð hvert við annað og passið að fjúka ekki í góða veðrinu.
27.9.2010 | 10:03
Hræringur og Chiabland
Nýjaðasta uppáhalds hjá mér er að útbúa Chia sósu/graut/muss með kanil og vanillu torani sýrópi.
1 msk chia blandað saman við vatn, smá salt, kanil, Nescafé og torani sýróp og leyft að standa þangað til þykkt. Borða svo með skeið, hreint og beint. Jafnvel nota epli eða eitthvað til að skúbba upp!
Þú getur reynt að drýgja átið og borðað með gaffli... ég mæli samt ekki með því.
Þar af leiðandi bjó ég til hræring í gærkveldi. Held ég kalli þessa "tegund" af graut bara hræring, hann verður svo ofurmjúkur og æðislegur.
Hafrar + vatn í skál og örbylgja.
Ég notaði 20 gr. af höfrum.
Bæta hvítum við, 80 gr. í þessum skammti, á meðan grauturinn er enn heitur.
Hræra og aftur inn í örbylgju.
Skohh... orðinn hvítur og fínn. Samt aðeins of glansandi og "blautur" fyrir minn smekk. Hræra meira og aftur inn í bylgju tækið!
Perfecto.
Hér, í þessari skál, eru hafrarnir svo gott sem uppleystir. Það er einstaka hafrakorn sem þú bítur í, annars er gumsið silkimjúkt og krúttaralegt.
Sem er reyndar mjög ólíkt mér því ég vil alltaf hafa bit, knús og kram!
HRÆRA MEIRA!
Torani, vanilludropar, smá salt, kanill og bláber!
Chiagums!
Chiagums yfir hræringinn, blanda létt og inn í ísskáp.
Sjáið barasta magnið sem ein msk af Chia framkallar þegar vökvi kemur við sögu.
Svona Gremlins stíll á þessu.
Út úr ísskáp í morgun og skreytt með dropa af skyri og hörfræjum... á slaginu 08:30.
Skyrið kom glimrandi vel út í þessu blandi. Mjög gaman að fá "rjómakennda" sýru með sætum, mjúkum grautnum. Ætla að gúmsla því með næst.
Ég veit - skálin er skítug! Ég kenni bláberjunum alfarið um þetta!
Nú veit ég ekki hvort áferð breytist eitthvað ef fræjunum er hreinlega hrært samanvið frá upphafi. Þeir verða kannski meira fluffy og þú finnur ekki alveg jafn mikið fyrir fræjunum sjálfum. Það var því mjög gleðilegt að bíta í mjúkan graut í bland við chiafræin sem hrúgast saman og mynda kúlur.
Hið minnsta skemmtileg tilbreyting.
Stórgott grautarát í morgun. Held ég endurtaki gjörninginn í vikunni!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.9.2010 | 22:50
Dollugrjón og þvottahvítur
Sjáið hvað ég fann í Krónunni!
Er ég kannski svona sein í þessu öllusaman? Er þetta búð að vera til að eilífu?
Var svo spennt að ég opnaði sullið í bílnum í dag og jah...
...bragðlaust!
Áferðin hin ágætasta svosum... kannski svolítið hlaupkennt, en virkar.
Smá vanilludropar + kanill og þið hafið til taks nokkuð fjarskyldan frænda risalamande en étanlegan engu að síður.
Alltaf er maður að finna eitthvað "nýtt".
Talandi um eitthvað "nýtt".
Fann einnig þessa snilld í Krónunni blessaðri! Jebb... þetta... er bara eggjahvítugleði! 1000 kall brúsinn.
Var einmitt að útbúa mér graut fyrir morgundaginn úr þessu.
Þetta lítur samt út eins og þvottalögur.
Ef annað augað byrjar að herpast óeðlilega mikið saman að grautaráti loku skal ég láta ykkur vita.
Matur og drykkur | Breytt 27.9.2010 kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)