15.4.2010 | 10:11
Hugmyndir að "hollari" eftirréttum
Svona af því að helgin er hinumegin við hæðina. Nokkrar hugmyndir að "hollari" útfærslum af góðgæti, millimáli, bita, áti...
...og já, ég rændi einstaka myndum/hugmyndum af netinu
Jógúrt með hunangi
Eins einfalt og það hljómar. Jógúrt með smá hunangi og jafnvel berjum/hnetum/krumsi og hamingju.
Banana ís - þetta er í miklu uppáhaldi hjá mér.
Skera banana niður í sneiðar, setja í ílát/poka, frysta, mauka! Til að gera þennan ofur þá væri hægt að setja út í blenderinn/matvinnsluvélina dökkar súkkulaðispænir og jafnvel smá mjólk. Bera fram strax - bara gott og alveg eins og ís. Treystið mér!
Banana frostpinnar
Skera banana niður í bita nú eða í tvennt. Pota priki upp í rassinn á aumingjans bönununum. Krakkar elska svona. Svo bara leika!
Velta hverjum banana upp úr dökku bræddu súkkulaði og dýfa ofan í hnetumulning/kókos/múslí. Líka hægt að velta þessum gulu hamingjusprengjum upp úr hunangi og svo hnetukrumsi.
Inn í frysti og japla á með bros á vör!
Bláber með bananasósu
Bláber í skál! Check!
Banani, smá ricotta ostur, létt ab-mjólk, sítrónusafi, hunang - blanda. Check!
Hella yfir bláberin og jafnvel toppa með súkkulaðispænum! Double check!
Grillaðir ávextir
Einfalt, fljótlegt, gott. Grilla t.d. banana/ananas/perur/epli/mango - ekki of mikið þroskað. Strá með kókos, jafnvel borða með hunangs jógúrti!
Eftirrétta panini/burrito
Tvær sneiðar af heilhveiti brauði nú eða heilhveiti tortillur, smyrja með smá náttúrulegu hnetusmjöri/sultu, jafnvel raða með jarðaberjum eða banana og kremja í grilli. Voila. Dreypa ogguponsu hunangi yfir brauðið eða t.d. flórsykri til að vera fensí.
Tortilla - náttúrulegt hnetusmjör - smá sykurlaus sulta - banani - vefja - BURRITO!
Jarðaberja og appelsínumix með pistasíum og ricotta
Ohhh... svo gott. Hræra saman t.d. 2 msk rauðvínsediki, 1 msk hunangi setja til hliðar. Skera niður jarðaber og setja í skál ásamt hnetum og niðurskornum appelsínum. (skera úr þeim kjarnann og reyna að sleppa öllu hvítu) Hella edikblöndunni yfir ávextina, hræra létt, setja á disk (reyna að sleppa vökva) og mylja ricotta ost yfir.. nú eða jafnvel geitaost. Ef þú vilt lifa hættulega geturðu saltað/piprað dýrðina smá - annars bara súkkulaðispænir eða kókos
Ofnbökuð epli
Annaðhvort hollari týpu af eplaköku eða taka eplin sjálf og baka þau. Af því ég öölska heit, krumsuð epli.
Skera innan úr þeim kjarnann og fylla svo holuna með einhverju gúmmulaði. Blöndu af hnetum/þurrkuðum ávöxtum/kanil/hunangi sem dæmi. Setja í eldfast mót, setja smá vatn í mótið og inn í 180° heitan ofn í 25 - 30 mínútur. Jafnvel setja ogguponsulitla smjörklípu ofan í hverja holu.
Svo væri líka hægt að kreysta safa úr appelsínu eða nota hreinlega appelsínusafa, hella yfir eplin áður en þau eru bökuð. Myndast ágætis "sýróp" sem hægt er að nýta nú eða.. úr því ég er byrjuð, búa til smá sýróp á pönnu fyrst. Appelsínusafi, hunang, kanill, negull, kardimommur - hita þangað til þykkt og hella yfir eplin og inn í ofn! Mmmmm....
...sagði einhver ís? Banana ís?
Frosin vínber
Inn í frysti og út eftir nóttina! Æðislegt að japla á svoleiðis á kvöldin nú eða barasta þegar maður liggur út á palli í góðu veðri með bumbuna upp í loftið! Bumba út í loftið -> mjög mikilvægt atriði í sólbaði!
Svo væri eflaust hægt að útbúa allskonar sheika eða búðinga/mousse úr tofu og fleiri gleðilegheitum. Þetta er svona það sem mér datt í hug án þess að þurfa að hugsa mikið (já, ég er löt í dag) - einfalt, fljótlegt. Er líka með nokkrar hugmyndir af ágætis nartkostum þar sem uppskriftirnar mínar fela sig. Súkkulaðikökur, muffins ofl.
Þið kannski hjálpið mér við að finna eitthvað fínt til að bæta við þennan lista? Hvað er ykkar uppáhalds?
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
14.4.2010 | 14:26
Dagurinn 100 árum lengri
Kjúlli er sívinsæll. Sé fiðurfé á boðstólnum í vinnunni eru allir mættir stundvíslega niður í matsal 11:30! Nema átvögl, þau fá leyfi til að byrja 11:11. Jafnvel 11:10. Gott að vera á sérsamning... eða...hmm, kannski enginn sérsamningur. Bara gott að vera gráðugur!
Allir bitar samsvöruðu þó hálfum kjúlla! Gráðug eða ekki, hálfan fugl gúlla ég ekki á "skynsömu" dögunum mínum. Bringan því tekin fallega til hliðar og restin varðveitt á húsbréfi til átu seinna í dag!
Eftirréttur voru mínar heittelskuðu ásamt tyggjóplötum til hreinsunar!
Var búin að gleyma því hvað það er nú notalegt að klára æfingaskammtinn á morgnana. Nú er allt í einu fullt eftir af deginum og ég get gert eitthvað svakalega skynsamlegt eftir vinnu! Eins og að redda teiknidóti, hljóðbókum og hitta ofurkroppinn og eðalkvendið mína ástækru Röggu!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.4.2010 | 09:23
Átök að morgni, eðalgrautur og karamellusamloka
Langt síðan ég tók morgunæfingu! Hressandi, bætandi, kætandi verð ég að segja. Vaknaði ofureldspræk klukkan 05:00 við fuglasöng og bláan himinn, sumarið hinumegin við Esjuna! Nýtt eldgos, eggjahvítugrautur að bíða eftir mér inn í ísskáp! Þetta er ekkert nema æðislegt!
Bjó sumsé til eggjahvítugraut í gærkveldi í tilefni snemmvöknuðar (söknuðar?) - ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að hann var geypilega stórkostlegur áferðarlega séð!!!! Homygod! Ætla að endurtaka þessa dýrð á morgun og sjá hvort ég nái áferðinni ekki eins - ef svo er, þá kemur skref fyrir skref færsla mín kæru! Verðið þó að afsaka óskýrar ógirnó myndir. Veður þó varla meira "raunverulegt" en þetta - svona sé ég á morgnana þegar ég er enn hálf sofandi!
Hræra!
Hann var eins og þykkur búðingur. Mjög þykkur. Kannski salat eða kartöflumús... Einhvernveginn blönduðust hafrar og hvítur svo vel saman að hafrarnir hálfpartinn "eyddust" upp. Fann ekkert fyrir þeim. Límkenndur en samt ekki gooey! Geggjað! Hefði getað rekið ofan í kvekendið hníf og smurt á brauð!
Eftir æfingu samlokan gleður mitt auma glycogen hungraða hjarta með eindæmum!
HINSVEGAR - já, það er hinsvegar - þá komst ég að þeirri hryllilegu staðreynd þegar ég hafði rifið samlokuna mína upp með svo miklu offorsi að álpappírinn bráðnaði, að ég hafði gleymt myndavélinni í bílnum!!! Óguð! Þarna stóð ég í búningsklefanum eftir átökin og starði á gersemina í sundurtættum álpappírnum með tárin í augnum. Matarbloggari vs. ræktarfíkill. Hvor ræður? Svona getur verið erfitt að blogga um matinn sinn, samviskan vildi ekki leyfa át með tilhlaupi og ræktarsjúklingurinn vildi ekki bíða. Gamla lét þó vaða. Para pínu. Eins og sönnum nartara og pillsjúkling sæmir át ég "skorpuna" og lét miðjuna eiga sig þangað til myndavél var við hönd!
Það tók meira á að bíða eftir því að borða þetta heldur en átökin sjálf! En homnom hvað hún var góð. Poppkexið var orðin svolítið mjúkt, þar sem ég púslaði þessu saman í gærkveldi, og af því að ég blandaði próteinið þykkara en steypu þá var þetta eins og að borða karamellu!
Mmmmmiiiiðjan!
Ohhhhhh.... bara einn biti eftir!
Nú þarf undirrituð að fara að útbúa LISTANN! Listi sem verður til við hverja reisu erlendis. Enginn listi er eins enda allir sniðnir að þörfum ferðarinnar. Þessi listi mun t.d. innihalda atriði eins og:
- Flugv-/alla/éla afþreying -> teiknidót, ipodtónlist, hljóðbækur, lesbækur, snakkk og snarl
- Vegabréf
- Visa til að komast inn í landið
- Pakka
- Fara til tannlæknis
- Bögga vini og ættinga út í hið óendanlega
- Heimta "Kveðjuátfiestu" bara af því
- Horfa út í loftið
- ....
- Græða!
Af hverju ég þarf að græða er ekki enn vitað!
Njótið dagsins - heilgrillaður kjúlli í hádeginu!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.4.2010 | 13:23
Blátt, hvítt, gult, grænt
Vandlega geymd rest af rándýrum ofurbláberjum bætt út í hreint, hrært KEA með kanil... blátt og hvítt! Samt eiginlega brúnt sökum kanils en hverjum er ekki sama um það!
Þessar gulu gersemar tóku líka á móti mér í vinnunni í morgun. B-ANANA-S!
Stóðst ekki mátið og átið ananas! Hann var svakalega góður - fullkomlega fínn. Ákkúrat nógu súr, ákkúrat nógu sætur, ákkúrat rétt áferð - ákkúrat ananas!
Fékk mér svo aðkeyptan óvinnumat í hádeginu! Smalabaka kallaði ekki nógu stíft á átvaglið til að yfirtaka matmálstímann. Kjúklingasalat með mikið af jalapeno, ójá, káli og stjörnu dagsins, avocado! Kjúllinn fékk feimniskast og faldi sig... hvað eru mörg f í því?
Hlakka mikið til að komast heim á eftir - þar hinkrar eftir mér sojalax sem getur ekki beðið eftir því að hitta ofninn! Færslan hennar Röggu kveikti á óendanlegri laxalöngun. Óguð - ég elska lax.
Þriðjudagar eru Hot yoga-dagar. Löxum okkur upp og yogum okkur... niður?
Hafið það ljúft
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.4.2010 | 09:42
Eytt um bláber fram
Ég ákvað í mínu kreppulausa hjarta að spandera og létta aðeins á veskinu! Verðugur málstaður engu að síður!
Fersk... bláber! Óguð! Kóngafæða!
125 gr. eru að kosta rétt tæpan 600 kall. Já takk. Um það bil 12 kr. á ber gefið að í kassanum séu 50 væn ber - og þá er ég að vera rausnarleg!
Samt vel þess virði! Sjáið þið bara... úhhhff!
12...24...36...hamingja og gleði!
Með gleðilegri hafragrautum sem ég hef borðað í langan tíma!
Ég er nú ekki vön að blanda alheimskreppuvandamálum inn í þetta blessaða blogg mitt, en matvælaverð á þessari ágætu eyju er með ólíkindum kjánalegt! Maður kaupir sér ekki bláber nema veðsetja börnin sín í leiðinni!
Ég ætla að éta öll bláber alheimsins á meðan ég er í útlandinu, kaupa allt ofurgóss sem kostar handlegg og nýra á þessu landi - og njóta þess í botn!! Hihiiiii
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
11.4.2010 | 17:35
Kökur, eggjakökur og fiðurfé
Er aftur komin með eggjakökuæði. Það er bara eitthvað við þær blessaðar sem ég fíla alveg í blússandi botn.
Einfaldari verða þær nú varla en þessi. Laukur svissaður upp úr smá olíu. Eggjahvítum og einu eggi hrært saman og hellt yfir dýrðina. Smá ostur og krydd á milli - brjóta saman, strá með steinselju og hafa sinnep hresst á kanntinum!
Lítur næstum því út eins og pizzabotn! Myndi án efa virka ágætlega sem slíkur!
Sjáið svo hvað laukurinn kemur skemmtilega út - býr til hringlaga mynstur í kökuna.
Ógvöð, ég gleymdi að tómatsósa dýrið! Skömm Elín Helga... skömm! Reddaði því á síðustu tveimur bitunum!
Oh nei!
Neiiiiiiiiiiii!
Svo það komi annars skýrt og skilmerkilega fram þá var þessi annars Gvendsamlega eggjakaka hádegismaturinn minn! Betra seint en aldrei segir máltækið - eftir 30 mínútur er ég að fara að gúlla í mig kjúlla!
Svo sannarlega dagur kjúklingsins og öllu sem þeirri dýrategund tengist!
Andlegur og óandlegur undirbúningur hafinn fyrir Ástralíuför. Best að byrja á því að fjárfesta í bókum og teiknigræjum í þessari viku. Sný sólarhringnum við í næstu viku og bæti tónlist, í og með, vel og vandlega inn á ipodinn fram á síðustu mínútu!
... ha.. sagið einhver að ég þyrfti að pakka?
Flugvallabið og flugvélahangs - here I come!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.4.2010 | 11:29
G'day mate!
Put another shrimp on the barbie!
It's official, oh yes! I´m going to Australia in two weeks my babies!! Wooohooo! Why am I writing this post in English? Well, not only am I going to Australia because, well... my goodness... Australia... but a very dear friend of mine lives there. I've known this guy for almost 11 years now, quite amazing actually. His name is Euan (everyone... say hi to Euuuaan), he's from New Zealand, lives in Tasmania at the moment and hahh, he's a chef! Oh yes he is! I said it. A CHEF! And I have a food blog. What an excellent combination right? Therefore I write this post in english so he can read it. And you better read it man!!
An amazing person he is. Very special to me. Truly passionate about cooking and food and everything involved, naturally. I could really learn something from him yeah? Spongebob is who I´m going to be - learning how to cut vegetables like the wind wile making lasagna, cursing, singing "Oh sole mio" and pooring wine with my left foot (wrist), all at the same time.
He works as a sous chef at a 5 star hotel in Hobart and has promised me all the goodness of food in the world... oh, and icecream. We're going to be eating the whole time, let me tell you! So fun!! I´m going to have to post 'before and after' pictures because I´ll probably return to Iceland looking like a fluffy
little meatball. But that's so amazingly great!! Oh my lord!! That means I've managed to eat everything I lay my eyes on and my god dear friends, that's exactly what I'll do. Can you just imagine allt he food I can taste but haven't tasted... ever!!! HIHIII!! Lots of new grocery stores and supermarkets + quirky little/huge massive super restaurants to explore!
Can... not... wait!
I dont know how I'll handle the blog writing business while I'm eating crocodile and jumping around with the kangaroos, but I'll think of something. Probably not a daily event but when the blog-writing supermegaholyfunspirit mania finally comes over me there will most definitely be a few pictures for you to look at.
I'd better watch out for those stingrays though! Pretending to be all cute and smooshy - tricksy little buggers!
To keep the tradition going and the meaning of this blog alive, this is what I had for lunch, or well, brunch today. Nohma! Beautiful colors huhh.
Love stuff like this. Easy to make, light - just love it + runny yolk people! Muy importante!
Voila - a burrito!
There is a downside to these kind of "feasts" though, if there is one. I always get hungry soon after I eat. Same with fish. No good for a black hole like myself but nothing a few almonds or chocolate or cookies or cake or... can't fix!
I´M GOING TO AUSTRALIA ON THE 24TH OF APRIL - SHITBUGGERJLAPENOKRUMSMEÐKURLI!
Hmm hmm... language miss!!
Now it´s time for the dance... yes, I said the dance!
*KNEE TO FOREHEAD**HEAL TO THE BACK OF THE HEAD*
Repeat!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.4.2010 | 09:46
Ys og þys og fleiri orð með y
Verð ekkert við vélina mína í dag sökum námskeiðs og annarra gleðilegheita! Ástæða fyrir bloggleysi gærdagsins verður afhjúpúð í kvöld eða á morgun - hún er svakaleg! Ég er spenntari en allt sem gæti talist spennt!
Það sem verður borðað í dag felur sig í þessum appelsínugulu elskum!
Grænmets-rækju og möndlugleði!
Grár, hræðilega fölur kjúlli og rækjur ásamt byggi fyrir æfingu!
Þó svo ég borði í plastboxum 80% af mínum át-tíma, þá þykir mér það allt
Hafið það ljúft í dag mín kæru!
7.4.2010 | 16:50
Oj hann er bleikur!!!
En góður!! Almáttugur hvað humar er ógeðslega góður!
Rifsberjahlaupshumar a la mamma!
Lítur nú hálf dónalega út svona bleikur... jafnvel eins og fóstur!!!
Eiki bleiki og rækjurnar!
Í hádegismat ásamt:
Fyrir æfingu ásamt:
Vítamínskammturinn fyrir daginn alveg að klárast! Eitt... hálft vítamín eftir!
Þetta var örblogg í boði Elínar! Æfing eftir 10!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
7.4.2010 | 09:49
Hjálpi mér allir heilagir - komdu með skyrið
Get svo svarið það. Dreymdi skyr og ber í nótt! Þegar ég vaknaði í morgun voru öll skilningarvit æpandi á þetta kombó af svo miklum heljarinnar fítons krafti að annað eins hefur ekki verið skráð í græðgisbækur! Hjörð af súmóglímuköppum hefði ekki stoppað átvaglið á leið sinni í ísskápinn eftir hinum alheilaga kaleik ofurskyrs! Þessari krísu var reddað hið snarasta!
Áfram strunsaði kvendið, inn í ísskáp, reif skyrdolluna út með ólýsanlegu offorsi og arkaði svo í frystinn þar sem öll ofurber alheimsins hvíla... svo gott sem. Bláber og hindber urðu fyrir valinu enda þeim hrúgað af mikilli áfergju ofan í skyrdolluna ásamt muldum hörfræjum og kanil og þessu hrært saman á augabragði. Það reyndi á í morgun að byrja ekki að hamsa þessu í andlitið á sér en vinnufundur kallaði á kúna!
Lítur svolítið sakleysislega út ekki satt?
Dollan fór því í nokkurra mínútna ferðalag með undirritaðri, kom sér vel, því ég gat troðið þessu eins frekjulega og ég vildi í andlitið á mér á fundinum góða. Ekkert uppvask og dollan tæmd á hraða ljóssins!
Nau nau nau nau...úúúúú... hvað er að ske hér?
ÚÚÚÚÚ..... plánetubláber!
Meiri kanil takk...
...og skeið sem er stærri en dollan sjálf! Það vill enginn ganga um með skyrfingur!
Svo er ég með áráttu fyrir því að borða skyrgums/grauta/búðinga... með teskeið! Það er bara eitthvað við það sem ég fíla betur en risa Cheerios skeiðar! Sem er svo önnur saga - morgunkorn/múslí með mjólk skal ætíð spisa með stórri skeið! Súpur tilheyra einnig stóruskeiðarflokknum!
Takk fyrir í dag - humar í hádeginu og bak/brjóst æfing í eftirmiðdaginn! Það held ég nú!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)