Sólgleraugu og bananasprengja

Hausverkur, aðeins meiri hausverkur og beinverkir í stíl. Ég opna augun á milli þess sem ég sef og verkjatöflurnar segja til sín. Mikil þrekraun að skrifa þetta inn og horfa á blessaðan tölvuskjáinn... en ég reddaði því! Sólgleraugu! Ójá - sit í rúminu með rautt nefið, snýtubréf og sólgleraugu á trýninu í ristastórum slopp, púttuð undir sæng! Mjög "gott" framhald af ennú betri helgi GetLost

Í gær vaknaði ég í mikilli hungurpínu og staulaðist framúr í grautargerð. Nennti nú ekki að hafa þetta formlegt svo ég skellti höfrum í pott með smá mjólk og sauð upp með vanilló og kanil. Stappaði svo banana og skellti honum í örbylgjuna þangað til hann varð allur karamellukenndur og múshí! Bananagumsinu bætti ég svo út í grautinn með smá próteini og vohah!! Þvílík snilld. Mjólkin og örbylgjaður karamellubanani gefur grautnum æðislegt, æðislegt bragð! Rjómakenndur og flauelismjúkur... nohm!

KaramellubananagrauturKaramellubananagrautur

 

 

 

 

 

 

Prófaði því seinna um daginn, í enn einu pillumókinu, að stúta banana í örbylgjunni og bæta út í bananagusmið próteini og viti menn. Þetta varð eins og bananakaramella!! Sérstaklega eftir ísskápsveru. Verð að stúdera þetta betur þegar Eiki veiki hefur yfirgefið systemið.

Er þó töluvert betri í dag en í gær. Vona því að veiklan hverfi í dag/morgun. Ég get ekki beðið eftir því að komast í vinnuna/ræktina/út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aumgina Eiki veiki

Láttu þér nú batnast!!

Dossan (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 15:20

2 identicon

Láttu þér batna :)

Vildi líka segja að ég er nýlega búin að uppgötva síðuna þína, í gegnum Nagla síðuna, og finnst æði allar þessar fínu hugmyndir um hollan mat :) takk takk.

Harpa (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 17:22

3 identicon

 Vona ad thetta sé ekki svínapestin.  Ég keypti 3 pakka af hafragrjónum...thannig ad nú get ég farid ad prófa thessa Elínerudu rétti.  Veit samt ekki hvort ég kaupi prótein...skiptir próteinid miklu máli hvad vardar áferd og hvernig thetta bragdast?

Hungradur (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 19:17

4 identicon

Mig langar bara til að segja þér hvað ég er ótrúlega ánægð með að hafa fundið þessa síðu ! Mér var bent á hana á námskeiði í Hreyfingu, uppskriftirnar þínar og reglulegt blogg halda manni alveg við efnið í átakinu ! :)

Haltu áfram á þessari braut ! Þú ert hvatning fyrir okkur hin sem viljum halda okkur í hollustunni! :)

kv.Laufey

Laufey Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 11:26

5 identicon

æi Sprellan mín.. farðu vel með þig skvísípæ...

Sigga Harpa (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 11:57

6 identicon

 OH það er svo ömurlegt að vera veikur! Vonandi batnar þér fljótt!

Sendi heilsustrauma  - - - - - -

Erna (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 13:32

7 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Takk fyrir þetta mín kæru - ég er öll að koma til! Sem betur fer, er alveg að farast úr hreyfingaleysi!

Hungraður: Þú þarft ekkert að nota prótein frekar en þú vilt. Próteinið gefur reyndar aðeins "karamellukenndari" áferð, sérstaklega ef það er blandað þykkt. Ekkert sem t.d. örbylgjaður banani getur ekki framkallað Bragðið af próteininu kemur jú sterkt í gegn. Ef þú ert ekki mikið fyrir prótein þá myndi ég sleppa því, nema þú finnir þér eitthvað stórkostlegt kraftaverkaprótein með ofurbragði. En það er alltaf hægt að "drepa" það með kanil og vanilló

Laufey: En frábært að heyra. Æðislegt! Takk kærlega fyrir mig og gangi þér vel í átakinu þínu

Elín Helga Egilsdóttir, 11.11.2009 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband