25.10.2009 | 19:32
Stegepose og fuglinn dettur í sundur
Keypti mér stegepose í Bónus um daginn að ráðum móður minnar. Ekkert uppvask, ekkert subb. Kjúllinn í pokann, inn í ofn og ómæ, ómæ! Mýkri fugl hef ég ekki smakkað í langan tíma.
Aðfarirnar voru gullfallegar og glæsilegar.
Pokinn gerður klár.
Fyrrverandi fiðurféð kryddað og komið fyrir í posanum.
Lesum leiðbeiningar, bara til að vera viss...
...og læsum svo dýrið rækilega vel inni.
Maður á ekki að leika sér að matnum, ég veit. En hversu mörg tækifæri fær maður til að sveifla kjúlla um í poka bara sisona? ÉG VARÐ! Get reyndar ekki sagt að ég sé betri manneskja fyrir vikið - en ég hef amk sögu að segja OG þetta er líklegast eina skiptið sem hænan fær að fljúga!
Klippa gat á eitt posahornið svo gufan verði ekki brjáluð.
Kjúllinn settur í fat til málamynda og inn í 200 gráðu heitan ofn í 1,5 tíma.
Út úr ofninum og mjög krípí. Eins og atriði úr hryllingsmynd - líkamspartur í poka!
Posinn opnaður og lærin hrundu svo gott sem af aumingjans kjúllanum. Duttu bókstaflega af beininu - jah, eins og með allan kjúlla sem eldaður er í steik svosem.
Einusinni var þetta kjúklingur. Nú er þetta kjúklingahrúga og ekkert uppvask!
Næst kem ég til með að fylla posann af grænmeti. Jafnvel elda í þessu læri, eitthvað slíkt. Get næstum því ekki beðið. Mæli eindregið með þessari snilld - eitthvað sem allir verða að prófa.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkur: Kjúklingur/Kalkúnn | Breytt 24.9.2010 kl. 10:50 | Facebook
Athugasemdir
Mamma veit best. Hvad eru margir pokar í kassanum? Thetta er eitthvad sem ég get hugsad mér. Annars nota ég emalérad fat med loki fyrir steikingar á kjöti í ofninum.
STEEEEGEEEEPOOOOOSE med sterkum dönskum hreim.
Hungradur (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 19:47
Muhahhahaha - mikið hló ég að myndinni með kjúllasveiflunni, major! Ættir samt að vera í nýju buxunum á henni
Dossa (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 20:36
Dossa: Nýju buxurnar komu rétt á eftir kjúllasveiflunni. Var komin í þær þegar kjúllinn sprakk í sundur! Annars eru þetta mjög osom gúmfey buxur - er í náttbol á stærð við tjald í stíl, sit upp í sófa með troðfullt fang af köttum og pikka þetta inn með tánum.... næstum því!
Hungraður: Það eru reyndar bara 2 pokar í hverjum pakka. En þetta kemur sér vel - ekkert nema æði að geta fleygt hratinu í ruslið og hreint fat.
Elín Helga Egilsdóttir, 25.10.2009 kl. 21:03
Hmmmm... Er þetta ný áætlun fyrir le Monstre á Thanksgiving!
Erna (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 09:46
Það er nefnilega spurning sko! Snú bringunum niður svo þær sjúgi í sig fetuna, snúa svo dýrinu við rétt í endannn svo fuglinn fái bjútifúl lit.
Elín Helga Egilsdóttir, 26.10.2009 kl. 10:17
Ja man..zetta er mergjað trikk. Lambalærið er nottla svo mjúkt úr þessu að maður tárast við tilhugsunina.
Spice it, bag it, cook it and eat it!
Le monstre magnifique á thanksgiving verður nú bara steikt í fargings Bónuspoka gulum...hehehe segi nú bara svona
mammagamla (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 13:15
Steikarpokarnir eru sko málið! Ég elda oft læri í þeim og það verður alveg gourmee! Næst á dagskrá er að prófa að elda kjúlla í þessu, get vel trúað að það sé sama góða útkoman:)
Annars skemmtileg síða hjá þér, þú er með alveg endalausan hugmyndabanka af sniðugum og hollum mat! Ég er t.d. voða einhæf í hafragrautnum en hef prófað margt frá þér sem hefur sennilega komið í veg fyrir að ég fái leið á honum:)
Ein ókunnug (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 20:21
Mmmmm þessir kjúklingapokar verða prófaðir í vikunni! En hvað ertu að elda kjúllann á miklum hita... og þá með eða án blásturs?
Steinunn (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 22:11
Ókunnug: Ég verð að prófa lærið næst! Virkilega gaman að heyra með grautarmallið og gleðilegt að þér líki vel
Steinunn: Já, mæli með posunum og enga uppvaskinu! Var reyndar með þetta dýr á 200 gráðu, og aðeins minna en 1,5 tíma (já, ég elda kjúllana mína alltaf í döðlur), mætti alveg vera á 180 gráðum í 60 - 70 mínútur án blásturs
Elín Helga Egilsdóttir, 27.10.2009 kl. 09:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.