Avocado er yndislegt

Ég elska avocado. Smjörkennt og frábærlega fínt, sérstaklega þegar það er ákkúrat rétt þroskað! Nota það stundum í staðinn fyrir smjer á brauð. Mmm! Stóð við það sem ég sagði í gær og fékk mér avocado og hakkgums.

Avocado og hakkgums

Steikti hakk á pönnu og kryddaði vel með öllu því sem ég fann... næstum því öllu, að auki við smá dijon og hot sauce. Hellti svo hakki á disk, setti salsasósu þar yfir og loks avocadomauk með smá rauðlauk. Lék sama leik að nýju með hakki, salsa, avocado, lauk og loks toppaði ég fjallið mitt með smá auka salsa.

Avocado og hakkgums

Æji, þetta var svo gott. Einfalt, fljótlegt og kryddað hakkið með smjörkenndu avocadoinu var fullkomið! Algerlega fullkomið. Hefði reyndar orðið fullkomið++ ef ég hefði átt tómata og smá hvítlauk - en það gerði ekkert til.

Avocado og hakkgums

Þetta var gott gums og gleðilegt fjall!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já ég elska líka avocado. Svo.. rétt eitthvað. Actually mjög girnilegt hakkgums hjá þér. Very well done.

Erna (IP-tala skráð) 4.11.2009 kl. 09:42

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Þetta var eðalgums. Hefði reyndar ekki skemmt fyrir að vefja þessu inn í tortillu eða kálblað! En bragðið var eðalfínt.

Elín Helga Egilsdóttir, 4.11.2009 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband