Of gott til að sleppa

Hrærði saman í morgunmatinn minn í dag.. í gær!

Gúmslaði saman 200 gr. hreinu Kea skyri, 1 niðurskornu epli og rúmlega 1 dl. Sólskynsmúslí. Þessu leyfði ég að sitja inn í ísskáp yfir nóttina og í dag var blandan orðin að miklum graut. Sem ég fíla alveg í botn. Þegar ég mætti svo í vinnuna í morgun blasti þetta heimagerða ofurmúslí við mér...

Ofurmúslí í vinnunni

...þið sjáið það bara sjálf. Þetta múslí er of girnilegt til að sleppa. Heilar hnetur, bitar af döðlum, sólblóma- og graskersfræ, furuhnetur og kókos. Mmmm! Ég fékk mér að sjálfsögðu múslí út á skyrið mitt.

Vinnuskúbbað yndælis múslí

Ég varð ekki fyrir vonbrigðum, ónei. Þetta er bland sem ég gæti vel hugsað mér að narta í yfir góðri bíómynd! Erna (yndislega fína eldhússkvísan í vinnunni) þú ert snillingur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dödlurnar tóku thessa uppskrift á toppinn!  mmmmmm dödlur

Hungradur (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 10:54

2 identicon

Girnilegt! Það er líka mjög gott að gera svona hnetu - fræ - þurkaðir - ávextir - kókos - músli og setja það út á 1 epli og einn banana. Það er ofurmorgunverðurinn minn!

Sigga Hrönn (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 13:12

3 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Mmmm hljómar æðislega vel! Seturðu þá ekki skyr eða neitt slíkt, bara ávextina og múslíið? Ef svo er, þá verð ég að prófa svoleiðis! Ábyggilega geggjað!

Elín Helga Egilsdóttir, 18.8.2009 kl. 13:54

4 identicon

Bara ávextina - svo möndlumjólk með (fyrirgefðu gleymdi því) eða bara mjólk eins og útá venjulegt músli. Þetta er sko hráfæðis morgunverðar múslí ;) Ég er frekar lítið í mjólkuvörunum.......

Sigga Hrönn (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 13:52

5 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Ah ég skil. Þetta er mjög æðislegt bland. Mjúkur sætur banani, sætt/súrt brakandi epli og svo crunchy múslí! Fæ vant í munninn hérna! Ég verð að fara að prófa möndlumjólk. Örugglega æðislegt að útbúa hafragraut með henni

Elín Helga Egilsdóttir, 19.8.2009 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband