31.3.2010 | 13:43
Korter í páska
Þrjátíu og fimm í sumarið!
Held ég takið því rólega um páskana. Borði góðan mat, slappi af og horfi sem minnst á tölvuskjá! Kannski ég hendi inn einni og einni færslu, hver veit. Ætli ég endi ekki á því að blogga um hverja örðu sem inn fyrir mínar varir fer! Ætla þó að reyna að hemja mig - hvíld og meiri hvíld.
Jarðaber eru svo falleg og fín! Get ekki dásamað þau nóg!
Áferð, bragð, útlit - guuullfalleg greyin.
Síðustu járnrífingar fyrir páska á eftir. Annars fara súkkulaðidagarnir allir í hot yoga og jú, lappamisþyrmingar á laugardaginn.
Fyrir utan það - elsku bestu - hvíld!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkur: Hádegismatur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:22 | Facebook
Athugasemdir
Algerlega elska hvernig þú horfir á mat! Áferð, útlit, bragð - allt tekið með í reikninginn. Ástríðan skín í gegn...
Virkilega gaman að lesa bloggið þitt. Takk fyrir! Skyldulesning á hverjum degi
Logi (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 15:03
Gleðilega páska og njóttu frísins
Hulda (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 18:55
Þakka ykkur bæði tvö
Elín Helga Egilsdóttir, 2.4.2010 kl. 17:45
...jú og sömuleiðis Hulda mín!
Elín Helga Egilsdóttir, 2.4.2010 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.