18.10.2009 | 11:27
Bruscettu hafrar með ólífum og eggi
Fallegur morgunn. Virkilega notalegur. Sit hérna frammi með morgunmatinn minn, kisarnir sofandi í sitthvoru horninu.
Pallinn sefur inn í herbergi og það heyrist ekki múkk úti! Mikil kyrrð yfir öllu.
Bruscettu hafrar með ólífum og eggi
dl af höfrum, rúmlega
1 - 2 eggjahvítur
3 - 4 svartar ólífur
1/4 marið hvítlauksrif
salt, pipar, hot sauce, basilika eftir smekk
2 dl vatn
Hrært saman eftir suðu
1 þunn sneið smátt skorinn rauðlaukur
1 niðurskorinn tómatur
2 - 3 steiktar/örbylgjaðar eggjahvítur
Hafragrautsskraut
1 heilt steikt egg, salsasósa og smá steinselja.
Svo gott þegar eggjarauðan ákvað að leka ofan í grautinn. Hólý mólýness og allir englarnir! Ef þið hafið ekki prófað að setja egg á hafragraut, mæli ég með því að þið gerið það núna! Svaakalega gott!
"Eftirrétturinn" voru frosin jarðaber sem ég stakk ofan í pínkulítið af þykkt blönduðu próteini með kanil.
Væri til í að prófa graut með t.d. blöndu af kryddunum sem voru í kjúllanum í gær. Kanill, cumin, kardimommur, engifer, hvítlaukur og blanda út í hann vel steiktu grænmeti - væri ábyggilega geggjað! Jafnvel útbúa amerískan morgunverð úr graut og bæta við eggjum, beikoni og smá sýrópi!
Hohoooo... ætla að leggjast í víking í grautarkryddi á næstu vikum og sjá hvort eitthvað stórkostlegt eigi sér stað!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Hafragrautur, Prótein, Ragga Nagli | Breytt 24.9.2010 kl. 10:42 | Facebook
Athugasemdir
Jömm - verði þér að góðu sprellan mín
Dossa (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 12:20
Þeink jú
Mér varð mjög að góðu.
Elín Helga Egilsdóttir, 18.10.2009 kl. 12:35
Slef, slef og slef....ME LIKE!!....HIGH FIVE!!! (Borat voice) Kettir eru mín uppáhaldsdýr. Býr thú í sveitinni?...Mosfellsbae kannski?
Hungradur (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 12:47
Á góðum stað í Garðabæ með þennan fína hól fyrir utan! Eins og vinur okkar sagði þegar við fluttum inn:
"Glæsilegt... svo eruð þið með dvergahól í bakgarðinum og allt"!
Elín Helga Egilsdóttir, 18.10.2009 kl. 14:16
Sætu kisur! :) Hvaða tegund eru þær? persar?
Steinunn (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 18:52
Þetta eru fyrsta flokks síðhærðir fjósakisar
Elín Helga Egilsdóttir, 18.10.2009 kl. 19:21
svakalega er gaman að lesa þessi bogg hjá þér
þú ert alveg hrikalega dugleg
... og maturinn hjá þér örigglega æðislega hollur og góður
tek þig til fyrirmyndar, mig dreymir um að geta hugsað svona vel um matinn sem ég borða í framtíðinni
kv 15ára lesandi
Helga Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 20:59
Sæl Helga mín
Ég verð meyr eins og fyrsta flokks nautalund við að lesa þetta. Ástarþakkir fyrir - nú er ég ekkert smá góð með sjálfa mig
Ég efast ekki um að þú getir tekið "hollustupakkann" með trompi. Eitt veit ég - ef ég gat það, þá geta allir það
Njóttu lífsins mín kæra.
Elín Helga Egilsdóttir, 19.10.2009 kl. 12:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.