Finnst þér ís góður?

Er með svo margar uppskriftir í hausnum ákkúrat núna, verð að koma þessu frá mér.

Ég er ísæta af guðs náð. Ég elska ís, bragðið af honum, áferðina. Ís er kaldur og mjúkur í senn og bráðnar í munni. Þið þekkið þetta.

Ég er búin að vera að leita að einhverri góðri uppskrift af "ís" sem inniheldur ekki viðbættan sykur eða rjóma. Hef ekki rekist á neitt af viti svo ég ákvað að sparsla saman tveimur semi-ágætum og sjá hvernig útkoman yrði.

Skammtur fyrir 2 manneskjur.

Athuga skal að minna eða meira af innihaldsefnum má vera í uppskriftinni eftir því sem kitlar í ykkur bragðlaukana, hvað varðar bragð og áferð.

2 - 3 vel þroskaðir bananar

Lítil dós Hreint Kea skyr, meira eða minna eftir smekk

1 skeið Vanillu Muscle Milk Prótein, þarf ekki, en er skemmtilegt

smá fjörmjólk

1. Frysta bananana. (Hér væri líka sniðugt að frysta kannski jarðaber eða mango og hafa með)

2. Setja frosna banana í matvinnsluvél ásamt skyri, hræra þangð til blandað. Það má alveg hafa hvaða skyr sem er, ég vel hreint Kea af því að það er enginn viðbættur sykur í því eða aspartam. Minnst af fitu og kolvetnum.

3. Bæta við próteindufti og smá fjörmjólk (fer eftir því hversu þykkt þú vilt hafa þetta)

4. Setja á disk og bera strax fram

 

Mér finnst mjög gott að bæta próteinduftinu við, gefur skemmtilegri/raunverulegri ís-áferð og bragð. Það þarf ekki að bera þetta strax fram, væri hægt að setja í frysti og hræra í af og til, svo lengi sem þetta harðnar ekki alveg. Mér persónulega finnst þetta best um leið og búið er að hræra saman.

Þessi uppskrift hitti beint í mark hjá mér - fannst þetta alveg geggjaðslega gott. Gaf Palla með mér og hann gaf þessu tvo þumla upp!! Þá er næsti laugardags-nammidagur ákveðinn!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glæsilegt hjá þér Elín!! Maður er alltaf að heyra af þessum yndislegu eldhúsaugnablikum hjá þér og það er gaman að fá smá innsýn í þetta! :) Endilega hentu inn fleiri uppskriftum og ég væri til í að sjá pönnsurnar og döðlukökurnar *thumbs up*

ps. Jens spyr hvort hann megi flytja til ykkar og hvort þú nenntir að gera smokkfiskréttinn fyrir hann á hverjum degi?  

Erna (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 09:08

2 identicon

Úúúúú - my very own online-chef!  Oi loik it!

 Verð samt að hlægja að MAN-vinnsluvél, til að elda....hohoho!

 Glæsó frænkó!

Dossa (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 10:06

3 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Erna: Pönsur og döðlur coming up og Erna... þessi "Ís".. ohhhohoo. Ég skal bara koma með svona smokkfisk handa ykkur. Pabbi á tonn af þessu heima!!

Dossa: Þeink jú. Svo er líka svo gaman að geta flett upp sjálfur seinna og rifja upp hvað var gert. Þá er annaðhvort hægt að gera það sama (ef heppnast vel) eða breyta.

Elín Helga Egilsdóttir, 15.3.2009 kl. 10:25

4 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Já ís er namm nam er ofverkur í hann

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 15.3.2009 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband