Færsluflokkur: Hleðsludagur
28.1.2010 | 13:42
Séð og heyrt á hleðsludegi
Haldið þið ekki að átvaglið og hafragrautarnir hafi birst í Séð og heyrt í dag! Skemmtilegt nokk!
Hleðsludagur í dag! Kolvetni gleypt eins og enginn sé morgundagurinn! Risaskál af einum einföldum hömsuð í morgun. Hádegismatur samanstóð af kjúklinga baguette með hot sauce og grænmeti. Myndavélin mín kær missti vit og rænu áður en ég náði mynd af ofurlanglokunni fullunninni - en trúið mér elskurnar, hún var svaðaleg.
Tex mex súpan var góð en ég fékk mér bara smakk. Notaði pínkulítið af henni sem "sósu" á langlokukvikindið ásamt hot sauce og grænmeti. Kannski 1 - 2 msk.
Gott gott ét! Æfing á eftir. Fætur munu gráta og grettur taka völdin.
Annars er ég alveg að komast í "búum til eitthvað" nýtt gírinn eftir jólatörnina. Ég sé fyrir mér allskonar bökunardót og bakkelsi ásamt ofurgrautum og girnilegum kvöldmat hinumegin við hæðina.
Hvað sagði Tarzan þegar hann sá fílana koma yfir hæðina með sólgleraugu?
-Ekki neitt, hann þekkti þá ekki!
Já ég veit... þetta var stórkostlegur brandari!
Hleðsludagur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.11.2009 | 20:28
Hleðsludagur, taka tvö
Ég lærði mína lexíu síðasta laugardag - það er betra að hafa hleðsluna inn í miðri viku þar sem laugardagar eru þekktir sem "slepptu þér manneskja - éttu þangað til augun standa út úr höfðinu" hjá fleirum en mér! Þó svo "svindlið" hafi ekki verið stórt þá var það svo sannarlega bannað og fimmtudagar eru fullkomnir fyrir jóla-bökunar-nammiátvagl sem smámsaman er að jóla-áts-bugast. Þar sem fimmtudagur er jú fimmti dagurinn í vikunni og skv. mínu tímatali, vinnudagur, þá er aðeins erfiðara að hafa gúrmey stemmara í hleðslunni. En myndirnar láta ekki á sér standa - ég hafði það assgoti gott í dag!
Fyrir æfingu
Rjómakenndur bananagrautur með rúslum
Sami grautur og síðast, sömu hráefni, sama magn - önnur aðferð, önnur áferð.
Eggjahvítur örbylgjaðar þangað til stífar og hrærðar í spað. Hafrar settir í pott með tvöföldu magni af vatni, stöppuðum banana, vanilló og kanilló. Soðið upp, eggjahvítum bætt út í þegar þykkt á graut er að þínu skapi, hellt í skál og rúslum stráð yfir. Svoooo gott! Bananinn gerir grautinn ekki bara sætan, heldur að algerum rjómakenndum fluffypúða. Lovit. Sjáið t.d. muninn á þessum graut og síðasta hleðslugraut! Setti núverandi reyndar í ísskáp yfir nótt og í morgun var hann eins og karamella. Hefði verið geggjað að setja rommdropana út í þennan - hefði komið vel út.
Eftir æfingu
Stútfull skál af dísætu Kelloggs Special K með "Vanilla Ice" prótein búðin
Ice ice baby! Hrærði próteinið þykkt með vatni og klaka, hellti í skál plastbox og morgunkornið yfir. Eftir nokkra stund hrærði ég þessu þó öllu saman og borðaði eins og bragðaref. Svínvirkar og kornið gúffað hratt og örugglega.
Hádegismatur
Kínanúðlur með eggjahvítum og grænmeti
Sama og síðast. Ég stóðst ekki mátið! Þær voru.. eru bara of góðar. Nohm! Ég er með kínanúðluþráhyggju á háu stigi þessa stundina. Enn og aftur kom magnið mér á óvart og enn og aftur kom ég sjálfri mér á óvart með því að klára þetta allt!
Kaffi
Kjúklingapíta kramin í grilli
Ostur og deig klikkar aldrei! Hafði kjúklinginn í hunangsdijon/vinagrette og steinseljulegi í nótt. Hvað annað? Troddaði inn í pítabrauðið ásamt grænmeti, eplasneiðum, 9% osti og kramdi... kramdi frá mér allt vit! Samstarfsfólk góndi og glápti forviða þegar ég stóð við grillið hlæjandi tryllingslegum vondukallahlátri. Þið verðið svo að fyrirgefa mér myndirnar, litla fína myndavélin mín er að geyspa golunni held ég.
Brenndur ostur, ég veit ekki hvað gerist en stórkostlegt er það. Ég eeelska... brenndan ost. Þetta er örugglega óhollt úr því það hlakkar í átvaglinu - en ó... gleðin einar. Bráðinn ostur er ekki verri! Ostur og deig.. ostur og deig! *hamingja*
Ohhh... búið!
Kvöldmatur
Bolognese hambó
Ég á engin orð. Engin. Þetta var svakalegur hambó. Semi bolognese sósa. Skar niður hvít- og rauðlauk ásamt púrru og steiki í 30 sek á pam-aðri pönnu. Hellti þarnæst niðursoðnum tómötum frá Ítalíu (enginn sykur, salt...) út á pönnuna og 1 dl vatni ásamt smátt skornum gulrótum, sveppum og papriku. Kryddaði með oregano, basil, steinselju, salti, pipar, cumin, kanil og kóríander. Ffjúhh! Lét malla þangað til þykkt. Hambó púslaði ég saman úr kannski 3 gr. eggjahvítu, 96% hakki og kryddum. Steikti með sósunni og púslaði svo dýrðinni saman!
Sósa á botninn, hambó, ostur, tómatar, rauðlaukur, paprika, meiri sósa og hamborgaralok! Hrmpfh!
Fyrir svefninn
Banana og próteinbúðingur með frosnum jarðaberjum
Frosinn banani hrærður í muss, próteini bætt út í og örlitlu vatni og vanillu. Blandan verður mjög þykk. Jarðaber sett í skál og banana/prótein blöndunni hellt út á. Láta bíða smá í ísskáp þangað til þolinmæðin er á þrotum. Þá étið með áfergju. Gott slútt á massa fínum hleðsludegi.
Niðurtalning er hafin að nýju. Þakkargjörð á laugardaginn, Boston helgina á eftir. Helgina eftir Boston verður líklegast jólahlaðborð og þar á eftir fyrsta fríhelgin í "sumarfríinu" mínu og svooo...
Hleðsludagur | Breytt 24.9.2010 kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.11.2009 | 12:15
Einn einfaldan takk
Oj hvað ég er í mikilli fýlu út í sjálfa mig ákkúrat núna! Af sex máltíðum á hleðsludegi klúðraðist ein sökum óviðráðanlegra aðstæðna, fjarveru frá Gúmmulaðihelli og hráefnaleysis. Iss... se la vi geri ég ráð fyrir, það kemur annar hleðsludagur eftir þennan, en assgoti er þetta hundfúlt!
Þegar ég er að fylgja svaðalegu ofurplani þá vil ég hafa hlutina 110%. Það þýðir í flestum tilfellum að undirrituð á mjög erfitt með að leyfa sér að mæta "óvænt" í matarboð, fá sér kökur í kaffiboðum og er almennt leiðinlega manneskjan sem borðar ekki það sem fyrir hana er lagt. Ekki að reyna að vera viljandi leiðinleg að sjálfösgðu. En þegar mánuður og mánuður er tekinn í senn, þá er það bara svo skammur tími og eitt, tvö.... klikk geta þýtt stórt skarð í árangri. Það er því hér með bannað að hugsa/segja "Ertu virkilega í svo ströngu "aðhaldi" að þú getir ekki borðað hérna með okkur?" um/við fólk sem vill standa sig súper vel í sinni heilsu-/líkamsrækt!
Nóg komið af skömmum og fnasi á þessum annars ágæta sunnudegi! Og nei, þessu er ekki beint að einum eða neinum, bara út í mitt innra sjálf
Morgunmaturinn var eðal. Hafragrautur í sinni einföldustu mynd og eggjahvítupönnsa með jarðaberjum.
Gamli góði klikkar aldrei - hafrar, tvöfalt vatnsmagn (nú eða undanrenna), vanilló, kanill og eitt egg sett í pott og soðið upp. Eggið gerir grautinn mjög fluffy og mjúkan. Kemur reyndar mikið bragð af rauðunni, ef þið fílið það ekki þá er um að gera og bæta smá hunangi/ávöxtum/rúslum... til að sæta upp. Fyrir mitt leiti er það óþarfi.
Annars var fyrrihelmingur hleðsludags með besta móti og næsta hleðsla skal sko ekki klikka! Hún verður föst og slegin næsta fimmtudag, engar undantekningar og allt skráð og skjalfest! Fékk mér hinsvegar kjúklinga panini í kaffinu í gær og það var gott og gleðilegt. Æðisleg balsamic-eplaediks dressing með dijon sinnepi og steinselju fylgdi með samlokunni, átvaglinu til ævarandi hamingju.
Svo er ég loksins búin að finna hafrakökurnar sem ég ætla að hafa í jólapakkanum! Þessar... eru... geggjaðar. Stökkar út í kanntana, mjúkar og karamellukenndar í miðjunni! Ójá! Mjög jákvætt alltsaman. Nú þarf ég bara að finna góðar smákökur sem innihalda súkkulaði í einhverju formi.
Biscotti gerð hefur því hér með formlega verið hleypt af stokkunum. Aðeins að skipta úr smákökugírnum. Verður allt klappað og klárt fyrir bökunarhelgina miklu 18. - 20. des. Jólapakkinn rennur í hlað og kökurnar ennþá heitar! Mmmmm...
Hleðsludagur | Breytt 24.9.2010 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.11.2009 | 14:59
Hleðsludagurinn ógurlegi - fyrsti hluti
Morgunmatur
Bananapönnsugrautur með rommi og rúsínum.
Banani örbylgjaður í muss og bætt út í vel kryddaðan pönnsugraut. Rommdropar komu við sögu. Rúslum stráð yfir, inn í ísskáp og hlakka til að vakna. Þessi var hamingjan einar. Ákkúrat áferðin sem ég var að leita eftir. Þéttur í sér, næstum eins og brauð og ó, svo sætur.
Eftir æfingu
Ristuð beygla með kanilpróteini og Special K krumsi. Óguð!
Hreint prótein blandað mjög þykkt með vatni, kanil og vanilludropum. Beyglan ristuð og próteinið smurt yfir beygluna og látið leka smá ofan í brauðið. Kanil stráð yfir.
Special K krumsi stráð yfir og smá prótein yfir morgunkornið. Þetta var ekkert nema gott. Sætt, stökkt beyglubrauð, karamellukennt kanilprótein og kornflex crunch. *hamingja* Rúsínu og kanilbeygla næst!
Ohhh neiiii ... búið!!
Hádegismatur
Kínanúðlur með krumpueggi og grænmeti.
Síðan ég var peð hef ég alltaf kallað krullaðar núðlur, kínanúðlur. Hádegismaturinn voru því kínanúðlur og krumpuegg með snöggsteiktu grænmeti. Búin að vilja gleypa svona núðlur í mig í óratíma og vá... þessar voru geðbilaðslega góðar þó ég segi sjálf frá!
Fyrst, hita vatn í örbylgju og leysa upp 1 grænmetistening. Setja núðlur í skál og hella smá vatni yfir þær - rétt til að mýkja.
Hita svo 2 tsk soja og 2 tsk hrísgrjónaedik í djúpum botti. Hella þar út á hvítlauk, lauk, skarlot, púrrulauk, engifer og smá chilli. Steikja í um það bil 30 sek.
Bæta því grænmeti út í sem þú vilt nota ásamt rauðum piparflögum. Steikja í nokkra stund í viðbót eða þangað til grænmetið er orðið aðeins mjúkt.
Bæta þá núðlunum út í pottinn ásamt rest af soði (fara eftir leiðbeiningum á pakka), 2 tsk soja, 2 tsk hrísgrjónaedik og ponsulitlu hunangi. Hræra saman þangað til núðlurnar hafa drukkið í sig soðið. Bæta eggjahvítum út í gumsið og hræra saman. Hella í skál, skreyta með t.d. sesamfræjum, kóríander - meira af rauðum chilliflögum. BORÐA!
Jebus, þetta er nóg fyrir heila fjölskyldu...
...og ég át þetta ein!
Shit!
Afsakið orðbragðið!
Hleðsludagur | Breytt 24.9.2010 kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)