19.11.2010 | 19:55
Tímamót!
Enn ein tímamótin!
Ég leyfi ykkur að sjá um hvað átvaglið talar! Loksins gott fólk!
LOKSINS
Ein... dauða... upphífing! Kannski ekki sú fallegasta og besta... en hífopp engu að síður!
Fyrsta upphífuævintýrið mitt átti sér stað þetta árið, en lófarnir sneru að undirritaðri.
En nei - ekki núna... já takk nei og þverneitum eftir efninu!!!
Þetta gat ég ekki í sumar elsku bestu!
Gamli gráni þurfti að sjálfsögðu að sýna frumbanum (undirrituðum frumburði) hvað lifrarpylsa og lambakjöt fyrir þig gera!
Verður nú samt að segjast. Þrjú ár í 5 + 0 mín kæru og hann fer helvítis létt með þetta...
...ég er ekkert bitur!
Systir mín kær ákvað að spreyta sig líka og tók steikta beikonið á þetta!
Pabbi hvæsir, undirrituð hlær hæðnislega að beikoninu.
Vondar eru stórar systur.
Markmið útávið - koma beikoninu í eina upphífingu.
Markmið innávið - vinna Evil Jesus í uppífingum!
...
Ég næ honum þegar hann verður 75!
En þangað til... ein... dauð!
*gleðisprengjuhamingjutryllingur*
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Hugleiðingar, Ræktarstúss, Uppáhalds | Breytt s.d. kl. 20:39 | Facebook
Athugasemdir
Muhahaha...... frekar fyndið!
Svava er eins og kráka sem að flagsar utan í staur! Pabbi þinn obbalega perfectó eitthvað, með jingle tónlist undir og svo er eins og þú sért heavy loðin undir einari
dossan (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 20:45
Ég er að safna! Vinstri fóturinn er pínkulítið styttri svo ég neyðist til að jafna þyngdarmismuninn út einhvernveginn!
Elín Helga Egilsdóttir, 19.11.2010 kl. 21:10
Veiiiii kalla þig bara mjög góða.. til lukku :)
Stella (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 22:35
Very nice, very nice indeed :)
Fannar Karvel (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 08:05
Ohhhhhh öfund! Þetta er eitt af mínum markmiðum!
Veistu, þú ert mér svo mikil hvatning. Vil þakka þér fyrir að deila sjálfri þér svona með umheiminum. Það sem mér þykir best er að þú ert jú bara, þú sjálf. Enginn "fræðingur" og þú kljáist við hindranir á þinn hátt og alltaf síkát virðist vera.
Ég elska að lesa bloggið þitt og að fá að vera einn af áhorfendunum.
Til hamingju með þetta. Vona að ég verði "eins og þú" á komandi árum.
Dóra (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 10:13
RAKADUR HANDARKRIKI
ÓRAKADUR HANDARKRIKI
Hungradur (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 16:39
Jæks......er ekki viss um að myndin af órökuðum handarkrika Júlíu Róbertsdóttur eigi heima á þessu matarbloggi
Dossan (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 15:02
Stella: Woohooo
Karvelio: Núna bara að æfa þetta með víðara gripi!
Dóra: Jimundur minn... elsku besta. Þakka þér innilega fyrir. Mér er orða vant mín kæra - yndislegt að lesa svona Gangi þér stórkostlega vel og aftur, bestu þakkir fyrir mig.
Hungraður: Bwaahahahaha!
Dossa: Hvað er órakaður handakriki á milli vina! ;)
Elín Helga Egilsdóttir, 21.11.2010 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.