22.11.2010 | 09:50
Einn tveir og byrja
Þá fer bröltinu á mér senn að ljúka og við taka venjubundin bloggskrif, át og almenn hamingja.
Hversu oft hef ég sagt þetta?
Fór í heljarinnar "helstu nauðsynjar" leiðangur núna um helgina og heljarinnar var hann. Neðangreind mynd sýnir einungis innvols þriggja burðarpoka af sex og bara litlu krúttaralegu hlutina sem komast jú í pokana blessaða, án þess að þeir rifni í öreyndir með tilhlaupi.
Og já, ef þið eruð að spá í því... þá teljast súkkulaðirúsínur, með dökku súkkulaði, vera stórkostlega mikilvægur partur af helstu nauðsynjum. Mjög... stór... partur! Fyrir almenna geðheilsu, heimilishald og allrahanda trall að sjálfsögðu!
Þið skuluð ekki efast um rök mín í þessum efnum! Þau eru óbrigðul!
Ys, þys, ves og með því einkennist af ómerkilegu áti, sökum yss og þyss og vess. Fyrsta máltíðin, í annars mjög hvítu eldhúsi, voru mjög hvítar eggjahvítur með balsamic-honey/dijon dressingu ásamt ómynduðum tómötum og gúrku - borðað eins og guð gerði ráð fyrir plús möndlur í tonnatali!
Kannski nokkrar súkk-rús í eftir, eftirrétt... mjög líklega kannski.
'Næstum því hænur' gúffaðar í einni af uppáhaldsskálunum með uppáhalds-át-áhaldinu!
Jájá, veit hvað þú ert að hugsa. "Oj þér Elín... næstum því hænur? Smekkleg!".
Hellirinn er þar af leiðandi svo gott sem standsettur. Vantar inn í hann ýmislegt sem kemur ekki í ljós fyrr en, jah, þú þarft á því að halda eins og ryksuga, ajax, teskeiðar, basil, hárbursti, ljósaperur, hamar... skyr! Um leið og internetið ástkæra er mætt á svæðið þá verður dýrið vígt með allskonar vitleysisgangi.
Vitleysisgangur verandi mjög vítt, óskilgreint hugtak.
Kemur allt með kalda vatninu.
Það gleður mig þó óendanlega að raða inn í eldhúsið blessað og núna, í fyrsta skipti, hef ég hálfgerða "búr" aðstöðu!! Hihiiii! Ég verð eins og íkorni að undirbúa sig fyrir veturinn á komandi mánuðum. Fékk móður mína ástkæra með mér í eldhúslið og við planlögðum eldurnaraðstöðuna eftir helstu kúnstarinnar reglum!
- Er hægt að standa á einum stað í eldhúsinu og vera í gripfæri við allt sem þú þarf mögulega að nota án þess að þú þurftir að færa þig úr stað??
Við erum mjög hard-core, fanatískir eldhúsnasistar við móðir mín.
"Þegar verið er að malla þá er gott að vera með krydd í gripfæri og bökunardót á heima saman og hérna er bein lína... svoleiðis þráðbein lína úr uppþvottavél í þennan skáp...".
Ahhh hvað eldhúsið er samt mitt uppáhalds!
Ábótavant er ástandið í þessari ágætu skúffu!
BÚRIÐ
*dramatískt undirspil*
Kom mér þó á óvart hversu mikið af eldhúsdralli ég í raun og veru á. Þó helst bökunartengdu eldhúsdralli! Flutningur úr Höllinni bestu yfir í Hellinn sýndi það og sannaði.
Eins stórkostlegt og safn mitt af bökunardralli er, þá er ísskápurinn sá sorglegasti norð-austan við Jemen. Hann er svo grátlegur aumingjans vesalingurinn að stúlkan með eldspýturnar bliknar í samanburði.
Það væri vel hægt að taka einn sveittan tryllings-villimannadans þarna inni án þess að skemmileggja nokkuð!
Jebb! Bergmál!
Jólin eru svo eftir mánuð... MÁNUÐ... og smákökugerð hinumegin við hæðina!
- Þið sem lesið þetta blogg með reglulegu millibili vitið náákvæmlega um hvað ég hugsa þegar ég segi "..hinumegin við hæðina"! Mitt innra einfalda sjálf flissar alltaf.
Kem til með að henda inn smáköku-uppskriftum síðast árs, sem fóru svo geypilega vel framhjá bloggheimum af einhverjum ástæðum. Sumsé, síðustu árs uppskriftir í bland við nýjar tilraunir og stúss. Þið skuluð þó vita að smákökur, þá sérstaklega jólasmákökur, eru aldrei - nokkurntíman - á "holla" listanum í Ellulandi!
Annars var Ossobuco í mömmumat í gær. Þetta er ein af ofursúpunum sem hún á það til að galdra fram og já, það eru sko galdrar þegar þessu kvikindi er sporðrennt!
Ómæhólýgodness!
Mömmusúpur eru svaðalegar, ég segi það satt. Uppáhalds þrjár eru humar-, kjöt- og svo þessi snilld!
Ásbúðar innskot:
Átvaglið á leið í bælið þegar síminn hringir.
- Átvagl: Mmm... halló... mamma?
- Múmfey: Sæl dóttir góð. Vildi bara láta þig vita að það er til Granóla og Sólskyns múslí uppí skáp sem ég keypti í dag.
- Átvagl:
Uu.. hahh... takk fyrir upplýsingarnar en... af hverju komstu bara ekki inn í herbergi og sagðir mér frá því?
- Múmfey: Æji maður, ég er löt og komin undir sæng og þar er hlýtt og mér er heitt á tánum og ég nenni ekki fram og það er ófrásagt-múslí upp í skáp og ég nennti ekki að æpa í gegnum vegginn!
Ahh hvað hrossabjúgun eru eðalfín eintök!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.11.2010 | 16:01
Játningar
Ef ég held á klinki verð ég að raða klinkinu í stærðarröð, fiskarnir fram og helst þannig að þeir snúi allir eins.
Ég er y blindari en y blinda manneskjan í Jemen! Ef ég vissi ekki betur myndi ég skrifa nafnið mitt Elýn!
Ég tek næstum alltaf lyftuna þegar ég kemst upp með það. Já.. ég sagði það!!! Tek lyftuna! Kvekendið tek ég þó yfirleitt niður frekar en upp.
Einfaldar hafrakökur eru uppáhalds smákökurnar mínar. Þar á eftir koma piparkökur, þó helst þessar sem mýkri eru.
Í þremur tilfellum á ég það til að missa matarlystina:
- Ef ég finn hár, ekki úr mér, í matnum mínum.
- Ef ég bít í eggjaskurn
- Fiskibein!
Ég get ekki sofnað ef mér er kalt á tánum.
Sjá eldri játningar.
Matur og drykkur | Breytt 22.11.2010 kl. 09:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2010 | 19:55
Tímamót!
Enn ein tímamótin!
Ég leyfi ykkur að sjá um hvað átvaglið talar! Loksins gott fólk!
LOKSINS
Ein... dauða... upphífing! Kannski ekki sú fallegasta og besta... en hífopp engu að síður!
Fyrsta upphífuævintýrið mitt átti sér stað þetta árið, en lófarnir sneru að undirritaðri.
En nei - ekki núna... já takk nei og þverneitum eftir efninu!!!
Þetta gat ég ekki í sumar elsku bestu!
Gamli gráni þurfti að sjálfsögðu að sýna frumbanum (undirrituðum frumburði) hvað lifrarpylsa og lambakjöt fyrir þig gera!
Verður nú samt að segjast. Þrjú ár í 5 + 0 mín kæru og hann fer helvítis létt með þetta...
...ég er ekkert bitur!
Systir mín kær ákvað að spreyta sig líka og tók steikta beikonið á þetta!
Pabbi hvæsir, undirrituð hlær hæðnislega að beikoninu.
Vondar eru stórar systur.
Markmið útávið - koma beikoninu í eina upphífingu.
Markmið innávið - vinna Evil Jesus í uppífingum!
...
Ég næ honum þegar hann verður 75!
En þangað til... ein... dauð!
*gleðisprengjuhamingjutryllingur*
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.11.2010 | 15:34
Ég og aspasinn minn
Eins og sannri matarátsofurdrottningu sæmir hef ég nú fjárfest í aspas!!!
Á hjólum!
Negldum hjólum!
Hann er ææææði!!! <3
Þó svo þessi aspas teljist vart til mannsæmandi aspas-a... eins og mörgum þykir Nóa konfekt ekki súkkulaði... þá kemur hann mér á milli staða og er sérstaklega góður í heita rétti!
Yayyyyyyyy.... ég á aspas!!!! Hihiiiii!!!
*hopp**hopp*
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.11.2010 | 19:50
Jólafýla og kálrassar
Það er jólafýla hvert sem ég fer! Jólafýla er samt góð fýla svo ég er í engu nema góðum málum!
Vinnumandarínufýla... heimamandarínufýla... heimabrugguð brúnkálsfýla.
Guð minn góður hvað heimabrugguð brúnkálsfýla hljómar hryllilega illa!
Jæja... allavega. Þó svo jólin einkennist af önd, ofurfyllingu og rauðkáli, þá er kál-lyktin sú sama! Þetta tryllir öll jólaskilningarvit meira en góðu jólahófi gegnir!
Við kálgerð kveldins öskraði aðal lifrarpylsan hann faðir minn uppyfir sig "ELLA... VILTU RASSINN?" þar sem ég stóð álengdar og pillaði upp í mig hvítkál af slíkri áfergju að gamli maðurinn hafði varla við því að skera blessuð höfuðin niður.
Svo allir hafi það á hreinu þá heyrast þessi orð yfirleitt ekki öskruð nema í Móaflatarkjúlla, og þá iðulega beint að afa mínum blessuðum. Gargað er hástöfum á ættarhöfðingjann, og leðurtöskuna, Don Gazzo, að púturassar bíði hinumegin við hæðina. Þessir afturendar eru sérstakt ánægjuefni í afa bókum, að auki við rolluaugu og beinmerg!
Skal þó jánka átgleðinni sem fylgir beinmergnum!
Aftur að kálrössum!
- Átvagl: "RASSGAT? Um hvað talar þú gamli skúnkur? Ég er að narta í kál hérna!"
- Pabbúla: "Já! Um hvað heldur þú að ég sé að tala?"
- Átvagl: "Pútu? Hvaða rassgat ertu eiginlega að tala um?"
- Pabbúla: "Nú rassgatið á kálinu maður!"
- Átvagl:
- Átvagl: "Bwaaaaaaahahahahahaha....."
Má ég kynna rassinn á kálinu!
Þetta ku víst vera afturendinn á grænmetinu góða. Nú hafið þið það skráð og skjalfest í ykkar glósum! Héðanaf mun þessi einstaki kálpartur fá geypilegan heiðurss-es-s í áti hjá mér því jú, hann er alveg ægilega bragðgóður og gómsætur!
Þar hafið þið það!
Díses jæbs hvað mig langaði samt að setja y í "skilning" og "lifrar".
Kræst.
SKYLNING!!!
LYFRAR!!!
Ahhhhh.... betra.
Tourettes?
Sjáumst á morgun kálrassar!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.11.2010 | 13:34
Árshátíð 2010
Mikil endemis gleði er þetta allafhreint.
Þó svo eftirskemmtunargleðin megi stundum missa sín.
Aldrei lærir maður... eða... maður lærir kannski, en lætur viteskjuna sem vind um eyru þjóta!
Árshátíð yfirstaðin með tilheyrandi dansverkjum, hlátursperrum og hamagangi. Haldin í lóninu bláa, Lava, við mikinn fögnuð veislugesta. Virkilega gott og skemmtileg andrúmsloft og maturinn...
Laaaawd almighty. Ég get ekkert annað sagt.
Eiimen!
Forrétti var púslað saman úr ristuðum humri, salati og steinseljurótarmauki. Humarinn stendur alltaf fyrir sínu... ætíð gott fólk, og bragðið var geggjað. Rótarmaukið - við skulum ekkert ræða það neitt frekar.
Eða jú.. ræðum það! Sjitt!
Afsakið!
Sjitt! Eins og sambland á milli osta-kartöflu gleði með smá sætu í bland við óskilgreint knús og kram! Ég segi það satt. Gefðu mér disk af þessu malli og ég mun elska þig að eilífu!
Aðalrétturinn var ekki síðri. Búkolla í öllu sínu veldi. Meðlætið samt við sig og ekkert til að missa vitið yfir...
...*steinseljurótarmauk*...
...en beljan gott fólk! Hana var hægt að borða með skeið.
MEÐ... SKEIÐ!
Hver einn og einasti biti bráðnaði upp í manni. Það þurfti vart að tyggja.
Hnífarnir sem nota átti við skurðinn, en voru vita gagnslausir sökum mjúkbelju, eru með búralegri át-áhöldum sem ég hef séð. Væru góðir til að skora einstaklinga á hólm, skylmast um síðustu bitana á disknum!
Á þessum tímapunkti hefði ég getað dáið hamingjusöm, enda var ég búin að troða í andlitið á mér ómanneskjulegu magni af Nóa-konfekti....
...og þá átti þetta sér stað!
Getið þið ímyndað ykkur hamingjutryllinginn sem ég tók þegar súkkulaðilyktina lagði yfir salinn?
ÓGVUÐ
!!**óguðóguðóguð**!!
hihiiiii
Svona kökur mín kæru. Gera lífið ánægjulegra! Það er bara ekkert öðruvísi.
Þetta eru ekkert flókin vísindi!
Karamellukenndir stökkir kanntar og þið sjáið sjálf hvernig miðjan hegðar sér.
Það er meira að segja ís memm á þesari mynd. ÍS!
Ég felldi mikið meira en bara eitt átvaglstár við þennan gjörnin. Ég hefði líklegast farið úr skinninu væri ég snákur eða eitthvað þvíumlíkt.
Þarna, í vinstra efra horni, sjást líka greinilega verksummerki áts á Nóa-konfekti og hvernig áti á því eðalsnarli var snarlega hætt þegar eftirrétturinn var borinn á borð. Hálfétinn og einmana var Nóa-molinn skilinn eftir í myrkrinu! Hann slapp samt ekki... gálgafrestur með meiru.
Viljið þið svo bara sjá elsku fólk! Besti vinur súkkulaðisins, besti vinur og skáfrændi mikill! Kaffi!
Kaffi, sóðalegasti Þórólfur súkkulaðison norðanvið álfhól og ís undir sama hatti... á sama disk... tangó, vals, salsa... tryllingslegur steppdans!
Sóðalegra verður matarklámið ekki!
Amen!
Eftir þetta svakalega ofurát alls sem er hamingjusamt í veröldinni tók meiri gleði við. Ef það er á annað borð hægt. Og já... það er hægt!
Einarsgleði (gleðin einar), dans og tilbehör! Dalton, eðalmenn og snillingar með meiru, stóðu sig með svodda endemis ofurprýði að þeir fá 23 þumla upp í himinblámann og nokkrar stórar tær í kaupbæti.
Þetta er tímapunkturinn, á fullu tungli, þar sem undirrituð breytist vanalega í varúlf eða djefulinn sjálfan!
Ég held að mjöðurinn hafi deytt breytigenið eilítið! Munaði samt litlu!
MUAAAHAHAHAHAHAAAAAA
Ahhhh! Frelsinu fegnar eftir mikið háhælatramp.
Næstu 3 tímar einkenndust af bláalóns tástappi og svo tók bærinn við! Jebb!
Þessi suddalega svitasprengja var gúlluð, að auki við rest af sneiðinni hans Sölva. Gott hjá þér Elín *klapp á bak*.
Hér hafði ég afvopnað manninn pizzasneiðinni sinni! Hann barðist hetjulega en ég vann að lokum enda var ég vopnuð át-áhaldi dauðans frá því fyrr um kvöldið!
Áfram hélt tryllingsdansinn og tveim tímum síðar var okkur kastað út af klístrugum bar sökum lokunar.
Þaðan lá leið heim í einn kaffi og loksins gott fólk, klukkan 9, sofnaði átvaglið hvorki meira né minna en í stiga Gúmmulaðihallarinnar.
Þið getið gert ykkur í hugarlund hversu illa bakið á mér hefndi sín fyrir þann verknað.
Úti var ævintýr!
Hlátur, át-ur og dans samfleytt í 8 tíma. Æhhhjj hvað þetta var eitthvað ógeðslega gleðilega skemmtilegt.
Danke sjön!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.11.2010 | 10:40
Skytturnar þrjár
Morgunstund gefur gleði og gullmund!
Ættarmót Bolla og hans afkomenda.
Kaffibolli, grautarbolli og tebolli.
Ein skemmtilegasta leið til að borða graut mín kæru. Ég segi það svo dagsatt og sannað.
Plóma í tilefni dagsins. Því plómur eru æði þegar... þær eru í raun... æði!
Þessi plóma var æði.
Erna vinkona er líka æði! Hún er samt ekki plóma!
Og viti menn, ég á von á enn einu frændsystkinakrílinu í maí sem er líka, jú, æði! Hihiii...
Yfir og... æði?
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.11.2010 | 22:53
Árshátíðareftirköst
Það var skelfilega gaman í gær.
Skelfilega.
Það var skelfilegt að vera ég í dag.
Skelfilegt.
Gaman í gær.
Ekki í dag.
Mjög gaman í gær.
Ekki í dag.
Minnið mig á að neyta alkóhóls bara þessi 2 - 3 skipti á ári!
Helst þó sjaldnar!
Meira um skelfileg gleðilegheitin á morgun.
12.11.2010 | 11:57
Sumarlykt...
...og 66°Norður beint í trýnið.
Það er svo kalt að puttarnir stífna upp og láta illa að stjórn.
Þrátt fyrir það stoppaði það ekki vinnusnillingana mína í því að grilla nokkra hambó til að gera lýðinn kátan og hamingjusaman í hitanum.
Mjög kátan og hamingjusaman.
Hetja dagsins!
Ahhhhh! Takk fyrir mig!
11.11.2010 | 10:54
Pumpkin pie grautur og fæturnir gráta
Er ekki frá því að ég finni fyrir fótaskjálfta.
Lærin bölvuðu mér í hljóði í morgun.
Búin að taka tvennar Karvelio æfingar í beit og þó svo þær líti, margar hverjar, út fyrir að vera biti úr mjööög djúsí franskri súkkulaðiköku með blautri miðju og ís, þá eru þær lúmskar gott fólk.
Mikið meira en bara lúmskar. Ugh!
Þær reyna á allskonar vöða sem veina, kveina og fara í fýlu. Engar brjálæðislegar þyngdir í gangi, mestmegnis core-æfingar, reyna á marga vöðvahópa í einu (marga vöðvahópa sem ekki hafa unnið saman áður virðist vera) - bara geggjað!!
Sumsé, mjög, mjög góðar! Hlakka til að taka þennan mánuðinn í dauða og djöfli! Sjá hvernig formið batnar og styrkurinn eykst!
Þetta gerðist svo í gær!
Pabbmaster 2000 og Lögginn minn ofurfrændinn. Víkingar með meiru.
Löggi: "Eigum við að nota hjólabrettið í þetta?"
Pabbúla: "Neinei, höldum bara á þessu inn."
Og já, þetta er píanó!
Ég ööölska þetta píanó.
Fékk mér líka endalaust góðan graut í morgun. Ekki dæma út frá myndunum, gerið það fyrir mig! Þær eru hræðilegri en heimur án súkkulaðis! Eg viðurkenni það fúslega og frjálslega!
OHhh hvað ég vildi óska að þið hefðuð getað smakkað snilldina í morgun!
1. Búa til Pumpkin-paaa krydd!
- 1 tsk kanill
- 1/8 tsk negull
- 1/8 tsk engifer
- 1/8 tsk allrahanda
- Smá múskat (eftir smekk)
2. Búa til hræring, flundur silkimjúkan eðalgraut og hræra út í hann graskersmauki.
- 25 gr. hafrar
- Vatn eftir smekk
- 120 gr. eggjahvítur
- 1/4 bolli, eða 60 gr., maukað grasker
- Salt
- Torani + vanilludropar
Bleyta upp í höfrunum fyrst og örbylgja. Hella svo eggjahvítum út í heitt gumsið + salta smá + torani + vanilludropar. Örbylgja. Bæta þá við graskersmauki og örbylgja meira ef þykkildi er ábótavant.
Oj... þykkildi.
Allt eftir smag og behag.
3. Krydda með graskerskryddinu
4. Hræra
5. Ísskápa
Við átið opnast himnarnir og rigna yfir þig ristuðum pekanhnetum svo þú getir bætt út í gumsið!
Eins og að borða pumpkin paaa!
Matarcoma!