Alt muligt eggjakökur...

...standa vel fyrir sínu! Allir hafa smakkað eina slíka.

Þið þekkið þetta... fullt af afgangs grænmeti í ísskápnum sem þarf að nota áður en eitthvað hræðilegt gerist. Yfirleitt, þegar ég er með hrúgu af afgangs grænmeti, þá bý ég mér til eggjaköku. Ég elska allra handa eggjakökur-, gums-, hræru... hvað þið viljið kalla það. Fullkominn hádegis-/kvöldmatur þegar ekkert annað er til. Bragðgott, einfalt, hollt og gott!

Alt muligt eggjagums með sojafileti

Ég fann inn í ísskáp skallot-, hvít- og rauðlauk, sellerí, sveppi, sæta kartöflu, papriku og brokkolí. Steikti sveppi og lauk á pönnu þangað til meyrt, bætti þá restinni af hráefninu við og steikti þangað til kartaflan var orðin al-dente. Krydda eftir smekk - ég notaði smá chilli, hvítlauk og engifer. Hrærði þá saman 3 eggjahvítur með mjólkurdreitli og hellti yfir. Þessu leyfði ég að malla þangað til botninn varð crispy og bjútifúl og eggjahvítan steikt í gegn. Renndi af pönnu og skutlaði smá hot sauce yfir! Mmhmm!

Alt muligt eggjagums með sojafileti

Með þessu fékk ég mér soja filet sem ég keypti um daginn og smá kotasælu.

Alt muligt eggjakaka, laukur, sæt kartafla, brokkolí, paprika

Engin stóreldamennska í gangi en glæsilega fín máltíð og ferlega flott á litinn!

Dæmi um annað alt muligt ofurgums!

Eggjahvítueggjakaka með sætum, lauk, blómkáli, gulrótum, papriku, tómat og smá osti

Eggjahvítukaka með blómkáli, brokkolí, gulrótum og smá osti

Allir út að njóta síðustu geislanna!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband