9.7.2010 | 13:06
Vakna snemma, nýta daginn...
...hnýta daginn?
Ætlaði að fara í ræktina í morgun og brenna pínkulítið en veðrið var of gott til að sleppa. Fattaði þó ekki fyrr en aðeins of seint að nóta niður fyrstu skrefin í myndum - þið getið svosum gert ykkur í hugarlund hvernig morgunrútínan er.
Frammúr - vatnsglas - bíða eftir því að þreytan fari úr augunum - bursta tennur - íþróttaföt - ipoda - út!
Tók einn snöggan ör-rúnt í morgunblíðunni - þvílík flemmings forréttindi mín kæru. Sjáið bara dýrðina... og IKEA.
Másandi video-beljan er að sjálfsögðu ég og þó það mætti halda að ég sé búin að hlaupa í 45 mín. samfleytt þá eru rétt 10 mínútur liðnar af örhlaupi undirritaðrar. HAHH!! Mér til varnar þá byrjaði hlaupið þó í urð og grjóti, upp í móti, ekkert nema urð og grjót-i... svona næstum. Fyrir utan stórkostlega lélegt hlaupa- og þol-form þá þarf nú ekki nema smáhreyfingu á litlu tá til að ungfrúin svitni eins þaulvön gufubaðsrotta í áskrift!
Mætti halda að ég hafi verið að klára maraþon. Gvöð hvað það er samt stórkostlega æðislegt að vera með tónlist í gangi sem hentar þínum eyrum á meðan hlaupi stendur.
- Tíminn líður hraðar og þú ert í meiri fílíng.
- Ég heyri ekki hvæsið í sjálfri mér þegar lungun eru með mótþróa. (truflar mig geypilega)
- Ég get einbeitt mér að því að taka "lítil skref Elín, lítil skref.... lítil skref" í takt við gleðibylgjurnar sem leika í kringum hamar, steðja og ístað.
Leynilög með meiru!
Eftirfarandi hrygðarkvein, í bland við harmastunur, glumdi svo í Garðabænum "ON THE COOVER OF THE ROOLING STOOOOOOOONES...." í morgun þegar átvaglið tók geysifína bíómyndabyltu niður eina brekkuna og hrökklaðist með andfælum síðustu metrana í átt að Gúmmulaðihöllinni.
Núh.. yfirleitt, á þessu stigi máls, þá fer ég í sturtu og tek 30 - 40 mínútna pallaslökun + morgunmatsát áður en ég fer í vinnuna. Sökum myndatöku á graut, og því sem fram fer í þessum ágæta pistli, frestaði ég sturtunni þar til eftir grautarát.
Byrja á því að umskera aumingjans eggin í einn einfaldan. Ohh... þvílík sóun. Þarf að koma mér í Garra sem fyrst.
Vatn og vítamín. Geislar svoleiðis af þessu hollustan!
Mangó á hliðarlínunni. Ég stóðst ekki mátið þegar ég sá það í ísskápnum. Þetta mango var fullkomið - algerlega fullkomið. Sjáið svo hvað hnífurinn í bakgrunn er lýsandi fyrir framtíð gulu gleðisprengjunnar. Yfirvofandi mangó-ógn.
Svo á ég svona vanilló. Var búin að gleyma þessari dýrð og vá, þetta er snilldin einar í grautinn mín kæru. Snilldin einar. Gefur virikilega gott og milt bragð. Get svo svarið það ég man ekki alveg hvar ég keypti þetta! Held það hafi verið í Trader Joes í Bandaraíkjalandi.
Mangó og frosin bláber í blíðunni, svo glæsilega fínir litir. Beint út á pall. Bláberin fersk, og þessi skál hefði farið á lista yfir topp 150 bestu grauta sem ég hef smakkað!
Grauturinn heppnaðist líka súper - alveg eins og deig. Ohohoo...
Að graut meðtöldum ásamt afkvæmi Hlöðvers, í uppáhaldsbolla, gerist startið varla betra!
Hræra - óguð - ógeð!
Lúlli ljóti! Eggjahvítur og bláber er efnasamband sem gerir sér enga grein fyrir fagurfræðileika grautarskála!
Guð minn góður. Þetta verður bara verra. það er eins og eitthvað hafi dáið í skálinni!
Hresst... og blátt... og gott!
Vinnan handan við hornið.
Meira kaffi. Haldið þið að ég eigi við vandamál að stríða?
Gott start inn í helgina. Mmmmmyyyeeees!
Eigið góðan og blessaðan dag strömparnir mínir!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Hafragrautur, Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 13:37 | Facebook
Athugasemdir
Fylgist alltaf grannt með þér þó ég kommenti aldrei en varð bara núna. Þú ert svo mikill snilldarpenni að það er unun að lesa bloggin þín :) Saknaði þín mikið þegar þú tókst pásuna.
Er pínu forvitin að vita (þú sleppir bara að svara ef þetta er of persónuegt). Þú sagðist hafa bætt á þig 5% fitu í pásunni og hafa verið í þínu besta formi fyrir það. Hvað verstu þá komin langt niður í fitu þegar þú tókst pásuna?
Kveðja,
Elísa
Elísa (IP-tala skráð) 9.7.2010 kl. 13:36
Hellú Elísa mín og þakka þér barasta kærlega fyrir.
Heyrðu jú. Tók ansi vel á því frá jan - maí og náði mér niður í tæp 12%. Sem er frekar hart svona miðað við þá staðreynd að ég er nú bara að þessu fyrir sjálfa mig
Er að dóla núna í 17 - 20% og það er bara ágætis staður til að staldra við í smá tíma.
Elín Helga Egilsdóttir, 9.7.2010 kl. 14:02
sjæse kona, 12%!! finnst samt gaman að heyra að þetta sé virkilega hægt með hárréttu mataræði (þ.e. að maður þurfi aktúallí ekki að hætta að borða til að komast í svona lága prósentu)..heill þér dugnaðarforkur! :D
Magga (IP-tala skráð) 9.7.2010 kl. 14:33
Já nákvæmlega Magga. Gaman að vita að maður getur þetta! Sem er snilld!
Þetta er vinna, en um leið og maður er kominn í gírinn er þetta ekki málið. Samt ekki sniðugt að vera að skera svona í langan tíma, ætla að taka mér sumarið í smá tilbreytingu og fara svo aftur af stað í vetur. Kannski ekki jafn skart - jah.. við sjáum til
Elín Helga Egilsdóttir, 9.7.2010 kl. 14:42
Glæislegur árangur :) en já 17-20% er fín % fyrir konur ekki satt?
Er reyndar sjálf mjög lág og hef verið lengi án þess að vera að keppa að einhverju. Fór úr 12% í 10% feb-apríl en veit ekki hvað ég er núna. Líklega alltof lág samt :) en borðaði rosalega vel á þessum tíma en var ströng varðandi nammidaga sem voru bara 1x í viku, var aldrei svöng og oftast of södd :)´
en já takk fyrir að deila þessu með mér og hinum gúbbunum sem fylgjumst með þér:)
Elísa (IP-tala skráð) 9.7.2010 kl. 15:07
Hef amk heyrt að það sé ekki ráðlegt fyrir kvenmanskropp að vera mikið lægri en 15%.
En sem betur fer er enginn eins - það sem hentar A, hentar kannski ekki B. Svo fer það líka svolítið eftir vöðvamassa. Þú getur verið 20% og 60 kg eða 12% og 60 kg. Ég er t.d. jafn þung núna og ég var þegar ég var 12%
Ahh... matur er bara gleði!
Elín Helga Egilsdóttir, 9.7.2010 kl. 15:38
....hahahaha alltaf þegar þú setur svona spurningu efst eins og "....hnýta daginn?"...
þá "heyri" ég það eins og í myndinni Anchorman.....
"I´m Ron Burgundy??? Damn it!! who typed a question mark on the telepromtor? " http://www.youtube.com/watch?v=0AUvtLZQyDE&feature=related
hihi margt skrítið í kýrhausnum
Hulda (IP-tala skráð) 10.7.2010 kl. 11:01
Haahaha.. ohh.. snilld!
Elín Helga Egilsdóttir, 11.7.2010 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.