6.8.2010 | 07:08
Bootkampf niðurstöður
6 vikur yfirstaðnar. Magnað hvað tíminn líður hratt. Sumarið alveg að verða búið.... og jó.. aaaalveg að mæta á svæðið! Woohooo!
Jæja - segið svo að Kampið skili ekki árangri og æðislegheitum! Þolið, bæði lungna og vöðva, allt að koma til. Þetta er ekkert nema gleði.
Hlaup - 2,3 km
Froskar með hoppi
- 23.06 - 20
- 04.08 - 38 (hey, meira en ég hélt um daginn *gleði*)
Armbeygjur
- 23.06 - 30 (12 á tánum)
- 04.08 - 35 (27 á tánum)
Situps
- 23.06 - 30
- 04.08 - 62
Þyngd
- 23.06 - 60.4
- 04.08 - 58.4
Fituprósenta
- 23.06 - 20.3%
- 04.08 - 15.5%
Þar hafið þið það! Þetta eru kannski engar súpertölur en þetta er byrjun og bæting á öllum sviðum!! Það er geðveikt! Tala nú ekki um þessi tvö kíló í mínus og 5% skafið af í mör. Bjóst samt ekki alveg við því, en hey... bónus! Stefni á ennú betri tíma og skor á næstu 6 vikum þar sem ég er enn að lufsast í einhverju sem kallast "fínt" í þolprófinu en ekki "framúrskarandi".
Átvaglið skal verða.... framúrskarandi!
Þarf líka að bæta í átið til að auka hjá mér styrkinn. Næst á dagskrá!
Og já, ég held það nú aldeilis sérdeilis, mér líður nákvæmlega eins og á myndinni!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
5.8.2010 | 20:02
Spínat eggjakaka með tómötum.
Konan sem kunni bara að útbúa eggjakökur og haaafragrautaaa!!!!
Virðist vera það eina sem ég set ofan í mig þessa dagana.
Engu að síður. Einfaldara verður það ekki og einfalt er mitt mottó þessa stundina. Er í engu stuði fyrir ofureldamennsku eða fínheit. Stutt og laggott já takk - en bragðgott og gleðilegt í leiðinni.
Spínat á pönnu að kvöldi til!
Spínat á pönnu að kvöldi til með flassi!
Af hverju ég er ekki með stóru myndavélina á bakinu allan sólarhringinn er ofar mínum skilningi?
1 msk olía og hvítlaukur hitað á pönnu og spínatinu bætt út á. Rétt látið koðna niður í 1 - 2 mín, salta, pipra, dukkah. Hella möndlumjólkurblönduðum og krydduðum eggjahvítunum út á! (Reynið að segja þetta 10 sinnum í röð hratt)
Skera niður tómat og ... raða! Smyrja með smá dijon og pipra eftir smekk.
Brjóta saman, balsamik edika!
Ég veit, ég veit - diskurinn er subbó.
Ég hefði nú alveg getað eytt 10 mínútum í að útbúa ferska tómatsalsa með smá baunum. Átti kóríander, rauðlauk, hvítlauk, mango, tomata, pinto... en æji. Letin gott fólk. Letin.
Fíni fíni bitinn! Eins og listaverk.
*rop*
Guð... var þetta ég?
Afsakið!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.8.2010 | 10:00
Marglitur dagur
Iss, eins mikið og ég hlakkaði til að Gymbossa í dag þá svoleiðis át hann batteríið á hraða ljóssins. Fjórar mínútur inn í fína, ofurfína interval hringinn minn og Bossinn andaðist.
Ekki að skrást sem gleðiprik í mína bók... huhh! Reyni þó aftur, bara með pípi næst og sé hvað gerist.
Fuss
Að öðru öllu gleðilegra efni.
Handfanga-fiesta! Langþráð afkvæmi Hlöðvers Böðvars leit dagsins ljós með Buddalicious á útsýnisátstaðnum mínum í morgun. Ohhhoo hvað kaffi er nú eðalfínt á svona líka eðaldögum.
Buddhann innihélt skyr, chia fræ, vanilludropa og 1 tsk omega 3 lýsi. Skreytt með frosnum blá- og hindberjum, komið fallega fyrir inn í ísskáp í gærkveldi og toppað með lúku af Sólskyns múslí í morgun.
Safinn af berjunum fullkomlega fínn með sago-skyrinu og múslíið hárrétt knús og kram.
Skeiðin plummaði sig vel.
Hef ég talað um það áður hvað þessi skeið er mikið uppáhalds?
Hef ég sagt ykkur hvað ég öölska Chia fræ mikið?
Hef ég sagt ykkur hvað ég er hryllilega hamingjusöm að eiga þessar skálar?
Hef ég?
Í alvöru?
Sökum Gay pride er litagleðin tekin bókstaflega, bæði í skálum og fatnaði!
Litagleði... og önnur... almenn gleði.
Tók mig svo til og arkaði í vinnuna í blíðunni í morgun. Það þarf að gerast oftar. Virkilega, virkilega ljúft.
Eigið góðan dag elsku bestu.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.8.2010 | 20:51
Allskonar gleðilegt skemmtilegt
Sjáið sjáið sjáið!!
Nýju, nýju glæsilega geypilega æðislega ofurfrábæru BUDDHA skálarnar mínar! Ohhhhhh sjááið bara hvað þær eru djöðbilaðslega fínar!!
Blá!
Hvít!
Ómægod hvað það verður gaman að borða grautinn upp úr þessari snilld! Haldið þið að skeiðin mín verði ekki glöð að hitta Buddalicious? Sem minnir mig á það - þarf að finna nafn á hana... og já, það er mjög nauðsynlegt að persónugera átáhöldin sín.
Glæztar! Sjáið, sjáið bara. Þær eru með handfangi gott fólk.... hand... fangi!
*tilhlökkunartryllingsstapp*
Svo er það nýi æfingafélaginn minn. Herra GYMBOSS.
Interval tímatakari með meiru og kemur til með að aðstoða kvendið við spretti, hring-/stöðvaþjálfun og hvaðeina. Hlakka til að nota þetta dýr. Mjög einfaldur og þægilegur í notkun, klemmist á æfingafatnað, engin vikt í þessu. Stoppklukka í leiðinni. Jájá. Kvekendið víbrar und alles klar svo þér er óhætt að ipodda á meðan þú púlar.
Hvernig getur maður án svona tækja verið? Eins og með GSM. Hvað gerði alheimurinn fyrir tíma GSM.... og kaffi... og ostaköku... og rauðlauks...
Jú heyrðu, svo keypti ég svona brauð! Aftur, fyrir handlegg, sálarbút, annan augasteininn, hægri nasavænginn og eina freknu. Verður forvitnilegt að prófa - á víst að vera öllu betra og stórkostlegra en heilhveiti og spelt. Hvað veit maður. Ekkert ger, engin egg eða mjólk, engin viðbætt fita.
Ahhh... allskonar gleðilegt skemmtilegt.
Kvöldmaturinn var annars svo ómerkilegur að það tekur því varla að nefna hann. Skálagleðin var svo gífurleg að grænmeti, allsbert og óunnið, var gúllað beinustu leið út úr William Shatner ásamt kjúlla og brúnum grjónum.
William Shatner er sumsé ísskápurinn. Af hverju William Shatner? Jú, af því að af einhverju ástæðum þykir mér maðurinn alltaf líta út eins og ísskápur.
Ferkantaður.
Denny Crane er bestur.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.8.2010 | 10:48
Útlitsbreyting ekki besti mælikvarðinn
Hvað er það sem flestallir leita eftir þegar talað er um árangur?
Flestallir.
- Kílóafjöldi á niðurleið.
- Útlitsbreytingar.
Ég held ég sé ekki að fara með rangt mál hérna.
Atriði 1 er margrætt og skal eigi tekið fyrir í þessum pistli þar sem átvaglið fyrirlítur þann lið jafn heitt og köngulær.
Við skulum því heldur ræða lið 2 og njóta gulu gleðisprengjunnar í dag.
Stærsti vandi hvað þessar árangursmælingar varðar er í raun og veru tími. Tíminn verður þinn versti óvinur. Eftir mikið strit og erfiði er kannski lítið sem ekkert farið að gerast, varðandi atriði 1 og 2 hér að ofan, og þú missir móðinn. Það getur hinsvegar tekið nokkra mánuði áður en þú byrjar að sjá árangur erfiðisins, sérstaklega ef þú ert að taka þín fyrstu skref í átt að breyttum líffstíl. Þú léttist kannski já, sérð smá vöðvatón - en bitur raunveruleikinn bíður ekki upp á neitt annað en tíma og þolinmæði hvað sýnilegan árangur varðar. Gefðu þér góða 2 - 3 mánuði áður en breytingar á skrokknum fara að verða spegilhæfar. Janvel lengur ef matarræðið hefur ekki verið réttu megin við línuna og hjá mörgum er það ansi stórt ef.
Þar af leiðandi, þó svo útlitsbreytingar séu einn helsti og besti hvatinn, eru þær ekki sá hvati sem best er að einblýna á. Það eru allir að leita eftir hinum fullkomnu handleggjum og maga sem fengi Arnold frá Svartsengi til að roðna. Það er bara svo oft sem gleymist að horfa á þann augljósa ávinning sem hreyfingin sjálf skilar þér:
- Aukið úthald, þrek, styrkur, liðleiki
- Minna stress/hvíði
- Betra skap og meira sjálfstraust
- Þú verður hreinlega hamingjusamari
- Afkastar meiru yfir daginn
Er því ekki ágætt að leggja útlitsbreytingarnar á hilluna til að byrja með? Alfarið? Smá stund?
Samt sem áður er það sorgleg staðreynd að besta hvatann sé erfiðast að mæla. En þannig er það svo oft. Maður missir brauðsneiðina alltaf á smjörhliðina gott fólk og gullpeninginn úr klinkhrúgunni. Ef þetta væri ekki erfitt, ef það væri ekki erfitt að byrja, þá litu allir út eins og grískir guðir, lifðu hollu líferni, borðuðu "rétt"...
Það sem mér persónulega þykir best að gera, hvað útlits mælikvarðann varðar, er að taka myndir af sjálfri mér á fyrsta degi. Ekki móðursýkjast í spegli á hverjum degi yfir því að ruslakistan sé enn á sínum stað og bakspikið lafi yfir brjóstahaldarann. Heldur taka aðra mynd eftir 60 daga og sjá muninn. Nota svo föt og mæliband sem viðmið og henda vigtinni út á hafshauga...
...eða nota hana til að vigta kettina mína.
Skrokkurinn virkar bara ekki á þann veg að þú getir sagt "Ahh, það er árshátíð eftir tvo mánuði. Ég ætla að vera búin að losa mig við lærpokana fyrir þann tíma" og svo BAMM... árshátíð í næstu viku og lærpokarnir ekki orðnir jafn smáir og vonast var eftir. Býður ekki upp á neitt annað en svekkelsi, pirring og uppgjöf.
Hananú.
Hænunú?
Ekki fylgjast með árangri dag frá degi, góna á ykkur í spegli marga klukkutíma í senn grátandi yfir því að rassinn sé ekki byrjaður að umbreyast í kúlu. Það sjást ekki breytingar strax eftir brennslu, lyftingar... hvað sem er. Þetta tekur tíma og kúlurassar verða svo sannarlega ekki til yfir nótt!
Nema þú gerir einhverjar svaðalegar rassaæfingar í svefni og uppskerir stórmerkilegra stél en Jennifer Lopez hefur að skarta. Ef svo er - þá vil ég fá að vita hvurslags æfingar það eru!
Gefið ykkur tíma og njótið þeirra forréttinda að fá, og geta, hreyft ykkur. Ekki stressa ykkur yfir því að komast ekki í hreyfingu dagsins eins og planið gerði ráð fyrir, þið hafið nefnilega restina af lífinu til að "vinna það upp". Með tímanum fylgja svo útlisbreytingarnar og ef þið haldið ykkur við efnið þá verður "viðhaldið" mun auðveldara.
Ahh - Ella llama dagsins.
Yfir og út kjúklingar!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.8.2010 | 10:28
Olíu- og mjólkurlaust banana speltbrauð með bláberjum
Fyrir þá sem eru með mjólkuróþol og... olíu... óþol! Ekki það að ólífu olían myndi skemma nokkuð, holla fitan er nauðsynleg. En þetta er gott, gott brauð. Mjög djúsí og skemmtilegt. Bragðgott með eindæmum og endalaust hægt að leika sér með deigið.
Olíu- og mjólkurlaust speltbrauð með banana og bláberjum
3 vel þroskaðir bananar, stappaðir
2 msk ferskur sítrónusafi (jafnvel nota smá sítrónubörk líka)
1/3 bolli + 2 msk möndlumjólk (eða sveskju/eplamauk)
2 msk hunang
1/3 bolli púðursykur (ég notaði muskovado)
1 tsk vanilludropar
1 tsk möndludropar
1 bolli bláber, fersk eða frosin
2 bollar spelt
1/2 bolli múslí (ég notaði sólskyns)
3/4 tsk lyftiduft
3/4 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
Aðferð:
Stappa banana og blanda fyrstu 8 atriðunum saman. Banana - bláber.
Er alltaf með einn "draslaradisk" þegar ég er að baka undir hrat og skítug áhöld. Þarna get ég plantað notuðum skeiðum, berki, skafi, hýði, afgangs smjeri... ekkert subb á borðið. Þó það útbúi einn auka disk sem þarf að þrífa. Það er nú ekkert svo hræðilegt! Fyrir utan þá Über alles mikilvægu staðreynd að ég veit alltaf hvert ég set dótið mitt ef ég er með draslaradisk
Næst blanda saman þurrgumsinu...
...og gúlla svo þurrgumsi í blautgums og rétt hræra. Muna að hræra ekki of mikið, bara rétt þannig að allt blandist.
Hella í olíusmurt brauðform og baka í 40 - 50 mínútur við 175 gráður. Ég var með mitt brauð inni í 50 og það varð svona líka mjúkt og djúsí.
Núh.. ef þið eigið ekki brauðform þá leika af fingrum fram!! Ójá! Álpappír og eldfast mót! Verður ekkert voðalega fallegt í laginu, hvað þá á þessari mynd, en alveg jafn fínt á bragðið.
Og svona leit kvekendið út nýkomið úr ofni.
Ohmn nom nom!
Hvað myndi ég gera næst!
Bæta við chia- eða hörfræjum og möndlum fyrir hollu fituna. Nú eða öðrum hnetum/fræjum, líka til að gefa bragð/áferð og kram. Jafnvel eplum eða meira af berjum (hindber, jarðaber..). Þurrkaðir ávextir...
Verður eitthvað næst?
Já... ójáhá!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.8.2010 | 15:48
Þriðji í Verslunarmannahelgi
Síðan ég hámaði í mig ofurbrauðsneiðina um daginn hef ég haft hana á heilanum eins og exem. Smekklegt, ekki satt? Bjó mér því til salat, henni til heiðurs, í dag sökum brauðleysis. Synd og skömm en gott var grasið!
Spínat, alfalfa, kapers (eeelska kapers ákkúrat núna), kapers safi, smá rauðvínsedik, perusneiðar, tómatur, gúrka og eggjahvítur.
Sletta af hunangi og balsamik ediki, til að vinna upp á móti seltunni í kapers krúttusprengjunum...
...ásamt möndlum og smávegis möndlu dukkah. Fyrir bragð, gleðilegri bita og hamingju.
Ferkst, ferskt og fínt. Fullt af krami fyrir áferðaperrann. Næst ætla ég að útbúa Balsamic hunangs/dijon dressingu og bæta út í olífu olíu og smá sítrónuberki. Ohh mama!
Annars var Kampið tekið með trompi í morgun. Tvöföldu trompi - tvöfaldur tími - tvöföld pína. Þrekprófið endurtekið síðan fyrir 6 vikum og viti menn... konur og börn. Átvaglið búið að bæta hlaupatímann sinn um rúmar 2 mínútur! Situps um heilar 32, push ups um 5, þar af 15 aukalega á tánum, 10 auka froskar og 35 aukaleg uppstig.
JÁ TAKK!
Þannig að - til að ná Elítuprófinu þá þarf ég að bæta mig í 4 liðum af 5!! Ekki.. nema! Hmm hmm! Reyndar, þá eru armbeygjurnar og froskarnir ansi nálægt því sem þarf til að standast. En, hvað um það, fjórir af fimm. Það skal unnið vel á þennan mismun á næstu sex vikum.
Æfingin í morgun var með eindæmum gleðileg, erfið og sveitt. Framhliðin á kvendinu leit svona út, 20 minútum og berkjaskyrskál seinna (og var verri strax eftir æfinguna)...
...bakhliðin svona!
Markbak með meiru. Blá doppa á hverjum einasta mjóbaks-hryggjarlið.
Hressir, bætir og kætir.
Ætla ekki einusinni að sýna ykkur hverskonar hroðbjóður restin af skrokknum á mér er. Fæturnir... aumingja fæturnir. Skil þetta bara ekki, lít út eins og gíraffi. Steypist út í marblettum á stöðum sem eiga ekki einusinni að geta framkallað marbletti. Eins og nasavængir og eyrnasneplar. Það mætti halda að ég væri á hausnum mestmegnið af tímanum. Ekki það að elskulegir blettirnir trufli mig - ég nýti þá óspart til að segja af mér hetjusögur!
Nei, það er ekki sorglegt.
Kannski mig vanti einhver vítamín í skrokkinn til varnar marblettamyndun. Nema það lagist ef ég borði nógu mikið af súkkulaði... eða ís.
Það væri óskandi.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.8.2010 | 23:49
Móaflatarkjúlli taka 208377388716...n
Þar sem Spaghettifjölskyldan kemur saman, þar er borðað!
Ég náði mynd af rækjukokteil a la amma áður en honum var alveg stútað.
Sömu sögu er ekki hægt að segja um kjúklinginn og Móaflatarmeðlætið. Hvað þá dúkinn. Hamagangurinn var svo mikill að úlfarnir tættu upp borðið með óhljóðum, búkhljóðum og einstaka urri.
Hver sér um sig í þessum átfiestum og þeir sterkustu fá mest að borða!! Ójá! Magn af mat sem hægt er að gúlla skiptir að sjálfsögðu höfuðmáli í þessum efnum. Við vitum ekkert hvað það er að vera fjölskylda, siðmenntuð eða þolinmóð þegar þessar veislur eru haldnar. "FRÁ.. NEI... ÉG VAR FYRST.. KOMDU MEÐ ÞESSA KARTÖFLU - LEGÐU KJÚKLINGALEGGINN FRÁ ÞÉR.. MJÖG.. HÆGT" Spaghetti í hárinu, sósa í eyrunum, kjúlla og kartöflum stungið í vasann ...
...vondu frönskurnar skildar eftir...
...sötrað...
...drukkið...
...verksummerki...
...slátrað...
...sleikt...
...meiri verksummerki og eitt einmana spaghetti að reyna að flýja...
...ÉTIÐ!
Meira að segja eftirréttirnir áttu ekki séns í myndatöku! Allt eftirátsísskrautið og ísinn er horfið af borðinu.
Afgangs kökur síðan í ofurbakstrinum í gær. Svo veðbjóðslega góðar! Ojbara!
15 mínútum, 1 kg af spaghetti, 5 púddum, 2 lítrum af sósu, 1 kg af kartöflum og epískum eftirrétti síðar! Elskubesti sætaðasti nýjaðasti spaghettifrændinn. Lundi í öllu sínu veldi. Yndislega fínt eintak.
Og já, þetta tók bara 15 mínútur. Ótrúlegt að þessi litla púpa eigi eftir að umbreytast í Móaflatarkjúllaætu á komandi árum.
Og uppáhalds minnsta frænkan en stærsta systirin, Valdísin mín.
Jebb, þetta er án nokkurs vafa litla frænkan mín!!
Buxnastrengurinn orðinn þrengri. Fitumúrinn sprengdur, dáinn... grafinn! Stopptakinn óvirkur.
Allt of langt síðan við Móaflatarkjúlluðum síðast.
Þetta var ekkert.... nema gott!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2010 | 12:44
Þegar lífið gefur þér ferskju...
...borðaðu hana!
Sjáið þetta bara!
Æðislegur á litinn þessi ávöxtur!
Ferskjuketið var svo ákkúrat... alveg... uss! Nohm! Svona líka ofurmeyrt og mjúkt og djúsí! Bráðnaði upp í mér!
Segi það satt - ég hefði getað sogið þennan ávöxt upp í gegnum rör!
Úff hvað þetta var algerlega fullkomið ferskjudýr! Alveg... fullkomið!
Samt ekki búið ennþá! Ég sé enn ket.
Njóta hvers bita Elín.... njóóta!
NJÓÓÓTA!
Ohhh... búið!
Fullkomlega rétt þroskuð, fullkomlega súr, fullkomlega sæt, fullkomin áferð, föööllkomlega fín.
Mikið ofboðslega eru ávextir svakalega góðir þegar þeir eru... jah... góðir! Partý fyrir bragðlaukana!
Mikil forréttindi að fá að bíta í svona gersemar!
Note to self: Þarf að kaupa fleiri ferskjur!
31.7.2010 | 20:18