Eggið í grautinn

Prufum að setja eggið út í hafragrautinn í staðinn fyrir ofaná!

Egg og eggjahvíta hrært saman í skál ásamt vanilludropum og kanil. Sama bland og notað er t.d. í "French toast" - á góðri íslensku. Út í þetta hrærði ég svo hafrana mína ásamt tæpum dl. af vatni og inn í ísskáp yfir nótt. Beinustu leið í örrann þegar ég vaknaði og ofan á grautinn fóru nokkur örbylgjuð hindber.

Eggjagrautur með hindberjasósu

Þetta var alveg ágætt barasta þó myndefnið gefi annað til kynna. Ég ætla að prófa að setja undanrennu í staðinn fyrir vath, næst þegar ég geri þessa snilld og nota skvettu af hunangi. Jafnvel útbúa pönnsur.. og já, það verður svo sannarlega næsta skipti!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Lítur bara baerilega út og er örugglega gott og gaman ad borda thegar madur er morgunsvangur.

Hungradur (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 07:57

2 identicon

Hvað seturðu í ca langan tíma í örbylgjuofninn?

 Verð að hrósa þér - þetta er ekkert smá  flott síða hjá þér og mikil hvatning;)

Unnur (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband