Allskostar ómerkilegt

Matarmál hafa sjaldan eða aldrei verið jafn ómerkilega endurtekin og undanfarnar tvær vikur.

Endurtekin og ómerkileg, já, kannski. En góð engu að síður.

Eggjakökur, ofurgrautar, skyrmall og ávaxtanart hefur einkennt sólarhringinn að auki við hið sívinsæla hádegisát í vinnunni.

Ernan er líka á hvolfi í flutningum, ritgerðarvinnu og Lalla-umsjá. Verkfræðingurinn Jens, ská-eiginmaður og raðari extraordinaire stendur sig prýðilega í niðurrifi og búslóðarumröðun. Munurinn á röðunarhæfileikum tölvunarfræðinga og verkfræðinga er hinsvegar allsvaðalegur. Þið megið geta hvar mitt handverk er að finna. (þó svo umhverfi mynda gefi það mjög bersýnilega til kynna)

gullfallegt

líka.. gullfallegt

Nota annars allan þann frítíma sem ég á til að "redda" því sem þarf að redda því stundum gott fólk, þá þarf maður bara að redda!

Og dedda!

En það er mál í allt annan pistil, með allt öðrum orðaforða og um það bil einum hnakka-massa!

Því þeir dedda er mér sagt... og segja þeir sjálfir.

Dedda.

Systir ömmu var kölluð Dedda! "Fiskiboller Ella mín, komdu og fáðu þér fiskiboller".

Yndisleg manneskja.

Þar sem allskostar ómerkilegheitum mínum verður framlengt til næsta laugardags, þegar árshátíð vinnunnar verður haldin hátíðleg og íbúðaruppsetning vonandi vel á veg komin, þá er þetta miðdegisnartið mitt.

Skyr, ávextir og nokkra hnetur, sumar vel faldar ofan í skyrdollunni. Svona ef þið vilduð vita það.

millimálsfínheit

Tók 1,5 Stunur í morgun.

Ekki jafn spennó og það hljómar, treystið mér. En mikið assgoti var ég spræk!

Vikufrí úr ræktinni og kvendið hresst sem fress-t. Tók alla fyrri æfinguna og kláraði það sem skrokkurinn átti eftir í þeirri seinni.

Annað spennó í fréttum. Mister Karvelio var með "Fyrstur kemur fyrstur fær" leik um daginn. Core masterinn sjálfur, eðalfrændi Röggu Nagla og spekingur mikill!

Fyrstur kemur fyrstur fær... fría fjarþjálfun út Nóvember!!! Haldið þið ekki að átvaglið sísvanga hafi ekki náð að trodda sér í fyrsta sætið af einskærri ofurspennu!

Þetta verður gaman. Þessi strákur... fyrirgefðu, maður, veit vel hvað hann syngur, eins og frænkan. Hlakka geypilega til þess að bæta nýjum æfingum í gagnabankann og hlakka mikið til komandi misþyrminga!

"Standa á annarri hendi, hægra augað lokað á meðan bolta er haldið á lofti með löngutá og magakreppur stundaðar af kappi í bland við armbeygjur og einn frosk!"

Nei ég seginúbarasonna!


Málning hér, málning þar...

...málning á mér allstaðar!

Ég er með málningu á stöðum sem ég vissi ekki einusinni að væru til á mér!

Hvernig má það vera gott fólk? Hvernig er það hægt?

Ég hef, sem betur fer, sloppið alfarið við málningu í auga. Það er jákvætt. Hallaði mér þó upp að blautum vegg í gær og hárið fékk sinn skerf af plasti. Versta við þann gjörning var að það uppdagaðist ekki fyrr en löngu seinna og klessan er enn föst í hausnum á mér.

Er að fara í klippingu á eftir til Stínunnar minnar. Henni, án efa, til ævarandi gleði. Kannski ég yfirgefi stofnuna með skallablett! Hver veit.

Ég lykta eins og terpentína í þokkabót. Í bland við lakk og ristað brauð. Ekki spyrja.

Ef þið viljið láta mála hjá ykkur, fyrir lítinn pening, og njóta skemmtunarinnar ókeypis, þá vitið þið hvar ég er. Tvær flugur slegnar í einu höggi á þeim bænum.

Er samt mjög vandvirk! Það er málningin leggur mig í stíft einelti, beyglan á henni. Virðist ekki slettast á neinn nema mig. Ég segi ykkur það. Klessan tekur snúning með flikki og 45° halla til þess eins að lenda á áberandi stað... eins og nefinu á mér!

Brussugangur er þó ekki til í mínum orðaforða.

Eitt herbergi eftir - óskið mér góðs gengis!

Elín - 0: Málning - 435


Klukkan er 11:23...

...og allt er í lagi!

Þetta er búið að eiga sér stað alla vikuna. Í litlum skömmtum! Færari raðara er varla hægt að hugsa sér! Finnst ykkur ekki?

Ég kalla þetta að hrúga með stæl!

ofurtroðinn bíll af allskonar ofurtroðsludóti

Bankinn hefur verið nýttur út í hið óendanlega og ekki keyrður nema 129 kílómetra í fyrradag. Á milli húsa.

Og ein sjoppuferð!

Stundum þarf maður bara Nóakropp gott fólk... oft er þó þörf en í þetta skiptið var nauðsyn!

Er alveg að verða búin að koma mér fyrir. Leyfi ykkur eflaust að sjá Gúmmulaðihellinn þegar hann hefur verið gangsettur, vígður, íbakaðaur og hafragrautaður!

Já takk fyrir það.

Fann þessa skissu meðal annars í einum af smáflutningnum mínum í gær.

sögustund

Hvað hefur verið að snúddast í höfðinu á mér við þennan gjörnin er ekki með fullu vitað! Megi hver dæma fyrir sig, en sögutíminn sem ég var í hefur eflaust farið fyrir bí!

Hvernig ég man eftir því að það var saga... er svo allt önnur saga!

Mikið er maður nú kómískur svona á laugardagsmorgni. Held ég ætti að fá einhvurslags verðlaun fyrir þessa geypilegu hnittni.

Annað í fréttum:

  • Er að fara að hjálpa Ernu að flytjast á eftir. Loksins... eftir um það 4938 mánaða bið! Lauslega áætlað að sjálfsögðu.  
  • Internetmál nýja Gúmmulaðihellisins eru komin í farveg.
  • Hef ekki ræktað á mér rassinn í viku...
  • ...brýt ræktarbindindið með þessari Stunu núna.

Njótið lífsins elsku bestu.

Grautarmall og almennt ves verður virkjað með stæl á næstu dögum!


PÚMBPKIN, skyr og chia

Grasker. Af hverju er okkur ekki skaffað meira af graskerjum?

Þó það sé ekki nema bara niðursoðið í dollu eins og þessari!

Þessa pínkulitlu sætu dollu fann móðir mín innbundna í "brauðgerðarpakka" frá Kosti.

Púmpkin

Ég rændi dollunni þó og skildi brauðgerðarefni eftir. Ég gat ekki séð af heilli dollu í viðbót í brauðbakstur því þessi dásemd virðist ekki vera til neinstaðar á Íslandinu!

meira púmpkin

Sættum okkur við að Ísland sé eyja og borðum bara kartöflur og ýsusporða!

"JÁ NEI!" Sagði kvendið og beindi vísifingri hægri handar reiðilega, en ákveðið, í átt að himinblámanum, sem í þessu tilfelli reyndist vera loftið í vinnunni hennar.

Kaninn fær þó plús í kladdann fyrir þennan gjörning og innleiðing dollugumsins á Frón væri með eindæmum jákvæð!

Dýrðina ætla ég þó að nýta vel. Púmpkin skyr í dag, púmpkin grautur á morgun og púmpkin próteinsull í nánustu framtíð. Halogen yfirstaðið og Þakkargjörð bíður álengdar. Kannski verslunareigendur landsins heiðri okkur almúgann með appelsínugulu dolludásemdinni fyrir hina há-amrísku Þakkargjörð?

Graskers pönnsur, graskers-smjör, graskers búðingur, graskers-kaffi grautur... ohhhhh!

En í morgun -> Chiaskyr með graskersmauki!

Grasker í skál, skytturnar þrjár (kanill, engifer, negull), 1 msk chia, smá vatn, salt, torani og vanilludropar hrært saman. Og svo...

Púmpkin niðursoðið

Chiapúmpkin

  1. Skyr
  2. Hræra sveip í gumsið - einstaklega mikilvægt
  3. Ísskápa
  4. Reyna að sofa - sama gamla eftirátsspennusagan á þessum bæ
  5. Vakna
  6. Hoppa frammúr
  7. Detta á leiðinni inn í eldhús (já, það var mjög... mjög vont fyrir hnéð)
  8. Taka skálina út úr ísskáp
  9. Múslía
  10. Klóra sér í hnénu
  11. Heslihnetuspæna
  12. Borða
  13. Einfalt - ekkert ves - goooott!

Púmpkin skyr með chia

Graskersskyr með chia

Chiaskyr með graskersmauki

Fuuullkominn biti gott fólk

Einnig, alltaf... ætíð.

Þegar ég hugsa um orðið grasker, þá bergmálar í höfðinu á mér "púmbpkin" og ég hugsa til þessa kokks! Alltaf!

Hann er uppáhalds!

 

Makin'a'púmbpkin pæææ! Múrk, múrk múrk!!!


Eldhúsreglur og aðrar... almennar... lífsreglur

Hvar værum við ef ekki væru reglur til að fara eftir?

Jah, miðað við hvernig tildrög kryppunnar belssaðrar voru þá skipta þær kannski ekki máli? Eða hvað? Eins og að vera kokkur eða bakari og stinga undan kökudeigi í gríð og erg til að borða græðgislega í heimahúsi!! Ohoooo.... kökudeig.

Það eru líka til óskrifaðar leyndóreglur eins og að bíða í röð, segja takk við hinar ýmsu kringumstæður, borða hafragraut að eilífu, hoppa á einari í hálfhring þegar þú sérð fjólubláan bíl, pirra sig á því að öll skilti sem auglýsa jólatré yfir hátíðarnar segja "jólatrés-sala" en ekki "jólatrjáa-sala" og skera lauk vopnaður sundgleraugum.

Hver selur bara eitt jólatré?

"Góðan daginn... mætti ég nokkuð fá þessa grein þarna fyrir miðju rétt ofan við hægri hliðina á ská?"

Varðandi laukskurð þá mæli ég með því að sundgleraugunum sé komið fallega fyrir yfir augunum. Undir engum kringumstæðum er hægt að vera "Dead sexy" og krúttaralegur þegar laukskurður kemur við sögu. Ekki að það sé nauðsyn í eldamennsku. Tárin leka niður kinnarnar og nefsog stundum svo kröftugt að hárið styttist um 2 sentimetra og spékoppar á rasskinnarnar eru óumflýjanlegir.

Ekki fallegt, ég veit.

Já, það er mjög átakanlegt að sjá mig skera lauk. Tala nú ekki um þegar 102 þúsund laukar eru skornir! Jú, það getur vel skeð að einhver þurfi einhverntíman að skera 102 þúsund lauka! Hver veit nema útbúa þurfi franska lauksúpu á ráðstefnu sem haldin er fyrir alla "Pierre" heimsins!

Nokkrar óskrifaðar leyndóreglur haldast í hendur í mínu eldhúsi, hér er brotabrot af þeim:

  1. Alltaf að sleikja skeiðina! Alltaf... þú veist... til þess að smakka! 
  2. Kökudeig er lífsnauðsynlegt!
  3. Þegar kanilsnúðar eru útbúnir er leyfilegt að borða endana á kanilsnúðarúllunni þegar byrjað er að skera hana. Sama á við um piparkökudeigshrat sem verður útundan við skurð!
  4. Súkkulaði er fæðuhópur sem koma skal fram við af virðingu!
  5. Gúmsla skal... gúmsli... saman með handafli þegar kostur er á til að þjálfa þríhöfðann. Dæmi: Hræra eggjahvítur, túnfisksalat, franska súkkulaðiköku...
  6. Taka reykskynjara úr sambandi þegar kleinur eru steiktar... og kökur bakaðar... og naan-brauð er ristað! Muna bara að setja hann í samband aftur.

Brotabrotabrot.

Lífið er óh-svo flókið.

Eldhúsreglur verða þó til jafn óðum og þær skjóta upp kollinum. Eins og í gær... jebb.

7. Ekki stinga upp í þig kirsuberjatómat sem nýstiginn er út úr 180°C heitum ofni.

Ég kenni "Hvað er heitur tómatur?" litningnum alfarið um þetta mál. Græðgi kemur þessu ekkert við!

Þið megið svo geta einusinni hverju ég var að gúffa í trýnið á mér rétt í þessu.

hmmm?

Deilið með mér eldhúsreglum! Þið hljótið að eiga nokkrar!


Ég er...

  • ...að vinna í því að verða Hafnfirðingur.
  • ...að leita mér að allskonar dóti.
  • ...að leita mér að fararskjóta. Var að spá í að fjárfesta í traktor!
  • ...að hripa niður pistla fyrir Heilsupressuna.
  • ...að redda mér nettengingu í nýja Gúmmulaðihafnafjarðarhellinn!
  • ...hugsa hvort ég eigi að kaupa mér aðild að ræktarhúsi og þá hvar. Voðaleg dramatíkin sem fer í að ákveða þetta hjá undirritaðri.
  • ...að fara að borða fisk í kvöldmatinn.
  • ...að fara að dútlast í hellinum í kvöld og á morgun og fimmtudaginn...
  • ...ógeðslega upptekin!
Gleym mér ey

...ekki horfin! Ég lofa!

Halógen 2010

Guð minn góður.

Ég hef ekki borðað svona hressilega síðan í... jah... hmmm!

...

Segjum bara að ég hafi borðað hressilega og framlengt átinu til dagsins í dag, þó svo ég hafi svarið þess eið í gærkvöldi að borða aldrei aftur.

Er að borða Oreo kex í þessum töluðu, nýbúin að gúlla í mig Rísó, kjúlla, rækjukoketil, skyri og nautatungu með heimalöguðu kartöflusalati.

Ég ætlaði ekki að framlengja en...

...sorry. Ég get ekkert borið fyrir mig í þessum efnum annað en eitt einmanalegt EN.

Er líka að borða muffins núna. Oreo kexið er búið.

Leyfi myndunum að tala og tjá sig. Versogú!

Hræðilegt nasl

Hræðilegt nasl

Grænkvikindi

ormur einfætti

skraut

Sjá vibbatvibbana á síðasta ári.

:)

Gömlu sætu með páfagaukarassa á höfðinu!

Ledderhosen

Ég er að borða Rísó núna... svona til að leyfa ykkur að vita hvernig óhollustuáti mínu farnast.

Forréttur, lax og rækjukokteill

ZE INCREDIBLES

Pönk ass nornafjölskyldan

Nornamamma í stíl við litla trúðabarnið!

Meeoouww

Einmana incredible

Pabbúla mínus tennur plús auga!

Evil Jesus

Páfagaukaafi og ótrúleg barnabörn sitja að áti

Sjúpsystir mín kær og Valdimar, hinn gleymdi Emo, á kanntinum.

Held hann ætti að halda sig við nýja lookið, amk varalitinn!

The aadams family..

Áform mín um She-Hulk fóru út um þúfur og úr varð þetta vændi.

Skinkur alheimsins sameinast í þessum gjörning sem átti að vera Dolly Parton. Guð fyrirgefi mér.

Eldhúsm-ellan og pabbúla

vændið

Svo kom að aðaláti!

Marbella... Mófó (Móaflatarkjúlli)... sveitt, sveitt nautatunga, kartöflusalat, sykurteitur, sovs... allt sem í heiminum er hamingjusamt og krúttaralegt!

Aðalát! Marbella, móaflatarkjúlli - sveitt nautatunga

Marbella

mmmmmmmm

Sveittasta mynd hérnamegin svitabeltisins!

sveiiitt

Hrossabjúgun!

eðalgengi

Gert að ömmunni

smekkfólk

Abbidí og Gulli

Ohoooo!!!!

Er að borða reyktan lax með estragon sósu núna... og ristuðu brauði! Sheibse!

Oyeah

muaahahah

Evil jesus í skugganum

ammus og ellus

Fiktum í sári

Litli strumpur hjá hræðilegri frænku

Svo gerði ég mig tilbúna...

Litli sæti

...til að éta barnið!

Það gekk ekki alveg eftir.

strumpur

Svona endaði kvöldið - gúmfey

Æhhji hvað át, fjölskyldur... átfjölskyldur og tilheyrandi er nú gleðilegt skemmtilegt.


Halógen 30.10.2010

Í boði móður minnar og Gúmmulaðihallarinnar vil ég kynna:

halogen

Mikilvægir aukaleikarar

Bakstur: Ella og múmíubörnin

Smakkarar: Systir og stjúpsystir

Borðarar: Allir fyrrnefndir ásamt Spaghettisen og Sandalafem aka Djákninn/Pabbúla!

Halogen 2009, 1. hluti.

Halogen 2009, 2. hluti.


Játningar

Fíni fíni gallinn minn

Ég gæti ekki saumað þó mér væri borgað í rjóma.

Ég borða kaffibaunir allsberar og súkkulaðilausar.

Ég nota Aromat! MSG MSG MSG

Þegar ég er að dæla olíu á díselbíla, er ég aldrei 100% viss um að ég sé í raun að dæla dísel þó svo það standi á dælunni. Ég veit ekki hvað veldur þessu skammhlaupi, en ég er alltaf með aftast í hnakkanum að ég sé að dæla bensíni.

Ég skipti skammarlega sjaldan um blöð í rakvélinni minni. Ekki skegg-vélinni þó, það er allt önnur ella!

Þið sem ekki hafið tekið eftir því, þá er morgunmatur uppáhalds máltíðin mín.

Sjá eldri játningar.


Ég held ég verði þreytt í dag

Ég get svoleiðis guðsvarið fyrir það.

"Það" verandi svefnleysi og almennt brölt.

  • Vaknaði klukkan 2.
  • Kreisti saman augnlokin þar til klukkan varð 3.
  • Hjóp fram og fékk mér vatnssopa.
  • Kíkti á grautinn sem ég hafði búið til 5 tímum áður.
  • Fékk mér bita af grautnum sem ég hafði búið til 5 tímum áður.
  • Hann var góður.
  • Stökk upp í rúm og... ekkert!
  • Vöknuð!
  • Skaði!
  • Stökk frammúr klukkan 4 og útbjó Banana-hafra með kotasælu og ristuðum sólblómafræjum fyrir systur og stjúpsystur.
Bananahafrar með kotasælu og ristuðum sólblómafræjum
Bananahafrar með kotasælu og ristuðum sólblómafræjum
  • Hellti mér uppá kaffi.
  • Borðaði þennan graut!
Amarettugraturu með bláberja og kanil-balsamic sósu
  • Hann var ennþá góður þegar ég borðaði hann.
  • Aftur er ég haldin þátíðaráts leiða! 

Amaretto-hræringur með Bláberja-balsamic kanilsósu/sultu

Sovs = Frosin ber í skál + balsamic edik + vanillu/heslihnetu torani + kanill + örbylgja í spað!

Var búin að gleyma því hvað hræringar eru svaðalegar áferðaperrakveikjur. Mjúkir... svoooo mjúkir. Hægt að smyrja þeim á brauð mjúkir. Þykkur hummus mjúkir... mmmmmmjúkir.

Yin yang!

Ying yang

Hafrarnir alveg uppleystir. Finnur ekki fyrir einum... hafur... hafri!

Snemm-morguns íslenskur eru góðar íslenskur!

Mjúúkur hræringur

Karamellukenndur Amarettogrunnur og þessi bláberja-sósa. Shiiiiiii... bragðdúó extraordinaire! Ég á hálf erfitt með að hugsa um eitthvað fallegt til að segja því þetta var bara of dásamlega æðislegt.

Held að þessi grautur eigi skilið að vera settur í dýrðlingatölu.

Bláberjagumsið var svo eiginlega eins og sulta mín kæru. Sulta frekar en sósa og þið vitið að kanill og bláber lifa jafn hamingjusömu lífi og súkkulaði/jarðaber, rjómi/hrísgrjónagrautur, eggjabrauð/tómatsósa.

Bragðið. Er. Geggjað!

Sjáið þetta bara! Laaaaawd almighty!

Það hefði verið hægt að skera hann í tvennt, þrennt.... sex-nnt!

Amarettugraturu með bláberja og kanil-balsamic sósu

Aðeins nær elsku fólk... bara aðeins!

Ætli ég komist einhverntíman svo nálægt að geta myndað mólíkúl, atóm og eindir?

aaaðeins nær

Toppað með smá múslí fyrir knúst því jú, þessi grautartesi er mjúkintes og þó svo áferðaperrinn marseri við þetta át þá þarf að hugsa til kramsins.

Það er ljótt að skilja útundan.

Amarettugraturu með bláberja og kanil-balsamic sósu

HRÆRA

Ohhh... ég trúi ekki að ég sé búin að graðga þessu í andlitið á mér! *grát*

sleeeef

Kaffið mitt blessað!

halló nýji vin

Berjasósur/sultur, grautar og skyr eru komin til að vera í mínum morgunmat.

Núna er klukkan 05:40, um það bil.

Get ekki einusinni farið í ræktina strax því hún opnar ekki fyrr en eftir 10 mínútur.

Teikna, lesa, leysa eitthvert alheimsvandamál?

Ég held að fyrirsögn þessa pistils hafi rétt fyrir sér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband