EGG

PÁSKAEGG

Sjáið bara hvað ég fékk fínt gefins frá vinnunni! Gleðiefni. Nú verða páskarnir haldnir hátíðlegir í næstu viku! Núh ... eða núna á laugardaginn með afmælisafanum! Þó maður gæti alveg eins farið út í búð og keypt sér Nóa Siríus hreina súkkulaðiplötu þá er einhver dónaskapur sem fylgir því að borða eggið! Rjómahvíttsúkkulaði! Sykurgrísinn skríkir af hamingju!

Páskaegg

Þessir ungar eru samt alltaf svo geðsjúklega geðveikir til augnanna! Curazy eyes! Alltaf eins og þeir séu nýsloppnir af stofnun fyrir fólk unga með... curazy.. eyes!?! Shocking

Crazy eyes

Meiri Crazy eyes

((hrollur)) huhh... sem betur fer þarf ég ekki að éta ungann!

Smjöttum á þessu við tækifæri mín kæru!


Sumarlegt...

...og hlýtt og blátt og bjart!

Góður dagur enn sem komið er. Föstudagur á morgun. Það er alltaf föstudagur, get svo svarið það. Afinn minn heldur upp á  75 árin sín um helgina - það verður ein góð ofurveisla skal ég ykkur segja! Tilhlökkunarvænt með eindæmum.

Morguninn fór í smá brennslu og maga ásamt þessu undri!

Möndlur og skyr

Mjög gott jákvætt og gleðilegt. Eitthvað við það að bíta í möndlu með skyri sem fær mína tungu til að æpa af hamingju. Eiga einhver dularfull efnaskipti sér stað á meðan þessu athæfi stendur. Mér líkar það stórvel!

Skvísa í hádegismatinn með eðalgrænmeti. Stundum þykir mér soðin ýsa svolítið eins og eitt stykki fjöruferð, ekki alveg nógu jákvætt, en því er þó yfirleitt hægt að redda.

soðin skvísa 

Salt, pipar og pestó tóku sig saman í þetta skiptið og gerðu máltíðina að mikilli veislu.

Pestó og kotó

Einar Crane, vinnufélagi extraordinaire, var ekki tilbúinn í fiskinn og fékk sér því kotasælu og tómathrökkbrauð. Tilfæringarnar við tómatáröðunina voru stórkostlegar. Með eindæmum vel raðaður tómatur! Svo vel raðaður að hann rataði hingað inn á bloggið. Til hamingju Einar!

Tómat og kotó hrökkbrauð vinnugúbba

Möndlur og tyggjó í eftirrétt sökum laukáts. Við viljum ekki að samstarfsgúbbar falli í yfirlið þegar átvaglið reynir að ræða málin! Möndlurnar enda ofan í maga, tyggjóið nýtur ekki þeirra forréttinda!

Möndlas

Hotness of the Yoga í kvöld. Ég er alveg að verða húkt á þessu, finn mikinn mun á sjálfri mér! Hlakka mucho mikið til eftir vinnu - jííhaa!


Hafra og hnetusmjörs kókos kökur

Voðalega svipuð hráefni og ég notaði í hafrastangirnar um daginn. Þessar komu samt svolítið á óvart verð ég að segja. Skemmtilega stökkar að utan.

Hafra og hnetusmjörs kókos kökur

Hráefni

1/8 bolli spelthveiti (15 gr)

3/4 tsk matarsódi

dass salt

1 + 1/3 bolli grófir hafrar (133 gr)

1/4 bolli vatn

3 msk eplamauk

1/4 bolli hunang (tæp 70 gr)

2 eggjahvítur (tæp 80 gr) eða 1 heilt egg.

1/2 tsk vanilludropar

1/2 bolli hnetusmjör (130 gr)

110 gr. smátt saxaðar döðlur

1/4 bolli kókosmjöl (25 gr)

1 msk mulin hörfræ (má sleppa)

Hita ofn í 180 gráður.

Setja hveiti, salt og matarsóda í skál og blanda rétt saman. Af hverju ég gerði þetta fyrst er mér hulin ráðgáta. Held það sé fullkomlega leyfilegt að blanda öllu þurru saman ein tveir og bingó!

Hveiti, mtarsódi, salt

Mæla einn bolla af höfrum (og já, ég elska bollamálin mín - svaðalega ofurflott og kúl og stál og glansandi)...

US bolli

...og blanda saman við. Hér setti ég 1/4 bolla af vatni út í hafrahræruna til að mýkja kornið aðeins upp. Leyfði að sitja á meðan ég kláraði að hræra í restina af kökunum.

Allir saman í heitapottinn

Næst er gott að blanda saman því blauta. Aftur, elsku bestu, notið stærri skál en þetta - það þarf að hræra í þessu með blandara! Ósætað eplamauk. Þyrfti samt að finna mér ódýrara mauk í meira magni - það er fásinna að kaupa margar svona litlar krukkur. Veit einhver hvar svoleiðis gersemi fæst fyrir ásættanlegt magn af pening?

Eplamauk

Mæla þrjár matskeiðar af mauki, mjög fallega, vel og vandlega í skál, vonandi stærri skál en sést á myndinni hér að neðan...

Eplamauk

...og bæta út í herlegheitin vanilludropum og hunangi!

Nohm

Hræra saman, alltaf að hræra saman!

óhrært hunangs vanillu eplagums

Hrært hunangs, vanillu, eplagums

 

 

 

 

 

Næst bæta eggjahvítum út í hræringinn og já, hér er skálin er farin að fyllast all verulega mikið!

Með eggjahvítum

Gumsið var því forfært í aðeins hentugra form af eldhúsíláti svo hægt væri að dólgast í að hræra það eins og almennilegum villimanni sæmir!

Fyrir hræring

Hræra úr gumsinu líftóruna eða þangað til það verður létt og ljóst. Værir reyndar ágætt að hræra saman hunangið og eggjahvíturnar, bæta svo eplagumsinu og vanilludropunum við það. Prófa það næst.

Létt og ljóst hrært gums

Þarnæst kemur skemmtilegi hnetusmjörsparturinn. Ég eeelska hnetusmjör og hnetur og möndlur og...

Mmmm 

...krukkan tóm! Tadaaa!!!

Fullkomin skál fyrir næsta hafragraut ekki satt?? Ekkert nema hamingja að borða grautinn upp úr tómum hnetusmjörskrukkum og skafa úr botninum þegar gleðin er að klárast... ohhhgg!! Mæli eindregið með því!

Tilvalin hafragrautskrukka 

Bæta hnetusmjöri út í eplamauks-eggjahvítublönduna og jú...

Pre hræring 

...hræra saman.

Blautefni í góðum gír

Áferðin

 

 

 

 

 

 

Áferðin verður um það bil svona... sjáið þið ekki stórkostlega vel hvernig hún er? Kemur skýrt og skilmerkilega fram! Um það bil eins og hnetusmjörið sjálft nema gumsið er mýkra og rennur úr skeiðinni.

Mjög gott á bragðið

Hafrar gripnir með offorsi og kynntir fyrir hentusmjörsblöndunni, döðlurnar bíða mjög spenntar þarna í bakgrunn.

Blessaðir félagar

Formlegri kynningu lokið.

Karamellukennt og bjútifúl

Döðlurnar gerðar tilbúnar fyrir samrunann ásamt kókosgumsi. Kókosinn þarf þó engan undirbúning. Svo skemmtilega vill til að búið er að saxa hann niður fyrir oss!

Vigta döðlur

Saxaðar í öreindir 

 

 

 

 

Bætt út í hafragumsið góða og vitið þið hvað? Hrært sman! Hohoo... Svo fann ég mulin hörfræ sem ég ákvað að nýta úr því ég rakst svona skemmtilega á þau! Ein matskeið beinustu leið ofan í herlegheitin!

Kókos og döðlugleði

hræringur

 

 

 

 

 

 

Mulin hörfræhræringur 

 

 

 

 

 

Svo plastaði ég skálina og lét bíða yfir nótt. Ágætt að láta bíða í svona 3 - 5 tíma svo hafrar nái að mýkjast og bragð/hráefni að krumsast saman, en þar sem klukkan var orðin margt þá nennti ég svo sannarlega ekki að hinkra eftir því.

Tilbúið í ísskápinn

Daginn eftir var gumsið tilbúið til uppskúbbunar og áröðunar. Reif skálina galvösk út úr ísskáp þegar ég kom heim seinna um daginn og elsku fólkið mitt! Þetta deig gæti ég étið allt beinustu leið upp úr skálinni - svaaaðalega gott á bragðið!

Tilbúið til skúbbunar

Notaði amerísku littlu ísskúbbuna mína sem smákökumótunartól! Elska hana! Átti reyndar ekki bökunarpappír ótrúlegt en satt. Nýtti mér því álið og smurði það aðeins með olíu áður en ég kom kökunum fyrir.

ísskúbba

Áraðað, fínt og fallegt. Allir í beinni línu! Hip hip hip!!

Allir í röð!!

Ég kramdi kökurnar líka rétt niður með gaffli áður en ég stakk þeim inn í ofn. Þær dreifa sér lítið sem ekki neitt. Hér er sumsé ein dýrðin fyrir bakstur....

Fyrir baksturskaka 

...og eftir! Um það bil 15 mín. eftir ofnferð. Fer eftir ofni hvers og eins. Barasta þangað til fallega gylltar.

Ofurkaka eftir bakstur

Allir saman út úr ofninum!

Bakaðar krúsíbombur

Kökurnar sem voru innst í ofninum bökuðust aðeins betur en þær sem framar sátu. Að mínu mati voru þær sem meira voru bakaðar betri og krumsaðri (stekkri). Þær sem voru þynnstar/minnstar laaangsamalega bestar. Eins og karamella! Mmhmmm!!

Glæsilega fínar

Úr þessu bjó ég til 22 kökur. Hægt að hafa þær minni/stærri nú eða taka þetta alla leið og bara búa til eina risastóraofurmassaköku!! Af hverju veit ég ekki, en það gæti orðið gaman og án alls efa gaman að borða!

Hafrakókos og hnetusmjörskökur

mmhmm

Nohm

Einhver sem býður sig fram í að gera neglurnar á undirritaðri fínar aftur?

Næringargildi pr. köku uþb.

Kcal: 94, Prótein: 3 , Fita: 4 , Kolvetni: 13 , Trefjar: 2

Niðurstaða:

Þegar ég smakkaði fyrstu kökuna glænýja út úr ofninum þótti mér hún heldur bragðlaus og dauf miðað við hamingjuna sem deigið var. Eftir að dýrin kólnuðu þá urðu þær aðeins bragðmeiri og sérdeilis aldeilis fínar að mínu mati. Virkilega skemmtileg áferðin á þeim, sérstaklega þessum sem urðu aðeins þynnri/minni. Þærðu stökkari og skemmtilegri undir tönn en samt smá mjúkar inní. Döðlurnar karamelliseruðust líka svo skemmtilega í kanntana. Ef ykkur þykir slíkir sjóhattar góðir þá er um að gera og minnka/þynna kvekendin. Gleðileg áferð og fínt bragð. Passa að þær brenni ekki í botninn.

Hvað myndi ég gera öðruvísi næst?

  • Pottþétt krydda með einhverju skemmtilegu. Kanil að sjálfsögðu, negul, anís?, eitthvað sniðugt og aðeins meira salt. Rífa út í þetta sítrónu eða appelsínubörk?
  • Nota meira af döðlum - jafnvel mauka þær, kannski súkkulaðibita, rúslur, þurrkaða ávexti, fræ.
  • Er ekki viss hvort ég myndi sæta meira, en það er spurning að prófa það... hmmm.
  • Jafnvel setja aðeins meira af kókos.

Verður eitthvað næsta skipti?

Já það held ég nú. Þótti þær ofurfínar til að narta í!


Nýtt Scitec komið í hús

Ójá! Hvítt súkkulaði Scitec. Er búin að vera að pissa í mig af tilhlökkunarspenningi í allan dag. Eftir æfingu máltíðin kallaði úr töluverðum fjarska klukkan 10 í morgun en þetta hafðist!

Tadaa! Hvítt súkkó og biscuits eftir æfinguna!

Hvítt súkkulaði scitec og rískökur

Beint í skál...

Hvítt súkkulaði scitec

...undir krana og smávegis vatn...

Hvítt súkkulaði scitec

...ekki nóg vatn...

Hvítt súkkulaði scitec

...smá vatni bætt við og voila!

Hvítt súkkulaði scitec

Ekki alveg jafn ofurþykkt og skemmtilegt eins og Súkkulaði/Mokka. Það prótein er sér á báti skal ég segja ykkur. Fluffast upp og verður eins og herra Royal! En þetta, mín elsku bestu, var eins og bráðið... hvítt... súkkulaði! Ég segi það satt!

Geri reyndar sjaldan eins og flestallir aðrir, setja í blender með klaka. Það er að sjálfsögðu hamingjan einar og verður eins og ís! Leitipúkinn tekur við eftir æfingar - þá vill skrokkurinn mat 1, 2 og sjóhattur!

Hvítt súkkulaði scitec

Rískexið sívinsæla! Eðalfínt út í svona gums - krums og kram!

Le ris

Mylja út í og blanda smá!

ohh yeah

Að sjálfsögðu bætti ég kanil út í. En ekki hvað? Enda varð þetta eins og hrísgrjónagrautur! Hinsvegar, allt sem gæti mögulega verið vanillu-eitthvað + kanill = hrísgrjónagrautur!

Hvítt kanillusúkkulaði

Hamingja í skál og hamingjusamt átvagl! Þetta er einstaklega bragðgott prótein! Alls ekki væmið að mér finnst, en á móti kemur að ég er mikill vanillumisnotari!

Eftirátakshamingja

Uppskrift af hafrakökum kemur á morgun. Það á eftir að taka mig allt kvöldið að henda inn myndasyrpunni sem fylgir þeirri gleði! Húha!


Ítalskir ofurborgarar

Ekkert hollt við þessar elskur... smjör, ostur, meiri ostur og bíddu... meiri ostur!

Vinnuburger 

En ég fékk mér samt 3/4 af einum! Óguð hvað þetta var gott!


Heitt jóga og 66°norður beint í trýnið

Voðaleg frekja er þetta í veðrinu!

Góður grauturinn í morgun. Þessi sami gamli góði einfaldi með hindberjum. Hindberin eru svo geigvænlega glæsileg svona frosin af einhverjum ástæðum - ekki það að þau séu það ekki fersk. Hindber eru góðber!

Hafrar og hindber

Svínalundir í hádeginu og vinnugrænmeti! Eins og ég hef áður sagt, þá er ég ekki mikil grísakerling en þetta var afskaplega, afskaplega fínt ét! Ketið mjúkt sem smjer. Reyndar var átvaglið orðið svo hungrað að samstarfsfólk var farið að hafa orð á óhljóðunum sem frá svartholinu komu! Svartholið verandi belgurinn á undirritaðri að sjálfsögðu. Sjáið bara matinn gott fólk! Gvöööð menn góður! Ég dey úr hamingju og fer til himna - helst þó í himneskt bakarí... ef það er til.... og ef það er hægt að leggja inn svoleiðis pantanir!

Svaka salatbar

Svínalundir og ofnsteiktar kartöflur

Að auki við þennan ofurglæsilega disk hér að neðan setti ég ofan í mig tvær kartöflur og nokkrar möndlur. Græðgispúkinn fór hamförum. Djísús - ég ætti að hengja þessa mynd upp á veginn heima!

Flottasdi hádegismatardiskur hérnamegin Alpafjalla

Hryllilega flottir litir!

Glæsilegt

Er ég kannski ein um að vera "Dáðst að matnum mínum" perri?

Eins og máluð mynd!! Gleður mín sérlegu augu óstrjórnlega.

Bara glæsilegt

Fékk mér svo eina svona eðalkrúttubombu í eftirrétt! Hafrakaka frá því í gær - assgoti massagóðar þó ég segi sjálf frá! Ætla að gera annan skammt við tækifæri - hendi uppskriftinni vonandi inn í kvöld! Þær eru ennþá með knús og kram að utan, mjúkar og djúsí að innan.... mmhmm!

Hnetusmjörs- og kókos hafrakaka

Kannski ágætt að minna sjálfan sig á það að ef halda á úti matarbloggi, þar sem einstaka myndir af höndum/puttum/lúkum eiga það til að láta ljós sitt skína, þá sé gott að vera með almennilega og vel snyrtar neglur! Whistling

Til að halda áfram að lista upp allar mínar "syndir" þá er ég með afgangs fisk frá því í gær sem ég ætla að gæða mér á í eftirmiðdaginn ásamt möndlum og almennri hamingju! Fiskiprinsfiskur í dilli og hvítlauk! Það, elsku bestu, er líka assgoti gott ét! Fiskur er kominn ansi nálægt því að vera uppáhalds ket sem undirrituð setur ofan í sig. Ekki í nema nokkurra millimetra fjarlægð frá fiðurfénu og beljunni!

Held að þessi dagur verði einn af "ofurátsdögunum". Þeir eru það reyndar allir en sumir dagar eru bara aaaðeins meira gúrmey en aðrir. Kvöldmaturinn segir til um hvort 23.03.2010 verði extra spes eða ekki.

Annað í fréttum: 

  • Hvítt súkkulaði Scitec prótein bíður mín aleitt og grátandi á pósthúsinu... ohmy! Sæki það á morgun. *tilhlökkunartryllingsdans* í bland við smá rúmbu! Hlakka til að smakka! (rímar og allt)
  • Hot yoga í kvöld mín kæru!
  • Njótið dagsins í botn og brosið út að eyrum Smile

Æðisleg helgi að baki

Ákvað á föstudeginum að aðhafast ekkert um helgina. Njóta þess að vera letihaugur sem, í mínu tilfelli, þýðir heilalaus sófadýrsstemning með átvaglsívafi! Ahhh... ljúfa lífið!

Tók mig nú samt til og gerði baksturstilraun í gær. "Deigið" kúrir inn í ísskáp í þessum töluðu orðum og hlakkar mikið til að eiga stefnumót við ofninn eftir æfingu í dag. Hafrakökur með meiru.

Hef tekið þá ákvörðun að prófa Ultratonið! Tilraunin er hér með hafin! Mætti galvösk í morgun  með grautinn og át hann mjög virðulega á meðan ég beið eftir tímanum mínum! Hann er nú ekki girnó á að sjá greyið. Óhóflegt magn af kanil og brúnn banani eftir ísskáp er því miður ógleði fyrir augað en gott fyrir bragðlaukagúbbann!

Eggjahvítu og bananahafrar

Eins og geimskrímsli lá ég þarna skjálfandi, herpandi, kremjandi í 30 mínútur á mis-háum stillingum. Valdi mér eitthvurt prógram sem heitir "Stinnandi, styrkjandi" - hljómar krúttaralega ekki satt? Verður líka gaman að sjá hvort lærvöðvinn taki við sér. Ætla nú samt sem áður ekki að eyða 30 tímum í þá tilraun, held mig við tíu og gef blátt áfram, skítkalt mat á þetta ferli!

Í staðinn fyrir æfingu... í alvörunni?

Þar sem ég ætla mögulega að birta 'fyrir og eftir' myndir í einhverju formi, með bumbuna á mér ásamt fleiru, allsbera og óhulda framan í alþjóð þá bið ég ykkur vinsamlegast um að vera "góð". Það er ekkert óskaplega þægileg tilhugsun að "bera" sig á "netinu". Eiginlega barasta ekkert þægileg. Skoppandi rassar í sundi eru ekki meðtaldir, þar gilda líka önnur lögmál!

Hér eru svo stríðsáverkarnir eftir "átökin". Ræktin vinnur... guð minn góður. Ræktin vinnur með yfirburðum!

Stríðsáverkar

Sá sem kemur auga á músina á myndinni hér að ofan vinnur! 

Tökum aftur upp Ultratone þráðinn í apríl mín kæru! *trommusláttur*

Góður dagur í vændum og tilraunakökur í kvöld Joyful


Vikan rétt að byrja...

...og þá kemur föstudagur!

Sjáið bara hvað vinnufólkið mitt er yndislega fínt!! Þetta beið mín á tölvuskjánum þegar ég mætti í morgun! Ég varð öll mjúk og meyr! Æðisleg leið til að byrja föstudaginn, svo mikið er víst! Heart

Hjartans þakkir fyrir hver sá sem skrifaði þetta! Joyful

Yndislega fínt 

Fyrsta át dagsins var þessi sérdeilis ómyndarlegi bananagrautur, en góður var hann ban(ana)settur! Sætur, vel þroskaður banani og grautur - hver sá sem bjó til bananann hefur verið í mjög góðu skapi þann daginn!

Eggjó með bananó

Netttur tilhlökkunarspenningur gerði vart við sig þegar ég uppgötvaði hvað yrði í hádegismatinn í dag. Ekta... íslensk... kjötsúpa! Ég eeeelska kjötsúpur og þessi stóð sko vel undir væntingum! Stútfull af allskonar góð- og gleðimeti! Rófur, kartöflur, laukur, gulrætur... ohhhggg! Eldhús ofurhetjurnar bjuggu til kjötsúpu þennan ágæta föstudag þar sem fyrirtækið ætlar að bregða undir sig góðu löppinni og skella sér á sveitaball í kveld! Gleðilegt nokk! Það verður dansað, það verður hlegið ok stappað!

Kjötsúpa og afgangs kjúlli

Vinnukjötsúpa

Kjötsúpa 

Salatbarinn góði! Fallegir, glæsilegir litir! Gæti horft á svona fínan mat allan daginn, get svo svarið það. Held ég þurf á aðstoð að halda!

Vinnusalatbar

Hádegisdiskur númer eitt sem veitt var grimm eftirför af súpudisk sem ekki náðist á mynd sökum hungurs umræddar myndavélar! Ég nældi mér líka í afgangs kjúlla síðan í gær! Gvöðdómlegt er fiðurféð!

Föstudagshádegi

Súpugrænmeti

Salatbar 

 

 

 

 

 

Æfing á eftir, tjútt í kvöld. Dans og með því! Meiri kjötsúpa - jebb, hún verður tekin með á ballið!

Lopapeysur, stígvél og strá í munninn! Þetta verður bara gaman!


Punktarnir yfir Ö-ið!

Hot Yoga var óneitanlega mjög hot! Kom mér skemmtilega á óvart og skrokkurinn, þó sérstaklega fætur og bak, glimrandi hamingjusamur og slakur! Þetta verður stundað hér eftir 2 - 3 sinnum í viku þar til rass-prikið sívinsæla hefur með öllu verið fjarlægt!!

Fyrir hot yogað fékk ég mér léttan og laggóðan lax og tómata. Hryllilega góður þessi, reyktur. Graðgaði hratt og örugglega í mig tómötunum og ákvað svo að krydda ketið með dilli og steinselju. Ójá! Ómyndaðar möndlur fengu að sjálgsögðu að vera memm.

Lax og kirsuberjatómatur

Sjáið bara hvað laxinn er svakalega flottur!! Eins og listaverk!

Svakalega flottur

Dill og steinselja

Átdeginum svo formlega lokað og læst með hreinu guðdómlegu KEA eftir yoga og ennú ómynduðum möndlum! Ætli möndlugreyin fari nokkuð að taka þetta nærri sér?

hreint kea fyrir svefninn

Það er föstudagur á morgun vinir mínir! Magnað hvað tíminn líður hratt - páskar eftir 2 vikur og svo mín elskulegu bestu.. hihiiii... sumar, grænt gras, grill og gleðilegheit!

*tilhlökkunarspenningstryllingur*

Eigið gott kvöld og njótið morgundagsins - takk fyrir daginn í dag og nótt í hausinn á ykkur Smile


Lífsrót, allt að gerast, breyttir tímar

Allskonar rót í gangi, búið að vera í gangi og verður áfram í gangi. Bæði gott og slæmt rót - en það gerir lífið bara spennandi og skemmtilegt. Hvar er fúttið í því að hanga á miðlínunni allan daginn? Fáar skemmtilegar sögur hægt að spinna út frá því.

Hvað er annars næst á dagskrá?

Ætla að prófa minn fyrsta Hot Yoga tíma á eftir. Hlakka mikið til að sjá hvort spítukvendið nái að liðka aðeins á sér bífurnar og bakið. Ég er komin á þau skemmtilegu tímamót í mínu lífi að ég get ekki beygt mig eftir hlutum á gólfið án þess að þurfa að beygja mig í hnjánum! Svakalega fín í uppréttri stöðu en um leið og átvaglið byrjar að fetta sig er voðinn vís! Eins og búið sé að stinga priki upp í óæðri endann á undirritaðri sem nær alla leið upp í haus - afsakið martraðirnar sem gætu ásótt ykkur eftir þessa fallegu lýsingu. Verður spennó að sjá hvernig þetta fer - ójá.

Það er möguleiki að villivaglið sé að fara í svaðalega gleðilegt ferðaleg. Meira um það seinna! Cool

Ultratone! Ég er nokkuð viss um að allir séu að velta þessu fyrirbæri fyrir sér. Virkar það, virkar það ekki? Er ég að eyða peningunum mínum í tilgangslausa kippi og spenning fyrir smá kitl í rasskinnarnar? Ég er nefnilega með slitinn vöðva í vinstra læri. Fór í ultratone prufutíma til að sjá hvort ég kæmi einhverju lífi í hann greyið þar sem hann er dofinn og ónýttur. Afgreiðsludaman stakk upp á því að ég tæki bara heildarpakkann, blöðkur á bumbu/rass/læri/ruslakistu úr því ég væri að þessu og jújú, af hverju í ósköpunum ekki? Reyndar hægt að velja um margar mismunandi meðferðir. Þarna lá ég og kipptist til eins og rúllupylsa í nokkrar mínútur. Skvísan lofaði þessa meðferð svo svakalega að ég snérist eins og úldinn ullasokkur á rigningardegi og vildi ólm taka stöðuna á þessu til að geta "afsannað" þá kenningu. Ég trúi jafn mikið á svona "meðferðir" og "megrunarkúra"! Hún talaði t.d. um að fitnessfólk færi í þetta rétt fyrir keppnir til að "strekkja" aðeins á sér. Auðvitað nefndi hún það einnig að matarræðið þyrfti að breytast hjá þeim sem væru að spögúlera í þyngdartaps-meðferð ofr. En ekki hvað ég bara spyr? Hvað um breytt matarræði og almenna hreyfingu?  Ég var að spögúlera í því hvort ég ætti að láta peningaplokka mig og leyfa ykkur jafnvel að fylgjast með. Fyrir og eftir myndir, allur pakkinn. Hvað segið þið um það? Svona úr því að ég er á "réttu róli" og allt það. Þetta er kannski bara þvæla, kreppa og peningaeyðsla - gæti samt orðið áhugavert! Hmmm.. spáum í þessu.

Mötuneytið mitt er annars að standa sig með prýði eins og ávallt. Eftirfarandi dýrð var gleypt á örfáum mínútum á slaginu 11:15. Gat ekki beðið lengur. Skrokkurinn var alveg á síðasta snúning.

Æðislegur kjúlli og risaskammtur af grænmeti

Salatbarinn góði

Kjúlli og grjón

 

 

 

 

 

 

Keila frá því í gær. Fiskiprinskeila og möndlur í eftirrétt! Klukkan er 14:33 og allt er í lagi!

Fiskiprinskeila

Mandlas

Fyrir þá sem ekki vita - þegar ég tala um "ruslakistuna", þá er ég að vitna í stórkostlega hliðarsvæðið aftan á baki, rétt fyrir ofan rassinn! Bakspikið undursamlega. Þaðan kemur mörin til með að leka af mér þegar sól skín í helvíti! Ömmu andskotans til mikillar hamingju! En það er bara krúttaralegt - eitthvað til að klípa í!

Jæja... hot yoga mín kæru. Here I come!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband