18.7.2010 | 20:00
Þegar maður heldur að það verði ekki betra...
...þá verður það barasta betra!
Þvílíkur dagur! Húhhh!
11:00
Átvaglið og átvaglspabbi viltu graut í morgndegismat!
Hafragrautsskraut - check!
11:15
Rétt náðir mynd af restinni. Gleymdi meira að segja að taka mynd af mínum disk.
Og bara svo þið vitið af því, þá er grautur + grísk jógúrt = himnaríki!
Alveg geggjaður þessi. Chia bananagrautur með döðlum.
1/2 bolli hafrar
1/2 bolli sólskyns múslí
1 bolli léttmjólk/undanrenna
1 bolli vatn
smá salt
1 stappaður banani
2 msk chia
10 niðurskornar þurrkaðar döðlur
ríflega teskeið vanilludropar
Sjóða - hræra - hafragrautsskreyta - njóta!
11:20
Svo bjó ég til þessa krúttusprengju úr afgöngum fyrir systur mína.
WAAA.... of mikil sól. Inn með þetta!
Ahh.. betra.
Afgangsgrautur, banani, sykurlaus bláberjasulta, múslí og grísk! Bara geggjað.
15:10
Rassgatakleina!
Buns of steel!
18:00
Grillum, grillum, grillum út á palli.
Syngist eins og "Á Sprengisandi"
18:10
Húúabbaaa...
...babbarawhamm! Og FLIPP!
Voila! Grilltaktar extraordinaire!
18:30
Hrefna fyrir.
18:31
Hrefna á meðan.
18:32
Hefna eftir.
18:33
18:40
18:41
Hrefna löngu eftir! Glæsilegt, ekki satt?
Aaaaðeins nær!
19:10
HVAÐ?
Ekki horfa svona á mig!
Þetta var dónalega gott - enda fékk ég mér líka tvisvar!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.7.2010 | 15:48
Chiaskyr og þetta veður...
...jahérna hér. Þetta veður!
Þvílík dásemd.
Svo hlýtt.
Æðislegt þegar eyjan ákveður að blessa okkur með ofurveðri. Þá er hver einasti íslendingur úti á brókinni eitthvað að vesenast - nú eða liggja í leti með belginn upp í loft eins og ég er að gera núna.
Ægilega jákvætt þetta land að sumri til. Chiaskyr er líka jákvætt að sumri til eftir brennslu. Sérstaklega chiaskyr sem er búið að fá að dúsa inn í ísskáp í klukktíma og kólna vel. Eins og að borða sagó með skyrbragði! Hahh!!
Elska sago.
Elska líka þetta hengirúm. Er aðeins of löt til að ná í myndavélina, búin að koma mér hérna fyrir og nota því myndavélina sem fylgir makkanum.
Gerið það fyrir mig og njótið dagsins! Það þýðir bara ekkert annað!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2010 | 11:37
Fallegir litir
Svona líka fínir.
Appelsínugult, grænt, hvítt, rautt, brúnt...
...og appelsínugult, grænt, gult, rautt og.. jah.. brúnt!
Ég borðaði annan skammtinn græðgislega á meðan ég horfði á hinn skammtinn græðgislega.
Þið megið geta hvora litadýrðina ég borðaði!
15.7.2010 | 11:13
Kaffigrautur, taka tvö
Vaknaði fyrir allar aldir í morgun. Fór frammúr um 6 leitið og beinusu leið út í þessa andskotans endemis blessuðu rjómablíðu í smá hlaup.
Uss - hlaup á tóman maga er ekki góð hugmynd! Man það næst! En... ég náði þó að hlaupa í 30 mínútur, á hægustu sniglaferð, án þess að stoppa. Mikið afrek fyrir átvaglið engu að síður.
Gleypti flugu í leiðinni.
Það var ógeð.
Stoppaði samt ekki!
Á svona degi hefði ég, undir venjulegum kringumstæðum, fengið mér góðan, frískandi og djúsí kaldan skyrdrykk en kaffigrauturinn og chia fræin ásækja átvaglið svo stíft um þessar mundir að grautur og kaffi unnu frískleikann og hamingjuna!
Prófum kaffigleðina áfram og sjáum hvað setur! Hellugrautur. Hvað annað? Hlakka til, hlakka til!
- 1/3 bolli hafrar
- 1/3 bolli vatn/mjólk
- 1/3 bolli kaffi
- 1/2 banani
- 1 msk chia fræ
- 1 tsk vanilludropar
- smá salt
Hafragrautsskraut:
- Heslihnetur (tekur einhver eftir því að ég á poka af heslihnetum?)
- Múslí
- Hunang
- Nokkrar tsk auka kaffi + mjólk
Voila!
Greyið. Hann lítur nú ekki par fallega út. Girnilegri grauta hef ég augum litið, svo mikið er víst. Ætla ekki einusinni að segja ykkur á hvað þetta minnir mig. Held þið getið gert ykkur það í hugarlund sjálf.
Vanalega hefði ég hlammað mínum sérlega afturenda í hornið mitt ásamt graut og kaffi. Í dag var hornið góða hinsvegar svo kalt og blautt og grátt miðað við...
...TADAAAAA! *englahljóð*
Ekki það að ég vilji svíkja lit... en... æji, sjáið hvað þessi dýrð er miklu girnilegri til á(t)setu!
Átvaglið á leiðinni... grauturinn alveg að fá að smakkast!
Rassinum komið fyrir í rúmi hengisins!
Grauturinn aaaalveg... að fá að smakkast!
*tilhlökkunarspenningur*
Hmmmm.....
Ohhhhh... vonbrigði! Ég sem hlakkaði svo til!
Já, smá kaffibragð! Já, fullkomin áferð en hmm.., vantar ennþá eitthvað. Setti reyndar ekki kanil. Chia fræin eru svo gott sem bragðlaus, gefa bara önaðslega áferð. Kannski það þurfi að krydda dýrið meira vegna þessa? Bananinn var ekki nægjanlega þroskaður heldur. Yfirleitt er 1/2 banani meira en nóg til að sæta - kannsi chia fræin hafi deyft það eitthvað!!
Hmmmm... tilraunum skal áfram haldið.
EN... aftur... aaaalls ekki vondur. Enda skálin sleikt!
Allt á réttri leið þó!
Njóta svo útsýnisins eftir sérdeilis gott át og slappa af í sólinni!
Þessi ákvað að kíkja í heimsókn.
Garðurinn er stútfullur af humlum.
Alveg kyrrt. Alveg hljótt. Hlýtt. Humlur. Fuglasöngur. Hvíld eftir hlaup. Mett eftir graut.
Gæti tekið mér kríublund.
Notalegt. Mjög... notalegt! Forréttindi að fá að nýta morgnana á þennan hátt.
Yfir og út!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.7.2010 | 12:37
Hvað er það við þessar baunir?
Díses.
Ég skil þetta ekki.
Hreinlega skil þetta bara ekki.
Hvað er það við kaffi sem er svona gott? Það er ekki einusinni það gott á bragðið, ramt, en samt svo... svo gott!
Hvað kom eiginlega fyrir bragðlaukagúbbann?
Við skulum ekki hætta okkur út í umræður á félögunum heitu kaffi og dökku súkkulaði. Það er pro!
Tiramisu - með betri leiðum til að innbyrða kaffi!
Finn samt ekki fyrir áhrifunum sem þessi endurlífgunarelexír á að veita manni. Ef eitthvað, þá verð ég meira sybbin og værukeyr eftir kaffisopann - eitthvað við það að sötra heitt kaffi sem er svo ægilega notó. Hvort sem það er rétt fyrir svefn eða rétt eftir uppvaknelsi.
Fór á Kaffi París um daginn og slurpaði í mig frekar ógeðfelldum kaffibolla. Svolítið eins og blessað kaffið væri endurnýtt. Hálfgert pjatt en kaffið var piss.
Te og kaffi - jah. Held það sé barasta besta kaffið sem ég hef fengið hérna á höfuðborgarsvæðinu og svo að sjálfsögðu Kaffi Krús á Selfossi. Það var ægilega fínt.
Mjög óskýr mynd af Kaffi Krús kaffi.
Sjáið svo bara hvað strákurinn hennar Ernu vinkonu er afskaplega vel heppnað eintak! Bara yndi!
Þó litli snúður komi kaffi ekki við per se, teiknaði ég þessa mynd af honum yfir 100.002 áströlskum kaffibollum og vitið það mín kæru... ástralskt kaffi er töluvert mikið ofurbetra en íslenskt.
Nýsjálenskt kaffi er rómað. Nýsjálensk kaffidrykkja er því fyrirséð kaffidrykkja í minni nánustu framtíð.
Var síðan á Amokka í fyrradag og fékk feikivont kaffi. Allt of brennt. Fíla það ekki. Bollinn líka stútfullur af baunamylsnu. Væri fínt að nota svona brennd/sterk ... köff... sem grunn í hina ýmsustu kaffidrykki samt sem áður.
Kannski ég setji mér það sem markmið að finna hið fullkomna kaffi + kaffihús hérna á Íslandinu? Hver veit.
Hinsvegar er kaffivélin upp í vinnu barasta með betri baunamölunarmaskínum sem ég veit um! Get svo svarið það... fyrir utan Hlöðver að sjálfsögðu! Hann á sérstakan stað í hjartanu.
Þetta er algerlega nýr markaður fyrir mig að kanna! Alveg hreint stórkostlega fínt hmm... ha!
Eigið þið uppáhalds kaffihús hérna í nágrenni við miðju alheimsins?
BWWLLLLAARRRGHHHH...ÖÖÖGGHHH... GUÐMINNGÓÐURÓGEÐ!!! Haldið þið að ég hafi ekki gúllað í mig síðasta sopanum af kaffinu og hann var kaldur. Þvílíkt og annað eins... ojbara! Shit.
Djö... þetta er án efa í 23 skipti sem ég geri þetta. Kræst. ((hrollur))
Föstudagur. Föstudagur til feikigleði. Njótið hans sem mest þið megið elskurnar.
Feikilega... feykilega. Er þetta orð með y eða ekki?
Þetta var mjög... mjög dularfullur bloggpistill!
Matur og drykkur | Breytt 8.10.2010 kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2010 | 10:53
Chia iGrautur með skyri, banana, bláberjum, múslí og heslihnetum
iGrautur = Ísskápsgrautur! Er það ekki bara ágætis viðurnefni?
Ókeilí... rifja upp.
Það sem ég gerði í gærkvöldi var að blanda saman:
- 1/4 bolli hafrar
- 1/2 lítil skyrdolla
- 1/4 bolli vatn (eða mjólk... eða bæði)
- 1/2 msk chia fræ (óóhhbeibeh)
- smá vanilludropar
- ögn af salti
Beint út úr ísskáp leit dýrðin svona út í morgun! Smá munur ekki satt?
Guð.Minn.Góður! Ég get ekki beðið!
Áferðaperrinn að fara úr skinninu við þessa sjón!
Hafragrautsskraut:
- Banani
- Bláber (frostin, því miður)
- Múslí
- Heslihnetur
Hómægod hómægod... hlakka til! Búin að koma öllu fallega fyrir í útsýnis horninu mínu. Fífan þarna hress á kanntinum.
Með kaffi! Ahhhh....
Átvagls útsýni rétt aður en fyrsti sopinn er gúllaður.
Ég elska þessa bolla svo mikið!
JESS! Allt tilbúið í ofurát!
Tvöfalt JESS!
HOLYMOLYNESS! Ég er svo spennt yfir þessum gjörning að mörkin milli eðlilegrar og óeðlilegrar hamingju eru óskýrari en rugluð stöð 2.
Ég lokaði augunum, beindi skeiðinni ofan í diskinn og skúbbaði upp smávegis graut.
Mjög gott.
Mjög mjög gott... jákvæð fyrsta skeið. SJÁIÐETTABARA! Hohh ég elska chia fræ svo mikið! Þessi grautur var ákkúrat réttsælis þykkur og fínn og deigó og gvöðdómlegur! Gumsið hreyfist ekki einusinni, lafir bara sem mest það má fram af uppáhalds át áhaldinu!
Enda át ég líka lafið hraðar en ljósið ferðast... og heilagur hafragrautsguð og áferðabúdda!
Áferða... himnaríki!
Skúbbið skildi meira að segja eftir sig dæld í grautnum!
Bitinn á myndinni hér að ofan, án alls hafragrautsskrauts, lofaði svo góðu að án þess að vita hvað framtíðin bæri í skauti sér hefði ég getað dáið hamingjusöm... og þá skúbbaði ég í annað sinn!
Engin orð! *hamingjugleðisprengja*
Gwaaaah! HRÆRA!
Haldið þið að ég hafi planað þessa litasamsetningu?
Morguntær... af hverju ég er að setja jafn girnilega mynd og þessa hingað inn er ofar mínum skilningi? Af hverju ég stoppa þessi spjöll ekki í fæðingu geri ég mér heldur ekki grein fyrir? Sérstaklega þar sem ég fyrirlít kræklur út í hið óendanlega. Eitthvað svo gígantískt ónáttúrulegt við þær. Með óhuggulegri líkamspörtum. Segi það satt. Fyrir utan þá óumflýjanlegu staðreynd hvað tær eru, yfir höfuð, hræðilega ófríðar þá getur einnig oft verið vond lykt af þeim! Talandi um að bæta gráu ofan á svart - greyin! Einu tær alheimsins sem gætu mögulega talist sætar eru flundurnýjar barnatær.
Ókei. Aftur að grautnum!
Þetta var svo gooooott! Æjj... og enginn fékk að njóta þessa með mér! Synd og skömm. Væri hægt að bæta út í þetta hunangi eða agave viljir þú sætara skúbb - bananinn og berin voru passleg fyrir mig.
Það góða við þennan iGrauts gjörning, að auki við augljósa kosti, er að þú finnur vart fyrir því að hafrar feli sig í gumsinu. Þar af leiðandi, ef þú átt erfitt með hafragrautsát, ættir þú að geta gert þér þessa bjútibombu að góðu án nokkurrar velgju
Ég á heilan dúnk af chia gleðisprengjum í viðbót! Þrjátíu máltíðir hið minnsta! Hihihi.. margir chiagrautar framundan, chia skyrgums, chia smoothies, chia chia.
Hafragrauts chia-móðursýkin er alveg að renna af mér hérna.
Hef hinsvegar komist að því að át-áhöld og matargeymslur skipta undirritaða töluverðu máli þegar troddað er í andlitið! Svo perralega skemmtilegt að breyta til og nota mismunandi skálar, bolla. Borða beint upp úr skyrdollunni, hnetusmjörskrukkunni... við skulum ekki einusinni hætta okkur út í umræður á teskeiðum!
Ahh... hafið það ljúft í dag fólkið mitt
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.7.2010 | 20:37
Amk 11,5 tímar þangað til!
Laaaaaaaaaaawd allmighty!
Sjáið bara, elsku fólkið mitt, hvað ég fjárfesti í fínum dunk af hamingju!
Þessi fræ eru reyndar hvít. Veit ekki hvort það skipti einhverju máli áferðarlega séð, held nú varla, en við sjáum til... og já, ég gat ekki beðið og opnaði dúnkinn í bílnum í dag!
Þessi græna plastkrukka kostaði mig þó ekki nema hægra augað og frumburðinn! Já takk! Ekkert svo hræðilegt. Ég meina.. þeir hefðu getað beðið um bæði augun nú eða handlegg aukalega!
Hlakka samt svo mikið til grautaráts á morgun! Það er næstum því kjánalegt hvað ég hlakka mikið til.
Í kvöld blandaði ég sumsé eftirfarandi hráefnum saman:
- 1/4 bolli hafrar
- 1/2 msk chia fræ (óóhhbeibeh)
- 1/2 bolla skyr
- 1/4 bolli vatn (eða mjólk... eða bæði)
- smá vanilludropar
- ögn af salti



Hvað gerist á morgun í hafragrautsskraut-málum er eigi fyrirséð. Eftirfarandi kemur hinsvegar sterklega til grænna greina: Bláber, banani, múslí, hnetusmjör, sulta, hungang, rúslur, döðlur... guð má vita hvað!
Valkvíði? Rétt svo í stóru tánni já, en bara rétt svo.
Svo vil ég nýta tækifærið og vegsama hana Fanneyju Dóru sem mest ég má. Ég á barasta ekki orð hvað sumt fólk er einstaklega dásamlegt og vel af guði gert - þú ert perla mín kæra. Þakka þér kærlega fyrir mig
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.7.2010 | 10:48
Gæran er laus og fífan yfirtekur alheiminn
Við ljúgum ekki, við lofum... hún slapp út á pall!
Að öllu dreplélegu djóki slepptu var morguninn góður að vanda. Langþráð skyr með bláberjum og banana fékk að líta dagsins ljós í bland við möndlur og múslí.... og kaffið mitt!
Góðan daginn já takk! Gott og gleðilegt morgunét!
Svo gramsaði ég svolítið í dýrðinni og fann bláberin mín og bananann! Hrærði þetta sumsé saman í gærkveldi og bláberin þiðin, sprungin, hamingjusöm!
Átti samt í mesta basli með að gúmsla þessu græðgislega í andlitið á mér sökum fífu. Fífan yfirtekur Garðabæinn og maður þarf að berjast blóðugum bardaga til að halda henni frá andliti og þeim vitum sem þar er að finna! Fífa í augun, fífa upp í nefið, fífa í koki... inn í eyru! Maður þarf nánast að halda niðri í sér andanum!
Fjúkandi fífa... og bara brotabrot. Himininn var hvítur í morgun!
Pallafífa!
Gestafífa!
Nágrannafífa!
Götufífa!
Þetta er stórhættulegt! Götufífan sérstaklega. Ghetto fífa! Mjög lúmsk.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.7.2010 | 20:39
Fyrir Bootcamp Eftir
Fyrir
Uppfull af banana og eggjahvítum... nei ég segi nú svona.
Hip Hip Hip HÚHA
Það var gert grín mikið grín að sjálfsmyndatökunni.
Elín: HEY, ÞETTA ER ALLT Í ÞÁGU BLOGGSINS!
Fjölskyldumeðlimur: Já já, góða besta. Við getum samt alveg tekið myndina af þér?
Elín: Æji maður, viljið þið ekki bara leysa vandamálið við hungursneyð í leiðinni?
Engin biturð... engin!
Obbobb! Elín Helga Egilsdóttir!!!!
Aha, og myndavélin, töfrum líkast... enn á lofti! Vísifingur vinstri handar hefur sjálfstæðan vilja. Getur verið mjög hvimleitt í vinnunni!
Eftir
Ahhhaaaaa, gooott stöff! Bootcampf er nýji vinur minn... ásamt kaffi!
100 armbeygjum, 100 sit ups, 200 uppstigum... og fullt af hlaupi seinna!
Sælir eru sveittir þó saltir séu!
Anda eins mikið inn og þú getur, út með bringuna og halda niðri í þér andanum! Labba svo sperrtur í burtu, helst með handleggi eins langt út frá síðu og möguleiki er á. Anda svo frá þegar í bílinn er komið! Vonandi að þú hafir ekki lagt bílnum á Akranesi!
Mikill er önaðurinn sem fylgir því að geta verið úti að æfast í góða veðrinu!
Þolið farið að aukast, ekki mikið, en smá - ég finn það, einmitt... ááááákkúrat þarna!
Það er gleði!
Hvað eru mörg "Thumbs up" í því?
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
12.7.2010 | 10:51
Kaffigrautur með heslihnetum og hunangi
Jú, já, einmitt, takkfyrirgóðandaginn!
Sameinum kaffið og grautinn í einni allsherjar byltu og sjáum hvað gerist.
Ekki að það hafi eitthvað stórkostlegt átt sér stað! Flugu amk ekki fiðrildi úpp úr grautarskálinni við sameininguna - einn jarðálfur jú en kötturinn náði honum. Skulum samt byrja á byrjuninni.
Hlöðver stendur sína plikt með prýði eins og alltaf.
Finnum okkur svo skál og setjum í hana hafra. Rauðir Solgryn. Er persónulega hrifnari af þeim grænu og grófu - er svoddan bredda sjálf sjáðu til! Þeir eru barasta svo miklu skemmtilegri til átu og áferðar, gaman að bíta í þá.
Herra Sólargretta, má ég kynna þig fyrir afkvæmi Hlöðvers!
Svolítið sætir svona saman ekki satt?
Fjarskyldu frændurnir Mister Vanilló og Herra Kanilló áttu þátt í samrunanum. Þeir eru báðir frá Spáni. Mjög hressir í dag eftir gærdaginn!
Smá kanill? Kanilfjall? Meira eins og Himmelbjerget frekar en Esjan, en Himmelbjerget engu að síður.
Eplaskálin! Uppáhalds skál hérnamegin Vestmannaeyja! Þær eru svo fínar.
Jæja. Lokins kemur að því. Samruninn!
*trommusláttur*
Virkilega Elín! Hélstu virkilega að þetta myndi ganga smurt? Segðu mér satt kona, í guðs lifandi bænum! Myndavél í hægri, ofurbolli í vinstri - verandi rétthentari en allt sem rétthent er.
Sullið fjarlægt og rest af kaffi komið, myndavélalaust, vandlega og varlega fyrir í skálinni með hægri. Ohhh... ekki einusinni sopi eftir!! Hjartað brast smávægilega við þessa sjón.
Vanillurnar skárust í leikinn á þessu stigi en grauturinn enn of blautur fyrir átvagslins smekk. Inn í örbyglju í 40 sek...
...og voila! Perfecto!
Á þessum tímapunkti var erfitt að hemja villikvikindið svo grauturinn var smakkaður!
Hmm... ekki alveg það sem ég bjóst við. Aðeins of rammt, bara aðeins. Þarf að fínstilla þennan gjörning betur svo mikið er víst. Nota mjólkurkaffi, minna af kaffi, chia fræ, banana... hmmm... spáum'í'essu.
Bætti amk tsk af þessari snilld við. Gerði mjöööög mikið fyrir bragð og gæði og gleði. Ohhh my god!
Dýrið hafragrautsskreytt með heslihnetumulning! Hugsið ykkur bara ef hneturnar væru hunangsristaðar... óherraguð!
Heyyy... súkkulaðibita grautinn... ef það væri laugardagur... mm... sem það er ekki, augljóslega, svo við skulum ekkert ræða það neitt frekar.
Hunang... hnetur... hamingja! Get samt ekki sagt að ég hafi setið og sagt "Uhmmpfhh... hohhh.. mhnohhh... nohm... mmhmmm... choomhp" eftir hvern bita! Grauturinn var alls ekki vondur! En hann er svo sannarlega hægt að betrumbæta!
Saknaði þess nú svolítið að fá ekki að súpa kaffið mitt meðferðis, til hliðar og á ská með átinu í morgun. Sjáið bara hvað eplaskálin er einmana þessi elska.
Ég er vanafastari en beljan á básnum!
Þrátt fyrir kaffileysi í ókaffileysi, þá er bara gleði að byrja daginn á pallasetu, grautaráti og þessari sjón! Ekki amalegt mín kæru! Ahhhh.... gott, gott að vakna snemma og nýta sumarblíðuna og rólegheitin sem morgnarnir bjóða upp á!
Vinnan reddaði þó súpþörfinni enda var henni svalað um leið og ég mætti á svæðið! Get svo svarið það.
Næsta skref - kaffi í pela!
Kaffigrautinn þarf þó að fullkomna! Hann á framtíðina fyrir sér þessi, ójá!
Spögúlerum í þessu mín kæru. Áferð, bragð, gæði, froða... jebb, pottþétt froða!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)