Hvað leynist í nammiskápnum?

Nammiskápurinn! Uppáhalds staðurinn í eldhúsi Gúmmulaðihellisins! Ef ég týnist, þá er mjög gott gisk að leita að mér hjá nammiskápnum, gónandi, fiktandi nú eða nartandi! Sanka að mér hlutum héðan og þaðan og er komin með nokkuð gott safn. Ef ég rekst á eitthvað sniðugt í leit minni að hinu fullkomna grautarskrauti þá kippi ég því með og það endar í nammiskápnum.

Nammiskápurinn í öllu sínu veldi

Þessi skápur inniheldur part af hafragrauts og morgunverðarmalli! Restina er að finna í ísskápnum í formi hnetusmjörs, þurrkaðra ávaxta, sultu, graskersmauks og/eða skyrs.

Gúmmulaðiland

Meðal hráefna, af því sem til er í dag, eru súkkulaði og butterscotch bitar. Það er nom sem notað er um helgar og á átvaglsdögum! Aðallega út á grauta - mikið gott þegar þetta bráðnar ofan í grautinn!

Butterscotch og súkkulaðibitar

Hnetubland - þetta keypti ég í Nettó. Allskonar góðar blöndur þar.

Hnetu- og fræbland úr Nettó

Hnetur af ýmsum toga. Gott að eiga út á morgunmat eða í bakstur.

Nuts for nuts

Meira hnetu-, fræ- og ávaxtabland. Keypt í superofurmegastore í Smáralind. Man aldrei hvað hún heitir þessi búð! Eðal fínt út á grauta eða sem nasl.

Hnetu- og fræbland úr Superdubermegastore í Smáralind

Hunangssafnið. Acacia hunang er sparihunang. Blómahunangið kaupi ég í Bónus, mjög bragðgott. Litlu dósirnar gaf mamma mér frá Akureyri og svo eru þarna í felum "Pollen". Á eftir að finna góð not fyrir þau! Mjög vond á bragðið, en sæt - ágæt út á grauta.

Hunangsbúrið

Rúslurnar mínar. Í annarri dollunni leynast þó þurrkaðar apríkósur.

Rúslur og apríkósur í feluleik

Hnetur og hnetur. Möndlur og pistasíur í stóru ílátunum. Makademia hnetur, blandaðar "grauts" hnetur, kókos og rúsínur að trodda sér inn á myndina.

Hnetulager

Fræ. Sólblómafræ, sesamfræ, fimm korna blanda, hörfræ, furuhnetur.

Frælager

Múslíin mín. Hafrar, hafra og ávaxtamúslí, hnetu- og fræ múslí, Sólskynsmúslí, allBran... svo er yfirleitt til Weetabix, special K og Cheerios.

Partur af múslí og morgunkornslager

Gott að mylja út á graut og/eða skyr. Núh... eða bara sem nart.

Crunchy hafragrautsskraut

Hnetusmjörin, smávægis lager. Stóra dollan innihélt heimatilbúið kanil og rúslu möndlusmjör, litla dollan geymir hreint möndlusmjör, hinar tvær aðkeyptar en góðar. Blandaðar hnetur. Boxið felur mulin hörfæ.

Hnetusmjörslager - mmm

Þá er það upptalið í bili. Stundum er lagerinn stærri, stundum minni - en skápurinn er góður! Ójá, skápurinn er uppáhalds!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott safn!  Fínar myndir og gaman ad skoda thaer.

Hungradur (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 10:30

2 identicon

mér er sem ég heyri í Poulsen-horsen þar sem hann finnur þig inni í skáp og grátbiður þig að koma nú út úr skápnum

Svaga (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 10:53

3 identicon

Heyyyy - það vantar alveg Snickers í þennan nammiskáp - það eru hnetur í því  

Dossa (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 10:57

4 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Hahahaha...  En þetta er svo góður skápur til að vera inní! Það væri líklega hægt að lokka mig út úr honum með ís - veit samt ekki hvort Paulsen yrði ánægður með það!

Það er rétt. Fjárfersta í Snickersi til að eiga á allra heilögustu nammidögum til að mylja út á grauta með smá þeytirjóma? Oh yes...

Elín Helga Egilsdóttir, 13.8.2009 kl. 11:04

5 identicon

Hehe, vissi að þú gætir nýtt þér Snickers, enda er það snilldin ein!

Gleymdi einum augljósum:  Ella mín, you´re nuts

Dossan (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 11:08

6 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Nuts for nuts.

Og takk fyrir þetta hungraður

Elín Helga Egilsdóttir, 13.8.2009 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband