Litli ljóti grauturinn

Mér tókst, í gær, að búa til hræðilegasta lit á hafragraut fyrr og síðar! Mér líður svolítið eins og brjáluðum vísindamanni að búa til sinn fyrsta Franken-graut! Hvernig varð þessi ljótgrautur að veruleika?

Tilraunin fólst í örbylgjuhituðum jarðaberjum, hreinu próteini og ósoðnum höfrum. Setti nokkur ber í skál og inn í örbyglju þangað til þau urðu að hálfgerðu gumsi og byrjuð að bubbla. Út í berin hrærði ég svo próteininu. Fagurbleikt og krúttaralegt. Gomma af ósoðnum höfrum fékk svo að fylgja með ásamt köldu vatni eða þangað til grauturinn var orðinn að mínu skapi. Inn í ísskáp yfir nótt (hafrarnir drekka í sig vökvann). Í morgun blandaði ég svo kanil og vanilludropum út í herlegheitin.. og viti menn! Franken grauturinn varð til! Ég er ekki frá því að einni eldingu hafi lostið niður þegar kanillinn fór út í grautinn og smá "MUAHAHAAAA..." komið frá mér af einhverjum dularfullum ástæðum!

Hræðilega húðlitaður grautur

Ljótari graut hef ég ekki gónt á í langan tíma. Hræðilegri lit er ekki hægt að hugsa sér á mat af þessum toga. Húðlitað, semi ljós-fjólubleikt, glansandi... ((hrollur)). En gott var gumsið! Ójá! Karamellukenndur eftir ísskápsveru, rétt hitaður í vinnu örra til þykkingar... mmm! Enda kláraðist hann á met tíma.

Alltaf að klára matinn sinn... þó hann sé hræðilegur á litinn!

Fyrir utan að vera besti morgunmatur í heimi, þá má lærdóm draga af hafragrautsmalli gærdagsins. Ekki er allt gull sem glóir mín kæru! Ljótgrauturinn var góðgrautur engu að síður.

Úff... það er svakalegt hafragrauts zen í gangi hérna! Alveg svakalegt! Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hefur mér ekki dottið í hug...að gera grautinn kvöldinu áður og demba í ísskápinn, snildarráð :o)   Það er satt hjá þer ekki er hann fallegur að sjá heheh

Jóna Lind (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 15:23

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Það er svaka gott og skemmtileg tilbreyting. Ég geri stundum svona eða bý til hafraköku.

Líka gott að bleyta upp í höfrum og múslí (með mjólk, vatni, möndlumjólk) og bæta út í það jógúrti, skyri ofr. um morguninn, eftir ísskápsveru. Þarf ekki endilega að setja jógúrtið út í strax.

Ohh svo margir skemmtilegir möguleikar

Elín Helga Egilsdóttir, 16.9.2009 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband