13.8.2009 | 18:41
Hvernig skal laxinn framreiða?
Ég var ekki viss. Eina sem ég vissi var að mig langaði í reyktan lax. Svo hann var keyptur! Eggjahvítuburrito með reyktum lax, capers, tómat, rauðlauk og dillsósu? Hrísgrjóna-laxaréttur með grænum baunum og niðurskornu grænmeti? Laxaklattar með rjómaosti, avocado og góðri dressingu? Nennti ekki að standa í því að hita eitt né neitt svo ég tók þann pólinn í hæðina að rúlla laxinum utan um brún grjón og grænmeti og búa til þykjustunni "Inside out" sushi!
Lagði laxaflökin á disk og dreifði brúnum grjónum þar yfir.
Þarnæst gúrku, smá tómat, mango og loks wasabi-dressingu sem var ææðisleg. Létt AB-mjólk, wasabi mauk, smá hunangs dijon og dropi hunang.
Rúllaði upp og hananú! Þykjustunni sushi! Reykt laxarúlla með brúnum grjónum, grænmeti, mango og wasabi dressingu!
Yfir rúlluna sáldraði ég svo Dukkah með möndlum og aðeins meira af dilli.
Þetta var geypilega gott þó ómerkilegt sé. Wasabi dressingin var fullkomin á móti reyktum laxinum. Wasabi-ið gaf gott kikk og bragðið af laxinum, á móti sætunni í sósunnu, mildu grænmetinu og sæt/súru mangó, var fullkomið! Grjónin voru svo toppurinn því þau eru aðeins undir tönn og gaman að bíta í!
Gleði og hamingja! Aðeins öðruvísi, gaman að búa til, skemmtilegt að borða. Þetta ætla ég að gera einhverntíman aftur með meiri tilþrifum. Rúlla þéttar, geyma í ísskáp... Ætli ég verði samt ekki kærð fyrir að bendla þennan gjörnin við sushi?
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Fiskur, Kvöldmatur, Uppáhalds | Breytt 23.9.2010 kl. 22:14 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er alveg ótrúlega girnilegur réttur. Takk.
Ragnar Freyr Ingvarsson, 13.8.2009 kl. 21:21
Óóóó hvað þetta er girnilegt
Jóna Á. Gísladóttir, 13.8.2009 kl. 22:18
Þakka ykkur kærlega fyrir. Þetta var sérstaklega gleðilegt að borða
Elín Helga Egilsdóttir, 14.8.2009 kl. 09:03
Úff hvað mig langar!
Erna (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 09:54
Þú færð - samt ekki fyrr en í desember... eða janúar, fer eftir ýmsu
Elín Helga Egilsdóttir, 14.8.2009 kl. 10:17
Rosalega gott og rosalega hollt! Myndirnar fá mann til thess ad slefa. Thótt ekki sé thad alveg eins hollt thá finnst mér eftirfarandi ansi gód morgunmatarkombó: Rúnstykki med reyktum laxi, linsodin egg og te...allt blandad saman í munni.
Hungradur (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 11:39
Vá, hvað þetta er girnilegt, slef...
en fyrir þá óvönu í sushi-inu - hvernig eru hlutföllinn í dressingunni hjá þér? Þetta gæti ég hugsað mér á morgun sko, þvílíkt sem myndirnar kalla á mann
r (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 18:02
Gaman að heyra þetta r. Vonandi líkar þér vel ef þú prófar
Oh, ég vildi að ég gæti sagt nákvæmlega. En ég bætti bara við wasabi mauki, hunangs dijon sinnepi, hunangi og dilli úr í AB-mjólkina eftir smekk. Ég hafði mína dressingu mjög sterka Ætli ég hafi ekki sett um það bil 1/2 - 1 dl af AB-mjólkinni, mest af wasabi, þarnæst sinnepið og smá hunang. Dillið, jah, 1 tsk kannski? Þú gætir líka notað t.d. sýrðan rjóma eða gríska jógúrt ef þú vilt ekki nota AB-mjólkina.
Elín Helga Egilsdóttir, 14.8.2009 kl. 18:38
Kannski ágætt að taka það líka fram að ég notaði alls ekki alla dressinguna. Notaði bara rétt yfir grænmetið og kannski píínku meira en það
Elín Helga Egilsdóttir, 14.8.2009 kl. 19:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.