8.10.2010 | 09:56
Hvað er það við þessar baunir?
Díses.
Ég skil þetta ekki.
Hreinlega skil þetta bara ekki.
Hvað er það við kaffi sem er svona gott? Það er ekki einusinni það gott á bragðið, ramt, en samt svo... svo gott!
Hvað kom eiginlega fyrir bragðlaukagúbbann?
Við skulum ekki hætta okkur út í umræður á félögunum heitu kaffi og dökku súkkulaði. Það er pro!
Tiramisu - með betri leiðum til að innbyrða kaffi!
Finn samt ekki fyrir áhrifunum sem þessi endurlífgunarelexír á að veita manni. Ef eitthvað, þá verð ég meira sybbin og værukeyr eftir kaffisopann - eitthvað við það að sötra heitt kaffi sem er svo ægilega notó. Hvort sem það er rétt fyrir svefn eða rétt eftir uppvaknelsi.
Fór á Kaffi París um daginn og slurpaði í mig frekar ógeðfelldum kaffibolla. Svolítið eins og blessað kaffið væri endurnýtt. Hálfgert pjatt en kaffið var piss.
Te og kaffi - jah. Held það sé barasta besta kaffið sem ég hef fengið hérna á höfuðborgarsvæðinu og svo að sjálfsögðu Kaffi Krús á Selfossi. Það var ægilega fínt.
Mjög óskýr mynd af Kaffi Krús kaffi.
Sjáið svo bara hvað strákurinn hennar Ernu vinkonu er afskaplega vel heppnað eintak! Bara yndi!
Þó litli snúður komi kaffi ekki við per se, teiknaði ég þessa mynd af honum yfir 100.002 áströlskum kaffibollum og vitið það mín kæru... ástralskt kaffi er töluvert mikið ofurbetra en íslenskt.
Nýsjálenskt kaffi er rómað. Nýsjálensk kaffidrykkja er því fyrirséð kaffidrykkja í minni nánustu framtíð.
Var síðan á Amokka í fyrradag og fékk feikivont kaffi. Allt of brennt. Fíla það ekki. Bollinn líka stútfullur af baunamylsnu. Væri fínt að nota svona brennd/sterk ... köff... sem grunn í hina ýmsustu kaffidrykki samt sem áður.
Kannski ég setji mér það sem markmið að finna hið fullkomna kaffi + kaffihús hérna á Íslandinu? Hver veit.
Hinsvegar er kaffivélin upp í vinnu barasta með betri baunamölunarmaskínum sem ég veit um! Get svo svarið það... fyrir utan Hlöðver að sjálfsögðu! Hann á sérstakan stað í hjartanu.
Þetta er algerlega nýr markaður fyrir mig að kanna! Alveg hreint stórkostlega fínt hmm... ha!
Eigið þið uppáhalds kaffihús hérna í nágrenni við miðju alheimsins?
BWWLLLLAARRRGHHHH...ÖÖÖGGHHH... GUÐMINNGÓÐURÓGEÐ!!! Haldið þið að ég hafi ekki gúllað í mig síðasta sopanum af kaffinu og hann var kaldur. Þvílíkt og annað eins... ojbara! Shit.
Djö... þetta er án efa í 23 skipti sem ég geri þetta. Kræst. ((hrollur))
Föstudagur. Föstudagur til feikigleði. Njótið hans sem mest þið megið elskurnar.
Feikilega... feykilega. Er þetta orð með y eða ekki?
Þetta var mjög... mjög dularfullur bloggpistill!
7.10.2010 | 14:33
Eftirmiðdagurinn í einni mynd og þónokkrum orðum
*FNAS*
Það er allt að gerast. Ég segi frá því seinna. Kvöldin eru troðin af allskonar aktivítetum sem ræna frá mér öllum tíma til nokkurs annars en að anda.
Sem er jákvætt því annars væri ég eflaust ekki að borða þetta núna.
Ég borðaði líka skyr. Hefði betur sleppt því. Varð hálf bumbult af því af einhverjum ástæðum.
Ertu ekki ánægð(ur) að vita það?
Intarvalið í morgun fór sem hér segir.
Hnébeygja á einari (gefið, ég hélt mér í. Get ekki fyrir mitt litla gert þetta frílans):
- Ella: 9, Stuna: 12
- Ella: 8, Stuna: 9
- Ella: 8, Stuna: 8
- Ella: 7, Stuna: 8
Armbeygja - hliðarplanki - magakreppa (olnbogi sem vísar upp beygður í átt að lófa í gólfi):
- Ella: 12, Stuna: 7
- Ella: 10, Stuna: 8
- Ella: 9, Stuna: 7
- Ella: 11, Stuna: 9
Hliðarhopp og hliðar-stig á móti þeirri átt sem hoppað var úr. (hopp til hægri, hliðarstig til vinstri - með vinstri)
- Ella: 12, Stuna: 7
- Ella: 10, Stuna: 8
- Ella: 9, Stuna: 7
- Ella: 11, Stuna: 9
FIMMTUDAGS-TUÐIÐ
Bara smá í tilefni *FNASSINS* hér að ofan.
Ef manneskja er að borða "hollt" eða skipta um líffstíl, hreyfa sig, hoppa, skoppa, dansa og dilla sér, þá virðist ekkert vera sjálfsagðara en að gera hana að skotspón meinhæðinna matarkommenta. Einnig virðist hún sjálfkrafa vera sett í "OF MARGAR HITAEININGAR" flokkinn.
- "Ahh... hún borðar 600 tonn af salati, greyið, því hún vill ekki verða of feit.".
Af hverju ekki:
- "Ahh... hún borðar 600 tonn af salati af því henni þykir það eflaust gott. Svo er hún líka dugleg að hreyfa sig."?
Nú eða bara:
- "...". Og njóta þess í blússandi að borða sinn eigins mat.
Gefið - í mörgum tilfellum er slípun og mörbrennsla jú raunin. Mjög mörgum tilfellum og það er nákvæmlega EKKERT að því og EKKERT út á það að setja annað en húrrandi jákvæðni, gleði og hamingju. Ekki misskilja. En það er oft sett í svo neikvætt samhengi og virðist ná yfir alla hópa "íþróttafólks". Það að grennast er oft fyrsta skrefið hjá mörgum, bónus, í bland við styrk, liðleika og þol.
Eftirfarandi samtal átti sér t.d. stað um daginn:
- Átvagl: Mmmm... girnilega appelsínur. En, ég ætla ekki að fá mér! (Já, ég sagði þetta upphátt. Af hverju, veit áferðabuddah einvörðungu. Takið þetta upp við hann.)
- Einstaklingur: Nei, best að fá sér ekki appelsínur. Það er of mikið af hitaeiningum í þeim. Þú gætir fitnað. (Jú, var að sjálfsögðu ekki meint illa. Átti að vera fyndið)
- Átvagl: Jah, því miður verð ég að hryggja þig með því að þær eru nánast hitaeiningasnauðar blessaðar. En ég var að bursta í mér tennurnar og þeir sem viti bornir eru borða ekki appelsínur eftir tannburstun!
Þetta er svolítið fyndið.
Hefði þessi einstaklingur t.d. látið þetta út úr sér við einhvern sem ekki væri ofvirkur froskahoppari með þráhyggju fyrir eggjahvítum? Ekki það að ég sé að krullast upp eins og ánamaður af vonsku, læt sem vind um eyru þjóta og hef svo sannarlega heyrt það verra.
Læta vindinn líka um nef þjóta. Trýnið mun þakka mér seinna.
Bara spæling.
Ég hlakka annars mikið til komandi mánaða.
Ég er eitt súper hamingjusamt átvagl.
*jól jól jól jól og jólatengt jólalegt jólajól, þakkargjörðarháðtíð og Halogenpartý*
húhh.. veit ekkert hvaðan þetta kom!
Góðar stundir mín kæru.
7.10.2010 | 09:46
3 mínútur
Ég veit ekki hvort ég geti kallað þessa skyrgrauta... grauta... eða skyrgums.
Þó gumsið prýði höfrum, þá er þetta nú varla grautur per se... eða hvað?
Skilgreining mín á hafragraut er svosum ekki hefðbundin, þá miðað við vatnsblandað haframjöl með salti og mjólkurdreitli. Þó það sé nú ægilega dónalega skemmtilegt að fá sér einn upprunalegan af og til.
Morguninn fór annars í brennslu, interval og skyrgrautshræru extraordinaire!!!!
Extra... ordinaire!!
"Af hverju?" Gæti poppað upp í kollinn á þér. "Þetta er nú ekki það fallegasta sem ég hef séð."
Abbabb abb.. ekki svona fljót að dæma.
Bragðið gott fólk... áferðin...
Bráferðin!!!!
Eins... og karamella! KARAM-ELLA!
Egó? Hvað meinarðu... hvað er egó?
Áferðin er líka gooorjös. Þykkt já, en samt... mjúkt. Bráðnar eiginlega upp í manni! Hmm, hvernig get ég best lýst þessu.
Leimmér að hugsa þetta aðeins.
Gerið þetta á morgun. Plís! Guð mun gráta ef þið útbúið þetta ekki. Víljið þið hafa það á samviskunni? Það tók mig ekki nema 3 mínútur að hræra í þetta, 4 ef þið teljið örbylgjuna með.
Einn... tveir... og... svo...
*anda inn*
Um 20 gr. hafrar í skál + vatn og örbylgja. Bæta þá út í gvömsið góðri tsk muldum hörfræjum, 1 tsk omega3 lýsi, 1/2 msk chia, 2 töppum vanillu torani, 1 tappa heslihnetu torani og 1 tappa vanilludropum.
*anda frá*
Húhh... þetta var upptalning!
*anda inn og tala á innsoginu*
Svo bæta út í dýrðina uþb. 100 gr. skyri, hræra smá en ekki alveg. Svo gommu af blá- og hindberjum.
Rétt hræra.
*anda út með eilitlu frussi í endann*
Strá svo með hör og möndl.
Ísskápa!
Oj, hör.
Ég ætla að möndla aðeins með þessa hör? Ojj. Ég tek þetta til baka...
...guðanna bænum elsku bestu. Viljið þið gera það fyrir mig að möndla ekki með hör í morgunmatnum ykkar og strá bara muldum hörfræjum og möndlum yfir gumsið.
Þetta gums er GEGGJAÐ! Hálfgerðar grautarkaramelluklessur inn á milli skyrsins (af því ég blandaði ekki í muss), eilítið sítrónubragð af ómægod, sem kom mér á óvart að passaði með. Finnið ekki fyrir skyrbragði. Heslihnetubragðið rétt lætur vita af sér í lokin og vanillan alveg að gera sitt. Súrsæt ber og kram úr möndlum... gott fólk. Hvernig getur þetta klikkað?
Var að fá mér annan bita... díses. Vildi óska að þið gætuð smakkað!
RJÓMI!!! ÞARNA KOM ÞAÐ!
Bragðið er milt, eins og af rjóma, og áferðin ekki ósvipuð rjómablandaðri grískri jógúrt!
Hvernig er það fyrir fimmtudagsmorgunmat!! Hmm...haaa? Já takk!
Karamella, möndlur, ber, þykkt... dásamlega nákvæmlegaþykkt!
Tók mig pínkulitlar 3 mínútur að klára þetta. Þvílík óhemja. Synd og skömm! Alltaf... það skal ætíð og alltaf borða hægt og njóta gott fólk. Þarfa taka mig á í þessu hægáti.
Gleðitryllingssprengja!!!
Ætla að fá mér þetta aftur um helgina og koma með skothelda "uppskrift".
Það tók mig líka 3 mínútur að standa upp af klósettinu í morgun ... svona ef þið eruð forvitin og vilduð fá að vita hvernig harðsperrunum mínum farnast.
3 mínútur gott fólk!!
Ég tel þó ekki með mínúturnar sem það tók mig að standa upp af gólfinu eftir að ég skúbbaði mér af setunni.
Ef þið sjáið þessa hrygðarmynd fyrir ykkur, þá er ætlunarverki mínu lokið.
Ég vona að þið getið notið dagsins eftir þessar upplýsingar.
Afsakið!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.10.2010 | 09:43
Heilsupressan á húrrandi siglingu
Ég er ægilega ofurspennt.
Þar af leiðandi er mér sönn ánægja að segja frá því að ég, ásamt góðu liði ofurheilsuhetja, verð með pistla, eða blogg, fyrir nýja heimasíðu á vegum Gunnars Más Sigfússonar. Armur frá pressupennum, Golfressan o.fr.
Allsherjar heilsusíða fyrir þá sem vilja vita/læra allt milli himins og jarðar tengt heilsu/matarræði/æfingum ofr. Virkilega ljúffengt lið af fólki sem að þessu kemur, meðal annars eðalkvendið hún Ragga mín Nagli, og sem kemur til með að deila leyndardómum heilsusamlegs lífernis og skrokks í toppstandi. Pff.. ekki miklir leyndardómar svosum, en ótrúlegt en satt þá eru þessar upplýsingar afskaplega vel "faldar" á netinu og maður veit aldrei hverju best sé að treysta. Þessi síða ætti því að auðvelda leitina þar sem allsherjar fróðleikur, samþjappaður á einum stað, er ekkert nema gleði og ég ekkert smá kát að fá að fylgja með og taka þátt!
Nú er því stóra spurningin sú hvort ungfrúin færi bloggið blessað yfir á pressuna eða haldi áfram skrifum hér? Ef ég færi það ekki yfir myndi ég ljá pressunni almennar spælingar og grautargleði í bland við millimál og nota þennan vettvang til að tuða um daginn, veginn og hversu mikið ég elska áferðina á baunasúpum!
Og hversu mikið ég elska kanil... og skeiðar... og súkkulaði... og hnetur...
Þið viljið kannski aðstoða mig við ákvörðunina? Hvíla mbl í einhvern tíma... alfarið?
Heilsupressan fer annars í loftið næstkomandi laugardag. Ég hef þegar fengið smá innsýn í pistlana sem koma til með að líta dagsins ljós á þessum annars ágæta vettvangi. Barasta flottir og stút.. glimrandi fullir af fróðleik.
Þið verðið ekki vonsvikin... treystið mér. Meira að segja ég er að drepast ég hlakka svo til alls gumsins sem á eftir að birtast á þessari síðu. Kemur til með að hjálpa mér helling.
Hmmm.... Ekki það að ég sé eitthvað fyllri af fróðleik en næsti maður.
Þetta voru sumsé gleðifréttir dagsins í dag í boði Elínar Helgu.
Thank you... thankyouverymuch! (Elvis style)
ps: Ég fór svo feikilega illa með fettmúlana í morgun að ég þurfti að hvíla mig á leiðinni upp stigann í ræktarhúsi. Ég var næstum búin að húkka far með einum steraboltanum, en hann stoppaði 3 tröppum fyrir neðan mig.
Hann hefur því tekið 3 tröppum betur á en ég, bansettur!
Eitt er þó alveg víst, að það eru fleiri en bara ég sem koma til með að eiga í erfiðleikum með að standa upp af klósettinu á morgun!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
5.10.2010 | 22:09
Baunir, já takk
Hef ég sagt ykkur frá þrálátri ást minni á mat og öllum þeim (þúsund og fimmtíu milljón)*(RJÓMI)^4 áferðum sem hinar ýmsu fæðutegundir hafa að geyma?
Hef ég?
Í alvöru?
Til hamingju. Þá vitið þið næstum því allt um mig.
Kvöldmatur kvöldsins í kvöld (hvað eru mörg kvöld í því?) *trommusláttur*
Linsubaunasúpa!
Linsubaunir prýddu matarborð Ásbúðinga þetta kveldið. Stórgóð súpa sem fengin var að láni héðan.
Af hverju byrjaði ég þennan pistil á áferðatuði? Jú, af því þessa súpu var, og er, hægt að borða með gaffli! Svolítið eins og hummus ef ég á að áferðasamanburða eitthvað. Ef það er ekki ástæða til að taka stríðsdans upp úr þurru veit ég ekki hvað! Stórkostlega skemmtilegt fyrir áferðaperrann!
Ekki svo skemmtilegt fyrir systur hans.
Svona er nú smekkur manna mismunandi mín kæru.
Með þessu graðgaði ég fisk síðan í gær, kjúlla síðan í dag, tómat*2 og 1/2 papriku.
Ég gæti mögulega hafa gúffað þessu í mig líka. Mögulega.
Það er mögulega mjög líklegt.
Líklega gúffaði ég þessu í mig líka.
Já, ég gúffaði þessu í mig líka.
Ofnbakaðar sætar og grænmeti í hnetusósu. Aðkeyptri.
Ekki dæma... hún var dásamleg.
Ég og móðir mín kær sammæltumst þó um að við næstu linsubaunasúpugerð myndi sítróna ekki koma við sögu heldur þung massíf krydd eins og cumin eða karrý ásamt mikið af hvítlauk.
En góð var hún og pervisin var gleðin sem fylgdi átinu, uss!
Tók annars stutta brennslu eftir vinnu. Skellti líka í nokkuð gleðilegar interval-brennsluæfingar, sem gætu mögulega hafa innihaldið einstaka frosk, og lauk þessu öllusaman með magamorði! Þetta var hið ágætasta sprikl og öxlin fékk kærkomið æfingafrí.
Hafragrautur eftir 7 tíma.
Fótamorð eftir 8,5 tíma.
Gleðifréttir eftir 11 tíma.
Nótt í hausinn á ykkur strumparnir mínir.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2010 | 14:34
Hádegisfiskur og interval í eftirmiðdaginn
Þarf ég nokkuð að segja eitthvað meira?
Titillinn er svo assgoti lýsandi í þetta skiptið.
Hefði svosum getað skrifað "Safnar þú naflakuski?" þó svo það komi innihaldi pistilsins ekki á nokkurn hátt við og kæmi án efa einhverjum til að kúgast og gráta smá.
Svolítið kjánalegt ekki satt?
Eða hvað?
Hádegisfiskur og grasið góða.
Ristaðar furuhnetur.
Mig dreymir... ristaðar furuhnetur.
Interval eftir vinnu. Tek þennan hring hér.
Öxlin er samt eitthvað að pirra mig. Ekki alveg nógu smart. Ef hún fer í fýlu eftir æfingar dagsins verður hún sett í einangrun.
Kjánalegt að fara á æfingu ef öxlin er í fýlu ekki satt?
Eða hvað?
Endurtekin skrif gera ekkert gagn þegar titillinn er svona ægilega fínn, er það nokkuð?
Froðusnakk er ekki jákvætt snakk geri ég ráð fyrir.
Ok.. hætt.
5.10.2010 | 08:25
Hibiscus iChiaskyrgrautur með hindberja-balsamic sýrópi
Ég er öll í morgunmatnum þessa dagana.
Sveik ykkur meðal annars um lasagna á sunnudaginn.
Svei þér Elín Helga Egilsdóttir... megir þú bíta í appelsínubörk rétt eftir tannburstun!
Jæja, nó komið af skömm og skælingu, vindum okkur að þessari snilld!!!
Ójá... ó... já!
Dásemd.
Dýrð.
Viltu sjá meira? Ókei...
...ég álasa þér ekki.
Gerðu svo vel!
Þetta smakkast jafn vel... og mér þykir það líta girnilega út!
Og mér þykir þetta líta mjög... girnilega út!
Ég er að borða þetta núna.
Ef það slettist grautur á skjáinn hjá þér bið ég þig um að afsaka.
Selbitaðu hann bara af.
Hibiscus yogi te. Það er rautt þema í dag!
Setja um það bil 20 gr. hafra í skál ásamt 1 msk chia.
Og hella tevatninu yfir.
Leyfum chiafræjunum að drekka nóg. Þau eru svo þyrst greyin.
Ahh, ákkúrat! Já takk.
Ég vil ekki lifa í heimi án Chiafæja. Ef, fyrir einhverja ónáttúrulega tilviljun, plantan sem framleiðir þessa litlu hamingjubolta þurrkast af yfirborði jarðar, þá vitið þið hvað þið þurfið að gera.
Bæta loks út í gumsið smá vanilludropum, kanil, salti, skyri og torani sýrópi. Allt eftir smekk.
Ekki sullusmekk þó.
Ætli ég hafi ekki notað um það bil 100 gr. skyr, 1 tappa vanilludropa, 2 tappa torani, örsalt og 100 tonn af kanil.
Rökhugsun mín er óbrigðul í kanilmálum.
HRÆRA!
Og blandið hefur tekið fölbleikan lit.
Alveg eins og litaspjaldið sagði til um.
Taka nokkur hindber og bæta þeim við dýrðina.
1 tsk mulin hörfræ.
HRÆRA!
Hindberja-balsamic sýróp
- Hindber... nema þú vijlir bláber, jarðaber, æðiber. En þá breytist væntanlega nafnið á sýrópinu. Þú gætir svosum haldið hinberjaþættinum í nafninu þrátt fyrir að berjategundin breytist. Það sem gerir þig glaða(n) er það sem blivar.
- Sletta balsamic edik
- Torani sýróp
Hvernig fer ég að?
Frosin ber í skál og sletta yfir smá balsamic ediki og torani sýrópi.
Henda inn í örbylgju með hrærustoppum þangað til nokkuð þykkt. Ég held ég hafi verið með þetta inni í 3 - 4 mín með stoppum.
Voila!
Aðeins nær.
Því í minni bók er þetta guðdómlega gleðilega önaðslegt og ég vill að þetta verði partur af lífi mínu... alltaf.
Bókin mín er einstaklega skemmtileg.
Ef vill þá er hægt að bæta út í þetta smá vatni og hunangi og sjóða vel niður. En þá myndi ég vera fensí og fín og malla þetta í potti... á hellu, eins og almennilegt fólk.
En ég er ekki almennilegt fólk.
Ég er latt fólk.
Örbylgjan er vinur minn. Ekki... hata örbylgjuna!
Sýrópinu hellt yfir grautarskyrchiakássuna...
...og meistaraverkið tekið út í myndum.
Þú veist þig langar í.
Ef þig langar ekki í, þá þarf ég því miður að tilkynna þér að það vantar í þig langarann.
Held þeir fáist í IKEA.
Svona nú. Take it all in!
Bara smá í viðbót... njóttu sem mest þú mátt.
Ok... komið gott.
Við viljum ekki eyða þessu upp með eintómu góni!
Borða takk!
Þó ég sé löngu byrjuð að borða. Þetta mall er aðeins of hratt að breyast í Þátíðarmall.
Amen.
Gott?
Er þetta gott?
Sýrópið verður að hálfgerðri karamellu eftir ísskápsveruna. Ótrúlegt en satt þá kemur te-ið með skemmtilegt eftirbragð, hélt það myndi ekki eiga sér stað sökum sýrunnar í skyrinu en Torani virðist gera skyrkraftaverk. Upp úr þurru bítur maður svo í súrt ber, sem hefur yfir nóttina orðið eitt með grautnum, og átvaglið ískrar af hamingju.
ÍÍÍSKR!
Takk fyrir mig.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.10.2010 | 09:59
Piparkökugrautur
OG ALLIR MEÐ!!!
Þegar pipargrautur eldast.
Grautargerðarkvendi tekur.
Fyrst af öllu Buddha skál.
Og svo eitt kíló haframjöl.
Setur inn í örra og lokar.
En það næsta sem hún notar.
Er að hræra fullt af vatni.
Saman við það heillin mín.
Þegar öllur þessu er lokið.
Takast nokkrar eggjahvítur.
Maður þær og tonn af kanil.
Blandar Buddahnum vel í.
síðan á að setja í þetta.
Eina góða teskeið kaffi.
Svo er þá að HRÆRA grautinn.
Og borða hægt með bestu lyst.
Og bara svo þið vitið af því, þá er mjög krefjandi að setja vatn í skál sem búið er að loka inn í örbylgju!
En í raun og veru er þetta stjarna dagsins!
Bætti svo við gumsið auka kanil, engifer, örlítið af Nescafé, dust af kakódufti, torani og vanilludropum.
Hræringur af bestu sort.
Piparkaka að morgni.
En dónalega skemmtilegt.
Þessi skál var... börnin mín, ég grét af gleði í morgun.
Grét...
...af gleði!
En þar sem blessaðir brúngrautarnir eru skelfilegri útlits en nývaknaður Keith Richards þá sýni ég ykkur bara brúnina á skálinni.
Þetta er ein. Fín. Brún!
Treystið mér. Þið viljið ekki sjá grautinn.
Þið viljið ekki... sjá grautinn.
Ég held ég sé komin með nýja þráhyggju.
ps: Ég sagðist ætla að sjá ykkur í gærkveldi en ég laug. LAUG!
Ekki horfa svona á mig!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.10.2010 | 15:01
Óvænt dansgleði
Gærdagurinn leystist upp í allsherjar dansfiestu! Alveg óplanað.
Aumingja fæturnir.
Aumingja tærnar.
Aumingja skrokkurinn.
Gamalmennið að taka völdin? Grautarætan sem komin er í bælið klukkan 22:00, flesta daga, enn uppi á miðnætti að marsera við Pál Óskar í kaupbæti... eins og freðmýrartröll. Svo glæzt var sveiflan gott fólk!!
Hef ekki dansað svona í langan, langan tíma... og með uppáhalds kvendunum mínum í þokkabót. Hrundum óvænt inn á ball með Páli Óskari og hann klikkar seint mín kæru. Tók sporið tryllingslega frá 24:00 - 03:00...
*hné í enni* - * hæll í hnakka*
...og þá sagði skrokkurinn "NEI TAKK... FREKAR VILL ÉG TVÖFALDAN BOOTCAMP EÐA RASSAVÉL Í KLUKKUTÍMA". Hverskonar eiginlega... upsteyt og læti. Ég hef haldið sjúklegri snúning lengur út en auma þrjá tíma. Svo mikið er víst.
En óendanlega skemmtilegt kvöld engu að síður í ægilega jákvæðum félagsskap.
Óvæntur dans... er góður dans!
Vaknaði því heldur seint. Gúllaði í mig eggjaköku, sofnaði aftur, gúllaði í mig hindberja-chiagraut með kotasælu. Það... er svakalegt gott fólk! Uppskrift væntanleg á næstu dögum.
Tók ekki myndir af nokkrum sköpuðum hlut og er núna að fara í lasagna innkaup fyrir kvöldið.
Sunnudagar nýttir í eðalmat. Einn tekur að sér eldamennsku og svo setjast allir saman við matarborðið, smjatta, tala um daginn og veginn og njóta þess að vera til!
Sjáumst í kveld!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2010 | 18:25
Laugardagur til leti
Tók þó þetta interval í dag. Skorið mitt varð eftirfarandi.
1. hluti Tími, 30 endurtekningar
Ein endurtekning = eitt stórt jafnfætis hopp fram, tvö lítil afturábak og svo beint í áttu.
- Átta er armbeygja, nema þú hoppar sundur með fætur þegar þú ferð niður í armbeygjuna, saman þegar þú þrýstir upp.
Þetta hopp er lúmskt ógeðslega erfitt og ojbara hvað ég dó eftir 12 endurtekningar!
Ella: 5:40, Stuna: 4:48
2. hluti 5 mínútna interval (10 sek hvíld, 20 sek vinna)
Var ekki með sippuband svo ég tók bara hrein og bein há hné og skipti úr jumping jacks yfir í low jacks. Fyrst HH (Há Hné) svo Jumping Jacks (JJ):
- Ella: 60, 40 - Stuna: 46, 40
- Ella: 56, 36 - Stuna: 51, 43
- Ella: 50, 34 - Stuna: 52 ,40
- Ella: 50, 30 - Stuna: 50, 41
- Ella: 52, 33 - Stuna: 44, 40
3. hluti Tími, 30 endurtekningar
Ein endurtekning = Hliðarplanki + magakreppa. Vinstra hné í átt að hægri olnboga, ef vinstri fótur er nær gólfi. Beint úr hliðarplanka í armbeygjustöðu þar sem vinstra hné er otað að hægri olnboga, undir maga, og svo loks hægra hné að vistri olnboga.
Ella: 3:14 (Gefið, var ekki búin að sippa neitt), Stuna: 4:46
Gleðilegt nokk!
Æfing búin og beint í át. Bjó mér til hindberjasósu og bætti út í hana Chia! Það var bara, fullt af orðum sem enda á -legt, eins og gleðilegt, ánægjulegt, skemmtilegt... skulum ekki fara út í leiðinlegt enda á það ekkert heima í þessum pistli, að kjammsa á þessari snilld. Ég sé bláberjasósur, blandaðar ávaxtasósur fyrir mér á komandi dögum! Grautar, skyr, kokteilar, pönnsur... *gleði*
Hitaði hindberin í örbylgju þangað til þau breyttust í muss, bætti út í þau kanil/torani/vanillu/ögn salti/ chia og smá vatni. Leyfði að standa í 5 mín þangað til þykkt.
Svo beinustu leið út á skyr... eða graut... eða bara upp í svartholið!
Ég nýtti mér skyrið í dag!
HRÆRA!
Eigið gott kvöld - sushi og vinkvennaspjall er fyrirséð í minni nánustu framtíð!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)