Færsluflokkur: Heilsa

S.O.S

Neyðarástand í Gúmmulaðihellinum!!! Eggjahvíturnar eru búnar! Shit... afsakið orðbragðið! Ég tók mjög dramatíska dýfu á hnén og æpti reiðilega í átt að loftinu "Hvííí?? HVÍÍÍÍ?". Ekki ósvipað þessum:

Eggjahvíturnar búnar

En ég áttaði mig sem betur fer á því, áður en bölv og ragn tók yfir, að Scitec-ið mitt beið með eftirvæntingu upp í skáp. Krísunni aflýst, ofurpróteinið aðstoðaði mig í að útbúa súkkulaðihafragums með bláberjum í staðinn og ég umturnaðist ekki í She Hulk! Guði sé lof fyrir það...

Var gumsið gott? Reddaði það eggjahvítuleysinu og dramatíkinni sem því fylgdi?

Scitec, hafrar og frosin bláber

Ójá... já, þetta var bara snilldin einar!

Svo er ég að ofnbaka kjúlla með grænmeti í þessum töluðu orðum. Rósmarín, salvía, hvítlaukur... nohm. Lyktin hérna inni er önaðsleg, ég segi það satt. Ofnbakað fiðurfé er eintóm gleði svo ég tali nú ekki um grænmetið sem fylgir fiestunni.

Farin að gefa krumma smá bita í gogginn - álfahóllinn minn, hérna fyrir utan, er stútfullur af krumma!


Loksins segir hungrið til sín

Haldið þið að kvendið hafi ekki gleymt að birta færsluna í morgun. Ég skrifaði þetta samviskusamlega eftir morgunmatinn og kem að blogginu tómu um kvöldið. Betra seint en aldrei býst ég við? 

Ég er orðin svöng aftur.... loksins. Eftir átið um jólin var ég hrædd um að verða aldrei aftur svöng en til allrar heilagrar hamingju og gleði tók maginn við sér í morgun. Þvílík óhemja í áti! Ojbara! Svo tekur annað eins við ekki á morgun heldur hinn! Ætli ég éti ekki á mig svarthol í þetta skiptið!

Þið megið geta einusinni hvað ég fékk mér í morgunmat. Joyful

Blámann búinn

Blámann!

Lord of the Rings maraþon er hér með hafið. Ein mynd á dag fram að áramótum, jafnvel tvær 31.des. Við sjá um til!

Annars, úr því þessi skrif mæta svona seint á svæðið og til að játa allar mínar "syndir" fyrir almenningi, þá hef ég gúmslað ofan í mig kjúlla, epli, kartöflum og nautakjöti í dag ásamt hnetusmjöri. Dásamlegt alveghreint. Sálin sátt, skrokkurinn kátur, brennsla yfirstaðin og lyftingum lokið. Fullkominn dagur að kveldi kominn. Ahh... ljúfa líf.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband