Færsluflokkur: Kvöldmatur
8.6.2009 | 18:51
Þorskur í basil og hvítlaukslegi með ofnbökuðu grænmeti og banana
Fiskiprinsinn er frábær! Auðvitað kom ég við hjá þeim og greip mér þennan dýrindis þorsk! Þvílíkur snilldar lögur sem hann var í! Þeir eru nefnilega svo sniðugir að setja fiskinn í álbakka sem bókstaflega er hægt að fleygja inn í ofn á ferð og maturinn til eftir 20 mín!
Basilika, tómatar og hvítlaukur. Þessi blanda.. ó guð! Þessi hráefni eiga svo vel við hvort annað og lyktin sem kemur þegar þessu er blandað saman! Mmhmm!
Jæja, jazzaði aðeins upp á réttinn. Skar að sjálfsögðu niður 1/2 sæta kartöflu, 1,5 gulrætur, smá brokkolí og blómkál og 2 hvítlauksgeira. Henti því í fat og inn í ofn í 20 mín, rétt til að mýkja grænmetið. Eftir dvöl grænmetisins í ofninum tók ég fatið út og lagði fiskinn yfir. Skar svo í tilraunaskyni niður banana og raðaði, ó svo pent, yfir fiskinn. Inn í ofn aftur í 20 mínútur, eða þangað til fiskurinn er eldaður.
Ó gvöð hvað þetta kom vel út. Bananinn alveg að blessa fiskinn og hefði mátt vera meira af! Þvílíkt sælgæti. Þið sem lesið þetta hjá mér vitið svosum af framhjáhaldi mínu við ofnbakað rótargrænmeti og grænmeti yfir höfuð... mikið gúmmulaði í mínum huga.
Vel heppnuð og skemmtileg máltið. Kostaði minna en ekki neitt, ég þurfti bara að skera grænmeti og að sjálfsögðu á góða listanum!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2009 | 21:12
Hachala, arabískur þorskréttur
Fórum til mömmu í mat og fengum snilldarlegan þorskrétt, arabískan að uppruna. Það er víst íslensk skvísa að vinna sem kokkur erlendis sem á þessa uppskrift og húrra fyrir henni segi ég nú bara. Þetta var svakalega gott. Grænmeti, smá kúskús og þorskur. Afskaplega skemmtilegt á bragðið og gleðilegt að borða. Einfalt að elda og fljótlegt að sjálfsögðu. Móðir mín kær fiffaði uppskriftina þó aðeins að sinni eldamennsku, breytti og bætti hér og þar. Notaði meira af sveppum, hvítlauk og ólívum svo eitthvað sé nefnt. Kom vel út, segi það satt!
Hachala, Arabískur þorskréttur
1 græn paprika - og rauð
1/2 dolla svartar ólífur - heil dós
1 bakki sveppir - meira af sveppum
2 hvítlauksgeirar - töluvert meira af hvítlauk
nokkrar rúsínu - rúsínum sleppt hjá okkur
smjör
1 sítróna
400 gr þorskur (flök)
gratínostur
tómatur
Þorskurinn látinn liggja í sítrónusafa. Kúskúsið eldað eftir leiðbeiningum og olía og sítrónusafi sett út á þegar tilbúið. Paprika steikt í örstutta stund á hægum hita, þar á eftir er sveppum, hvítlauk og ólívum bætt við. Láta malla í smá stund og kúskúsinu svo bætt við. Eins og með annað kúskús, þá er alveg hreint ágætt að bæta smá smjöri við á þessum tímapunkti en það þarf ekki. Kúskúsblöndunni er hellt í fat, þorskurinn steikur og svo lagður yfir kúskúsblönduna.
Tómötum er þarnæst raðað ofan á fiskinn og osturinn yfir. Grillað í ofni þangað til osturinn byrjar að brúnast.
Mmhmm.. maginn kátur. Ég veit ekki hvað ég borðaði mikið af þessu en við vorum 4 sem sátum við borðið og eftir 20 mínútur voru 2 kíló af fisk horfin af yfirborði jarðarinnar!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2009 | 18:57
Ljúffengur lax og sætu kartöfluflögur
Eins og ég hef sagt áður, þá tek ég fullan þátt í því að elda góðan mat á stuttum tíma. Hvort sem ég þurfi að galdra allt frá grunni eða kaupa það sem þarf til að gera eitthvað æðislegt. Ég ákvað að vinna mér inn smá tíma í kvöld og kom við í Fiskiprinsinum á leiðinni heim í dag. Ég elska þessa fiskibúð. Æðislegt starfsfólk, skemmtilegt hráefni sem hefur aldrei klikkað. Keypti mér tvennskonar lax. Annar í sweet chilli og hinn þakinn kókosblöndu. Eftirleikurinn auðveldur! Skar niður gulrætur, brokkolí og sætar kartöflur. Ein varð eins og hjarta í laginu - ótrúlega fín!
Henti grænmetinu í eldfast mót, setti inn í ofn í 20 mín. Eftir það tók ég grænmetið út úr ofninum og bætti laxinum ofan á grænmetið og inn í ofn aftur. Ohh hvað þetta lítur vel út... mmhm! Við ætluðum að hafa grillpartý en þar sem gaskúturinn ákvað að gefast upp þá varð ofninn fyrir valinu.
Á meðan laxinn var að hangsa í ofninum ákvað ég að prófa að búa til sætu kartöfluflögur. Ekkert nýtt á nálinni svosum. Skar sæta kartöflu í mjög þunnar sneiðar, lagði sneiðar á disk, spreyjaði pínkulítið með olíu og inn í örbylgju í 2 - 3 mínútur. Flögurnar brennast auðveldlega, best að fylgjast með þeim.
Komu ótrúlega vel út fannst mér. Ég er að fíla þetta í botn! Crunch factorinn alveg að gera sig, sætu kartöflu bragðið skemmtilegt. Kemur líka "snakk" bragð af þessum flögum. Get í raun ekki útskýrt það betur nema hvað það er að virka flott og eins og 'alvöru' snakk. Svo er hægt að krydda með t.d. kanil, sterku nú eða bara smá salti. Þetta er sko samviskulaust snakk mín kæru. Algerlega samviskulaust og gerir allt sem snakk á að gera - nema að fita ykkur!
Loks var kvöldmáltíðsbiðin ógurlega á enda og fiskurinn bjútifúl nýkominn út úr ofninum.
Smakkaðist vel, tók innan við 40 mínútur, hollt, gott og hamingjusamur magi!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.5.2009 | 14:35
Kjúklingaspaghetti í kókos- og hnetusmjörssósu

Holy moly! Segi ekki meir. Þetta var svaðalega gott, saðsamt og gleðilegt að borða! Fallegir litir, skemmtileg áferð og kjúllinn klikkar náttúrulega aldrei.
Útbjó hálfgerða spicy Satay/hnetusmjörssósu sem kom svakalega vel út með pastanu og kjúllanum. Laugardagsfílingurinn alveg að gera útaf við mig í matarmálum! Ég dassaði nú mestmegnis sósuna eftir því hvernig ég vildi hafa hana. Ætlaði fyrst að nota kjúklingasoð og hafa hana þunna en svissaði því út fyrir kókosmjólk-lite, í tilefni helgarinnar, og hafði hana í þykkari kanntinum. Kom eiturvel út!
Kókos- og hnetusmjörssósa

1 tsk olía
1/2 laukur, smátt saxaður
1 hvítlauksrif
1/2 smátt saxaður jalapeno
cumin
1/2 tsk balsamic edik
1 tsk ferskur sítrónusafi
2 msk hnetusmjör, ég notaði 1 msk lífrænt og 1 msk af möndlusmjörinu mínu
1 dl kókosmjólk
splash af soja-sósu og hot sauce
salt og pipar eftir smekk
Byrja á því að steikja lauk og hvítlauk í potti upp úr olíunni, 5 mín ca., þar til mjúkt og meyrt. Blanda þarnæst samanvið jalapeno þangað til góð lykt kemur í húsið. Ó svo góð lykt. Þar á eftir bæta við cumin og þekja laukblönduna í kryddinu. Nú er gott að setja samanvið balsamic edikið og sítrónusafann og leyfa því að malla smá. Þarnæst er gumsið tekið af hellunni og hnetusmjörinu bætt við. Verður mjög þykkt. Kókosmjólkinni er núna hrært saman við, þangað til ljósbrúnt, og hnetusmjörið hefur leyst upp. Ef þú vilt þunna sósu þá er ágætt að setja pottinn mjög stutt yfir hita aftur, bæta við soja- og hot sauce og voila. Ef þú vilt þykka sósu, hafa pottinn yfir hita þangað til hún þykknar vel upp. Í endann, ef vilji er fyrir hendi, bæta við smá salt og pipar. Kom líka skemmtilega út að hafa möndlusmjörið með, smá bitar af hunanginu og möndlunum í sósunni. Mín sósa var næstum jafn þykk og hnetusmjör - syndsamlega góð!
Eftirleikurinn er svo auðveldur.
1. Sjóða spaghetti eftir leiðbeiningum á pakka. Húha - ég notaði spelt spaghetti.
2. Steikja á pönnu, þangað til meyrt, það grænmeti sem þér þykir gott. Ég notaði lauk, gulrætur og brokkolí. Ég ristaði líka kasjúhnetur til að hafa með, æðislegt.
3. Elda kjúkling eftir eigin hentisemi. Ég var löt og keypti mér tilbúinn kjúkling, gerist ekki auðveldara, reif niður bringuna og blandaði saman við restina af máltíðinni.
4. Setja sósuna yfir réttinn. Ég blandaði henni saman við allt þannig hún þakti hvern bita. Góða við að gera svona heima hjá sér er að maður ræður magninu af sósunni! Mjög, mjög jákvætt.
Dustaði loks yfir þetta ristuðum kasjúhnetunum og sesamfræjum.
Þetta var æðislegur, æsðislegur réttur. Sósan er að sjálfsögðu aðalatriðið og hún var bjútifúl. Pínkulítið rjómakennd með smá hnetukeim, sætu bragði á móti söltu og eftirbragðið var vel sterkt og gaf skemmtilegt kikk í bitann. Grænmetið aðeins undir tönn, pastað al-dente og smá crunch af hnetum og sesamfræjum. Almáttugur, þetta var svo mikil snilld!
Italia og Basil&Lime hvað?
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2009 | 18:48
Heitreyktur lax og mango - góð blanda
Keypti rosalega fínan heitreyktan lax í Hagkaup með provensal kryddblöndu. Hann er æði. Kemur í 120 * 4 gramma sneiðum. Tilbúin matvara, gott á bragðið bæði kalt og heitt. Hægt að spisa fiskinn beint úr pakkanum, hita, grilla eða baka. Mjög skemmtilegt. Fljótleg, einföld máltíð sem er alltaf kostur fyrir lummur eins og mig.
Ég var hinsvegar svo svöng þegar ég kom heim í kvöld að ég reif pakkann opinn, greip mér sneið, skar niður smá mango og borðaði með bestu lyst. Ofboðslega gott og mikið ofboðslega er mango og lax góð blanda! Ætla að prófa mig áfram með það á grillinu í sumar!
Fór annars með Ernu á Kryddlegin hjörtu í hádeginu. Þetta er alveg að verða uppáhalds hádegisstaðurinn minn! Ég dýrka brauðið þeirra, salatbarinn er blanda af öllu - ferskur og fínn. Súpurnar... hnetu og kjúllasúpan, oh men! Tók nú reyndar enga myndavél með mér þangað, þið verðið bara að trúa mér :)
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2009 | 19:38
Gómsætir sætu kartöflu og túnfisk klattar
Æji, átti sætar kartöflur og dósatúnfisk. Alltaf gott að geta nýtt afganga í eitthvað og yfirleitt þýðir það túnfiskur, eggjakökur eða hunts-tómatmauk réttir! Þessi kom bara svo vel út að ég ákvað að henda honum hingað inn! Svo kom hann bara frekar vel út næringarlega séð, prótein, holl fita, góð kolvetni og vítamín!
Sætu kartöflu og túnfisk klattar - Fyrir 2

1 dós túnfiskur - 140 gr. ca.
1,5 bollar stöppuð, ofnhituð sæt kartafla
1/2 smátt skorinn laukur
1/2 stilkur sellerý
1 kramið hvítlauksrif
2 eggjahvítur
Smá sítrónusafi
Dash cumin, chilli, múskat, paprika og pínkupons kanill
Splash hot sauce
Salt og pipar eftir smekk
Sigta vatn frá túnfisk og þarnæst setja fiskinn í skál ásamt öllu sem talið er upp hér að ofan. Hræra vel saman og forma í klatta.
Ég mótaði 4 klatta úr blöndunni, næst þegar ég geri svona ætla ég að hafa þá 6 eða 8. Verður bæði skemmtilegra og auðveldara að steikja þannig utan á þá komi góð og stökk skorpa. Þessir voru heldur stórir og þar af leiðandi mýkri en ella. Ekkert brauð eða slíkt til að halda þessu saman en þessir voru flottir.
Bragðaðist svakalega vel. Fannst lítið bragð af túnfisknum. Sæta kartaflan og öll góðu kryddin komu vel út! Sterkt og sætt - ég er að segja ykkur það! Ég hafði með þessu ostsneið, kotasælu, mango chutney og gúrkur. Frábært alveg!
Skammtur fyrir 1 er á 200 hitaeininga línunni, tæplega rúmlega. Tæplega þó. Um það bil 20 gr. af próteinum og vítamín í tonnavís! Túnfiskur er frábær uppspretta próteina, sæt kartafla er vítamínsprengja og full af góðum kolvetnum - maginn líka sáttur eftir matinn og þetta er svo til laust við hitaeiningar! Er hægt að biðja um það betra? Þetta er barasta æðisleg máltíð!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2009 | 19:49
Léttur og bragðgóður kvöldmatur

Hádegismaturinn vann í dag enda borðaði ég 7 kíló af kjúkling og rúmlega það. Inverskur kjúklingaréttur a-la Greta Lind niðr'í vinnu! Hann vær æðiber! Þar af leiðandi laut kvöldmaturin í lægra haldi enda ekki mikið til hans komið. En mikið svakalega var hann fullkomlega bragðgóður og yndislega fínn! Nákvæmlega það sem mig langaði í og ákkúrat eins og kvöldmatur á að vera! Ég var mjög hamingjusamt eintak á meðan matartíma stóð!
Dýrðin samanstóð af:
Eggjahvítu eggjaköku með 2 ostsneiðum, afgangs hummus og salsasósu.
Sætri bakaðri kartöflu með smá sýrðum rjóma.

Köldu hrásalati. Skar niður hvítkál, epli, sellerí, gúrku og papriku. Hrærði saman með skyrsósu og toppaði með ristuðum furuhnetum og pistasíum. Skyrsósan er hrærð saman úr.. tadaaa.. skyri, slettu af sýrðum rjóma, dijon sinnepi og smá salti og pipar.
Ég ristaði svo heilhveiti tortillu í ofni og notaði til að skúbba salatinu upp.
Rosalega notalegur kvöldmatur. Salatið crunchy, kalt og ferskt á móti heitri, djúsí, sætri kartöflu og mjúkri eggjaköku með bráðnuðum söltum osti. Salatið var líka skemmtilegt að borða með tortilla flögunum! Snakk er alltaf skemmtilegt að borða! Gefur svo feikifína áferð í bitann!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.4.2009 | 13:42
Tortilla gleði á sunnudegi
Góður sunnudags-hádegismatur að baki.

Ætlaði að vera voðalega heimilisleg og búa mér til tortillurnar sjálf, en komst að því að næringargildi per köku er nákvæmlega það sama og í heilhveiti tortillunum sem keyptar eru út í búð - svo ég skundaði og keypti mér einn pakka! Það er hinsvegar næst á dagskrá að búa til heilhveiti pítubrauð! Ójá! Svo hefur hveitikím náð að krækja í athyglishorn í heilanum á mér, en meira um það seinna mín kæru!
Af einhverjum ástæðum þá virðist matur vera "bragðbetri" og/eða skemmtilegri þegar búið er að rúlla nokkrum aðskildum hráefnum saman inn í hveitiköku! Miklu skemmtilegra að borða allt 'saman saman' frekar en að skófla tveimur hráefnum upp á gaffal - hreinlega af því það kemst ekki meira upp á gaffalinn! Hafið þið tekið eftir þessu? Eða er það bara gleypan ég sem hoppar af kæti yfir þessu?
Allavega! Ég útbjó hummus, því ég eeelska hummus, ricotta, steikti eggjahvítur og grillaði sætu kartöflu franskar. (Það er svo margt á ensku sem hljómar betur og er auðveldara í framburði eins og "Sweet potato fries"!) Hafði með pestó, salsa, kotasælu, ost, kalkúnaskinku og heilan helling af grænmeti! Rúllaði þessu svo upp í hamingjusama sunnudags tortillu! Mikið ofboðslega var þessi máltíð með eindæmum fullnægjandi fyrir svangan maga!
Mín tortilla var samsett á eftirfarandi hátt:

Inní: hummus, 1 tsk rautt pesto, 3 eggjahvítur með 2 ostsneiðum, steikt kalkúnaskina, ferskt spínat, smá heimagerður ricotta - rúlla!
Oná: 2 msk kotasæla, salsa sósa
Prótein, omega-3, flókin kolvetni, trefjar og fullt af vítamínum! Æði!
Ef þið hafið svo ekki tekið eftir því, þá er ég komin með sætar kartöflur á heilann!

Bjó mér annars til "snakk" í gærkvöldi í tilefni nammidags á laugardegi. Skar niður epli, banana og mango. Bjó svo til prótein, skyr-kotasælu, banana-ídýfu, toppaða með sykurlausri sultu. Ídýfan heppnaðist bara geðbilaðslega vel og var fullkomin með ávöxtunum. Hafði með þessu krums af ýmsum toga - kókosflögur, sólblómafræ, hörfræ og hnetumix. Gladdi mig og mitt sárþjáða sykurhungraða hjarta með eindæmum mikið!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2009 | 20:15
Gnocchi úr sætum kartöflum og höfrum
Það mætti halda að ég hefði ekkert betra að gera í páskafríinu en að hangsa heima og krassa niður hvað ég er búin að vera að gúffa í mig! En það er einmitt það sem ég ætlaði að nota páskana í. Slappa af, búa mér til góðan og sniðugan mat og sofa!
Allt pastatengt er mikil uppáhalds fæða. Seðjar alla kolvetnaþörf heimsins og er skemmtilegt að borða í leiðinni. Gnocchi er með skemmtilegri fæðu að borða, gúmmíkennt, mjúkt kartöflupasta! Díses, er hægt að biðja um eitthvað betra?
Hef alltaf viljað prófa að búa til gnocchi og gerði það í dag. Ákvað nú samt að prófa að nota hafra og heilhveiti með sætri kartöflu. Þegar bitið er í hafra gnocchi, þá er bannað að hugsa um flauelismjúku skýjahnoðrana sem gnocchi áhugamenn hafa vanist. Það er ekki hjá því komist að viðurkenna að flundurmjúkt skýjagnocchi er að sjálfsögðu langsamlega besta gnocchi sem finnst á þessari jörð... en þetta var bara nokkuð almennilegt! Þétt í sér og sætubragðið af kartöflunni skilaði sér vel! Af því að þetta gnocchi var búið til úr höfrum og heilhveiti þá vó hvert gnocchi um það bil 5 kg - en mér persónulega fannst áferðin æðisleg og gaman að bíta í. Eins og frönsk súkkulaðkaka... mmm!
Gnocchi
1 stór sæt kartafla (tæpir 2 bollar eftir að búið er að stappa hana í muss)
1 eggjahvíta
Kotasæla ef vill
1 bolli muldir hafrar
1 bolli heilhveiti
Henda teitunni inn í ofn og steikja alveg í spað. Þegar hægt er að stinga prjón í gegnum hana án vandkvæða taka hana út úr ofninu og snúa greyið úr skinninu. Stappa kjötið úr kartöflunni saman við eggjahvítuna og bæta hveitinu út í þangað til blandan er orðin nógu þétt til meðhöndlunar. Það sem ég gerði var að setja allt haframjölið út í og blandaði heilhveitinu við þangað til deigið var hætt að klístrast. Deigið verður appelsínugult á litinn út af sætu kartöflunni - frekar fínt! Kom skemmtilega út.
Þá skal skipta deiginu í fjórar jafnstórar kúlur og rúlla þeim út í um það bil sentimeters þykkar lengjur. Hluta hverja lengju niður í litla búta og gera rákir í hvern bút með gaffli.
Sjóða vatn og bæta út í það salti - athuga skal að vatnið þarf að bullsjóða. Setja svo út í pottinn 10 - 15 stykki gnocchi, fer eftir stærð pottsins, ekki mikið fleiri því þá gæti maður kælt vatnið í leiðinni. Þegar gnocchi-ið byrjar að fljóta þá er það reddí og skal hífast upp úr pottinum.
Það er hægt t.d. að steikja gnocchi-ið á pönnu en ég skellti því í eldfast mót, reif yfir það kalkúnaskinku, hellti yfir það æðislegri pastasósu og toppaði með smá kotasælu, osti og eggjum.
Skemmtileg skemmtileg máltíð og sérstaklega bragðgóð. Fullnægði öllum skilningarvitum hvað bragð, áferð, lykt og útlit varðar! Vel heppnað fyrsta gnocchi!
Svo bara æfa sig meira og búa til "alvöru" gnocchi þegar heilsufíkillinn fer í frí!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2009 | 23:07
Þriggja rétta mergjuð sjávarréttaveisla!
Nammidagur í dag - kvöldmáltíð vikunnar tekin með stæl!
Ég er farin að kunna vel við þá tilhugsun að borða fisk og fiskmeti. Fiskur hefur fært sig ofarlega á vinsældarlista hjá mér og ótrúlegt en satt, þá fær hann aðeins fleiri stig en rautt kjöt þessa dagana! Fiskur er léttur í maga, bragðgóður og það er auðvelt að elda hann án þess að skemma - sem er að sjálfsögðu kostur fyrir hellisbúa eins og mig!

Í kvöld var ég með þrennskonar fiskmeti. Humar, risa hörpu og smokkfisk. Yirleitt þá er þetta hráefni tekið og kryddað, steikt upp úr hvítlauk og olíu eða einhverju rjómakyns og maturinn er til. Ekki misskilja, það er guðdómlegt og klikkar aldrei, en mig langaði að prófa að útbúa eitthvað aðeins öðruvísi í þetta skiptið.

Þetta var kvöldmáltíð sem verður elduð í annað sinn!
Ferskt mango- og avocado salat með humarhölum og kókos.

Geggjað, kalt og fersk sumarsalat. Tilvalið á góðu sumarkvöldi með yndislegu hvítvíni.
Humarinn var steikur upp úr fiskikryddi og olíu og eftir það kældur. Muna bara að steikja humarinn rétt svo að hann nái smá lit. Annars verður kjötið eins og gúmmí, þá er minna gaman að borða hann. En það er aðallega fyrir matar-áferða perra eins og mig. Ég er mjög hrifin af mismunandi áferðum á hráefnum og hvernig bragðið kemur fram þegar bitið er í tiltekinn bita. Þið vitið hvað ég á við! Er ekki miklu skemmtilegra að borða ís þegar það er nóa kropp á honum? Allavega....
Mango og avocado er skorið í litla bita, ég notaði eitt stk. af hvoru, og sett í skál. Ég bjó til dressingu úr ólívu olíu, balsamic ediki, sítrónusafa og hunangi sem ég svo saltaði og pipraði. Dressingunni hellti ég svo yfir mango-/avocado salatið og blandaði vel saman. Eftir það raðaði ég humarhölunum yfir ávextina, sáldraði kókosflögunum yfir og skreytti með smá steinselju, salatblaði og jarðaberjum. Avocadoið á það til að verða brúnt við geymslu, ef þið viljið losna við það þá er best að setja bitana í sítrónusafa áður en þeim er blandað saman við mangóið. Rétturinn er svo kældur í minnst hálftíma inn í ísskáp áður en hann er borinn fram.

Þetta var meiriháttar góð tilbreyting. Mangóið og humarinn áttu jafn vel saman og súkkulaðisósa á ís. Humarkjötið eilítið sætt/saltað á móti sætunni/sýrunni í mangó ávextinum. Kókosinn er tilvalinn með mangóinu og avocado bitarnir gefa skemmtilega áferð þegar bitið er í þá inn á milli. Rjómakennt avocado kjötið er að sjálfsögðu snilld - þið sem lesið þetta hjá mér hafið eflaust tekið eftir ástfóstrinu sem ég hef tekið við þennan ávöxt! Ég myndi segja að það sé nauðsynlegt að hafa mangóið nokkuð vel þroskað í þessum rétti til að fá sem best bragð og áferð á móti humrinum. Rétturinn er kaldur og ískalt mangóið, bragðsterkt en mjúkt undir tönn, úff. Ferskara gerist þetta ekki. Dressingin kom líka vel út með ávöxtunum og gaf skemmtilegt eftirbragð!
Smokkfiskur (Calamari) hjúpaður með stökkum hafra- og Dukka mulningi.

Hef sagt það áður og segi það aftur. Smokkfiskur er æðislegur. Það er gaman að bíta í hann og áferðin er æðisleg. Pínkulítið gúmmíkenndur en kjötið samt svo silkimjúkt. Minnir mig á humarkjöt, sætur keimur og bragðið að vissu leiti hlutlaust.
Ég byrjaði nú á því að vinna fiskinn og skar hann í þunna strimla. Muldi þarnæst niður hafra sem ég átti inn í skáp, blandaði saman við þá Dukka kryddi frá Yndisauka, smá salti og pipar. Dukka kryddið er blanda af karrý, sesamfræjum og muldum hnetum. Meiriháttar gott! Líka gott að nota það sem ídýfu-mylsnu með baguette og góðri olíu. Smokkfiskinn setti ég svo ofan í hafra- og Dukka mulninginn og hjúpaði vel. Þarnæst steikti ég gúmmulaðið upp úr isio4 olíu og hafði með þessu steiktar gulrætur og sykurbaunir. Æðislegt grænmetisbland til steikingar. Þetta kom snilldarlega vel út. Dukka kryddið er bjútifúl með smokkfisknum og ég fann fyrir hnetunum og sesamfræjunum í hjúpnum. Meiriháttar skemmtilegt bragð og átti vel við. Gaman að bíta í smokkfiskinn þar sem kjötið sjálft er flundurmjúkt á móti krydduðum og stökkum hafrahjúpnum. Æðislegt!

Smokkfisk kjötið krullast líka svo skemmtilega upp þegar það er eldað. Þó það geri það reyndar ekki á myndinni hér til vinstri!
Það er gleðileg upplifun fyrir átvagl eins og mig að borða smokkfisk.
Risa hörpudiskur með karmelliseraðri döðlu, vafinn inn í kalkúnaskinku ásamt hunangsristuðum bönunum, gómsætri bananaskyrsósu og ristuðum möndlum.
Punkturinn yfir I-ið. Þetta var uppáhalds rétturinn minn þó þeir hafi reyndar allir slegið í gegn. Ég er sykursnúður og það vita það allir sem þekkja mig. Þessi réttur var sætastur af þeim öllum og kom skemmtilega vel á óvart. Banani, daðla, skinka og hörpudiskur - æðislegt, æðislegt bland!

Útbjó svipaða dressingu fyrir hörpuna og ég útbjó fyrir mango- og avocado salatið. Balsamic edik, olía, hungang, sítróna og smá fiskikrydd. Marineraði fiskinn í rétt rúmar 15 mínútur. Mætti þó alveg vera lengur. Á meðan kjötið marineraðist þá skar ég einn banana til helminga og steikti á pönnu. Hér væri að sjálfsögðu langsamlega best að grilla kvikindið en ég var ekki með grillið uppi við. Saltaði bananana eilítið og smurði með hunangi, steikti þangað til karamelluhjúpur hafði myndast utan um þá og tók þá af pönnunni. Í leiðnni skar ég niður döðlur og steikti samhliða - rétt til að mýkja og hita. Þar næst var harpan tekin og léttsteikt á pönnu til að fá utan á hana stökkan hjúp. Henni pakkað inn í kalkúnaskinkuna og döðlubitunum raðað ofan á hvern hörpudisk. Þessu var svo öllu skúbbað inn í 180 gráðu heitan ofn, ásamt bönunum, og eldað í 5 - 6 mínútur. Þá var harpan orðin perfecto! Stökk skel, mjúk í miðjunni. Skinkan orðin stökk, saltbragðið í henni búið að brjótast fram og döðlubitinn orðinn crunchy eins og karamella. Bananarnir karamellukenndir og mjúkir - hryllilega góðir maður! Uss.

Með þessu bjó ég til banana skyr sósu. Köld sósa, létt með sætum keim að sjálfsögðu. Stappaði vel þroskaðan banana, blandaði saman við skyr og eina matskeið af sýrðum rjóma. Ein tsk hunang, smá dijon sinnep og pínkulítið af salti. Stráði svo yfir þetta ristuðum möndlum og viti menn, himnesk sósa! Dijon sinnepið gefur líka alltaf svo skemmtilegt bragð, sérstaklega þegar notað er súrt hráefni eins og skyr. Sætan í banananum vinnur líka vel á móti sýrunni og hunangið gefur skemmtilegt eftirbragð. Sýrði rjóminn var svo til að milda allt og þá smallt þetta svona líka vel saman.
Ég veit ekki hvar ég á að byrja! Saltið í skinkunni á móti sætri döðlunni er eitthvað sem við þurfum ekkert að ræða. Daðlan var líka orðin crunchy sem gaf skemmtilegt kikk í hvern bita. Sætan í réttinum vann líka svo vel á móti hörpunni, stökkri skinkunni og kryddinu og leyfði kjötinu alveg að njóta sín. Enginn yfirgangur í skinkunni, þó það hefði alveg mátt nota hráskinku, held ég prófi það næst. Bananinn og skyrsósan voru svo alveg til að fara með sykurfíkilinn í mér. Allt innan skynsemis-sykurmarka þó, og sætan í réttinum kom aðallega frá döðlunum og banananum. Held ég hafi notað, allt í allt, tæplega 2 tsk af hunangi í þetta lostæti! Biti af skinku, hörpu, döðlu, skyrsósunni, hunangsristaða banananum og möndlunum - guð... minn... góður! Öll þessi brögð og mismunandi áferðir - fullkominn biti! Salt, sæta, smá sýra, stökkt kjöt á móti mjúku kjöti og allt vann þetta fullkomlega vel saman. Jesús minn - trúi því ekki að maturinn sé búinn!
Vonandi varð ykkur að góðu í kvöld mín kæru því mér varð það svo sannarlega!
Kvöldmaturinn eins og hann lagði sig!
Om nom!
Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)