6.4.2010 | 10:39
Fyrir tveimur dögum og risaberi síðan
Keypti frosin bláber í Hagkaup í gær. Ekki frásögu færandi svosum nema fyrir þær sakir að 250 gr. poki kostaði rúmar 300 krónur, ásamt hægri handlegg, og berin sjálf voru jafn stór og pattaraleg könguló! Æði!!
Oj - hræðileg samlíking!
Þetta kætti mitt matgráðuga sjálf mikið enda smjattaði ég vel og vandlega á hverjum bita af bláberja-kanilgrautnum í morgun. Erfitt að taka myndir þegar últrablöðkur eru að strekkja á þér - reyndi að smella af á milli hnipra! Gekk ekki betur en svo.
Þó var frosnuberjabragð af berjunum enda voru þau - jah... frosin. Ekkert sam jafnast á við fersk, fín, hrein og bein bláber en ómæ, þau eru alltaf svo góð!
Víkjum okkur nú að fyrri helming titils þessarar bloggfærslu! Móaflatarkjúlli extraordinaire! Ó hvað þú ert ööölskaður af öllum! Hugsið það sem þið viljið um þessa snilld - þetta er ekkert nema gott!
Fjórar hænur að jafna sig í stegepose!
Notkun stegepose gæti komið þessum kjúlla á framabraut í hryllingsmyndum!
The three amigos!
Spaghetti!
Litlar plánetur fljótandi í sykurdýrð!
Óskýr afasovs!
Afi búinn að koma sér vel fyrir að útbúa hina óskýru afasovs!
Skerum dýrið niður til að auðvelda úlfunum átið!
TADAAAA! Þetta hvarf - alltsaman!
Svo ég takið það fram. Eina rétta leiðin til að borða Móaflatarkjúlla er að:
Skera kjúkling og kartöflur smátt. Setja spaghetti á disk og blanda saman við. Hella sósu yfir spaaghettíið og punkturinn yfir I-ið -> hella kartöflusykurbráð yfir sósuna! Ójöah!
Hræra!
Óguðogallirenglarnir!
Eftirréttur! Held ég hafi náð að graðga í mig hálfum líter af ís, megninu af rjómanum og aðeins of mikið af súkkulaðinu. Fólkið mitt hætti að telja ferðirnar eftir fjórar!
Svo verð ég bara að skrifta og létta þessu af sál og líkama. Ég er ein af þeim sem getur borðað/drukkið rjóma au natural og étið smjöri beint upp úr dollunni - og líkar það vel!!
Fjúhh - þetta tók næstum á!
Yoga í kvöld - jess!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.4.2010 | 22:42
Páskalamb
Amman og afinn og lærið!
Ef það er matur á annað borð, á afa og ömmuborð, þá er það annaðhvort lambalæri eða Móaflatarkjúlli! Lambið var matreitt eins og alheilögum páskamat sæmir og gott var það!
Kartöflur og sovs. Afasovs er ætíð, ætíð best. Sjáið líka hvað kartöflurnar eru fínar - fljótandi um eins og litlar plánetur...
...og já. Þetta eru fyrsta flokks ofursykurkartöflur! Mmmm!
Ég var svo áfjáð í að komast í matinn að ég gleymdi að taka mynd af disk fyrir át! Tók þó eina eftir átið og var ekki svo stressuð því ég átti eftir að fá mér aftur!
Einmitt!
Gullið silfrið hennar ömmu! Mikið silfursmíðakvendi!
Jæja. Farin að sofa. Brennsla á morgun klukkan 06:00!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2010 | 16:55
Vakna úr páskadvala
Þvílíkt snilldarinnar ofurletifrí!
Ég stóð næstum því við allt sem ég sagðist ætla að gera... eða ekki gera! Eitt blogg gott fólk! Eitt blogg laumaðist inn í fríinu og síðan ekki söguna meir! Yoga var tekið með trompi og lyftingar samar við sig.
Tók smá handa-action í bland við yogað í dag. Bís og trís, enda handleggirnir farlama lufsugrey eftir atið. Allt þess virði, sérstaklega þegar ég vissi af máltíðinni sem beið mín eftir æfinguna!
Þar sem ég þurfti að rjúka strax eftir handapat í morgun greip ég plastbox og mixaði hvítt súkkulaði scitec þykkt með kanil og muldi svo rískökurnar út í gleðina. Gumsið var æði þykkt, karamellukennt og bjútifúlt og pínkulítið erfitt var að hræra allt saman í lokin en það hafðist - enda verða rískökurnar að engu eftir hræringinn! Þetta lítur kannski ekki par fallega út en hey... áferðarbragðsgleði!!!
Eins og sykurpúði! Ég segi það satt - áferð og bit eins og sykurpúði!
"Karamelló" og kanilló í bland við rísó! Þetta er æði! Hlýt að geta mixað eitthvað meira úr þessu! Gera próteinið þykkara, rúlla upp í litlar kúlur, geyma inn í ísskáp og voila! Eftir æfingu konfekt!
Límkennt, klístrað karamellugums!
Helst meira að segja sjálft uppi.
Til að sanna að í þessu sé rískaka en ekki ... eitthvað annað... VOILA!
Af hverju ég tel mig knúna til að sanna að ég hafi gúllað í mig rísköku er enn ekki vitað!
Páskalamb á boðstólnum í kvöld. Móaflatarpáskakjúlli átti sér einnig stað í fríinu, ég þyrfti að sýna ykkur dýrðina við tækifæri!
Vona að páskarnir hafi verið ykkur góðir mín kæru! Rúmar 3 vikur í maí! Sumarið er handan við hornið!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.4.2010 | 17:44
Einn, tveir og páskar
Ekki á morgun heldur hinn verður páskeggið rifið upp með svo stórkostlegum tilþrifum, óhljóðum og öllu tilheyrandi að óvíst er að það lifi hamaganginn af...reyndar einkar óheppileg niðurstaða fyrir mig ef eggið yrði að engu í látunum! Oh jæja, ég reyni að fara varlega!
Kynnti sjálfa mig á nýjan leik fyrir hálfgerðu skyrgumsi í morgun! Mikil kátína sem átti sér stað við átið á þessari skál. Hreint hrært KEA, frosin blönduð ber og 1 tsk mulin hörfræ. Skandall og skaði að eiga ekki möndlur, þarf að endurnýja birgðirnar.
HRÆRA - HIP HIP HIP
Bjó mér svo til enn eitt gumsið í eftirmiðdaginn. Elska svona allrahandahrærumix. Ein msk. olía, hvítlaukur, 1 sólþurrkaður niðurskorinn tómatur, laukur og sveppir steikt á pönnu með salti og pipar og að sjálfsögðu....TJÚTT-LINGUUUUR!! Kjúlla síðan í gær bætt út á rétt í lokin ásamt soja sósu og smá karrý.
Græna gleðin fékk að vera memm eftirá. Hélt að gúrkan myndi ekki virka með þessu en hún var bara fín! Ef ég hefði átt tómata og/eða papriku hefði þetta orðið svaðalegt!
Sjáið bara hvað hún er fín!
Svo fengu furuhnetur að skreyta diskinn fyrir einskæra hamingju og gleði. Hefði verið snjallt að rista þær fyrst og bæta svo við um leið og kjúllanum! Svakalega gott að hafa þær með - gáfu æðislegt bragð!
Þetta var barasta gott!
Annars er ekkert nema dásemd að vera í fríi! Ákkúrat núna er ég að horfa á þessa mynd:
Hver pantaði annars þetta veður ég bara spyr! Vindur og hagl - gribbulegra gerist það varla!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.3.2010 | 13:43
Korter í páska
Þrjátíu og fimm í sumarið!
Held ég takið því rólega um páskana. Borði góðan mat, slappi af og horfi sem minnst á tölvuskjá! Kannski ég hendi inn einni og einni færslu, hver veit. Ætli ég endi ekki á því að blogga um hverja örðu sem inn fyrir mínar varir fer! Ætla þó að reyna að hemja mig - hvíld og meiri hvíld.
Jarðaber eru svo falleg og fín! Get ekki dásamað þau nóg!
Áferð, bragð, útlit - guuullfalleg greyin.
Síðustu járnrífingar fyrir páska á eftir. Annars fara súkkulaðidagarnir allir í hot yoga og jú, lappamisþyrmingar á laugardaginn.
Fyrir utan það - elsku bestu - hvíld!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2010 | 09:49
Endurfundir
Kökudeigsgrauturinn! Endurupplifun í tíunda veldi, beint á ská með kómísku ívafi! Hvítt súkkulaði Scitec, kanill og kókos! Þar sem ég var á leið í rafbylgjur og samherping, aðeins sein fyrir, gat ég ekki gúllað þessu í mig í bílnum. Ég þurfti að bíða! Átvögl... bíða ekki. Erfitt athæfi enda brast mér allur kraftur og sjálfsagi á leiðinni í kippina og reif upp ofurboxið sem geymdi dýrðina í morgun, bara til að þefa!
Ógvöð! Langaði svooo að bíta í! Átvaglið stórhættulegt umferðinni, á rauðu ljósi að góna ofan í grautarboxið eins og lirfa á laufblaði. Nýbúin að brenna, svangari en svartbjörn eftir dvala og enn 5 mínútur í að ég kæmist á leiðarenda!
*Áfram maður, það má keyra hérna á 70!*
*Neiii... þarft ekki að hægja svona svakalega á þér í beygjunni - hvað er þetta!!*
Þetta hafðist þó á endanum og ómæ... fyrsti bitinn!
*englasöngur*
Heilagur Brynjólfur með kaleik milli tánna! Þetta var ákkúrat það sem átvaglið var að leita eftir! Bragðlaukarnir tóku trylltan riverdans! Gladdi mig meira en orð fá lýst, get svo guðsvarið fyrir það! Af hverju gleðin var jafn óstjórnlega æðisleg og raun bar vitni er ég ekki búin að átta mig að fullu á ennþá!
Hver herpingur á fætur öðrum og grautarbiti á milli! Kósý? Últrakósý?
Borða hægt - bara einn lítinn bita í einu!
NEIIIIIIIII!!!!
Hot Yoga á eftir!! *hopp**hopp**hopp*
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.3.2010 | 12:07
Heitt heitt heitt
Nei - ekki úti, heldur gumsið sem ég graðgaði í andliti á mér í hádeignu! Ég svitnaði meira að segja á hausnum, augun urðu rauð og tárin láku í stríðum straumum!
Au natural tuna og vinnugrænmeti. Nokkrar kasjú og brasilíur fyrir kröns og kram og jú, hot sauce og chilliflögur! Chilliflögurnar ólmar í að komast uppúr stauknum!
Með tilhlaupi komst myndavéln aðeins nær gleðinni. Kotasæla reynir að stemma stigum við herra Tapatíó! Það gekk ekki!
Þetta er ástæðan fyrir því!
Svaðalegra sambland af chilli-hot sauce fyrirkomulagi hefur ekki átt sér stað í langan tíma.
Kjúlli og grjón fyrir æfingu á eftir. Hot Yoga á morgun! Orðin fastagestur, get svo svarið það. Farin að hlakka mikið til þess að Hot Yoga mig á yogadögum. Æðisleg tilfinning sem fylgir þessu, sérstaklega þegar kústskaftið (ég) er farið að komast í störukeppni við Dabbana (stóru tærnar)!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2010 | 23:27
75 ára Flug Garðar
Afinn minn eldgamli!
Eða jah... eldgamli!
Jú víst, eldgamli! Fékk flug yfir eldgosið sívinsæla að gjöf fyrir árin sín 75 og veislu að kveldi með okkur villisvínunum! Ein, góð, átveisla! Hún innihélt meðal annars mög fagmannlega brotið páskaegg númer 7!
Afanum komið á óvart með flugi á laugardags eftirmiðdegi. Maðurinn heitir Garðar og þótti þessi mynd því sérlega við hæfi þennan örlagaríka ofurdag!
Eftir flugið var haldið heim á leið í svakalegt heilgrillað lambalæri, þorskréttinn feikigóða, ömmukökur, páskaegg og almenna fjölskylduhamingju! Nákvæmlega eins og það á að vera! Við látum myndirnar tala í þetta skiptið mín kæru.
...amk blessað páskaeggið!
Til hamingju með árin þín 75 elsku besta afadýr!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.3.2010 | 19:10
Sammari með hvítu súkk eftir æfingu
Sammari, súkk... þetta kalla ég góða íslensku! Enginn sem mun fella tár eftir þennan lestur!
Hvítt súkkulaði Scitec hresst á kanntinum, grátandi, bíðandi eftir því að ég kláraði æfinguna mína.
Komið fallega fyrir á Risa Rísköku!
Kanillað!
Samlokað!
Borðað!
Mmmmhmmm!
Hafið það notalegt um helgina elsku bestu!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.3.2010 | 13:10
Föstudagur og fótaæfingar
Teknar með trompi á eftir, blessaðar bífurnar! Byrjum helgina á miklum hvelli og lymskum okkur svo inn í laugardaginn með Hot Yoga. Afmælisveisla að kveldi laugardags og átmúrinn sprengdur með tiþrifum, látum og heljastökki! Vottur af tilhlökkun hreiðrar um sig!
Svínalund og kálfakjet í boði vinnunnar í dag.
Diskurinn æði fagur og þessar kartöflur! Oghh!
Hef ég einhverntíman sagt ykkur frá því að fullkominn matur fyrir mig væri spaghetti með kartöflum, eggjabeyglu og ost? Jebb - ég er kolvetnasjúkur átfíkill með meiru!
Þar sem við vinnukerlingarnar viljum ekki slá slöku við þá tökum við fullan þátt í mottumenningu landans! Einn í vinnunni tók sig til og stílfærði myndina örlítið - en bara örlítið. Við erum mjög hard core vinnuhópur!
Kjúlli og sæt fyrir æfingu á eftir, hvít súkkó rískökusamloka eftir æfingu.
Ljúfa líf!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)