Hvíl í friði Beyglur

Grauturinn í morgun var óvenju góður! Eggjó með blábó - sami klassíski en í þetta skiptið lét ég dýrið sitja í rúman klukkutíma í plastboxinu sínu áður en ég beit í hann. Hann varð eins og brauð - kaka - eitthvað stórkostlegt! Fullkomin áferð fyrir mig, það verður bara að segjast!

Eggjó með blábó

Sjáið bara - það væri hægt að skera úr honum sneið!

Eggjó með blábó

Blóðbaðið samt við sig. Þetta er ekki girnilegt gums, það verður bara að segjast - næstum eins og blóðmör! Ohh, hvað ég væri til í blóðmör núna!

Blóðmör eða grautur?

Booooo... bara einn biti eftir!

Ohhh búið

Annars gáfu Beyglurnar mínar upp öndina fyrir nokkru síðan. Komnar langt framyfir síðasta söludag. Ég hef þó notað druslurnar óspart eftir andlátið, og ekkert skammast mín fyrir það, en nú er nóg komið! Þær hafa þjónað átvaglinu vel og nú er komið að leiðarlokum!

Litlu beyglurnar mínar

Dáið 

 

 

 

 

 

Auka gat fyrir þumalinnPiggabooo 

 

 

 

 

 

 

Getið þið ímyndað ykkur hvernig aumingjans krumlurnar litu út ef ekki værir fyrir hanska? Nem ég sé með einhverja prinsessuputta! Herre gud!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú ert nú meiri kjúllinn.. hanksar.. *hruff* öðvitað er það bara sigg á lófum all the vei maður.. það er alvöru

Heba Maren (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 12:18

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Ég hlýt að vera með vott af prinsessugeni! Ótrúlegt en satt! Siggið skilar sér þó mætavel í gegnum hanskapíslin, það er bara skinnið sem æpir og veinar undan álaginu!

Best að kippa þessu í lag! Þurrka mér um hendur með sandpappír éðanaf!

Elín Helga Egilsdóttir, 9.2.2010 kl. 12:25

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Alvöru lyftingamenn eru hanskalausir með sigg í lófunum... jafnast ekkert á við ískalt járnið upp við nakið hörundið.

Ragnhildur Þórðardóttir, 11.2.2010 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband