Sárar kinnar

Mikið sem rassinn fær nú stundum að kenna á því blessaður. Hnébeygjur. Móðir allra lappa-, rassa ofuræfinga.

Æji hvað ég ölska svona æfingar. Hnébeygjur, réttstöðulyftur, framstig, planka, upphífur og vabeha.

Fæturnir hafa samt verið kátari. Það vottar fyrir töluverðum skjálfta og ég veit, ég veit jafn vel og ég elska það að borða graut, hvað harðsperrurnar á morgun eiga eftir að stuðla að hægagangi, uppsetu erfiðleikum og kvíðahnút í maga í hvert sinn sem ég fer á klósettið!

Já, ég sagði það. Sjáið fegurðina nú fyrir ykkur!

Ef ég væri partur af hóp, sem af einhverjum ástæðum væri verið að elta af ljóni... því hver veit, kannski... kemur ljón... þú veist, vappandi inn í vinnu á morgun... þá væri ég bestaðasti besti vinur allra í hópnum.

Grautur fyrir æfingu í morgun. Klassíski óbrigðuli, ekki svo fallegi, með kanil-, kakó og kaffiblöndu ásamt dass af Engilbert.

Klassískur eggjó með kanil, kakó og kaffi

HRÆRA

Klassískur eggjó með kanil, kakó og kaffi

Hámark eftir æfingu, sökum óundirbúnings, og beint upp í vinnu í einn kaffi. Við mér blasti fjall af vínberjum. Bókstaflega. Þvílíka berjahrúgu hef ég ekki augum litið í langan tíma. Hún var svo stórkostleg að ég þurfti að festa hana á mynd!

Núna, þegar ég hugsa til baka, er ég ekki alveg viss um af hverju mér þótti þetta svona stórkostlega magnað og yfirskilvitslega æðislegt.

Eftiræfingumóða? Double rainbow syndrome?

Vinberjahrúga

Ahhh!

Fyrsti kaffibolli dagsins... með Everestvínber í baksýn. Ég segi ykkur það, kaffi númer eitt er svoleiðis hamingja og gleði fyrir öll skilningarvit. Mikið sem ég elska ákkúrat þetta móment á morgnana.

Fyrsti bolli dagsins

Hey! 

Munið þið eftir því þegar ég flutti síðast? Hvernig ég flutti síðast?

Ef ekki... þá er hér upprifjun!

ofurtroðinn bíll af allskonar ofurtroðsludóti

Ég endurtók leikinn í gær!

Fékk Bankann lánaðan á nýjan leik.

Hér er fagröðunarmanneskja á ferð. Fagmanneskja... með meiru!

Fagmanneskja segi ég!

AMT ofurtroðinn að nýju

BIBLÍAN GOTT FÓLK!

BIBLÍAN

Ef ykkur vantar að flytja eitthvað þá tek 250 kall á tímann, 150 kall ef eitthvað:

  • rispast
  • brotnar
  • bráðnar
  • hverfur

Ég er enn netlaus.

Bú á það!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er eitthvað betra en harðsperrur, sérstaklega í maga, baki og lærum. Þá kemmst maður að því hvað maður notar þessa vöðva mikið :) Svo er sennilega við hæfi að óska þér til hamingju með nýja hellinn :)

Ragnar (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 10:44

2 identicon

Hvað er Engilbert? Langar að giska á engifer?

Sigrún (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 10:49

3 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Ragnar: Jú, mikið rétt og satt! Harðsperrur eru "góð" áminning um góða æfingu og margar þakkir fyrir hellishamingjuna! :)

Sigrún: Það held ég nú.

Elín Helga Egilsdóttir, 13.4.2011 kl. 12:32

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég er að kafna úr forvitni um kanil-kakó-kaffi brjálæðinginn :-S

Ragnhildur Þórðardóttir, 18.4.2011 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband