16.12.2009 | 19:11
Mjúkar piparkökur með hvítum súkkulaði- og butterscotch bitum
Svava systir varð rangeygð þegar hún smakkaði þessar. Mjúkar piparkökur, næsti bær við deig - svo ef þú er ekki mjúkkökumanneskja þá skaltu alfarið sleppa þessum elskum. Þær eru einnig sætari en allt sætt en það vinnur svaðalega vel með öllu kryddinu. Hinsvegar, ef þú ert ekki sætumanneskja heldur, þá gætu þessar orðið svaðalega væmnar fyrir þig. Kemur samt á óvart hvað butterscotch bitarnir passa vel við. Ég myndi jafnvel hætta mér út í það að auka kryddskammtinn í næstu tilraun. Mér finnast þessar æði! Mhhmmm!
Mjúkar piparkökur með hvítum súkkulaði- og butterscotch bitum!
2 tsk matarsódi
2 tsk kanill
2 tsk mulinn engifer
1 tsk negull
1/4 tsk allrahanda
1/2 tsk salt
1 bolli smjörlíki (225 gr.)
1 bolli púðursykur
1 stórt egg
1/3 bolli sýróp
1/2 poki Nestlé butterscotch bitar (170 gr. um það bil)
Hvítt súkkulaði eftir smekk. Ég held ég hafi notað 170 gr. af því líka.
Aðferð:
1. Hita ofn í 160 gráður
2. Blanda saman hveiti, matarsóda, kanil, engifer, negul og salti í lítilli skál.
3. Hræra saman smjör, egg, sykur og sýróp þangað til létt og ljóst. Hræra hveitiblöndunni saman við smjörið í skömmtum þangað til vel blandað. Hella þá súkkulaðibitum út í og hræra vel. Setja rúmlega msk. á pökunarpappír.
4. Baka í 10 mínútur eða þangað til kökurnar eru rétt gylltar. Kæla í 2 mínútur og færa svo yfir á grind til að kæla alveg.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bakstur - "óhollt", Svindl | Breytt 24.9.2010 kl. 11:53 | Facebook
Athugasemdir
Audvitad eiga piparkökur ad vera mjúkar (hef aldrei smakkad thaer mjúkar og svona puffadar og fínar). Ekki skemmir súkkuladid fyrir. Ég get ímyndad mér ad thetta séu thaer bestu piparkökur sem haegt er ad setja í sig. Snilldar hugmynd...nú vil ég smakka mjúkar pipakökur!
Hungradur (IP-tala skráð) 18.12.2009 kl. 10:07
Þær eru svaðalega fínar og skemmtilegar. Stökkar í kanntana og mjúkar í miðjunni. Oj lojk them!
Elín Helga Egilsdóttir, 18.12.2009 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.