15.9.2010 | 15:19
Smáfærsla
Hádó - numero 3
Þetta ku vera pestókjúlli, gras og 6 tonn af avocado.
Kaffó - numero 4
Ávextirnir búnir, ekkert grænmeti + kotasæla til á hrökkbrauð.
Ég græt!
Og brosi!
Hver veit nema við sjáumst barasta aftur á eftir? Í kvöldmat? Hver veit?
Jahérna!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.9.2010 | 10:24
Ákvarðanir á ákvarðanir ofan
Jú, ákvörðun hefur verið tekin!
Þar sem ræktarkortið mitt er enn lifandi, og verður lifandi í einn og hálfan mánuð í veðbót, þá ákvað innra sjálfið því miður að lúffa mínu ástkæra Bootkampf, sökum ytri aðstæðna , og nýta kortið til fullnustu. Lyfta létt og taka Stunukonuæfingarnar í og með, í bland og bjútífúlness. Þegar kortið blessað verður ónothæft þá er líklegt að intervalæfingarnar taki völdin fram að jólum. Held það sé ágætis nálgun á þetta alltsaman.
Held samt áfram að hlaupa og froskast og Bootkampf-æfingast og nota ofurbeib æfingarnar, meðal annars, til að halda mér við í þeim efnum. Vil alls ekki missa niður antilópusyndromið! Skal vera dugleg að setja inn bæði át- og æfingastúss ef þið hafið áhuga á því.
Nægur tími fyrir mig, ykkur (ég vil feitast fá ykkur með mér í þetta ), að húgsa málið þangað til. Kannski ég verði galvösk í byrjun nóvember að intervala frá mér vit og rænu í bílskúrnum heima á meðan skítakuldi og frost taka völdin!
Þar af leiðandi varð morguninn hjá mér svona.
- 05:00 - ræs.
- 05:15 - kaffigrautur. Bjútíbomba extraordinaire. Engin mynd sökum græðgi.
- 06:40 - Brútal fóta-axla-æfing! HRESSANDI! Langt síðan gamli vin... úff. Langt, langt síðan. Mjööög gaman.
- 08:00 - Ómynduð prótein hrískökusamloka! Meiri græðgi, þið verðið að afsaka.
- 10:05 - Morgunkaffibollinn.
- 10:06 - Biðin hræðilega.
Jú biðin!
Biðin eftir harðsperrunum. Ég veit ekki hvort ég hlakki til morgunsins...
Ó mig auma og sára.
Aldrei hefði mér samt dottið í hug að ég myndi nokkurntíman súpa kaffi og segja "Ahhhhh.....".
AHHHHHH!!!!
Sjáumst á eftir!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.9.2010 | 10:13
Næstu vikur og mánuðir - hmm?
Jæja mín kæru.
Nú er allskonar gleðilegt skemmtilegt að fara að ske. Kemur í ljós á næstu dögum.
Í kjölfarið er ég búin að vera að spögúlera smá. Bootcampfið mitt var að klárast. Það er, námskeiðin tvö sem ég hafði skráð mig í, í sumar. Ræktarkortið mitt fer að renna út á næstu mánuðum og ég fann þessa síðu! Opnaði mín augu töluvert.
Þó svo síðan sé hallærislegri en allt hallærislegt, skvísan með boobies fyrir allan peninginn og allar æfingarnar gera út á the hotness of it all "Sexy butt bootey workout" þá tekur maður vel eftir því að þau eru að gera svolítið grín að þessu og gera út á að sýna allt sem hægt er að sýna innan velsæmismarka.
Þetta stelpurassgat er að stunda svipaðar intervalæfingar og ég hef verið að dunda mér við í frístundum, 10 - 30 min æfingar. Stundum daglega, stundum annanhvern dag, með sína eigin líkamsþyngd í flestöllum tilfellum, og hún lítur þrusu vel út! Hef tekið nokkrar æfingar sem finna má á þessari síðu og þær eru svaðalegar skal ég ykkur segja! Virkilega, virkilega erfiðar margar hverjar og hún er í massa formi þetta kvekendi! Tók t.d. eina í morgun og hélt ég myndi andast!
Virkilega erfið.
