Gemmér skyr! Ef þú vildir vera svo vænn.

  1. RÆÆÆÆÆS
  2. Banani
  3. Pissa (já... stelpur gera svoleiðis líka. Gott að vita svona hluti)
  4. Þvo fés
  5. Bursta beyglur 
  6. Valhoppa inn í eldhús

Skyr (gomma) og smá vatn, bláber (gomma), fitugjafarnir hörfræ (kúfuð tsk) og chia (msk), sætað með vanillu torrani (2 tappar), hrært og svooooo:

  1. Skál inn í ísskáp
  2. Bootcamp 06:30 - 07:30
  3. Bruna heim í góða veðrinu og hlusta á uppáhalds lag. Að sjálfsögðu á löglegum hraða gott fólk! Að... sjálfsögðu!
  4. Hlaupa í átt að grunlausum ísskápnum
  5. Rífa ísskápshurðina upp með svoddan offorsi að systurdýr vaknar
  6. Skyrskál tekin varlega út úr ísskáp svo ekkert fari til spillis
  7. Ómægod hellt yfir (tsk)
  8. Myndað!

Chiaskyr með bláberjum, ómægod og hörfræjum

Næstum því ekki myndað sökum sjúklegrar svengdar í bland við óstjórnlega græðgi.

Chiaskyr með bláberjum, ómægod og hörfræjum

HRÆRA.... KOMA SVO KERLING... SLEPPTU MYNDAVÉLINNI!

SLEPPT'ENNI!!!!

Hrært Chiaskyr með bláberjum, ómægod og hörfræjum

AHHHHHHHHH!!!! NOHHM!

Heilög skyrmóðir alls sem er guðdómlega bragðgott í þessum heimi með fullkominni áferð!

*höfrungar, regnbogar og fiðrildi*

Borðað með gleði í hjarta eftir hræring. Hnauuuusþykkt. Ákkúrat eins og ég vil hafa það!

Eins og sago - chiaskyr með hörfræjum, bláberjum og omega3

Og svo annar.... *chomp*

Sjáið líka hvað þessar myndir eru miklu hlýlegri og kósý en fyrir át. Átvaglinu er nokk sama um gleði mynda þegar hungrið er farið að segja til sín.

Chiaskyr með bláberjum, ómægod og hörfræjum

Smá... bara smávegis kanill!

Æðiber. Ómissandi með bláberjunum. Kemur flott út þegar búið er að sæta skyrið!

Skyrsago - smá grjónagrautsfílíngur. Geggjað!

Smá kanill á chiaskyri með hörfræjum og bláberjum

Ástralinn kemur svo á landið í dag. Hlakka mikið til að upplifa íslenska matarmenningu í gegnum einn grunlausan! Tala nú ekki um landið sjálft. Verður spennó :)

Halló svið og blóðmör og lifrarpylsa, kleinur, harðfiskur með smjeri, skonsur, hangikjöt og flatkökur, hrefna, skyr skyr skyr....

BWLAARGHHHH....BALAGHHH... UGHH... OJ..

æji Frown

Ég fékk mér gúlsopa af vatni rétt í þessu og kyngdi tyggjóinu mínu um leið og sopanum var sporðrennt.

Æji ojbara... en ömurlega leiðinlegt eitthvað! Ugh! Pinch 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæhæ

snilldar blogg hjá þér,  er líka í BC  en man samt ekki eftir að hafa séð þig :)

allavega,  keep up the good work :)

kv. jóhanna

Jóhanna (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 11:12

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Ach so.. takk fyrir það. Er yfirleitt í 18:00 - 19:00 tímunum, stalst í morgun sökum anna seinna í dag. :)

Var þarna huffandi og puffandi í bleikum bol... well.. það voru reyndar fleir þarna í bleikum bolum!

Ojæja

Elín Helga Egilsdóttir, 25.8.2010 kl. 11:25

3 identicon

Og alveg örugglega fleiri huffandi og puffandi ;) sæll ég þarf að prófa BC.

Alltaf jafn gaman að lesa hjá þér :) þín síða, ásamt fáum öðrum, er hluti af ,,netrúntinum" ;)

Harpa Sif (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 11:27

4 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Pissa (já... stelpur gera svoleiðis líka. Gott að vita svona hluti)

Ert þú líka með svona secret underground thingie !!!?

http://www.youtube.com/watch?v=GxxsP7VWVN8

Halldór Björgvin Jóhannsson, 26.8.2010 kl. 12:20

5 identicon

Hellú..... mikið er dásamlega gaman að lesa bloggin þín. Ég fékk að lesa margar margar færslur í einu þar sem ég er búin að vera hálf netlaus síðustu daga sökum flutninga..... bara gaman

En nú er nánast allt komið á sinn stað og netið komið í hús .... ójá!!.... finally.... og mikið var nú gott að ég las bloggið þitt áður en ég fer í búðina því nú langar mig bara í skyr, hafragraut, chia, bláber og fleira hollt og gott...... wonderful

Kveðja Hulda sem er borgina

Hulda (IP-tala skráð) 26.8.2010 kl. 17:06

6 identicon

hahahaha þetta átti auðvitað að vera "kveðja Hulda sem er flutt í borgina" hhahahaha ..... hugurinn greinilega kominn í matvöruverslunina

Hulda (IP-tala skráð) 26.8.2010 kl. 22:59

7 identicon

hahahaha þetta átti auðvitað að vera "kveðja Hulda sem er flutt í borgina" hhahahaha ..... hugurinn greinilega kominn í matvöruverslunina

Hulda (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 09:00

8 identicon

Goda mega skemmtun med the aussie partner.

Og verdi ykkur vel ad godu ad ollum tessum (o)-mat sem a ad innbyrda!

inam (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband