28.6.2009 | 18:38
Sumarið er komið
Þetta veit ég... svona er maður nú klár! Þegar garðurinn hennar mömmu er í blóma, ég get legið í grasi, hita, lokað augunum, fundið grilllykt og hlustað á fuglasöng að kvöldi til, þá er sumarið mætt á svæðið! Fullkomið kvöld í kvöld! Matarboð hjá mömmunni, allir saman, grillandi, hlæjandi, borðandi! Notalegast í heimi.
Grillpinnar og kjúlli a la mamma.
Geggjaðar, ofnbakaðar, niðurrifnar sætar kartöflur með púðursykri og hestlihnetum, a la Dossa, ásamt fersku salati.
Sumarsósa a la mamma, til hægri, (sýrður, gúrkur og pickles) og dásamlega gott brokkolísalat a la Moi! Það kláraðist alveg! Þarf að setja inn uppskriftina við tækifæri.
Afinn og Valdís í góðum gír í hengirúminu sívinsæla. Lítið brot af ofurgarðinum hennar mömmu. Hann er mjög bjútifúl ákkúart núna.
Hveitilaus súkkulaði bananakaka með jarðaberjum og ís, í eftirrétt, a la Moi.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Kvöldmatur, Svindl, Vinir og fjölskylda | Breytt 23.9.2010 kl. 21:32 | Facebook
Athugasemdir
*Buuuuuurp*
dossa (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.