Kökur, eggjakökur og fiðurfé

Er aftur komin með eggjakökuæði. Það er bara eitthvað við þær blessaðar sem ég fíla alveg í blússandi botn.

Einfaldari verða þær nú varla en þessi. Laukur svissaður upp úr smá olíu. Eggjahvítum og einu eggi hrært saman og hellt yfir dýrðina. Smá ostur og krydd á milli - brjóta saman, strá með steinselju og hafa sinnep hresst á kanntinum!

Svissaður laukur og eggjahvítukaka

Svo fín á litin

Lítur næstum því út eins og pizzabotn! Myndi án efa virka ágætlega sem slíkur!

Sjáið svo hvað laukurinn kemur skemmtilega út - býr til hringlaga mynstur í kökuna.

Brotin saman

Krumpa

Ógvöð, ég gleymdi að tómatsósa dýrið! Skömm Elín Helga... skömm! Reddaði því á síðustu tveimur bitunum!

Svissaður laukur og eggjakaka

Le tomat

Oh nei!

Bara einn eftir

Neiiiiiiiiiiii! 

Búúúið

Svo það komi annars skýrt og skilmerkilega fram þá var þessi annars Gvendsamlega eggjakaka hádegismaturinn minn! Betra seint en aldrei segir máltækið - eftir 30 mínútur er ég að fara að gúlla í mig kjúlla!

Svo sannarlega dagur kjúklingsins og öllu sem þeirri dýrategund tengist!

Andlegur og óandlegur undirbúningur hafinn fyrir Ástralíuför. Best að byrja á því að fjárfesta í bókum og teiknigræjum í þessari viku. Sný sólarhringnum við í næstu viku og bæti tónlist, í og með, vel og vandlega inn á ipodinn fram á síðustu mínútu!

... ha.. sagið einhver að ég þyrfti að pakka?

Flugvallabið og flugvélahangs - here I come!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ó eggjakökur, mín eina og sanna ást. Ég er orðin sérfræðingur í þeim þó ég segi sjálf frá :) Rosa gott að hella blöndunni yfir alls konar grænmeti, allskonar krydd og svo henda pönnunni í heilu lagi inn í ofn, þá bakast hún báðum megin :)

Hafdís (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 19:06

2 identicon

Myndirnar segja ad ekki sé haegt ad gera thetta betur en thú hefur gert.  Vá..thetta lítur sko vel út...perfect!.  Eins og beint úr vandadri uppskriftabók.

Hungradur (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 19:21

3 identicon

Hafdís...thad sem ég geri, t.d. thegar ég er ad steikja egg á pönnu, til thess ad losna vid hráu slepjuna ofan á egginu thá einfaldlega skelli ég loki á pönnuna.  Thá er ótharfi ad snúa egginu á pönnunni thví eggid lagast thá einnig á upphlidinni.

Hungradur (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 19:28

4 identicon

Elín Helga....ég maeli med ad thú takir med hljódbók.  Gott fyrir thig ad geta hlustad á góda bók í flugvélunum afslöppud med lokud augun.

Hungradur (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 20:01

5 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Hafdís: Ohh já, þær eru svo góðar! Ég reyndar á ekki pönnu sem má stinga inn í ofn - þyrfti að redda mér einni slíkri!

Hungraður: Ekki slæm hugmynd!! Held ég nýti mér þetta eðalráð barasta! Bestu þakkir fyrir

Elín Helga Egilsdóttir, 12.4.2010 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband