5.7.2010 | 13:43
Munið eftir tónlistinni!!
Ég var í miklu stuði í morgun! Tók rassatækið föstum tökum og spólaði svoleiðis að það ískraði í græjunni!
Ef þið púslið músíkinni saman við rétta skapið, og gerð af æfingu, getið þið garanterað að æfingin verður svaðaleg! Ekki það að ég þurfi að segja ykkur það - ég var bara að enduruppgötva iPod stemninguna og réttulagavalið -> verandi mín uppáhalds ofurlög.
Þvílík dásemd!
Þetta var ekkert nema hrænræktuð morgungleði. Ég átti í mestu erfiðleikum með að dansa ekki og dilla mér! Hér er brotabrot af hamingjunni sem dundi í eyrum átvaglsins!
Þetta gæti svo mögulega verið máltíð fyrir æfingu!
Gumsið gæti mögulega innihaldið eggjahvítur!
Ég gæti mögulega hafa bitið í kvekendið áður en ég pakkaði því inn.
Njótið dagsins
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Fyrir æfingu, Hugleiðingar | Breytt 24.9.2010 kl. 13:36 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er stuðtónlist. Rænessu!!
Lóa (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 15:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.