1.3.2010 | 13:56
Hvaða hrúga er þetta?
Ég tók mig til og útbjó hafrastangir um helgina. Hafra- og bláberjastangir. Tókst ekki betur til en svo að það sem líta átti út eins og stöng breyttist í óskilgreinda hrúgu af gumsi sem var ljótara á litinn en myglublettur á fituskán! Ágætlega bragðgott en ekki nánda nærri jafn gullfallegt og átvaglið hefði á kosið.
Þar af leiðandi koma engar myndir af krumpinu fyrr en fullkomnað er! Ég held ég viti hverju ég klikkaði á, kemur í ljós í næstu tilraun!
En svona til að halda í hefðir þá var þessi diskur gleyptur í hádeginu! Gullfallegafínn ekki satt?
Öreindarifnar gulrætur og paprika með túnfisk er ótrúleg hamingja! Blanda gumsinu saman og voila! Sérstaklega fiskurinn og paprikan. Stórskemmtilegt!
!KASJÚ! -> Guð blessi þig!
Gvöð hvað maður er nú kómískur svona á mánudegi!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Fiskur, Hádegismatur, Hnetur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:43 | Facebook
Athugasemdir
Muhaha, þú mikli komíker
dossan (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 14:34
bakaði Döðlu-banana-hörfræ brauð uppskriftina þína í gær.. jummí..rosa gott
Heba Maren (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 07:44
Dossa: Hohooo...
Heba Maren: Það brauð er númer eitt á uppáhaldslista yfir bananbrauð. Ööölska það!
Elín Helga Egilsdóttir, 4.3.2010 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.