Núna er ég búin að vera í átfríi. Það vita nú flestallir sem lesa þessi skrif mín. Ég fór því að spá og spögúlera m.v. gefnar aðstæður, át og ræktarlega séð. Jú, jú... það gerist stundum að hjólin snúast.
En bara stundum.
Hvort ég ætti að prófa að taka t.d. 4 - 8 vikur, í nákvæmlega sömu æfingar og hún er að stunda, og sjá hvort þor, þrek og form batni? Sjá hvort 12 min ofuræfingar, án lóða/rætkarhúss/námskeiða, haldi manni við ásamt hreinu og góðu matarræði? Hugsið ykkur bara. Þá gæti maður barasta gert þetta heima hjá sér á nó tæm, enginn kostnaður, ekki neitt bílavesen fram og til baka... gæti orðið svolítið forvitnilegt ekki satt? Þarf samt að gefa sig allan í þetta og aldrei stoppa - maður á að deyja drottni sínum í þessum blessuðu sprettum.
Ég myndi þá pósta öllum æfingum sem ég geri + matarræði + fyrir/eftir myndum og við getum ákveðið í sameiningu hvort þetta sé þess virði/kostur fyrir þá sem hafa t.d. lítinn tíma yfir daginn nú eða lítinn pening milli handa/fóta. Þið gætuð jafnvel gert æfingarnar með mér, með henni, og við tekið stöðuna að 6 vikum liðnum?
Bootcamp stendur þó fyrir sínu, ræktin líka, og í guðanna bænum, að kaupa ræktarkort eða Bútkampf námskeið er ekkert nema fjárfesting í heilsunni - þú kemur aldrei til með að "tapa" pening á því.
Væruð þið til í þetta með mér?
Ætla að hugsa þetta aðeins.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
13.9.2010 | 10:57
Brúnskyr? Skyrkál?
RÆS KVENMANNSBELGUR - KLUKKAN ER 7!
Frammúr, spræna, hræra í chiaskyr!
Check!
Svaðafínt ræktarsession í morgun og loksins loksins, Bootkampfh í kvöld. Tvær vikur síðan síðast og núna mín kæru er nýtt námskeið að hefjast = þrekprófið!
Óguð - ég sem stóð mig svo ægilega vel síðast! En jæja, verður gaman að sjá á hvaða stigi skrokkurinn er eftir tvær vikur í leti og almennu áti. Móður, másandi, hvásandi... deyjandi? Kannski bara móður og másandi?
Hver veit.
Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég þó ekki hreyft á mér rassinn í morgun, þar sem... þaaað eeer Bootkamfp dagur í dag, (sungið eins og Daloon lagið) en af því ég hef verið ofvirkari en belja að vori undanfarið varð ég að gera eitthvað. Hefði ég ekki tekið tryllarann í morgun er mjög líklegt að njálgurinn hefði gengið af mér dauðri í dag. Morgunhreyfelsið kemur þó án efa niður á frammistöðunni í þrekprófinu á eftir, en við sjáum hvað setur... eða... ekki setur?
Beint heim úr rækt með tilhlökkunar chiaskyrhnút í maganum. Áferðin á gumsinu situr æði fast í matarminninu aftast í heiladinglinum! Opna ísskáp og húha - hann er troð, stútandi fullur af matargleði.
Borðuðum nefnilega þetta í gær... jebb...
...og þetta...
...og þetta!
Oghhh! Brúnkál, hvað ég elska þig! Fullkominn kósý heima mömmumatur! BEST!
Já - ég eeeeeeelska brúnkál og rauðkál! Jólalegra verður það varla. Þetta var samt sem áður brúnkál fyrir 52 svanga sjómenn, en það er önnur saga.
Brúnkál, eins og t.d. kjúlli og kjötsúpur, býr þó yfir þeim miður gleðilega eiginleika að daginn eftir, og þegar gumsið kólnar, þá er skítafílan svo stórkostlega sterk af, og í kringum ílátið sem gumsið geymir, að tár eiga það til að spretta fram eins og enginn sé morgundagurinn. Tala nú ekki um ef þessum listilega samanpúsluðu atómum er stungið óplöstuðum inn í ísskáp. Eins gvöðdómlegt og það er nú að borða gjörninginn á meðan ferskleikinn er í fyrrirúmi, þá á matarhrúgan svo sannarlega síðasta orðið og nær að hefna sín grimmilega sé ekki gripið til viðeigandi varúðarráðstafana að áti loknu.
-
Ísskápshurðin er opnuð og á 300 km. hraða þrýstist út úr íshellinum dökkgrænt skítafýluský máltíðar kvöldsins áður. Krafturinn er svo mikill að óundirbúinn ísskápsopnarinn hrekkur við, eftir fyrstu höggbylgju, með tárvot augu og grípur fyrir öll vit til að verjast árásinni. Kjökrandi, með einstaka velgjuhósti, reynir fórnarlambið að loka hurðinni á nýjan leik og rétt áorkar að ljúka ætlunarverkinu áður yfirlið og óráð ota sér inn í systemið. Eftir að skítafílunni hefur verið pakkað inn heyrist innan úr svefnherbergi "GUÐ... MINN ... GÓÐUR... HVAÐA LYKT ER ÞETTA?". Það er ekki ólíklegt að í fjarska heyrist lymskulegur hlátur kjúklingsins sem kom við sögu.
-
JÆJA... þetta var nú skemmtilegt. Að öllu gamni slepptu, gerum langa sögu stutta, komum okkur að efninu!
Munið þið eftir þessari mynd fyrr í þessum tuðpistli?
Ofan á ómægdo eggjunum kom ég Chiaskyrinu mínu fyrir! Skúmaskot mikið!
Svoneredda þegar myrkrið er farið að láta á sér kræla, þá þarf að nota flass!
Á hæðinni fyrir neðan hvíldi sig fjórplastað brúnkál gærkveldsins.
Jú! Fjórplast eða ekki, það var brúnkálsbragð af skyrinu mínu í morgun!
Það var... öðruvísi! En ég át gumsið engu að síður því áferðin reddaði öllu sem hægt var að redda og ég var svo gott sem aðframkomin af hungri!
Smá drama er alltaf hressandi í morgunsárið!
Svo þykir mér brúnkál líka hamingjusamt. Kannski ekki í morgunmat, en hamingjusamt engu að síður! Hef reyndar lent í þessu áður. Síðustu jól. Hafði gúmslað í iGraut og geymdi dýrðina inn í ísskáp sem fullur var af reyktum jólamat. Reyktum jólagraut mæli ég því ekki með mín elskulegu bestu, hvað þá snemma á morgnana.
Jæja, njótið dagsins gott fólk. Þvílíkt og slíkt blaður hefur ekki átt sér stað í svolítinn tíma.
Munnræpa er sem betur fer tímabundið ástand.
Afsakið!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.9.2010 | 09:49
Ástralía 1 - Ísland 1
Útlendingurinn kom og hann fór. Hann naut Íslandsins í botn og ég svoleiðis stútfyllti mannin, og sjálfa mig, af allskonar bjóði og óbjóði. Honum, og maganum á mér, til ævarandi hamingju og gleði þó.
Hr. Jújú: "Hvað er þetta... má borða það... oj Elín ekki með sjöri... mmm, kanilsnúður".
Efst á lista Ástralans:
Mömmumatur - smokkfiskurinn bara det beste som er ásamt ómynduðum pönnsum ofl.
Ég ætlaði út með hann að borða en hann bað, mjög auðmjúkur, um smokkfiskinn hennar mömmu í staðinn. Hann fékk því smokkfiskinn í tvígang.
Fjöruborðið.
Pulsur - enginn steiktur eða hrár. Bara sósurnar ásamt kókómjólk.
Skyr - græna vanilluskyrið sökum vanillukorna. Ef hægt er að kalla mat "sexy" þá þykir þessum kokki matur, sem inniheldur alvöru vanillukorn, mjög svo kynþokkafullur.
Danska kirsuberjasósan með risalamande!
Kanilsnúðar, ásamt kókómjólk.
Appelsín.
Íslenskt smjör.
Nóa Kropp.
Daim - ekki íslenskt, en elskað og dáð af herra Nýja sjálandi.
Hann gaf ekki mikið fyrir:
Lunda, lyfrarpylsu og blóðmör, harðfisk, sviðasultu og án efa eitthvað annað sem ég man ekki í augnablikinu. En borðaði það samt sem áður.
Svo fékk ég þær fréttir í gær að til hans hafi komið einstaklingur frá Bretlandi, færandi hendi, með þurrkaðan Steinbít og sagði "Ég er hérna með glænýtt smakk frá Íslandi, þetta er ofursmart og exotískt í eldhúsið hjá þér maður". Jújú horfði á gumsið mjög svo snöggt og snarlega, góndi svo á Bretann, hló pínkulítið, og bað hann vel að lifa. Þessi ófögnuður ætti hvorki heima í hans sérlega eldhúsinu eða upp í áströlskum munnum.
Takk fyrir það. Íslenskur harðfiskur tekinn og snúinn niður á ljóshraða.
Ofurát og ofurskemmtilegheit eru þó að baki. Virkilega gaman að upplifa landið ljúfa kæra í gegnum óundirbúin(n) augu/eyru og maga. Skemmtilegra en ég átti von á - borðaði hinsvegar jafn mikið og ég átti von á. Ótrúlega gleðilegt að taka át-letifrí með lærðum kokki, get svo svarið það, átvaglið naut þess í blússandi botn.
Hr. Jújú: "Hvernig ætli.. hmm.. örugglega smá paprika í þessu ooooog... " *smjatt* "...chilli..." *smjatt* "...hefur samt líklegast verið látið sitja í pottinum í allan dag, ekki vont, en gæti verið betra".
Átvaglið: :D
10 dagar síðan ég hreyfði á mér rassinn. Ég er búin að éta eins og bestía og ég grínast ekki með það. Þetta var ein... stór... veisla... í 10 daga. Held ég hafi náð að gúlla jafn miklu og ég gerði á meðan ég var í Ástralíunni, get svo svarið það, og *gleði* hvað átvaglið hafði það ljúffengislega fínt.
Verður samt notalegra en brakandi hrein rúmföt að komast aftur í spriklið. Fór af stað, galvösk, í fyrradag. Tók einn intvervalhring og hélt ég myndi ekki hafa það af. Já lömbin mín, þetta er fljótt að láta sig hverfa. Það er því bannað að halda að maður geti verið duglegur í 2 mánuði, éta og vera latur í 10 daga, og taka upp hanskann þar sem frá var horfið. Oneiiii...
...tekur smá tíma að ná þessu upp aftur, en ef þú byrjar um leið og át-tíðin er yfirstaðin, þá tekur það skemmri tíma en það tæki ef þú tækir þér t.d. eina auka átviku sökum leti. Sparkaðu í rassgatið á sjálfri(um) þér og komdu þér aftur í gírinn. Jííhaaaw.
Nú verður þessi mánuður tekinn með tvöföldu trompeti, interval og Bootcamp í bland við almenna hamingju og EKKERT sukk næstu 3 vikurnar. Jebb. Ég er búin að éta nóg. Reyndi meira að segja að éta útlendinginn...
...það gekk illa. Vantaði allan kanil á hann.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.9.2010 | 10:09
07.09.1993
17 ár og einn dagur síðan foreldrarnir mínir elskulegir giftu sig.
Þau giftu sig líka snarlega.
Múmfey: "ELÍN... KOMDU INN...".
Átvaglið: "ÆJIIIII, ÉG NEEEENNEKKI... AF HVERJU???".
Múmfey: "VIÐ ERUM AÐ FARA AÐ GIFTA OKKUR!!!".
Upp í kirkju - já ókei þá og já - út í bíl - bílalúgan á McDonalds og brúðkaupsveislan haldin með stæl.
Þar af leiðandi héldum við daginn hátíðlegan og fórum út að borða í gær, ekki á McDonalds þó. Hefði verið mikil kómík í því en sökum jákvæðs brotthvarfs, þessa annars ófögnuðar af matsölustað af vera, af landinu létum við Tapas nægja. Hneisa.
Hneisa?
Læt það nú vera.
Leyfum þessari mynd að tala og segjum bara að ég muni fara þangað aftur.
Oft...
33 árum, átvagli og ófriðarsegg, giftingu, krömdum giftingarhring, Fuglenpipendansen, jólaönd, Gúmmulaðihöll, ofurgarði, musa, hengirúmi, 27 köttum og nokkrum hestum seinna hanga gömlu hrossabjúgun enn saman. Það er nú aldeilis ágætlega fínt segi ég nú bara.
Áfram team hrossabjúgu!
Til hamingju með daginn ykkar í gær mín kæru! Þið eruð það bestaðasta sem ég veit
HEY.... EKKERT SVONA! ÉG VEIT HVAÐ ÞÚ ERT A HUGSA...
... OG JÚVÍST!
Ég má sko alveg vera vemmileg og væmin inn á milli þess sem ég tek hnébeygjur með þvílíku offorsi að æðin í enninu á mér verður fjólugræn!
Útlendingapistill væntanlegur ásamt endurheimtu þoli. Krossið fingur fyrir mig, þessi mánuður verður drepsótt fyrir skrokkinn.
Yfir og út lundapysjur.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.8.2010 | 10:45
Íslenskur túrhestur
Hverjum hefði dottið það í hug hvað það er gaman að upplifa allskonar íslenskt í gegnum eitthvað ekki íslenskt eins og nýsjálenskan kokk frá Ástralíu?
Nýsjálenskur kokkur frá Ástralíu?
Allaveganana með banana.
Meðal annars búið að tækla Reykjavikina og nágrenni, Þingvelli, smá Mosó og Esjuna, Perluna, Heiðmörk, Keflavíkurmall. Núna er það Hurdygurdy og nágrenni, Gullfoss og Geysir, I forgot my yogurt ofr. Mikið að gera því tíminn er naumur. Stikla á stóru yfir það helsta á meðan útlendingurinn er hérna.
Bláa Lónið - kannski. Ekki mikið spennó fyrir Nýsjálending. Hann hló smá þegar ég sagið honum frá þessu "Ahh.. við erum með svona í bakgarðinum".
Lítið um orð, meira um myndir, mest um át. Ekki liðin vika og ég hef þegar étið þyngd mína í pylsum, feitu hrossakjöti, soðbrauði, nammi, mömmumat, pönsum, Móaflatarkjúlla....
...kleinum, flatkökum, hangikjöti, kæfu, íslenskum mjólkurafurðum...
...og margt, margt og mikið meira. Enn á eftir að tækla lunda, hákarl og fleira í þeim dúr. Igh.
Gvöðmöndur góði hvað ég hlakka samt til að komast aftur í rútínuna og hreyfa mig. En sjeise bitte hamingja og hvalaskoðun hvað það er ógeðslega gaman að upplifa íslenskan mat/menningu á þennan hátt!
Ætla að njóta þess á meðan ég hef löglega afsökun til og éta þangað til augun poppa út úr höfðinu!
Hér er svo brota, brota.. brota brota brot af öllu því sem á daga mína hefur drifið síðan 25.08.
Höggva svo mann ok annan!!!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.8.2010 | 09:41
Gemmér skyr! Ef þú vildir vera svo vænn.
- RÆÆÆÆÆS
- Banani
- Pissa (já... stelpur gera svoleiðis líka. Gott að vita svona hluti)
- Þvo fés
- Bursta beyglur
- Valhoppa inn í eldhús
Skyr (gomma) og smá vatn, bláber (gomma), fitugjafarnir hörfræ (kúfuð tsk) og chia (msk), sætað með vanillu torrani (2 tappar), hrært og svooooo:
- Skál inn í ísskáp
- Bootcamp 06:30 - 07:30
- Bruna heim í góða veðrinu og hlusta á uppáhalds lag. Að sjálfsögðu á löglegum hraða gott fólk! Að... sjálfsögðu!
- Hlaupa í átt að grunlausum ísskápnum
- Rífa ísskápshurðina upp með svoddan offorsi að systurdýr vaknar
- Skyrskál tekin varlega út úr ísskáp svo ekkert fari til spillis
- Ómægod hellt yfir (tsk)
- Myndað!
Næstum því ekki myndað sökum sjúklegrar svengdar í bland við óstjórnlega græðgi.
HRÆRA.... KOMA SVO KERLING... SLEPPTU MYNDAVÉLINNI!
SLEPPT'ENNI!!!!
AHHHHHHHHH!!!! NOHHM!
Heilög skyrmóðir alls sem er guðdómlega bragðgott í þessum heimi með fullkominni áferð!
*höfrungar, regnbogar og fiðrildi*
Borðað með gleði í hjarta eftir hræring. Hnauuuusþykkt. Ákkúrat eins og ég vil hafa það!
Og svo annar.... *chomp*
Sjáið líka hvað þessar myndir eru miklu hlýlegri og kósý en fyrir át. Átvaglinu er nokk sama um gleði mynda þegar hungrið er farið að segja til sín.
Smá... bara smávegis kanill!
Æðiber. Ómissandi með bláberjunum. Kemur flott út þegar búið er að sæta skyrið!
Skyrsago - smá grjónagrautsfílíngur. Geggjað!
Ástralinn kemur svo á landið í dag. Hlakka mikið til að upplifa íslenska matarmenningu í gegnum einn grunlausan! Tala nú ekki um landið sjálft. Verður spennó :)
Halló svið og blóðmör og lifrarpylsa, kleinur, harðfiskur með smjeri, skonsur, hangikjöt og flatkökur, hrefna, skyr skyr skyr....
BWLAARGHHHH....BALAGHHH... UGHH... OJ..
æji
Ég fékk mér gúlsopa af vatni rétt í þessu og kyngdi tyggjóinu mínu um leið og sopanum var sporðrennt.
Æji ojbara... en ömurlega leiðinlegt eitthvað! Ugh!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.8.2010 | 12:01
Uppáhalds óþolandi staðir
Við eigum öll okkar uppáhalds óþolandi staði utan á búknum.
Staðir sem fá okkur til að froðufella af einskærri biturð eftir erfiðan ræktarmánuð.
Staðir sem við skellum okkur á hnén yfir, buguð, og öskrum "AF... HVERJU... HVERFUR'Ð'EKKI?"
Staðir sem láta mann fá samviskubit ef brennslutækjunum er ekki refsað 24/7.
Staðir sem 99% líkur eru á því að ENGINN taki eftir... nema þú!
Mínir "uppáhalds" og í uppáhalds röð, fyrsti verandi minn besti... besti vinur:
Ruslakistan: Fyrirlít og hata heitar en þurrar ógeðslegar rauður.
Tu...ubumba (það sem systir mín kallar þetta, of hræðileg nafngift fyrir þennan vettvang, afsakið): "Krúttaralega" bumban sem safnast undir naflanum og býr til fallegan björgunarhring þeagar hún og ruslakistan bindast vinaböndum og ákveða að djamma.
Lærkúlur: Hafa verið óvinir mínir hingað til. Er samt með læri og rass eins og Ítöslk ofuramma... en, er farin að kunna að meta lærin og kúlurnar sem þeim fylgja. Góð læri og góður rass, alveg málið.
Handakrikafitan: Ekki feitur handakriki, nei. Litlar kúlur/fellingar/bungur sem myndast á milli bjósts og upphandleggs. Ég kenni DNA um, súkkulaði safnast ekki saman á svona forboðna asnalega staði. Hvað er samt málið með kálið??? Iss... Er að spá í að færa þennan uppáhalds elskustað þar sem lærkúlurnar liggja í dag. Elskulegar lærkúlurnar!
Upphandleggir: B*I*N*Ó - BINGÓ!
Bakspik: Dýrðin sem býr til brjóstahaldarafellinguna góðu.
Held það séu fleiri í sama pakka hvað uppáhaldsstaði varðar og hjálpi mér allir heilagir hvað ég hef eytt miklum tíma í að toga, tæta, slétta úr, spegla, snúa...
Mitt ráð til ykkar. Get over it! Lærið að öölska þessa staði. Þeir eru þarna, þeir fara með tímanum ef maður er duglegur. Stundum fara þeir ekki nema að svo miklu leiti því matarræðið þarf að vera 152% platínum með demantsrönd og stundum er DNA pastaskrúfan á öðru máli. Það sem meira er, sama hversu mikið þú togar spiksvæðin fram og til baka, þau verða aldrei nákvæmlega eins og þú vilt. Fyrir utan það að þegar vondsvæðið hverfur loks, þá tekur alltaf eitthvað annað við. Þú getur gónt á bumbuna án þess að blikka þangað til augun breytast í rúsínur. Þú nærð samt aldrei að góna svo stíft að bumban veðrist í burtu.
Sem væri óskaplega hentugt engu að síður!
Hund helvíti fúl rassgata staðreynd. En staðreynd engu að síður. Maður virðist aldrei geta verið kátur í eigin skinni. Ber sig stanslaust saman við hina og þessa. Ekki að gera sig. Þinn skrokkur, þín beinabygging er allt önnur en hjá manneskjunni á móti þér. Ef þú ert með stærri rass en manneskja X, þá er hann bara stærri. Það er pottþétt einhver að góna á handleggina þína og dáðst að því hvað þeir eru fínir.
Það er alltaf.... alltaf einhver sem væri til í að líta nákvæmlega eins út og þú.
Vertu bara fegin(n) að þú getir hreyft þig. Vertu þakklátur fyrir það sem þú átt og knúsaðu amk. einn sem þér þykir vænt um á hverjum degi. Svolítið bakspik bliknar í samanburði við heimsins vandamál.
Ég er ekki að gera lítið úr markmiðum fólks með þessum orðum en stundum er ágætt að líta á sín "vandamál" út frá stærri mynd til að koma sér aftur á jörðina.
Hvað með það þó ruslakistan bólgni svolítið út um jólin og sé ekki spegilslétt eftir 7 mánaða ofurátak. Sérstaklega ef þú ert búin(n) að vera duglegur, lifir "hollu" líferni dags daglega, ert í hraustum skrokki. Hvað er smá mör milli vina hey? Náttúrulegra verður það ekki og línur skipta sköpum. Hreyfðu þig bara aðeins meira/borðaðu aðeins minna ef buxurnar fara að þrengja að og þér líkar það illa.
Svo lengi sem sálin er kát og þú sáttur við erfiði dagsins, sama á hvaða sviði það er, þá erum við að dansa.
Dansa? Yes pölís!
Ella predikunar llama alveg á yfirsnúning. Kenni Buddha skálunum um.
úhh... ég gleymdi næstum hádegismatnum. Hann var... ekki spennandi. En gerði sitt gagn.
Getið mínusað rasphlunkinn þarna á kanntinum, plúsað þremur eggjahvítum við og öðrum disk af grænmeti. Bæta svo við þá útkomu lúku af blönduðum hnetum og átvaglið er sátt.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.8.2010 | 12:25
Guðmóðirin
Monday... tuesday...
Með kökukefli í annarri og chia fræ í hinni situr la mama grande og starir á einn einmana vesaling sem situr á móti henni við matarborðið. Með svitaperlur á enninu, sem glampa í morgunsólinni, og tárvot augun heldur auminginn á "Good morning sunshine" og gónir ofan í bláa Buddahskálina. Skjálfhentur stingur hann skeiðinni ofan í gumsið sem skálin hefur að geyma og við það fellur ein svitaperlan af enninu á honum ofan í skálarmallið.
Guðmóðirin: "Já svona nú vinurinn. Áfram. Borðaðu endilega grautinn þinn. Það eru hörfræ í honum og smá kaffi... eggjahvítur. Rosalega góður."
Ólánsamur einstaklingur: "Gerðu það... ég bið þig... mig langar ek...."
Guðmóðirin leggur kökukeflið varlega á borðið en heldur þéttingsfast um annað handfangið og horfir stíft í augun á manninum.
Guðmóðirin: "Borðaðu... grautinn þinn!"
Ahh... ekkert jafnast á við ofurdrama á mánudagsmorgni eyy??
Litli snúðurinn fékk hið virðulega nafn Garðar Freyr. Garðar Freyr Valdimarsson. Hljómar vel. Skírður í höfuðið á don Gasso, afa mínum kærum. Ég, sem skírnarvottur og sérleg guðmóðir, átti í miklu basli með að halda neðri vörinni í skefjum þegar uppáhalds gamli hélt á litla múmínálfinum, hálf skjálfandi og biðukollan sömuleiðis.
Litli fíni frændinn minn. Stóra háværa fína fjölskyldan mín.
Hér er svo Dossan, Valdinn, Valdísin og glænýji Garðarinn.
Veislan var svaðaleg með meiru. Þvílíkt og slíkt át hefur ekki átt sér stað hjá undirritaðri í háa herrans tíð enda var úr miklu að velja. Veiiiiii. Þvílík hamingja.
Mömmupönnsur, eplakrumsið mitt (besta hingað til), ofurbananakaramellusprengjukaka (a la moi), muffins, skyrtertur, heitir réttir í tonnatali, rjómasprengjur, pestóbrauð, kransakökugleði, svaðalegasta skírnaterta hérnamegin Alpafjallanna, ostasalöt, ávextir... guð minn góður. Hvernig er ekki hægt að éta þetta allt?
Kemur í ljós að það er barasta ekki... ekki hægt!
Ég fór eina ferð, svo tvær... þegar ég var búin með sjöttu ferðina ákvað ég að nú væri komið gott og fékk mér einn kaffi.
En það var ekki komið gott. Ónei. Ó hvað ég var grunlaus á þessum tímapunkti um hvað átvaglið væri að plotta. Pillið gott fólk, ég mun aldrei losna við pillið.
Til að gera langa sögu stutta þá var ég ennþá södd þegar ég vaknaði í morgun.
Þetta var góður og gleðilegur dagur. Svo mikið er víst.
Tók annars svaðalegan intervalhring í morgun. Mæli með honum. Æp og vein í fótleggjum, miðju, öxlum og þríhöfða.
5 sek hvíld, 40 sek í vinnu, 3 umferðir af eftirfarandi og alls 18 mínútur. Skuluð gefa vel í í þessari.
- Hnébeygja með hoppi - hoppa saman með fætur og beint niður í hnébeygjuna aftur. (27, 23, 23)
- Sumo armbeygjur - Armbeygja og þegar þú þrýstir upp, lyfta upp hægri hendi. Svo önnur armbeygja og þegar þú þrýstir upp fer vinstri upp. Alltaf hafa 90° á olnboganum. Sundur með fætur. (12, 8, 7)
- Rassabrú, vinstri upp. Liggja á baki, vinstri fótur upp og þrýsta mjöðmum upp. (30, 28, 27)
- Rassabrú, hægri upp. (30, 28, 27)
- Froskur með armbeygju + hoppi, á einum fæti. Vinstri. (8, 7, 7)
- Froskur með armbeygju + hoppi á einum fæti. Hægri. (8, 7, 7)
- Liggja á baki með hendur á hnakka og standa upp án þess að nota handleggi. Hratt. (12, 8, 8)
- Neðsta staða armbeygjunnar, halda bringu eins nálægt gólfi og kostur er á og lyfta fótleggjum upp til skiptis. (24, 22, 23)
Var sveittari en Hlöðver grís og kátari en þessi sem sprakk úr hamingju þarna um árið þegar ég komst heim í grautinn. Sami gamli kaffi-hvító nema... aha... heslinetusýrópið góða!
Og já, það var sko "góða"!
Með kaffinu... ohhh. Hafragrautarhimnaríki.
Redda mér heslihnetum næst sem "Knúsið" í grautinn.
Nákvæmlega 87 gr. eggjahvítur takk! 20 gr. hafrar, 1 msk chia, 1 tsk hörfræ og vatn inn í öbba með hrærustoppum. Út kom dýrðin og við hana var blandað kanil, salti, Néscafé, vanilludropum og heslihnetusýrópi. Toppað með möndlum og fersku, glænýju kaffi. Oojjjjj hvað hann var góður í morgun. Uss.
Fann líka þessar krúttusprengjur í Hagkaup. Eflaust til á fleiri stöðum. Kosta meira en eggjabakki samt sem áður svo ég mæli með Garranum og risadunki af hvítum þaðan. En þessi litli peli friðar eggjarauðu-sálina eilítið.
Jæja mín elskulegu bestu. Játningar á játningar ofan. Helgin tækluð í rituðu máli og myndum. Euan vinur minn, hinn ástralski súper kokkur, kemur í átheimsókn í vikunni. Verður spennandi að sjá hvernig hann plummar sig í sláturtíðinni, Hrefnuáti og sviðasmjatti. Þið megið sko alveg búast við allskonar séríslensku fæði á þessari síðu á næstunni.
Annars eru mjög spennó tímar framundan. Allskonar gleðilegt að fara að eiga sér stað og ég mæli með því að þið fylgist með! Held ykkur eigi eftir að finnast svolítið sniðugt það sem komandi mánuðir bera í skauti sér og með ykkar hjálp verður það ofur.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)