Ahhh, tabatahhhh!

Eðaltími í gær.

Mikið sem ég elska að svitna almennilega.

Það að fara í sturtu (sem er alls ekki svo óalgengt) og eiga erfitt með að lyfta höndum til að þvo sér um hárið er ágætis áminning um góða æfingu.

"Góða"... æfingu!

Sökum fótaveins sleppti ég fyrirhugaðri "einmitt Elín" æfingu gærkveldsins og tók hana í morgun, að auki við nokkrar vel valdar extra miðjuæfingar. Ahhhh.

Gúllaði ofurhafra fyrir æfingu í dag og svolgraði hálfpartinn próteinsamloku eftirá. Gúlla og svolgra eru ágætis átleiðir þó þær séu hvorki æskilegar né sjarmerandi. En við spáum ekki í svoleiðis pjatti þegar átguðinn kallar! Gaphúsið opnað á gátt og flestallt sem á vegi verður hverfur. Skósólar eru sérlega leiðinlegir viðureignar en ég læt mig hafa það að naga þá í sundur.

Sérstaklega ef ég strái á þá kanil!

En til að víkja sögunni aftur að höfrunum sem ég stútaði í morgun!

STEEL CUT OATS FÓLKIÐ MITT! LOOOOKSINS!

Steel Cut Oats

Búin að vea að lesa um þessa snúða í langan, langan tíma en aldrei fundið þetta hér. Fann svo í Kosti. Þetta eru í raun hafrarnir áður en þeir eru pressaðir. Tekur aðeins lengri tíma að elda þá, 20 mín eða svo á hellu (fer eftir því hversu þykka og chewy þú vilt þá), en svooo mikið þess virði strumparnir mínir.

Steel Cut Oats

Næstum tilbúnir!

Ómægooood! Tökum einn trylltan Elvis í einskæru fagnaðarmóki.

*Ma ha ha... "hné inn"*

Steel Cut Oats

Vitið þið hvað er gaman... stórskemmtilegt jafnvel, að þurfa í raun og veru að leggja örlítinn metnað í að tyggja hafrana sína? Gott fólk!! Nýr hafragrautarheimur á Íslandi... í Ellulandi! Þetta er draumur fyrir áferðaperrann. Draumur segi ég, og skrifa, með áfergju og smá frekju! Svona af þvi að það er sumardagurinn fyrsti og rigning. 

Kostur er að gera góða hluti mín kæru. Þeir eru með risastand af "Bob's Redmill" gógæti. Keypti meðal annars Chiafræin þarna að auki við "10 Grain hot cereal", hveitikím og Cracked Wheat. 

Úhhh hvað ég sé mikið af skemmtilegum grautum á næstu dögum, vikum... mánuðum.

Annars er hún Dossan mín, eðaæfrænka og snillingur með meiru, svo mikil... jah... snillingur! Eins og ég er grautaróð þá er hún skreytiofuróð og gerir það svo meistaralega vel! Fyrir utan þá staðreynd að vera lærður blómaskreytir, þá hefur hún svo geypilega næmt auga fyrir öllu punteríi og fallegheitum heimavið.

http://dossag.blogspot.com/

Enda er hún alltaf kölluð til þegar Hellirinn þarf makeover. Sem er óumflýjanleg staðreynd í mjög svo náinni framtíð.

Dossa. Hvað segirðu? Matur? Grautur? Pönnsur? Og í gvöðanna bænum ekki minnast á hversu mikinn ís ég skulda þér... eða sykurpúðasúkkulaðisósu!

Eigið ljúfan sumardaginn fyrsta, ljúfa páska og gómsæt páskaegg!

Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt sumar minn kæri gleðigjafi

Hulda (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 16:24

2 identicon

Ég hef í töluverðan tíma verið húkkt á bloggunum ykkar beggja - gat verið að þið væruð frænkur! Snillingar! ;)

Hanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 17:45

3 identicon

Smellti á prótein samloku linkinn þinn og vá hvað ég var sæl þegar ég sá að ég er ekki sú eina í heiminum sem kallar þetta poppkex :D !! Hahaha finnst svo skrítið að venja mig á að segja "hrískaka" ! En þessir nýju hafrar þinir...ætli örbylgjuofninn geti ekki bugað þá ? Og..hvað finnst þér um að örbylgjur "skemmi næringargildi matarins" ? ;/

Tanja (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 18:32

4 identicon

Er búin að vera að fylgjast með Dossu bloggi, sá þar mynd, og hugsaði með mér að hún væri pottþétt eitthvað skyld þér, annaðhvort varst þetta þú á myndinni eða e-h skyldur þér :)

Rut R. (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 22:45

5 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Hulda: Sumar og páska í hausinn á þér mín kæra :)

Hanna: Hún er eitt eðalkvendi hún frænkan mín :)

Tanja: Jú, held að örbylgjuofninn ætti að geta unnið á þeim, þarf að tilraunast með það.

Hvað örbylgjuofna og örbylgjur varðar get ég illa tjáð mig um eða hvort einhver næringarefni fari út í veður og vind. En það er hægt að útbúa mjög svo fínan og frábæran hafragraut í öbbanum... það eitt veit ég :)

Rut R: Hehe, Ísland litla Ísland :)

Elín Helga Egilsdóttir, 22.4.2011 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband