Hver bað um þessa veðráttu?

Þrumur og eldingar!! Snjór og fok og rok og fjúk og for helvedes bara!

Já nei takk. Það er amk komið nóg af snjó... bestu þakkir fyrir kærlega og amen. Mikið, mikið meira en nóg! Fuss. Ég held ég þurfi að taka fram dansgallann og reyna að særa fram gula monthausinn. Það fer alveg með sumarhlakkarann að sjá grillið breikdansa út á svölum eina stundina og svo þakið snjó hina!

*sumarfnaaaaaas* 

Grautur í morgunsárið, Hleðsla eftir púl. Ómyndað sökum hamagangs og græðgi.

Ég biðst forláts.

Æfing dagsins var tækluð með miklum látum... bókstaflega. Nokkuð gleðileg uppákoma í miðri hnébeygju, að fá eitt stykki þrumu í kjölfar svaðalegrar eldingar. Þrátt fyrir óþol mitt á þessari veðráttu þá var geypilega hressandi að fá þetta svona beint í æð.

Hmm... ég tek þetta til baka. Það hefði verið mjög svo óhressandi að fá þetta beint í æðina. Hélt samt fyrst að það væri einhver að taka myndir inn í sal þangað til þrumudýrið ákvað að stela senunni. Nokkuð magnað verð ég að segja. Svo var leikurinn endurtekinn núna í hádeginu! Reyndar bara eldingin, þruman var eitthvað feimin.

Basilfiskur og ofursalat. Hádegismatur extraordinaire!

basilfiskur

Ég sé fyrir mér meira salat, jafnvel ávöxt í eftirmiðdaginn ásamt skyri og svo eggjahvítupönnsu og pönnusteikt grænt í kvöldmat.

Er með spínat- og rósakálsblæti á háu stigi þessa dagana!

Það er nú aldeilis uppi á teinu ty... í dag!

tespá

Over and out!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

úú uppáhalds tespekin mín til þessa :)

Þórdís (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 12:13

2 identicon

Já vá, ég heyrði þessa í morgun. Vaknaði við hana. Brjáluð læti :)

Og helvítis harka er þetta í þér að vera farin á fætur og byrjuð að æfa fyrir klukkan 7 á morgnana.

Dagný (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 14:10

3 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Þórdís: Þessi er alveg ágæt skal ég segja þér. Held ég noti þetta sem ofurhetjusetningu ef... og þegar að sjálfsögðu, ég ákveð að gerast ofurhetja.

Dagný: Já, þetta var alveg efni hádegisumræðu ;)

Elín Helga Egilsdóttir, 13.4.2011 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband