26.2.2010 | 16:06
Muuu
Vinnan stendur fyrir sínu.
Annasamir dagar að baki í bili. Ætla að smella í bakaðar Hafra- og bláberjastangir um helgina. Jebb jebb. Eitthvað sem hægt væri að borða í staðinn fyrir t.d. graut á morgnana. Sé alveg fyrir mér hvað ég ætla að gera - vona bara að það komi til með að smakkast vel.
Fyrsta uppskrift á nýju ári. Nú fara hjólin vonandi að snúast að nýju.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.2.2010 | 13:20
Góðir dagar
Ágætis hádegismatur.
Túnó, salt, pipar, grænmeti og smá pönnusteiktur laukur.
Og það er allt sem ég hef um þetta að segja!
Spennandi... ekki satt?
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
23.2.2010 | 11:57
Súkkulaði og sveppir
Kjúllinn var heill heilsu eftir morgunfrostið. Hann var líka étinn upp til agna fyrir 15 mínútum síðan. Upp til agna ásamt spínati, radísum, gúrku, papriku, ómynduðum furu- og pecanhnetum og smá slettu af gúllas-súkkulaði-sveppagumsi sem boðið var upp á í vinnunni.
Ég bara varð að smakka. Ef það inniheldur súkkulaði... þá þarf... að smakka!
Vinnumatur dagsins samanstóð sumsé af dökku súkkulaði, sveppum og próteini í formi nautakjöts. Bitinn sem ég tók var ægilega góður og girnó og ég kem án efa til með að útbúa þetta einhvern daginn. Uppskrift úr bókinni "Súkkulaðiást", ójá, ég hana að sjálfsögðu á lager heima.
Súkkulaði og kjöt - það er barasta gleði. Engar áhyggjur þó - ef ég hefði ekki vitað að það væri súkkulaði í þessu þá hefði ég aldrei greint muninn.
Sem þýðir einfaldega að ef/þegar ég skelli í þennan ágæta rétt - þá nota ég fjórfalt súkkulaðimagn.. og líklegast Snickers!
*ógeðismælirinn springur*
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2010 | 09:36
Nú er frost á Fróni...
...frýs í boxum gums!
Bjó mér til eggjó með vanilló/kanilló í gær. Bætti út í dýrðina Amaretto dropum, smá salti og skellti hamingjunni inn í ísskáp yfir nóttina. Passaði að hafa grautinn þó í "þynnri" kanntinum því hann stífnar svolítið vel upp í ísskápnum. Í morgun bætti ég berjagleðinni við, blá- og hindber. Ohmygod! Þennan plastboxagraut greip ég svo með mér út og geymdi í bílnum á meðan stigvélin og hlaupabrettið fengu að finna fyrir því.
Eftir brennsluna hljóp ég hraðar en ljósið út í bíl af því að:
1. það var -11 stiga frost og mér þykir afskaplega vænt um nefið á mér og fingurna!
2. ég vissi að grauturinn minn beið þar í eirðarleysi, bíðandi eftir því að láta éta sig. Þvílík örglög!
Grautargleðin var hinsvegar ekki hömsuð í bílnum sökum græðgi, ótrúlegt en satt. Þó svo græðgin eigi að sjálfsögðu stóran þátt í dagegu áti í Ellulífi. Nei, ég átti að mæta á námskeið að kenna klukkan 08:00 og gat ekki fyrir mitt litla ímyndað mér að bíða með morgunmatinn til klukkan .. jah.. núna. Ég væri hið minnsta ekki til í að sitja námskeið með sársvöngu átvaglinu, svo mikið er víst.
Þegar blessað grautarboxið var opnað voru aumingjans berin enn frosin og grauturinn sjálfur frosinn í kanntana. Eins og þið sjáið mjög vel á þessari mynd...
...og þessari! Mjög skýrt og skilmerkilegt frostbitið í grautnum ekki satt?
Hann var nú samt frosinn blessaður en það kom ekki að sök. Yfirleitt, á þessum tímapunkti, hafa berin þiðnað, sprungið og leikið yfir grautinn - það var enn hrím á þeim í átgleðinni sem átti sér stað kl. 07:45. Svolítið fegin að hafa ekki verið nema 40 mín í ræktinni í dag. Ég hefði þurft að éta grautinn eins og frostpinna og ekki náð að hræra, blanda og gúmsla saman herlegheitunum! Mikill skaði sem það hefði orðið!
En mikið helv... var þessi ógeðslega vel heppnaður! Ojbara! Fór í hálfgerða fýlu þegar ég átti einn bita eftir. Áferðin el perfecto, ég segi það satt. Líka gott að hafa berin enn svolítið frosin.
Kaldur en góður dagur í vændum fína fólkið mitt. Ég sé ykkur kannski í hádeginu - ef kjúllinn sem ég tók með mér er ekki gaddfreðinn og hundfúll eftir morgunbílafrostið!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.2.2010 | 10:13
Skyrgrautur með vínberjum og múslí
Ekki vonda grimma Skyr.is onei... hreint, gvöðdómlegt Kea! Þetta hefði reyndar orðið fullkominn ofurgrautur hefði ég haft bláberin með mér í vinnuna. Skyr og bláber eru ekkert nema hamingja og gleði. Það verður bara að segjast.
Ég elska líka hvernig grauturinn verður þegar Skyrinu, nú eða AB-mjólk, er blandað saman við. Verður hálfpartinn eins og brauð eða brauðbúðingur. Alveg eitthvað fyrir mig og áferðaperrann hið innra!
Með aðstoð frá smá vinnu kanil og vinnu salti, best að tileinka vinnunni það sem hún blessuð leggur til, varð til sérdeilis ágætur vinnugrautur! Soðnum graut blandað saman við skyrið beint!
Sérdeilis ágætur mín kæru!
Æfing á eftir, bakið grætur, brjóstið emjar! Hlakka mikið til beyglunnar sem ég graðga svo í andlitið á mér um sex leitið! Búðingur og beygla, gerist varla betra eftir mikil átök.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.2.2010 | 00:33
Aftur til fortíðar
Jah.. fortíðar og fortíðar. Aftur til þarsíðasta fimmtudags! Ég steingleymdi að setja færsluna inn, synd og skömm ungfrú Elín! Synd og skömm!!
Hittumst nokkrar skvísur úr vinnunni og gerðum okkur gleðilegan og hamingjusaman dag. Þetta var svaðaleg veisla og ekkert nema dásemdin einar að smjatta á. Inger stóð sig eins og hetja í matarmálum og galdraði fram fjórrétta ofurmáltíð. Risarækjur, humar, kjúlli og fiskibollur.
Minn diskur þennan örlagaríka átvaglsdag innihélt eftirfarandi.
Ég sá um eftirréttinn! Jebb - þið vitið það elskurnar. Eplakakan getur bara ekki klikkað!
Með henni var svo ómyndaður ís og... jú, meiri karamellusósa!
Takk kærlega fyrir mig mínar kæru! Þetta var ekkert nema stórkostlega ofurgott og skemmtilegt!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.2.2010 | 00:02
Vitið þið hvað ég er að borða núna?
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.2.2010 | 23:44
Sushi a la Jens
Skrapp í heimsókn, mat og með'í til Ernunnar og Jensa. Sá litla kút í öllu sínu veldi... jah, litla kút! Ekki svo mjög lítill, eitt stykki tönn farin að láta bera á sér og allt. Hann er svo yndislega sætur og fínn!
Annars buðu þau upp á eðalfínt Sushi sem Jens svo snilldarlega lagaði! Mikið... mikið gott!
Takk fyrir að vera til bæði tvö! Takk fyrir allt - þið eruð best
Ómetanlegt að "eiga" svona frábært fólk!!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.2.2010 | 13:14
Frönsk goulash súpa
Hef ég haft orð á því nýlega hversu mikið ég elska mötuneytið og eldhús-skvísurnar í vinnunni minni?
Alltaf ferskt, alltaf gott. Get svo svarið það. Ég fékk mér salat og hvítur - já ég veit, er alveg að fara hamförum í hvítuáti en það fer að líða undir lok. Fékk mér líka smá goulash súpu. (ég elska að segja þetta... goula-shhhh). Franska gúllas súpu meira að segja. Kláraði reyndar ekki diskinn, vildi bara smakkið.
Holymolyness hvað hún var svakalega góð! Góðar súpur eru ekkert nema hamingja og gleði. Möndlurnar mínar fengu að fylgja með í þessari máltíð sem eftirréttur. Crunch og kram - gerir átvaglið svo hamingjusamt.
Held ég fái mér fisk og sæta fyrir æfingu í dag. Held það barasta sveimérþá!
Ég er ástfangin af þessu veðri!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.2.2010 | 09:56
Alltaf að hræra saman
Ég er ein af þeim! Viðurkennt, sýnt og sannað! Ég gæti gúmslað saman allskonar mat, hrært í graut og líkað vel - mörgum áhorfandanum til mikils ama og ógleði í hjarta.
Skyr.is. Ég hef rætt þetta mál mín kæru og fer ekki nánar út í það en mikið assgoti þykir mér þetta vond afurð. Væmnara verður það varla. Hreint Kea er svo langsamlega best en þar sem ég hef ekki úr Kea að moða varð Skyr.is fyrir morgunmatsvalinu.
Ofan í skál ásamt graut og kanil.
Hrært saman.
Skreytt.
Þetta var barasta ágætt. Slapp þó svo væmnisbrgaðið hafi öskrað á mig allan tímann.
Grauturinn gerir kraftaverk. Ég segi það satt.
Njótið dagsins fína fólkið mitt.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)