16.5.2011 | 18:23
Póstergelsa júróvisjón helgardjell
Helgin í smámáli og myndum.
Ég náði að pirra mig á póstinum! Ekki að það sé þess virði að pirra sig yfir... ekki það að eitthvað, hvað svo sem það er, sé þess virði að pirra sig yfir? Í alvöru?
Lífið er of stutt fyrir tilgangslausa pirringa. EN ég pirraði mig samt og já, ég tuða yfir því núna.
Ykkur til ævarandi hamingju geri ég ráð fyrir! Afsakið fyrirfram...
...en þegar... maður pantar sér eitt stykki svona glæsilega fínan rauðan miða.
Þá vill maður ekki sjá póstkassann sinn gubbandi fréttablaði og Hagkaupsbæklingum! Onei
Það fær pirrarann hið innra til að froðufella af einskærri gremju og ónotalegheitum og einhverju sem er ekki æskilegt svona dags daglega!
BLAARGH GLAARRRGAAFLARGH!
HOKAYYY... þá er það búið!
Aafslappelsi, gott ét, gott fólk og ræktin tekin með trompi. Ahhh. Óskir um gott veður fóru bókstaflega út í... jah, veður og vind.
Veðrið var ágætt jú, en hitinn hefði mátt kyssa 15 gráður... eða hærra.
Mér hefði ekki mislíkað hærra!
Létum sjá okkur í bænum um helgina. Ótrúlegt afrek. Kolaportið fékk okkur í heimsókn þar sem ég keypti mér geypifín hjólagleraugu!
Núna er bara hjálmurinn og eitt stykki lás eftir... jah, og almennilegt hjól, en þett er ágætis byrjun.
Koló og kaffi í desert. Mikið sem ég öölska kaffihús sem láta svo gott sem einn súkkulaðidropa fylgja sopanum.
Ég fékk líka að borða rest af uppáhalds uppáhaldinu mínu.
Froða!
Kaffihúsalistaverkið sem vinkaði mér á veggnum var ánægjulegt með eindæmum.
Röltum 10 skref til hægri og viti menn.
Kræst!
Látum sjálfsagann fá lítið verkefni í dag. Ha. Hvernig væri það?
Nokkuð viss um að það hafi verið veðmálatíð hjá æðri máttarvöldum þennan daginn.
Eeeelíííín...... EEEEEELÍÍÍÍÍN.....
Fengum skrúðgöngu beint í æð.
Þar rákumst við á hana Rikke! Enn og aftur eitthvað sem gladdi mig óstjórnlega.
Ekkert nema gleðin einar að hitta á yndislegt fólk þegar maður býst enganveginn við því.
Við tók smárölt og smá-át!
Júróvisjón átt svo hug okkar allan að kveldi.
Nammihlaðborðið óx og dafnaði, jafnt og þétt frá 18:00 - 18:34. Eftir þann tíma óx það ekki nokkurn skapaðan hlut og var með öllu horfið um 21:00.
18:00
18:17
18:34
Salatskurður og almennt fjas ásamt eldhúspilli og beikonáti í bland við æpandi júróvisjónfólk.
Amma sankaði að sér öllu því áfengi sem hún fann og sat á því eins og ormum á gulli....
...OOOORMUR Á GULLI GAMLA GEIT!
Smágrísir þurfa líka að borða!
Kettir greinilega líka.
Amma stal áfenginu, Valdimar stal ábreiðu litla stubbs og var nokkuð kátur með þýfið.
Afi horfir miklum girndaraugum á teppið... vona ég!
Grillmeistarinn pabbúla flúði vettvang og sat nokkuð sæll undir sólhlífinni og klappaði grilinu endrum og eins.
Þrátt fyrir, að því er virtist, óstöðvandi úrhelli, breyttust þessar elskur...
...í þetta!
Og bara svo allir séu með það á glimrandi tandurhreinu! Þá er hjemmelavet laukchutney og sveppabeikonhræringur algerlega... algerlega, ómissandi hamborgaraþættir!
OG ÞETTA!
Að eilífu...
...amen!
AHHH hvað hamborgarar eru góðir borgarar! Þó sérstaklega jevróvisjónmömmborgarar!
Að auki við góðborgara, megafröllur og meðlæti þá voru tvær T-bone steikur murkaðar.
Í orðsins fyllstu murkingu.
Rjómi var samnefnari eftirréttanna sem ekki voru af verri sortinni.
Ooonei!
Khalúakrums og draumaterta. Það gerst varla betra... rjómi með rjóma og meiri rjóma ofan á rjóma?
Sunnudagurinn var tekinn í þarfa afvötnun. Hann innihélt meðal annars Saffrankjúlla, skyr og möndlur í tonnatali.
Núna ætlar ungfúin að hjóla í ræktarhús, svitna smá, hjóla til baka og nota restina af kvöldinu í afslöppun og notalegheit.
Yfir og ú!
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Þetta fjölpósts merki virkar bara fyrir þann fjölpóst sem Íslandspóstur dreifir, pósthúsið ehf er hins vegar dreifingar miðstöð fyrir m.a. fréttablaðið! (vill samt taka það fram að ég vinn ekki hjá ofantöldum fyrirtækjum) :D
Vill líka koma því á framfæri að ég gersamlega elska bloggið þitt!
Sigga Hulda (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 21:41
mmmmmmmm mig langar í hamborgara .... :)
Hulda (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 21:45
Sigga Hulda: Nooooo.... ég deyyyyy! Hvernig eiginlega í ósköpunum.. ég þarf að setja skírlífsbelti á póstkassann minn. Posthusid ehf býður ekki einusinni upp á afþökkun og nei takk *grát*
Hulda: Ohhh... teeeell me about it.
Elín Helga Egilsdóttir, 16.5.2011 kl. 22:32
Ég setti nú bara miða um að ég vildi ekki sjá þetta fréttablað o.fl. og það virkaði oftast ágætlega :)
EN að öðru alvarlegra:
MIG LANGAR Í MATINN YKKAR!!!!
Munda R. (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 22:35
Nákvæmlega það virðist vera erfitt að losna við þetta fréttablað nema með því að skrifa undurfagrann mjög áberandi miða á póstkassann þinn, eins smekklegt og það vill nú verða! Þú gætir þurft að hafa hann á nokkrum tungumálum þar sem blaðberarnir eru ekki alltaf lesandi á íslensku eða ensku!
Sigga Hulda (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 23:13
Ég fæ líka alltaf gleðistraum í hjartað ef það fylgir með súkkulaði eða piparkaka með kaffinu. Tekur mig alveg 5 min að komast yfir gleðina.....og verð alltaf ótrúlega leið þegar ég rugla saman sykurumbúðum og súkkulaðiumbúðum!
inam (IP-tala skráð) 17.5.2011 kl. 05:10
Nammi nammi namm namm á þessa hamorgara ! Hjemmelavet ?
Tanja (IP-tala skráð) 17.5.2011 kl. 15:16
Munda: Satt! Best að útbúa eitthvað fallegt og litríkt og sjá hvort blaðið hætti að fjölga sér í póstaranum mínum!
Og varðandi matinn, velbekomm!! Enítæm :)
Sigga Hulda: Ákkúart, fjölþjóðlegur miði! :)
Inam: Sama hér. Stundum ríf ég sykurmolann upp með svoddan áfergju að áfallið við að sjá ekkert súkkulaði verður ennú verra. Kaffidrama með meiru!
Tanja: Ójá, hjemmelavet extraordinaire... allt nema brauð og kál og einstaka hráefni sem tæki annars langan tíma að útbúa/rækta eins og beikon og sveppir ;)
Elín Helga Egilsdóttir, 17.5.2011 kl. 18:19
Viðhengi mitt bar út Fréttablaðið í smá tíma og þá fékk hann annað slagið þau fyrirmæli að hunsa þessa miða ..
En styð tillöguna um annan miða, á nokkrum tungumálum til að losna við blað og bæklinga
Ásta pásta (IP-tala skráð) 18.5.2011 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.