Góðir dagar

Ágætis hádegismatur.

Túnó, salt, pipar, grænmeti og smá pönnusteiktur laukur.

Túnfiskurinn klikkar seint

Og það er allt sem ég hef um þetta að segja!

Spennandi... ekki satt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

looking good ....

Frk. Laxmýr (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 14:56

2 identicon

TOTALRULERHollt skal thad vera.  Hollt og gott.

Hungradur (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 15:24

3 identicon

ég sakna þess að fá ekki lengur uppskriftir á bloggið... nú er bloggið eiginlega bara búið að breytast í matardagbók.

Margrét (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 17:33

4 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Svona gerist þegar rótið er meira en átvaglið ræður við. Vonandi að það verði breyting þar á, á komandi vikum

Elín Helga Egilsdóttir, 24.2.2010 kl. 18:17

5 identicon

hehe.. ætlaði einmitt að fara að segja að ég saknaði gömlu Ellu sem var símallandi, sjóðandi, steikjandi og bakandi..

En við þraukum, meiri heimtufrekjan í þessum lesendum þínum....

Helena (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 20:07

6 identicon

*gubb* duglega þú að borða "hreinan" túna...

Heba Maren (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 21:35

7 identicon

mig langaði að forvitnast, ertu að fara keppa í fitness? :)

halldóra (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 12:14

8 identicon

svona var kvöldmaturinn minn í gær...spennó

Jóna Lind (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 12:35

9 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Helena: Ég er með ægilegt samviskubit yfir þessu. Hef bara ekkert komist í að spögúlera í einhverju nýju og spennó og held mig því við þetta gamla góða sem virkar alltaf. Þarf að sparka í rassinn á sjálfri mér

Heba Maren: Já - ekki alveg í fyrsta sæti yfir gúrmey. En með kryddum og gleði þá sleppur kvekendið nokkuð vel sko.

Halldóra: Ó álmáttugur nei. Ekkert slíkt. Bara að rótast í ræktinni fyrir sjálfa mig  Nú er ég samt svolítið forvitin, af hverju spyrðu?

Jóna Lind: Hehe.. stundum er "spennó" bara svo assgoti fínt.

Elín Helga Egilsdóttir, 25.2.2010 kl. 13:29

10 identicon

finnst þú vera ægilega dugleg og með mikinn sjálfsaga ;)

skemmtileg bloggsíða, kíki oft hingað inn!

halldóra (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 14:04

11 identicon

Ég er nú enn að prófa uppskriftir frá þér svo ég ætla ekki að kvarta yfir uppskriftaleysi, finnst þetta afar skemmtilegt blogg. Var að enda við að sporðrenna Granólastöng eftir uppskrift frá þér og OMG ég hef aldrei á ævinni fengið neitt betra í þessum "matarflokki". Dýrlegt hvernig hnetusmjörið+agavesýrópið+þurrkuðuávextirnir umvefja hafrana, hneturnar og fræin.

I'm in heaven!

Unnur Björk (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 14:04

12 identicon

Mmmmm :)

Er að skoða pistasíuís uppskriftina þína.... leikur mjög mikil forvitni á að vita hvar þú fékkst 3 kg pistasíu poka? Virðist vera lítið mál að finna þetta í stórum pokum ristað og saltað eeen ekki það sem ég er að leita að ;)

Díana H (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 15:05

13 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Halldóra:  ohh takk fyrir það.

Unnur Björk: Snilldin einar að heyra þetta. Gerir mig sérlega káta í hjartanu. Granola stangirnar eru æðislegar. Hægt að leika sér svo mikið með þær.

Díana H: Keypti þennan poka hjá Garra heildverslun á sínum tíma. Gæti svoleiðis borðað pistasíur allan daginn.

Elín Helga Egilsdóttir, 26.2.2010 kl. 16:09

14 identicon

Ég mátti bara til með að láta aðeins í mér heyra varðandi komment frá einum lesanda bloggsins hér að ofan og í almáttugs bænum, ég er ekki að vera með hrat. En að setja út á að nú sé þetta blogg bara orðið "matardagbók" en ekki uppskriftavefur fyrir alþýðuna. Ég vil endilega benda á að þetta er jú bloggið hennar Elínar og hún má hátta því eins og henni sýnist. Ekki er hún á launum við að stunda matartilraunir sem eru án efa tímafrekar/kostnaðarsamar. Svo tel ég líka að margir, sem eru í sama heilsubisness, séu bara ánægðir með að sjá hvað hún setur ofan í sig dags daglega.

Ég kíki hérna inn daglega og hef gaman af. Virkilega skemmtilegur penni og einstaklega góð tilbreyting að komast inn í hugarheim manneskju í gegnum matinn sem hún borðar. Sama hvort það sé í gegnum uppskriftir eða daglegar máltíðir. Stórkostlegt alveg hreint.

Einnig góð tilbreyting að losna undan öllu krepputali og pólitík.

Haltu áfram þínu striki - skrifin þín koma mér alltaf til að brosa.

Sigurborg

Sigurborg (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 16:34

15 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Sigurborg: Þakka þér kærlega fyrir falleg orð í minn garð Sigurborg mín

Og bara svo það sé á hreinu þá tók ég ekki neinum kommentum illa á neinn hátt, ég get svo guðsvarið fyrir það. Er ekki hætt að fikta og vesenast, bara haft lítinn tíma undanfarið Þykir mjög gaman að heyra að það séu einhverjir sem hafa áhuga á að sjá hvort það sem ég hræri saman heppnist eða ekki ;)

Elín Helga Egilsdóttir, 27.2.2010 kl. 00:46

16 Smámynd: Sigrún Óskars

innlitskvitt - alltaf gaman kíkja á bloggið þitt - æðislegar myndir

Sigrún Óskars, 27.2.2010 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband