Flórsykurnef

Stundum er gott að passa uppá að missa sig ekki í græðginni.

Bara stundum gott fólk, bara stundum... engann asa hérna.

Stundum gæti t.d. verið þegar:

  • átvaglið gleymir að anda
  • þú stendur þig að því að éta mat af öðrum disk en þínum eigin.... og eigandi disksins er enn að borða af honum
  • þú kemst að því að hafa borðað fimm kúfaða diska en manns bara eftir áti af tveimur
  • þú hefur borðað svo mikið að vélindað er fullt og þú átt erfitt með að kyngja
  • étið er með svo mikilli áfergju að flórsykurinn af berlínarbollunni sem þú troddaðir í andlitið á þér klínist á nefið, og stóran part af efri vör, án þess þú takir eftir því og nokkrum klukkustundum, búðarrölti, spjalli við fólk og almennu veseni síðar þá lítur þú í spegil

Flórsykurnef

Frábært!

Flórsykurnef

Svör við flórsykurnefi ef fólk spyr þig!

  1. "Pff... *augnrúll*, hann á að vera þarna"
  2. "Viltu smakka?"
  3. Urraðu
  4. Segðu "HA?", byrjaðu svo að hoppa um og dusta af andlitinu á þér og segðu svo "OMG... get it off.... GET IT OOOOFFFF!"
  5. "Bíddu... er hann ekki á augnlokunu eða enninu líka?"
  6. "Takk, ég er með mjög þurra húð!"
  7. Skelltu uppúr og hlæðu tryllingslega, með fanatísku ívafi, í 5 sekúndur og hættu svo snarlega.
  8. Gefðu viðkomandi "The evil eye", starðu í dágóða stund og segðu svo "Ég er í nýjum sokkum!".
  9. "Chuck Norris er alltaf með flórsykur á nefinu"
  10. "Ég trúi ekki á spegla"
  11. Hlauptu grátandi í burtu þegar þú ert spurð(ur)
  12. "Gætir þú þurrkað þetta af mér?"

Nú eða bara manna þig... kvenna þig upp og viðurkenna með stolti bakkelsisátið og sleikja útum!

Annars var umrædd orsakavalds-bolla stórgóð og skal étin með svipuðu móti næst þegar fjárfest verður í slíkri gersemi.

Flórsykurnef eru hið nýja svart.

Yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaha...... ég fékk svartar maskarakinnar við lestur þessarar færslu, takk

Vala Árnadóttir (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 13:12

2 identicon

ÉG VIIIISSI AÐ ÞAÐ VARST ÞÚ!!! :D:D

Ég var inná bensínstöðinni og sá þig með flórsykurnefið hahaha VÁ hvað ég hló mikið þegar ég sá þennan pistil. Ertu ekki að grínast.

Díses, þú ert svo mikill snillingur.

Drífa (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 13:14

3 identicon

mdr.. haha..

:)

lucien (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 13:30

4 identicon

fólk hefur pottþétt hugsað "kóknef"..... hahahahha....

Rut R. (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 14:09

5 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Vala: Hahh, gott að ná að gleðja einhvern :) Kætir mitt hjarta mjög.

Drífa: hehe, hefðir átt að heilsa. Þú hefðir kannski verið eina manneskjan í heiminum sem hefði aktúallí bent mér á græðgisummerkin!! :)

lucien: mdr?? The data mining strategy ? ;D

Rut R: Þá er best að svara "uppsetning á Trainspotting í þjóðleikhúsinu, fer með eitt hlutverkanna þar og er að komast í karakter"

Elín Helga Egilsdóttir, 9.6.2011 kl. 14:20

6 identicon

Hahahh ! Kann að meta svar númer sjö !

Tanja (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 16:10

7 identicon

hahahahahaha snillingur

Hulda (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 16:27

8 identicon

hahhaa... snilld!!! :)

Rut R. (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 21:01

9 identicon

hahahahaha - þetta gæti enginn nema þú !!! :)

Gunnhildur (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 21:16

10 identicon

haaahaha og ég afgreiddi þig í apótekinu.

Ég hefði látið þig vita, get svo svarið það, ég spáði bara ekkert í þessu fyrr en þú varst farin. Var svo ægilega spennt yfir því að sjá þig haha :)

konan í apótekinu (IP-tala skráð) 9.6.2011 kl. 23:16

11 identicon

Hahahahaha svoooo gott! :,)

Erna (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 09:47

12 identicon

Snillingur! :)  Getur alltaf kallað fram bros eða glott hjá manni.

  Selebspott mitt í dag var klárlega þú ;)   (iss piss ásdís rán og garðar, með tengdó) :)

Ásta (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 23:08

13 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Tanja: Númer 7 er el classico!

Apótekið: Bwaahaha... ekki að sykurnefið hafi komið að sök. Svoneredda fyrir okkur með risanefin ;)

Erna: Næst ætla ég að borða súkkulaðisnúð! ;D

Ásta: hahaha ouwww lol :)

Elín Helga Egilsdóttir, 13.6.2011 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband