19.9.2009 | 17:26
Vampírukisi og viðbit á laugardegi
Aumingja kisinn minn er slappur og fúll. Getur svosum sjálfum sér um kennt, ég segi það ekki. Hann er með vampírubit eftir annan slagsmálakött á framfætinum. Bólginn og illa haldinn fórum við með hann til dýralæknis í morgun þar sem hann fékk sprautur og núna liggur hann hálf úldinn yfir lyklaborðinu - sem gerir þessi skrif mín mjög krefjandi.
Þrátt fyrir umönnunarstörf og vorkunn, í garð úldnakisa, stoppaði það mig ekki í því að næla mér í mat í kaffinu. Eggjahvítukaka með kanil, stöppuðum banana og möndlum, meiri möndlur mín kæru og jújú, kanilstráð epli.
Kanil- og möndlukóma tekur nú við, á þessum annars ágæta laugardegi, í bland við kattardekur og almenna leti.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Egg, Hnetur, Ragga Nagli | Breytt 24.9.2010 kl. 10:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.